Morgunblaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 37 MINNINGAR ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur og bróðir, INDRIÐI PÁLL ÓLAFSSON, Rjúpnasölum 12, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 25. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 6. október kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Edda Guðrún Ármannsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR KARLSSON, Háaleitisbraut 109, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 30. september. Útför hans fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn 9. október kl. 13.00. Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, Björg Harðardóttir, Erpur Snær Hansen, Stefán Karl Harðarson, Úlfur Alexander Hansen, Eldur Antoníus Hansen, Sveinfríður Sigrún Stefánsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, GUÐMUNDUR BIRGISSON Vesturbergi 30, sem lést á heimili sínu 30. september verður jarðsunginn frá Fella og Hólakirku miðvikudaginn 8. október kl 11.00. Gréta Vigfúsdóttir, Birgir Kristján Guðmundsson, Jóna Björg Ólafsdóttir, Inga Vigdís Guðmundsdóttir, Birgir Kristjánsson, Elín Ellertsdóttir, barnabörn og systkini hins látna. ✝ JÓHANNA S. PÁLSDÓTTIR, Þórufelli 12, áður Tjarnargötu 39, Reykjavík, lést mánudaginn 22. september. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Bogi Agnarsson, Þorgerður Jónsdóttir, Páll Thorberg Agnarsson, Sturla Agnarsson og aðrir aðstandendur. ✝ Rafn HafsteinnSkúlasson fædd- ist í Reykjavík 30. nóvember 1947 . Hann lést af slysför- um 21. september síðastliðinn. For- eldrar hans eru Að- albjörg Jónsdóttir sjúkraliði frá Gröf í Gufudalssveit, f. 1926 og Skúli Ólafs- son, deildarstjóri hjá Sambandi ís- lenskra samvinnu- félaga, f. í Hafn- arfirði 1911, d. 1980. Rafn Hafsteinn var elstur fimm systk- ina. Systkini hans eru Steinunn, f. 1951, Jón Hjörtur, f. 1952, Val- gerður Margrét, f. 1957 og Sigríð- ur Rut, f. 1960. Hálfsystir Rafns Hafsteins, samfeðra, er Helga, f. 1943. Sonur Rafns Hafsteins og Lauf- eyjar Þóru Einarsdóttur, d. 1994, er Hlynur Loki, f. 1970. Dóttir hans er Laufey Elísa. Rafn Hafsteinn kvæntist Hall- fríði Ingimundardóttur 1973. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Fjöl- var Darri, f. 1973, kvæntur Önnu Lindu Magn- úsdóttur. Börn þeirra eru Ernir Daði, Magnús Orri og Erna Þurý. 2) Örvar Þorri, f. 1982. 3) Skorri Rafn, f. 1985, í sambúð með Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur. Rafn Hafsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands. Þá var hann löggiltur fast- eigna- og verðbréfasali. Eftir lög- fræðipróf vann Rafn Hafsteinn hjá Olíufélaginu þar til hann setti á stofn fasteignasöluna Kjörbýli í Kópavogi. Síðustu ár vann hann almenn lögfræðistörf hjá Mál- flutningsskrifstofu Skúla Th. Fjeldsted. Rafn Hafsteinn var jarðsunginn frá Fossvogskapellu 29. sept- ember, í kyrrþey. Örlagavefur okkar er marg- slunginn, af leikni ofinn gleði og sorg, ljósi og skugga og þegar vef- urinn þrýtur stöndum við kviknak- in andspænis okkar hæsta herra, og misjafnlega tilbúin. Kallið kom of snemma hjá Rafni Hafsteini Skúlasyni því að einmitt núna var bjartsýnin ríkjandi í vefnum hans sem blandaðist fallegum haustlit- unum. En enginn flýr sitt skapa- dægur, eitt hliðarspor út af þröng- um göngustíg á brún klettóttrar strandar og lífssaga Rafns endaði. Hógværð, skopskyn og glöð lund, gjafmildi og að mæla aldrei hnjóðsyrði um náungann voru að- alsmerki Rafns; ekki einu sinni þegar ómaklega var að honum veg- ið og sparkað í hann liggjandi á erfiðum tímabilum í lífi hans. Aldr- ei vék hann einu ókvæðisorði til viðkomandi. Að sparka ekki á móti gæti borið vitni um veikgeðja lund, svo var þó ekki því að Rafn bjó yfir ómældri fyrirgefningu, hann var sér meðvitandi um breyskleika mannanna barna enda breyskur sjálfur. Lítill hnokki teiknar sig gegnum sorgina og á myndum hans er afi Rabbi meðal allra englanna sem eru svo glaðir að hitta hann. Þetta eru langömmur og langafar sem hafa alla tíð búið uppi á himni síð- an sá stutti leit dagsins ljós og hann er þess fullviss að allir fari saman í englahlaup því að afi er góður langhlaupari. Og víst er það svo að síðasta hlaup Rafns er hafið inn í nýja sögu og sú saga verður skrifuð með fjöðurstaf dýfðum í skin sólar og ljóss. Ég þykist þess fullviss að teikningar sonarsonar okkar séu sannar og get bætt því við að styrk útrétt hönd hafi beðið Rafns þegar hann kom í mark, hönd föður míns og fyrrverandi tengdaföður Rafns til fjölda ára. Faðir minn og klettur okkar beggja í lífinu var án efa besti og einlægasti vinur sem Rafn nokkru sinni eignaðist á lífsleiðinni, að móður sinni og sonum undanskild- um. Lífssaga Rafn Hafsteins er saga mannsins sem missti mikið en átti þó allt í lokin – skilyrðislausa elsku sona sinna og aldraðrar móður sinnar. Okkur Rafni auðnaðist ekki að skrá í sameiningu lífssögu okk- ar til síðasta kafla en þrír mann- vænlegir og góðir drengir okkar bera þá sögu að til einskis var þetta pár okkar ekki, Rabbi minn. Nánustu aðstandendum votta ég samúð mína. Minning um góðan dreng lifir. Hallfríður Ingimundardóttir. Vindurinn skekur tréð úti í garði. Í nótt laust harmafregn nið- ur í það og kveikti bál í greinum þess án þess að nokkur sæi. Ég stend við gluggann í ljósaskiptun- um. Drúpandi berjaklasar nema næstum því við jörð, rauðari en rautt. Sölnað laufið slitnar frá greinunum en í sorg minni finnst mér eitt augnablik sem tréð slitni frá laufinu; það sé óþekkt árstíð í vændum þar sem laufið haggast ekki en trén mynda dimmt þak á himni. Það er nær lagi að sú lukt sem sveiflast í huga mér milli veru og einskis eigi sér enga árstíð, ekki fremur en hvikul minningin. Nú birtir yfir henni. Rafn kom oft á Víðimelinn til að heimsækja systur sína, ég fann fljótt að þar fór maður sem mér líkaði vel við, enda þótt við værum um margt ólíkir. Í fari hans skynj- aði ég sambland af ákefð, kæru- leysi og dálítið sérstakri við- kvæmni sem hann lét sjaldan uppi en var ef til vill kjarninn í skap- gerð hans. Milli þeirra systkina voru traust bönd og samskipti þeirra einkenndust af væntum- þykju hvors í annars garð. Það er sumar og garðurinn stendur í blóma. Við Rafn sitjum að tafli. Grænt laufþykknið hleypir skærustu geislunum gegnum sig, þeir leika um axlir hans, hvítari en hvítt. Við ljúkum skákinni í bróð- erni. Ekki grunaði mig að Rafn ætti svo skammt eftir ólifað sem raun bar vitni. Ég kveð hann með sárum söknuði og votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Sveinbjörn Halldórsson. Kæri bróðir, ég kveð þig að sinni með þessu ljóði og þakka þér fyrir ógleymanlegar stundir. Við leituð- um saman og fundum þann fjár- sjóð sem fyrnist ekki. Endastöð hér ég þá þar sem árnar mætast, þar sem draumarnir rætast … já, hér er ég kominn! hingað sem ég hef streist og svitnað, hingað sem ég hef kúgast og blætt ó hvað sólin er blíð og torgið ljómandi og fólkið hlæjandi af sindrandi gleði … og hér er ég! mmm, ég teyga freyðandi skínandi svalandi hamingju úr glitrandi glasi – og gamall maður gýtur á mig hásum augum og hvíslar kankvís: „ekki lagður af stað ennþá, stráksi?“ (Ísak Harðarson.) Þín systir Valgerður M. Skúladóttir. Stóri bróðir minn, fallegi hið ytra sem innra, er horfinn af sjón- arsviðinu. Maður á besta aldri. Við erum öll felmtri slegin yfir þessu slysi og sviplegu fráfalli hans. Ósjálfrátt koma upp í huga mér myndir af ólíkum hlutum, sem skipuðu heiðurssæti heima hjá Badda og höfðu táknræna merk- ingu fyrir hann. Þeir segja í leið- inni nokkuð um hann. Fyrst er það svarta styttan af hrafninum, en Baddi hafði einmitt þetta hrafn- svarta hár eins og nafni hans. Síð- an er það metersháa styttan af gyðju ástar og fegurðar Afródítu/ Venus, sem hann kom með heim í handfarangri, úr sumarleyfi fjöl- skyldunnar í Grikklandi fyrir ald- arfjórðungi. Að síðustu er það risa- stór rammi uppi á vegg skrautskrifaður með bæninni Fað- irvor á latínu, sem hann var hrifinn af. Ég minnist Badda sem mikils snyrti- og smekkmennis. Í persónu hans var viss næm- og fínleiki. Hann var vandaður til orðs og æðis og hlýr maður. Í lífi okkar allra skiptast á skin og skúrir. Þegar syrti að í lífi hans sýndi hann ótrúlegan andlegan styrk. Baddi sá alltaf til sólar því honum var eðlislæg bjartsýni og jákvæðni. Hann hafði stundum orð á því að það sem einna mestu máli skipti í lífinu, þegar upp væri stað- ið, væri góð heilsa. Lifði hann sam- kvæmt því, hugsaði vel um mat- aræðið og reykti ekki. Hann stundaði mikið hlaup sl. tvo áratugi og hljóp maraþon. Í sumar hafði hann orð á því, er hann hjólaði áleiðis til vinnu sinnar eldsnemma á morgnana meðfram Fossvogin- um, hversu fallegt þar væri. Ég minnist þess er við vorum stödd saman í fjölskylduveislu í sumar að hann, sem var að eðlisfari frekar dulur maður og ekki mikið fyrir að bera tilfinningar sínar á torg, lét fögnuð sinn hátt í ljós yfir sigri landans á ÓL. Slíkur var ákafi og áhugi hans á þessum boltaleikjum. Þannig atvikaðist að Baddi lést á sama degi, fimm árum síðar en Bogga frænka okkar. Hún fór með hann í Hvallátur sem smádreng, en þar dvaldi hann fyrstu sumrin með henni við leik og störf og síðar einn allt fram á unglingsár. Á milli þeirra var alla tíð sterkt samband. Eyjarnar og fólkið þar áttu alltaf mikil ítök í honum. Það hefur ef- laust verið honum gott veganesti í lífinu að hafa dvalið þar og lét hann oft í ljós hrifningu sína á mataræði eyjaskeggja, s.s. selspiki og sjófuglseggjum. Baddi var atorkusamur. Á ævinni átti hann þátt í að byggja 3 hús. Var í minn- um haft hversu harðduglegur hann unglingurinn var er hann hjálpaði til við að byggja hús foreldra okk- ar á Stekkjarflötinni. Við systkinin höfum ætíð gert okkur grein fyrir að einstakt sam- band, sterkt og kærleiksríkt var á milli móður okkar og frumburðar hennar Badda. Þau voru um margt svo lík, bæði að persónugerð og í útliti. Það er ætíð þungbært fyrir foreldra að þurfa að horfa á eftir börnum sínum þó að börnin séu orðin roskin, það stríðir einhvern vegin á móti lögmáli lífsins. Synirnir fjórir voru honum mjög kærir og barnabörn. Kæri bróðir minn, þakka þér samfylgdina. Far þú og hvíl í friði. Blessuð sé minning þín. Sigríður Rut. Minn góði vinur Rafn Hafsteinn Skúlason er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Er það mikill söknuður að fá ekki að njóta áfram þeirra ánægjulegu samvista við hann í framtíðinni, sem við höfum átt allt frá því við kynntumst fyrst í þriðja bekk Menntaskólans í Reykjavík. Hann var jákvæður í öllum sam- skiptum, lá vel orð til annars fólks, alltaf tillitssamur, áhugasamur um allt milli himins og jarðar og bryddaði auðveldlega upp á skemmtilegum umræðuefnum. Rafn var vel á sig kominn, ung- legur og myndarlegur og lagði mikið upp úr að lifa heilsusamlegu lífi og halda sér vel. Hann stundaði hlaup sér til heilsubótar og ánægju og fór ferða sinna oft fram og til baka milli heimilis og vinnu, tug kílómetra, hlaupandi og þreyttist ekki á að segja mér af því hvílíka vellíðan það veitti honum. Nýlega rifjaði hann upp við mig þátttöku sína í maraþonhlaupum, en í þeim tók hann mörgum þátt, og þeir at- burðir veittu honum mikla lífsfyll- ingu. Rafn var mikill fjölskyldu- maður og sonum sínum var hann ekki aðeins góður faðir heldur einnig vinur þeirra og félagi. Af samstarfsfólkinu í Austurstræti 10A er hans þægilegu viðveru og jákvæðu og upplífgandi samskipta sárt saknað og skákáhugamennirn- ir sakna að auki skemmtilegs og verðugs mótherja við skákborðið. Ég bið Rafni blessunar á þeim æðri stað sem hann í mínum huga er nú örugglega kominn til og sannfæring mín um að hugur hans til mín hér sé hinn sami er mér mikill styrkur við fráfall hans. Ég færi fjölskyldunni innilegar sam- úðarkveðjur. Skúli T. Fjeldsted. Rafn Hafsteinn Skúlason Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Takk fyrir allar góðu stund- irnar. Blessuð sé minning þín. Jóhanna. HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.