Morgunblaðið - 05.10.2008, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
RÚMLEGA 300 ungmenni úr grunnskólum
landsins eru nú samankomin á Reykjanesi þar
sem fram fer um helgina stærsta landsmót Sam-
fés, Samtaka félagsmiðstöðva, sem haldið hefur
verið frá upphafi.
Markmið mótsins er að mynda tengsl milli
unglinganna og deila hugmyndum sem hægt er
að nýta í starfi félagsmiðstöðvanna um land allt.
Í gær var boðið upp á ýmsar mismunandi smiðj-
ur, t.d. dans, umræðu, glersmiðju og bakara-
smiðju, sem unglingarnir gátu valið um að taka
þátt í og var afraksturinn sýndur á hátíð-
arkvöldverði um kvöldið. Lögð er áhersla á að
fulltrúar hverrar félagsmiðstöðvar velji sér fjöl-
breyttar smiðjur sem þeir kynni svo síðar í eigin
félagsmiðstöð. Þannig nær landsmótið til fleiri
en bara þeirra unglinga sem sækja það.
Í dag er svo landsþing ungmennaráðs Samfés
þar sem krakkarnir stýra sjálfir umræðum á
opnum vettvangi. Landsmót Samfés hefur
reynst góður vettvangur fyrir nýkosin nem-
endaráð að hefja félagsstarfið. una@mbl.is
Unglingar á umræðufundi
Landsmót Samfés fer fram í Garði um helgina þar sem 310 ungmenni af land-
inu öllu sameinast til að deila hugmyndum og undirbúa félagsstarf vetrarins
Ljósmynd/Víkurfréttir
Smiðjur Söngsmiðjan á landsmóti Samfés var komin í fullan gang í gærmorgun á Suðurnesjum.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FULLTRÚAR aðila vinnumarkaðar-
ins hittust klukkan átta að morgni
laugardags til að ræða um efnahags-
aðgerðir. Eftir fundinn létu þeir lítið
uppi og vildu ekki tjá sig fyrr en
„þetta verður tilbúið.“
Stjórnendur stærstu lífeyrissjóða
og landssambands þeirra funduðu í
gærmorgun og lauk fundinum fyrir
hádegið. Þar var farið yfir stöðu mála
og viðhorf innan sjóðanna könnuð.
Rætt var um fyrirkomulag aðstoð-
araðgerða við íslenskt fjármálakerfi,
ef af verður.
Allir sjóðirnir verði með
Eftir hádegi voru fundir ráðgerðir
í ráðherrabústaðnum, með SA og
ASÍ, fulltrúum stjórnarandstöðu og
fulltrúum lífeyrissjóðanna. Hrafn
Magnússon, framkvæmdastjóri
Landssamtaka Lífeyrissjóða, sagði
samtökin eiga stóran fund með for-
mönnum og framkvæmdastjórum
allra lífeyrissjóða á landinu, klukkan
eitt eftir hádegið. Þar yrðu málin
kynnt enn frekar og farið yfir atburði
vikunnar.
„Við vitum ekki enn hvað þetta eru
miklar fjárhæðir sem stjórnvöld eru
að óska eftir. Við þurfum upplýsingar
um umfang vandans, svo aðgerðir
okkar dugi til langtímastyrkingar
krónunnar. Við leggjum sérstaka
áherslu á að allir lífeyrissjóðirnir taki
þátt. Af hálfu stærstu lífeyrissjóð-
anna er það skilyrði að allir lífeyr-
issjóðir í landinu verði með í þessu.“
Hrafn segir að af þeim samtölum sem
hann hafi átt sé ekki annað að heyra
en að sé skilningur ríki á ástandinu.
Þá verði aðgerðir lífeyrissjóðanna
samstilltar við hugmyndir aðila
vinnumarkaðarins. „Þetta verður
einn heildstæður pakki,“ sagði Hrafn.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fundir Hannes G. Sigurðsson og Vilhjálmur Egilsson frá SA koma til fundar í höfuðstöðvum ASÍ í gærmorgun ásamt Ólafi Darra Andrasyni frá ASÍ.
Fundað stíft um helgina
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og ASÍ, stjórnarandstöðunnar og lífeyrissjóð-
anna ræða við ríkisstjórnina um helgina Heildstæður pakki á að líta dagsins ljós
Mætir Gylfi Arnbjörnsson frá ASÍ.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel og
mikið af mannskap tekið þátt,“
sagði Otti Sigmarsson, talsmaður
stórslysaæfingar í Grindavík, þegar
hún stóð sem hæst í gær.
„Þetta er afbragðsæfing. Veðrið
leikur við okkur. Það heiðskírt og
austangola og veðrið eins og best
verður á kosið á þessum árstíma.“
Líkt er eftir jarðskjálfta sem
skekur Grindavík rétt fyrir klukk-
an átta á virkum degi með þeim af-
leiðingum að hluti grunnskólans
hrynur. Töluverður fjöldi nemenda
er kominn inn í skólabygginguna
en fleiri fyrir utan, á leiðinni inn, að
sögn Otta. Rúmlega 100 björg-
unarsveitamenn frá öllum lands-
hlutum taka þátt í æfingunni, auk
25 slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna. Um 50 unglingar leika sjúk-
linga í hamförunum.
Líkt eftir
skjálfta
Á SAMA tíma og fjármálakreppan
skellur með fullu afli á íslenska
hagkerfinu reyna forystumenn í at-
hafnalífi landsins að gera sem
minnst úr tengslum sínum við Ís-
land. Á þennan veg hefst frétta-
skýring stórblaðsins Financial Tim-
es um frostið á íslenska fjármála-
markaðinum.
Vitnað er til þeirra ummæla Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, stjórn-
arformanns Baugs UK, að fyr-
irtækið standi traustum fótum, þar
sem eignir félagsins, og stór hluti
skulda, séu utan Íslands.
„Þetta er eins og í stríði – óvar-
legt tal getur kostað mannslíf,“ hef-
ur blaðið eftir Don McCarthy,
stjórnarformanni House of Fraser
og fjárfesti í Baugi.
Þá er haft eftir Gunnari Sigurðs-
syni, forstjóra Baugs Group, að fyr-
irtæki félagsins í Bretlandi standi á
traustum grunni.
Keðja Ein verslun House of Fraser.
„Eins og
í stríði“
Þegar bönkum og mörkuðum var
lokað á föstudaginn varð mikið
spennufall í bönkum og fjár-
málastofnunum, drjúgur hluti
vinnudagsins fór í að þjónusta al-
menna viðskiptavini sem voru
uggandi um sinn hag og vildu skýr-
ingar á því hvað væri best að gera.
Viðmælendur tjáðu blaðamanni að
taugarnar hefðu verið ansi
strekktar eftir daginn, fólk hefði í
raun verið úrvinda.
Í bönkunum er nú uppi ákveðin
biðstaða en beðið er eftir því út-
spili stjórnvalda sem nú liggur á
teikniborðinu. Hafa stjórnendur
bankanna fundað með stjórnvöld-
um um helgina.
Spennufall í bönkunum í lok dags
RÍKISSAKSÓKNARA hefur borist
krafa um opinbera rannsókn í Haf-
skipsmálinu. Fréttablaðið greindi
frá þessu og Ragnar Aðalsteinsson
hrl. staðfesti við Morgunblaðið að
erindið hefði verið lagt inn á
fimmtudag. Krafan var gerð fyrir
hönd Björgólfs Guðmundssonar,
Páls Braga Kristjónssonar, Þórðar
H. Hilmarssonar, Helga Magn-
ússonar og ekkju Magnúsar Kjart-
anssonar.
Rannsókn í
Hafskipsmáli
LÖGREGLAN á Suðurnesjum leitar
að ökumanni bifreiðar sem ekið var
á steinvegg við Túngötu í Grinda-
vík í fyrrakvöld. Ökumaðurinn ók á
brott og er hans enn leitað.
Lögreglan biður hugsanleg vitni
að umferðaróhappinu að hafa sam-
band við lögregluna á Suðurnesjum
en í morgun höfðu engin vitni gefið
sig fram við lögreglu.
Ökuníðings
enn leitað