Morgunblaðið - 05.10.2008, Side 11
Oddur vann á leikskóla eftir að
hann kláraði stúdentsprófið. Það átti
ofsalega vel við hann. Hann hefur
mjög gaman af börnum og er áhuga-
samur um þau. Enda er hann í
óvenjulegri stöðu með fimm yngri
systkini! Hann hefur sérstaklega
mikið og gott lag á krökkum.
Ég reyni reglulega að kalla systk-
inin öll saman. Mér finnst gaman að
hafa sem flesta við eldhúsborðið og
elda mikinn mat. Oddur er sjálfur
mjög góður kokkur og hefur áhuga á
matargerð. Oddur er músíkalskur og
eitt af því sem fjölskyldan hefur
gaman af að gera er að syngja og
spila saman. Hann lærði á hljóðfæri,
á píanó og aðeins á harmonikku.
Hann er einn af þeim sem spila
meira eftir eyranu en eftir nótum.
Við höfum verið mikið í Flatey á
Breiðafirði en ég á ættir að rekja
þangað. Svo eyddum við sumrunum í
Hrísey þegar Oddur og Auður voru
lítil. Þar áttum við hús með vin-
ahjónum okkar þannig að þeirra
fyrstu æskuminningar eru áreið-
anlega þaðan. Mér finnst það mikil
gæfa að hafa eytt tíma þarna. Þau
upplifðu mikið frelsi og tækifæri til
að hafa frumkvæði. Í Flatey lærðu
þau til verka með ýmsa hluti og það
verður ekki af þeim tekið. Þau hafa
reynslu víðar en af mölinni. Mér
finnst það mikilvægt að þau hafi
fengið tækifæri til þess. Það er líka
partur af uppeldi að búa barninu
fjölbreytt umhverfi.
Pólitíkin í lífinu
Oddur hafði um tíma áhuga á því
að vera í flokkspólitík. Hann var í
Ungum vinstri grænum um skeið en
fór svo að vinna hjá fjölmiðli og
áherslurnar breyttust.
Ég er þeirrar skoðunar að lífið sé
pólitík og það sé erfitt að komast hjá
því að vera pólitískur í sínu daglega
lífi. Það er pólitík að kaupa innlendar
vörur og stoppa í sokkana sína. Þeg-
ar maður hugsar heiminn svona, þá
eru stöðugar umræður um lífið og
tilveruna, og þar á meðal pólitík,
gegnumgangandi í fjölskyldulífinu.
Oddur er mér mjög mikilvægur
bandamaður þegar herðir að; þegar
róðurinn er þyngri eins og hann hef-
ur verið oft, sérstaklega núna síð-
ustu misserin. Hann er mjög ráða-
góður og mikill sanngirnismaður.
Hann vill réttlæti. Það er hans að-
koma að pólitík þessa dagana. Ég
hef aldrei vitað til þess að það komi
upp eitthvert mál sem Oddur hefur
ekki skoðun á.
Það er líka pólitík, hvernig maður
talar við og umgengst börn. Það er
kannski stærsta verkefnið og það
skiptir máli að maður hafi borið
gæfu til að eiga góð samtöl við börn-
in sín. Mér finnst þetta vera það sem
ég er ánægðust með í tengslum mín-
um við hann og alla mína krakka. Við
höfum alltaf lagt mikla áherslu á að
eiga löng og góð samtöl, þar sem ég
reyni að tileinka mér það að hlusta
ekki minna en að tala. Oft er sýn
þeirra líka fersk og óvænt, ómeng-
aðri af fyrirfram gefnum hug-
myndum. Það er eiginlega nauðsyn-
legt að vera í sterku samtali við börn
alla ævi.
Uppeldi er samstarf milli uppal-
andans og barnsins þar sem báðir
hafa áhrif hvor á annan. Það sem
mér finnst líka stórkostlegt er að
kynnast börnunum sínum sem full-
orðnu fólki. Það er nýr og skemmti-
legur kafli sem við Oddur höfum ver-
ið að fara inn í á allra síðustu árum.
Það er frábært að eiga í slíku vin-
áttusambandi á meiri jafnrétt-
isgrundvelli.“
Morgunblaðið/Ómar
í kringum sig
Oddur Ástráðsson fæddist 7. desember 1984. Hann er sonur Svandísar og
Ástráðs Haraldssonar hæstaréttarlögmanns, sem nú er kvæntur Eyrúnu
Finnbogadóttur tónmenntakennara. Hann á fimm yngri systkini, Auði Ást-
ráðsdóttur, Tuma og Unu Torfabörn og Egil og Snorra Ástráðssyni. Oddur
er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og var þar í sigurliði skólans í
spurningakeppninni Gettu betur. Á menntaskólaárunum var hann formað-
ur ungliðahreyfingar Vinstri grænna í tvo vetur. Frá því í febrúar 2005
hefur hann starfað hjá 365 miðlum, lengst af hjá fréttastofu Stöðvar 2 en
hann er dagskrárgerðarmaður í þættinum Ísland í dag.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 11
Svandís Svavarsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Foreldrar hennar eru
Svavar Gestsson, fyrrv. ráðherra og sendiherra, og Jónína Benediktsdóttir
skrifstofumaður, sem lést úr krabbameini árið 2005. Svandís á tvo yngri
bræður. Hún hefur verið borgarfulltrúi Vinstri grænna frá árinu 2006. Þar
á undan starfaði hún í 12 ár á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrn-
arskertra við rannsóknir og kennslu á táknmálstúlkun og íslensku tákn-
máli. Hún stundaði nám við Háskóla Íslands í almennum málvísindum, ís-
lensku og íslenskri málfræði. Svandís er gift Torfa Hjartarsyni, lektor við
menntavísindasvið Háskóla Íslands.
– bankinn þinn
vaxtaauki!
Allt að vextir ...
...
16,85%
+10%
*S
am
kv
æ
m
t
gi
ld
an
di
va
xt
at
öf
lu
SP
RO
N
21
.s
ep
t.
20
08
.V
ax
ta
au
ki
nn
le
gg
st
in
n
á
re
ik
ni
ng
in
n
um
næ
st
u
ár
am
ót
.
Nýttu þér þetta TILBOÐ og
stofnaðu reikning á spron.is
Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu
fyrir 3. nóvember nk. fá um næstu áramót
10% vaxtaauka á áunna vexti*