Morgunblaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Stórveldi Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is B æjarar eru vanir vel- gengni í fótbolta. Í heimi Bæjara er hins vegar ekki allt eins og það á að vera um þessar mundir. Fyrir viku urðu endaskipti í pólitíkinni þegar CSU missti meiri- hluta, sem flokkurinn hafði haft í um hálfa öld. Og gengi FC Bayern München hefur verið skelfilegt. Í huga Bæjara er gangur himintungl- anna ekki eðlilegur nema stórveldið Bayern sé í fyrsta sæti. Áhorfendur sátu sem lamaðir á heimavelli Bayern á laugardaginn fyrir tveimur vikum. Síðast þegar Brimaborgarar komu í heimsókn fengu þeir 4-1 útreið. Nú hafði dæm- ið snúist við og þegar staðan var orð- in 5-0 fyrir Bremen stefndi allt í mesta ósigur liðsins í áratugi. Tvö mörk Bæjara undir lok leiksins fegr- uðu aðeins úrslitin. Viku síðar hélt niðurlægingin áfram. Hannover 96 á ekki að vera mikil fyrirstaða, jafnvel á útivelli. Hugmyndasnauðir Bæjarar komust hins vegar lítið áleiðis og þegar flaut- að var til leiksloka hafði Hannover unnið 1-0 sigur. Skyndilega sat Bay- ern í 9. sæti deildarinnar. Önugur framkvæmdastjóri „Venjan er sú að við komum hing- að, skorum eitt mark, síðan annað mark, og svo förum við heim,“ sagði Uli Hoeneß, framkvæmdastjóri Bay- ern, ráðþrota eftir leikinn við Hann- over. Þolinmæði hans gagnvart blaðamanninum, sem hafði náð af honum tali, var engin. „Ég hef heyrt gáfulegri spurningar,“ sagði hann snúðugur þegar hann var spurður hvaða afleiðingar tapið myndi hafa. Ekkert lið hefur átt jafn mikilli velgengni að fagna í þýsku knatt- spyrnunni og FC Bayern München. Í fyrra varð liðið meistari undir stjórn Ottmars Hitzfelds. Til að tryggja áframhaldandi velgengni var Jürgen Klinsmann ráðinn til að taka við af honum. Klinsmann var á sínum tíma framherji af guðs náð og lék víða, meðal annars með Ásgeiri Sigurvins- syni hjá Stuttgart og tvö tímabil með Bayern. Þýska landsliðið þótti ganga í end- urnýjun lífdaga undir hans stjórn og leika nútímalegan sóknarbolta í heimsmeistarakeppninni, sem haldin var í Þýskalandi fyrir tveimur árum. Þótt Bayern hafi gengið vel í Þýskalandi hefur liðið ekki náð að halda stöðu sinni sem eitt af fremstu liðum Evrópu. Liðið getur staðið í hvaða andstæðingi sem er, en herslu- muninn hefur vantað og það reynir á þolinmæði eigenda og áhangenda. Klinsmann var ráðinn til að snúa þessu við. Miklar vonir eru bundnar við hann og þeim fylgir pressa. Ergilegt tap Klinsmann reyndi að láta eins og leikurinn gegn Bremen hefði verið slysið, en eftir leikinn gegn Hann- over, sem þar til á laugardag hafði ekki borið sigurorð af Bayern í 20 ár, gat hann ekki brosað. „Þetta var mjög ergilegt tap,“ sagði Klinsmann. „Okkur vantaði mikið upp á til að snúa leiknum við: sköpunarkraft, leikgleði og leik án bolta.“ Staðreyndin er sú að leikur liðsins var skelfilegur og því tókst aldrei að ógna marki andstæðinganna. Bæj- arar áttu sex skot að marki, en ekk- ert þeirra hitti á markið. Hugmyndir Klinsmanns um áferðarfallega sókn- arknattspyrnu þar sem boltinn geng- ur manna á milli hratt upp völlinn eru ekki í neinum takti við leik liðsins, sem þýskir fjölmiðlar kalla nú stein- aldarfótbolta. Bayern lék gegn Olympique Lyon í meistarakeppni Evrópu í vikunni og náði að knýja fram 1-1 jafntefli á úti- velli. Í knattspyrnublaðinu Kicker var spurt hvort þetta bæri því vitni að glasið væri hálftómt eða hálffullt. Klinsmann gæti nú þurft að velta stöðu sinni fyrir sér. Franz Becken- bauer, forseti Bayern, hafði lítinn húmor fyrir sjálfsmarki Martins De- michelis í vörninni hjá Bayern: „Í skólaliði yrði sagt: Stundaðu píanó eða flautu, en ekki fótbolta.“ Í gær, laugardag, áttu Bæjarar leik við Bochum. Úrslitin í þeim leik eru vísbending um það hvort FC Bayern München spólar í sama farinu eða Klinsmann sé að takast að koma hugmyndafræði sinni til skila. Bæjarar valda endurteknum vonbrigðum Reuters Í eldlínunni Frank Ribery, ein af stjörnum Bæjara, reynir að komast áleiðis gegn Olympique Lyon á þriðjudag. Bayern marði jafntefli gegn léttleikandi frönsku liði. Reuters Upp eða niður? Jürgen Klinsmann gengur erfiðlega að koma Bayern München á beinu brautina. Jürgen Klinsmann fer illa af stað og finnur þegar fyrir óþolinmæði Í HNOTSKURN »FC Bayern München hefurorðið Þýskalandsmeistari 21 sinni og bikarmeistari í 14 skipti. »Liðið var stofnað árið 1900og varð fyrst meistari árið 1932. »Liðið átti mikilli velgengniað fagna á áttunda ára- tugnum þegar Franz Becken- bauer var á hátindi ferils síns og varð Evrópumeistari fé- lagsliða þrjú ár í röð, 1974-76. »Á undanförnum 10 árumhafa Bæjarar sjö sinnum orðið meistarar, nú síðast í vor. Orðrómur um að rússneskur mafíuforingi hafi með því að smyrja hjólin með 50 milljónum í ótilgreindri mynt séð til þess að FC Bayern München lá fyrir Ze- nit frá Pétursborg með fjórum mörkum gegn engu í bikarkeppni UEFA í vor hefur hleypt af stað þónokk- urri umræðu, einkum í spænskum fjölmiðlum. Zenit sló Bæjara út úr keppninni og varð síðan meistari. Bæjarar gerðu jafntefli við Zenit á heimavelli, en steinlágu á útivelli og höfðu ekki tapað svo stórt í Evrópubikarnum í 31 ár. Í spænskum fjölmiðlum var því haldið fram að málið væri til rannsóknar hjá dómstólum, en upphaf þess mun vera hleranir hjá rússneskum mafíufor- ingjum á Spáni. Einnig var sagt að Baltasar Garzón, rannsóknardómari á Spáni, hefði gert þýskum yf- irvöldum viðvart. Hvorki þýsk yfirvöld né ráðamenn hjá knattspyrnufélaginu kannast hins vegar við að hafa heyrt um það eftir opinberum leiðum að mál þetta sé til rannsóknar. Leikmenn Bayern tóku þessar fréttir ekki alvar- lega. „Ég fékk ekki neitt, ég get einfaldlega ekki gert mér þetta í hugarlund,“ sagði Miroslav Klose, miðframherji hjá Bayern München og leikmaður þýska landsliðsins. „Sennilega skaut ég vísvitandi ekki almennilega, ég sá bara dollaramerkin.“ Klose sagði að leikmenn liðsins hefðu rætt þennan orð- róm í búningsklefanum og gert grín að málinu. Forsvarsmenn Zenit taka hann hins vegar mun alvarlegar. Rússarnir telja að sér og heiðri leik- manna beggja liða vegið og vilja fá Bæjara í lið með sér til að stefna spænskum fjölmiðlum. Þeir vilja verja orðspor sitt og hafa lögfræðingar þeirra farið yfir fréttir spænskra fjölmiðla um þetta dul- arfulla mál. „Trúið þið því að heims- og Evrópumeistarar á borð við Kahn, Klose, Zé Roberto og Lucio láti kaupa sig?“ spurði Vitali Mutko, íþróttamálaráð- herra Rússlands. Það þykir flestum ólíklegt. Undarleg umræða um rússnesku mafíuna og mútur Tímamót Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Eina vikuna lék hann með skólaliðisínu fyrir framan tuttugu mann-eskjur og hund. Þá næstu fyrirframan átján þúsund áhorfendur í næstefstu deild í Englandi. Reuben Noble- Lazarus varð í vikunni yngsti leikmaðurinn í sögu ensku knattspyrnunnar þegar hann kom inn á í lið Barnsley gegn Ipswich Town á Portman Road, fimmtán ára og 45 daga gam- all. Þar með bætti hann met Alberts Geldards, Bristol Rovers, um 113 daga en það hafði staðið allar götur frá árinu 1929. Var raunar jafnað af Ken nokkrum Roberts, Wrexham, árið 1953. Noble-Lazarus, sem er sóknarmaður, var ljóst að hann væri yngsti leikmaðurinn í sögu Barnsley en það var ekki fyrr en hann fór að lesa leikskýrslur á netinu um kvöldið að hann áttaði sig á því að hann hafði ritað nafn sitt í sögubækurnar. „Þetta kom mér í opna skjöldu. Það er meira að segja grein um mig á Wikipediu. Þetta er hálfvandræðalegt allt saman,“ sagði hann við enska fjölmiðla við fyrsta hanagal daginn eftir. Þá var hann sestur á skólabekk með jafn- öldrum sínum enda þótt hann hafi ekki verið kominn í rúmið fyrr en kl. 4 um nóttina eftir ferðina frá Ipswich. „Mamma tekur ekki í mál að ég missi úr skóla.“ Noble-Lazarus er enn of ungur til að þiggja laun hjá Barnsley en fékk flatbökusneið að launum í liðsrútunni á leiðinni heim eftir eldskírnina. „Mér var lofað flatböku og sam- loku en það var bara flatbaka,“ segir hann glottandi og bætir við að liðsfélagarnir hafi tekið sér vel. Foreldrar hins nýbakaða methafa, Bridget Noble og Roy Lazarus, voru á Portman Road ásamt bróður hans, Kurtis, sem er ungmenna- þjálfari hjá Barnsley. „Kurtis kynnti undra- heim fótboltans fyrir mér og er boðinn og bú- inn að gefa mér góð ráð,“ segir ungstirnið. Þetta var í fyrsta skipti sem Noble-Lazarus blandaði geði við aðallið Barnsley, hvað þá að hann léki með því, en nú hefur verið búið svo um hnúta að hann æfi með því tvisvar í viku. Að því gefnu að hann verði búinn með heima- vinnuna sína! Knattspyrnustjóri Barnsley, Simon Davey, hefur óbifandi trú á piltinum. „Ég var ung- lingaliðsþjálfari hér fyrir tveimur árum og valdi hann þá tólf ára gamlan í lið skipað leik- mönnum átján ára og yngri,“ segir hann. „Hann stóð sig með prýði gegn Ipswich. Hélt boltanum vel. Hann skoraði þrennu fyrir ung- lingaliðið um liðna helgi og séu menn nógu góðir eru þeir nógu gamlir.“ Raunar hafði Davey áform um að tefla Noble-Lazarus fram í deildabikarleik í síð- asta mánuði en lenti þá á rauðu ljósi. Leik- menn sem ekki eru orðnir fimmtán ára eru ekki gjaldgengir í ensku knattspyrnunni. Da- vey lofar þó að leggja ekki of þungar byrðar á unga manninn. „Hann er bara fimmtán ára og það er skylda okkar að hlúa vel að honum. Hann verður notaður sparlega fyrst um sinn.“ „Í dag sá ég framtíðina. Framtíðin er Reu- ben Noble-Lazarus,“ hafði ónefndur aðdáandi Barnsley á orði á dögunum. Nú er bara að bíða og sjá hvort hróður hans verður meiri en Alberts Geldards og Kens Roberts. Fékk flatböku að launum Yngstur Reuben Noble-Lazarus á fleygiferð með Barnsley gegn Ipswich Town í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.