Morgunblaðið - 05.10.2008, Page 56

Morgunblaðið - 05.10.2008, Page 56
SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2008 Heitast 6° C | Kaldast 0° C  Suðvestan 8-15 m/s og dálítil rigning á vestanverðu landinu en hægara og bjart veður austan til. » 8 ÞETTA HELST» Tekist á um ESB  Á minnisblaði, sem ASÍ lagði fram á fundi með aðilum vinnumarkaðar- ins í fyrrakvöld, var lagt til að stefnt yrði að aðild „að ESB og upptöku evru svo fljótt sem auðið er“. Sagt er að viðbrögðin við tillögunni hafi ver- ið með ýmsum hætti. » Forsíða Sækja á Landsvirkjun  Hlutdeild Landsvirkjunar í raf- orkuvinnslunni fór úr 93% í 72% á tíu árum en frá árinu 1997 hefur orkuframleiðslan aukist um 60%. Á þeim tíma hefur vinnsla jarð- varmavirkjana OR og HS tífaldast. » 4 Margar bændakirkjur  Í Skagafirði er nú verið að skrifa kirkjusögu héraðsins upp á nýtt en ljóst er að eftir að kristni komst á og fram undir 1300 voru þar kirkjur nærri á öðrum hverjum bæ. Þær voru svokallaðar bændakirkjur en lögðust af er sóknarskipulagi var komið á. » 6 Fjárlögin fyrir næsta ár  Fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár liggur nú fyrir Alþingi en sam- kvæmt því munu útgjöld ríkisins hækka um 46,9 milljarða króna. Er því þó spáð að vegna samdráttarins í efnahagslífinu muni tekjur ríkisins lækka um 13 milljarða króna. Per- sónuafsláttur hækkar um 24.000 kr. og tekjuskattur fyrirtækja lækkar í 15%. » 28 Bændur í vanda  Margir bændur eiga í erfiðleikum um þessar mundir og eru þeir farnir að leita sér aðstoðar og ráðgjafar hjá Bændasamtökunum. Dæmi eru um áttfaldar heildarskuldir á við árs- veltu sama bús en í venjulegu árferði er talið að meðalbú þoli fjórfaldar skuldir á við ársveltu. Aðföng til bú- reksturs hafa hækkað mikið að und- anförnu. » 30 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Flakkað um töfraheima Indlands Staksteinar: Skynsamleg pólitík? Forystugrein: Ofurlaunaliðið UMRÆÐAN» Kveðja til frú Ástu Möller Sínum augum lítur hver á silfrið Norðurlandasamstarfið – brú Ís- lands til alþjóðasamfélagsins TÓNLIST » Steed Lord þeytist um veröld klúbbanna. » 46 Reggí-sveitin Hjálmar boðar fagn- aðarerindi reggísins á þrennra tónleika ferðalagi um Rúss- land. » 51 TÓNLIST » Aftur til USSR KVIKMYNDIR » Bestu kvikmyndir RIFF að mati Moggans. » 52 TÓNLIST » Hvað í ósköpunum er portúgalskt fado? » 48 Breski myndlist- armaðurinn Marc Quinn hefur nú gull- slegið fyrirsætuna og tískuíkonið Kate Moss. » 50 Allt er gull sem glóir FÓLK » reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Róbert Wessman vill Glitni 2. Blikkandi gemsar í þingsalnum 3. Icelandair kynnir nýtt farrými 4. Aðeins í örugga höfn Borgarleikhúsinu Fólkið í blokkinni VINNINGSHAFINN sem var svo heppinn að vinna 13 milljónir í bón- usvinningi Víkingalottósins sl. mið- vikudag er búinn að gefa sig fram við Íslenska getspá. Að sögn Stefáns Konráðssonar, framkvæmdastjóra Íslenskrar get- spár, var sá heppni Borgfirðingur í þetta skiptið og keypti hann mið- ann í Hyrnunni þegar hann stopp- aði þar til að kaupa bensín og lét sölukassann velja raðirnar. Þegar í ljós komu 5 réttar tölur auk vinn- ingstölu brunaði maðurinn í bæinn og var að eigin sögn mjög stress- aður alla leiðina um að einhver mis- skilningur væri á ferðinni. Svo var hinsvegar ekki og hann sneri aftur heim alsæll og 13 milljónum ríkari. Vinningurinn er að sjálfsögðu vel þeginn á krepputímum og kemur sér ekki síst vel þar sem maðurinn byggði sér nýlega hús sem hann er enn að greiða niður. una@mbl.is Borgfirðingur vann 13 milljónir í bónusvinning FUGLAVERND minnir á smá- fuglana nú þegar vetur brestur á af fullum þunga. Þurfa fuglarnir fjöl- breytta fæðu en bent er á að hver tegund hafi sinn matseðil. Fita hentar þó flestum fuglum vel í kuld- anum. Fyrir þresti, starra og hrafna má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag og matarafganga. Mælt er með kurluðum maís og hveitikorni handa snjótittlingum. Nauðsynlegt er að gefa fuglunum reglulega. Munum eftir smáfuglunum Morgunblaðið/Ómar Kuldi Hart í ári hjá smáfuglunum sem mannfólkinu þessa dagana. Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is TÖLUVERÐ umferð var við opnun nýs 38.000 fermetra verslunarkjarna við Korputorg í Grafarvogi um átta- leytið í gærmorgun. Margir létu sig hafa það að rísa snemma úr rekkju á köldum laugardagsmorgni til að nýta sér þau opnunartilboð sem í boði voru og myndaðist röð fyrir ut- an áður en opnað var inn. „Ég er að kaupa jólagjafirnar,“ sagði Hildur Tryggvadóttir, sem blaðamaður rakst á við leikfangahill- una í Rúmfatalagernum. „Maður verður að nýta tækifærið og reyna að hafa þær ódýrar svona einu sinni.“ Fleiri reyndust vera í sömu hugleiðingum og virtust leikföng raunar vera það sem helst rataði í kerrurnar hjá fólki, sem var forsjált og hafði jólagjafir barna og barna- barna í huga. Mest var að gera í nýrri verslun leikfangarisans Toys ’R’ Us þar sem raðir voru á öllum kössum, þótt ekki væri það neitt í líkingu við hama- ganginn þegar fyrsta Toys ’R’ Us búðin var opnuð við Smárann í Kópavogi í október 2007. Þá var enda tíðarandinn annar en kreppan virðist þó enn ekki hafa slegið á eftirspurnina eftir leikföngum. Þorvaldur Þorláksson, forstjóri fasteignafélagsins SMI sem byggði Korputorg segist ánægður með við- tökurnar fyrstu klukkustundirnar. „Þetta er svona í takt við það sem við áttum von á. Það kom ákveðinn hvellur í byrjun, fyrstu raðirnar byrjuðu að myndast upp úr klukkan sjö í morgun og svo hefur verið mjög jafn straumur af fólki síðan.“ Efna- hagslægðin breytti nokkuð upphaf- legum áformum um Korputorg og stendur um fjórðungur húsnæðisins enn tómur. Þorvaldur segir þó kreppuna ekki hafa bitið á þá þenn- an fyrsta verslunardag. „Allavega kemur fólkið, það vantar ekki. Það virðist enn vera vænting eftir nýjum vörum og greinilegt að landinn hefur byrjað jólainnkaupin.“ Morgunblaðið/hag Biðlund Það var eins gott að vera vel klæddur gegn kuldanum í biðröðinni sem myndaðist skömmu fyrir opnun nýrrar verslunar Toys ’R’ Us. Kaupmáttur er ekki þorrinn Biðröð myndaðist við opnun nýrrar verslunarmiðstöðvar í Korputorgi Afsláttur Ýmis girnileg opnunartilboð var að finna í leikfangaversluninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.