Morgunblaðið - 07.10.2008, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Neyðarlög á Íslandi
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FORSVARSMENN atvinnurek-
enda og launþega segja að nú sé
mikilvægast að tryggja bankaþjón-
ustu á næstunni og að greiðsluþjón-
usta bankakerfisins gangi eðlilega
fyrir sig. Það sé lífsspursmál fyrir
fólk og fyrirtæki í landinu.
Viðmælendur í gærkvöldi voru á
einu máli um að fátt væri hægt að
segja á þessari stundu um hvernig
almenningur og atvinnulífið mundi
finna fyrir áfallinu á næstu dögum.
„Ef illa fer fyrir einhverjum bönk-
um hefur það áhrif út um allt enda er
bæði fólk og fyrirtæki hluthafar í
bönkunum. Á þessu stigi er hins
vegar ekkert hægt að segja fyrir um
þetta,“ segir Friðrik J. Arngríms-
son, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Það
sem þarf að gera er að slá ákveðinn
hring utan um íslenskt atvinnulíf og
íslensk heimili. Þannig að við fáum
eðlilega bankaþjónustu og öll
greiðslukerfi séu gangandi, og við
getum borgað okkar reikninga og
fengið okkar laun,“ sagði Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins við fréttavef
Morgunblaðsins mbl.is í gær. Ís-
lendingar muni komast í gegnum
þetta með því að halda hjólum at-
vinnulífsins gangandi.
Krónan í frjálsu falli
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, bendir á að
óvissan sé mikil, og menn viti ekki á
þessari stundu hvernig heimildir
væntanlegra neyðarlaga verði nýtt-
ar og hversu langt verði gengið í
nýtingu þeirra heimilda. „Hér er um
grafalvarlegt mál að ræða. Við verð-
um að nota næstu daga og kannski
viku til að átta okkur á umfanginu.
Það er mjög mikilvægt að ríkis-
stjórnin fái heimildir til að geta
tryggt að hjól atvinnulífsins haldi
áfram að snúast. Það verður að
tryggja að þetta hafi sem minnst
áhrif á greiðslukerfi landsins. Fjár-
málakerfið okkar hér innanlands er
gangverk hagkerfisins og áhersla
verður lögð á það næstu daga að það
virki. Við munum að sjálfsögðu
leggja því allt það lið sem við get-
um,“ segir Gylfi.
Hann segir ekki hægt að svara því
á þessari stundu hver áhrifin verða á
kjör þjóðarinnar, en telja megi víst
að þau geti orðið alvarleg. „Fyrst og
fremst skiptir máli núna að lág-
marka skaðann og halda starfsem-
inni gangandi,“ segir hann.
Spurður hvort gera megi ráð fyrir
að kaupmáttur launa minnki á næst-
unni og kjörin versni segir Gylfi
mjög mikilvægt að tryggja að
greiðslukerfin gangi eðlilega fyrir
sig. „Ef okkur tekst það eru verð-
mæti og tækifæri til staðar hér á
landi sem gera okkur kleift að vinna
okkur út úr þessu. Ef greiðslukerfin
og gjaldeyrismarkaðirnir komast í
samt lag sem fyrst er hægt að ráðast
í að reyna að færa gjaldmiðilinn okk-
ar nær því sem undirliggjandi er. Í
augnablikinu er hann í frjálsu falli
vegna takmarkaðra viðskipta og
skorts á erlendu fé,“ segir Gylfi.
Vaxtalækkun eins og skot
„Á undanförnum dögum og vikum
hefur nánast verið algjört stopp
bæði frá fjármálstofnunum inn í
fyrirtækin og hreinlega á milli fyrir-
tækjanna, sem hafa haldið að sér
höndum,“ segir Jón Steindór Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka iðnaðarins. „Það er augljóst að
það verða margir fyrir búsifjum.“
„Það er mjög mikilvægt í næstu
skrefum að koma peningum í um-
ferð. Það hefur verið peningaþurrð.
Við þurfum að koma krónunni í um-
ferð og við þurfum að fá mjög mynd-
arlega vaxtalækkun eins og skot.
Það þarf að skera vextina niður um
a.m.k. helming ef ekki meira til þess
að menn geti tekið peninga að láni.
Við verðum að koma þessu súrefni
út í atvinnulífið,“ segir hann.
Margir verða fyrir búsifjum
Mikilvægast fyrir fólk og fyrirtæki að
tryggja greiðslu- og bankaþjónustu
Morgunblaðið/Kristinn
Óvissa Flestir telja að nú sé brýnast að tryggja eðlilega bankaþjónustu.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAÐ er nánast sama hvar borið er
niður í heimspressunni: Alls staðar
er mikið fjallað um inngrip íslenska
ríkisins í þá stöðu sem upp er komin
á íslenska hlutabréfamarkaðnum.
Vikið er að þeirri ákvörðun ríkis-
ins í breska dagblaðinu Daily Tele-
graph að loka fyrir viðskipti með
bréf í sex bönkum landsins, sem sé
„mesta ógnin gagnvart peningalegu
sjálfstæði nokkurs ríkis frá því láns-
fjárkreppan kom upp fyrir fjórtán
mánuðum“.
Vitnar blaðið til þeirra orða Geirs
H. Haarde forsætisráðherra að lík-
ur séu á að bresk smásölufyrirtæki
verði fyrir áhrifum af röskunum í
rekstri Kaupþings.
Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallar
ítarlega um fall íslenska hlutabréfa-
markaðarins í fréttaskýringu um Ís-
land, Bretland, Danmörk, Írland,
Belgíu, Þýskaland, Grikkland og
hvernig ríkisstjórnir þessara ríkja
hafi brugðist við efnahagsdýfunni.
Er þar haft eftir Geir að neyðar-
lögin séu liður í að forða Íslandi frá
þjóðargjaldþroti.
Almennt má segja að bresku blöð-
in fylgist náið með þróuninni hér.
Fylgjast með eignum á Íslandi
Eignir erlendra fjárfesta á Íslandi
hafa einnig verið gerðar að umtals-
efni á síðustu dögum.
Á vef Market Watch er vikið að
hlutabréfaláni norræna fjárfesting-
arbankans Carnegie í íslenskum
krónum, sem sé tryggt með íslensk-
um ríkisskuldabréfum.
Þá gerir sænska fjármálaeftirlitið
ráð fyrir að íslenska ríkið muni
koma Kaupþingi til bjargar, gerist
þess þörf, líkt og gert var með Glitni
á dögunum, að því er kemur fram á
vef dagblaðsins Dagens Industri.
Hefur eftirlitið skoðað hve
áhætta sænska fjármálakerfisins er
mikil vegna ástandsins hér á landi.
Segir Masih Yazdi, áhættugreinir
hjá fjármálaeftirlitinu sænska, að
eftirlitið hafi ekki áhyggjur af
sænskum dótturfélögum Glitnis og
Kaupþings.
Stórfyrirtækið Century Alumin-
um, móðurfélag Norðuráls, sér
ástæðu til að gefa út yfirlýsingu um
að fjármögnun umsvifa fyrirtækis-
ins á Íslandi sé tryggð og að ástand-
ið á mörkuðum hér hafi engin áhrif
á uppbyggingu álversins í Helguvík.
Allra augu
á Íslandi
ÞAU Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Björn
Bjarnason og Geir Haarde kusu um nýtt frum-
varp um fjármálamarkaði þegar leið að miðnætti
í gærkvöldi. Af 63 þingmönnum voru 62 við-
staddir og er óvanalegt að svo margir séu við at-
kvæðagreiðslu. 50 þingmenn greiddu atkvæði
með lögunum í heild en þingmenn Framsóknar-
flokks sátu hjá um nokkur ákvæði og þingmenn
Vinstri grænna og Frjálslyndra sátu hjá.
Þéttsetinn þingsalur í atkvæðagreiðslu
Morgunblaðið/Golli
Ný lög um fjármálamarkaði staðfest
gengisvísitalan hafi farið nærri 300
stigum.
Formlegar tölur Seðlabanka Ís-
lands segja að gengisvísitala krón-
unnar standi nú í rúmum 207 stigum
og hafi því aðeins veikst um tæpt eitt
prósent. Tölur á vefsíðum viðskipta-
bankanna gefa hins vegar upp geng-
isveikingu upp á 11,6% eða meira og
að gengisvísitalan hafi endað í rúm-
um 230 stigum. Á fréttavef Bloom-
berg er gengisvísitalan sögð standa í
235 stigum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er hins vegar grár markað-
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ALGER glundroði virðist einkenna
markaði með íslensku krónuna og er
í raun ómögulegt að sjá hvert gengi
hennar er gagnvart erlendum gjald-
miðlum. Lítil viðskipti voru með
krónur, einfaldlega vegna þess að
þeir eru fáir sem eru tilbúnir að láta
erlendan gjaldeyri í skiptum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
fór gengi evru tímabundið í 250
krónur í einstökum viðskiptum er-
lendis í gær, sem jafngildir því að
ur með krónur, þar sem kjör eru
mun verri en þessar tölur gefa til
kynna. Hvert einstakt tilfelli hafi
verið metið fyrir sig og hafi fyrirtæki
í útflutningi til dæmis átt auðveldara
með að kaupa erlendan gjaldeyri en
aðrir.
Viðmælendur Morgunblaðsins
segja að staða krónunnar á erlend-
um gjaldeyrismörkuðum sé enn
verri en hér á landi því að þar vilji
enginn kaupa krónur. Kaupgengi á
evrum sé þar um 200 krónur og sölu-
gengi í kringum 220 krónur. Er stað-
an nú sögð sú að fyrirtæki séu ekki
lengur að kaupa gjaldeyri til að verja
eigið fé sitt, heldur einfaldlega til að
geta haldið áfram rekstri.
Algjör glundroði einkennir
gjaldeyrismarkaðinn
Erfitt að sjá hvert gengi krónunnar er Gengi evru fór allt upp í 250 krónur
Í HNOTSKURN
»Lítill sem enginn erlendurgjaldeyrir er til aflögu við
núverandi aðstæður.
»Fáir fást til að kaupa krón-ur og er búist við frekara
gengisfalli á næstunni.