Morgunblaðið - 07.10.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Fjármálaeftirlitið fær samkvæmtneyðarlögunum, sem samþykkt
voru á tólfta tímanum í gærkvöldi,
víðtækar heimildir til íhlutunar í ís-
lenskt fjármálalíf. Því er ætlað að
leika mikilvægt hlutverk í því að
koma Íslandi út úr fjármálakrepp-
unni.
Ábyrgð Fjármálaeftirlitsins verð-ur því mikil á næstu vikum og
mánuðum.
Margir spyrja sig nú hvort Fjár-málaeftirlitið hafi sofið á
verðinum í aðdraganda fjármála-
kreppunnar.
Einnig má spyrja hvort heimildirFjármálaeftirlitsins hafi verið
nógu víðtækar eða nógu mikið að-
hald í regluverki fjármálamark-
aðanna til að það gæti haft áhrif á
það, sem var að gerast í fjármála-
fyrirtækjunum.
Margir ráku upp stór augu þegarFjármálaeftirlitið fann ekkert
athugavert við það hvernig haldið
var utan um sparnað þeirra, sem
settu peningana sína í Sjóð 9 hjá
Glitni.
Þar hafði framlag sparifjáreig-enda verið notað til þess að
kaupa skuldabréf í illa stæðum eig-
endum bankans.
Fjármálakreppan sýnir mikilvægiþess að hafa öflugt eftirlit. Það
þarf bæði að hafa heimildir og bol-
magn til að athafna sig.
Eftir þá orrahríð, sem nú blasirvið Fjármálaeftirlitinu, má bú-
ast við að fram komi ný stofnun og
öflugri en áður.
STAKSTEINAR
Ábyrgð fjármálaeftirlitsins
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
"
#$ $#
%%# $$&
%%# $$&
#$ $#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? ' ' ' '
' '
' ' ' ' ' ' '
*$BC
!"#
*!
$$B *!
() * % %) % ! +
<2
<! <2
<! <2
(! * $#%, $&-%.#$/
D!-
/
$ %
&'
(
* # +,% <
87
*
*
%- .
01##%%22 $# %%3 %, $&
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
ANGIST og kvíði er hlutskipti
margra um þessar mundir, ritaði
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, á vefinn kirkjan.is í gær. Hann
sagði jafnframt ljóst að þröngt gæti
orðið í búi hjá einstaklingum og fjöl-
skyldum á næstu mánuðum. Biskup-
inn hvatti til samstöðu og umhyggju
á erfiðleikatímum og beindi þeim til-
mælum til presta og djákna Þjóð-
kirkjunnar að vera vakandi fyrir
þessum vanda og hvernig hann hefur
áhrif á andlega líðan fólks sem lendir
í efnahagslegum þrengingum.
Biskup minnti
á að „Pétur post-
uli hvetur okkur
til að varpa öllum
áhyggjum okkar
á Drottin, því
hann ber um-
hyggju fyrir okk-
ur. Áhyggjur
okkar ber um-
hyggja hans. Í
þeim faðmi er
okkur óhætt“. […]
„Kreppa er líka tækifæri, oft er
minnt á það. Nú fá ríki heims og fjár-
málastofnanir og einstaklingar tæki-
færi til að endurskipuleggja sig með
visku hagsýni og hófsemi og um-
hyggju að leiðarljósi.
Tungumál óttans hefur verið yfir-
gnæfandi undanfarið. Nú skulum við
tala tungumál umhyggjunnar og
sýna umhyggju um lífið, um jörðina,
um hið viðkvæma og brothætta líf,
börnin, þá sjúku og hin öldruðu. Og
við skulum beina athygli að auðlegð-
inni og verðmætunum sem eilíf eru
og aldrei falla í gildi. Það er svo ótal-
margt að gleðjast yfir og þakka í
okkar góða samfélagi. Við höfum
sem þjóð áður glímt við hamfarir og
hörmungar. Aldrei höfum við verið
betur stödd til að takast á við afleið-
ingar og vinna okkur úr vanda.“
Jafnframt hvet ég söfnuði landsins
til að bregðast við með þeim andlega
stuðningi og sálgæslu sem er á
þeirra færi, að opna kirkjurnar til
samverustunda og fyrirbæna, minna
á kyrrðarstundir sem víða eru í
kirkjum landsins á virkum dögum
sem og annað helgihald.“
Angist og kvíði er hlutskipti margra
Karl Sigurbjörnsson biskup hvetur presta og djákna Þjóðkirkjunnar til að vera
vakandi fyrir yfirstandandi vanda og hvernig hann hefur áhrif á andlega líðan fólks
Karl
Sigurbjörnsson
ÁKVEÐIÐ hefur verið að auðkenna
íslenskar sjávarafurðir sem unnar
eru úr afla í íslenskri lögsögu með
séríslensku merki. Þetta merki vísar
til íslensks uppruna afurðanna og
ábyrgra fiskveiða. Heimilt verður að
nota það á öllum mörkuðum fyrir
sjávarafurðir. Merkið má jafnframt
nota á afla íslenskra fiskiskipa úr
deilistofnum sem lúta heildar-
stjórnun. Merkið verður tilbúið til
notkunar síðar í þessum mánuði og
munu framleiðendur, sem þess óska,
geta prentað það á umbúðir sam-
kvæmt reglum, sem um notkun
merkisins gilda.
Á undanförnum árum hafa kröfur
um sjálfbæra nýtingu endurnýj-
anlegra auðlinda, þ. á m. fiskistofna,
aukist um allan heim. Það á ekki síst
við um helstu markaði íslenskra
sjávarafurða. Fáar þjóðir eru eins
háðar því að arðbærar fiskveiðar
verði stundaðar til frambúðar og Ís-
lendingar, segir í kynningu á merk-
inu. „Því er það lykilatriði fyrir Ís-
lendinga að fiskistofnar séu nýttir á
ábyrgan og sjálfbæran hátt“.
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
hafa jafnframt ákveðið með fulltingi
stjórnvalda að óska eftir vottun
óháðs og alþjóðlega viðurkennds,
faggilts vottunaraðila til að staðfesta
ábyrgar fiskveiðar Íslendinga.
Vottunaraðili mun vinna eftir
kröfulýsingu, sem byggist á leið-
beiningum FAO, Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, um verklag við vottun og
merkingar afurða úr sjálfbærum
fiskistofnum.
Framkvæmd verkefnisins er í
höndum Fiskifélags Íslands.
Íslenskt merki fyrir
ábyrgar fiskveiðar
Í HNOTSKURN
»Íslenskt merki um ábyrgarfiskveiðar Íslendinga var
kynnt á Íslensku sjávarútvegs-
sýningunni um helgina.
» Merkið er markaðstækifyrir framleiðendur sjáv-
arafurða og viðbrögð við kröf-
um markaða um að sjávaraf-
urðir komi úr fiskistofnum,
sem nýttir eru á ábyrgan hátt
LÖGREGLAN leitar nú tveggja
manna sem eru grunaðir um rán og
líkamsárás á Laugavegi aðfaranótt
sunnudags. Sömu nótt rændu tveir
menn tösku af konu á Hverfisgötu.
Þeir sem búa yfir upplýsingum
um mennina á myndinni eru beðnir
að hafa samband við lögregluna í
síma 444-1100.
Ljósmynd/Lögreglan
Leit Lýst er eftir þessum mönnum.
Tveggja
manna leitað