Morgunblaðið - 07.10.2008, Qupperneq 19
þokkalega sterkur til að geta sýnt
hinar ýmsu fimleikakúnstir. En
gleðin er líka við völd enda voru
allir sammála um að þetta væri
fyrst og fremst gaman, því sirkus
er fjölbreytt fyrirbæri þar sem
hver og einn getur fundið sitt svið.
Þar er líka húllað, griplað og spúð
eldi, svo fátt eitt sé nefnt. Sumir
játuðu að gaman væri að sýna
kúnstir í samkvæmum, til dæmis
væri mjög vinsælt að stafla fólki
og búa til mennskan píramída.
Jafnvægi Lee jafnvægisstillir Hörpu sem er einbeitt.
www.sirkusskoli.is
Íslandi til frambúðar eins
og Lee sem ætlar að halda
áfram með íslenska sirk-
ushópinn og draumurinn er
að úr verði alvöru Íslands-
sirkus. „Ég er kominn með
sterkan hóp og við æfum
markvisst.“
Mennskir píramídar
Harkan sex ríkir í salnum
þar sem sirkushópurinn hitt-
ist fjórum sinnum í viku, rúma
tvo tíma í senn. Þau svitna ær-
lega við æfingarnar sem eru þó
nokkurt púl, enda þarf að vera
Á hvolfi Mikið er um fettur og
brettur og Lee lætur sig ekki muna
um að halda þessum á lofti.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 19
Góð laxveiði var í Húnaþingi sum-
arið 2008. Vel veiddist í Miðfjarð-
ará, veiði lauk seint í september
eftir þriggja mánaða vertíð og
hafði þá um 1.740 löxum verið
landað. Veitt er á tíu stengur á
laxasvæði og þrjár á silungasvæði,
en á því svæði er alltaf nokkur lax-
avon. Þetta var síðasta ár með
samningi veiðifélagsins við Laxá
ehf. að sinni, þar sem nýr leigu-
taki, FHD ehf., verður með ána
næstu ár. Þá verður veitt á allt að
tólf stengur á laxasvæði, eingöngu
á flugu, stórlaxi sleppt og einnig
öllum laxi veiddum eftir 10. sept-
ember ár hvert. Í Víðidalsá veidd-
ust 1.455 laxar, þar var mikið af
stórlaxi sleppt og á vef Laxár ehf.
er veiðimönnum sérstaklega þökk-
uð góð samskipti. Þar er einnig
gjöfult silungaveiðisvæði en tölur
um veiði ekki aðgengilegar. Hrúta-
fjarðará skilaði á land um 400 löx-
um og 160 bleikjum, veitt er frá
byrjun júlí til septemberloka. Í
hinni litlu og skemmtilegu
Tjarnará á Vatnsnesi veiddist 71
lax á 45 dögum á eina stöng sem
telst mjög gott, þar brást bleikju-
veiðin hins vegar nánast alveg.
Magnús Freyr Jónsson hjá Slát-
urhúsi KVH ehf. segir félagið muni
slátra rúmum 70 þúsund fjár í
haust. Slátrað var tvisvar í ágúst,
en hefðbundinni sauðfjárslátrun
lýkur í lok október. Trúlega verður
nokkur slátrun í nóvember og des-
ember. Fé kemur allt frá Mið-
Suðurlandi og vestur um og aust-
ur. Dagsslátrun er nú 2.400 kindur
og vinna 90 – 100 manns í húsinu
um sláturtíðina, þar af verulegur
hópur útlendinga. Féð er vænna en
á liðnu hausti, um 17 kg með-
alþungi sem er yfir landsmeðaltali.
Engar birgðir voru af lambakjöti
frá liðnu ári, þannig að salan hafði
gengið vel. Vaxandi útflutningur er
á innmat og aukaafurðum sauðfjár,
sem telst mjög góð þróun. Miklu er
slátrað af nautgripum og hrossum
hjá sláturhúsinu, en sú starfsemi
er í lágmarki á meðan sauð-
fjárslátrun stendur yfir. Á þessari
sláturtíð er áhvílandi 28% útflutn-
ingsskylda á lambakjöti og er það
nokkur vandi fyrir sláturleyfishafa
að finna góða markaði fyrir svo
mikið magn kjöts á viðunandi
verði. Þetta er síðasta ár sem út-
flutningsskylda á lambakjöti er
lögskipuð þannig að á næstu ári
verður öll framleiðslan óháð þeirri
skyldu.
Húnaþing vestra veitir árlega við-
urkenningu fyrir snyrtimennsku í
sveitarfélaginu og bauð fyrir
skömmu til kaffisamsætis í því til-
efni. Viðurkenningu fyrir snyrtilegt
fyrirtæki fengu Sigríður og Jó-
hann, sem reka Sveitasetrið á
Gauksmýri, Elías, Sigríður og
Magnús fyrir lögbýlið á Stóru-
Ásgeirsá og Anne Mary og Karl
fyrir lóð á Hvammstangabraut 19.
Þá voru einnig veittir fjárstyrkir
úr Húnasjóði, en þá hlutu sjö ein-
staklingar búsettir í héraðinu, en
þeir eiga það sameiginlegt að vera
að ljúka námi í framhaldsmenntun
á sviði háskóla og starfsmenntunar.
HVAMMSTANGI
Karl Ásgeir Sigurgeirsson fréttaritari
Sprækur Ekki er þetta síðasti lax-
inn í Hlíðarfossi í Miðfjarðará.
Umsjónarmaður tók þátt íÚtsvari fyrir hönd Seltjarnar-
ness á föstudag. Og fór halloka
ásamt félögum sínum fyrir firna-
sterku liði Hornfirðinga. Pétur
Stefánsson orti í léttum dúr:
Pétur Blöndal bar sig vel
í býsna góðri keppni.
Hinir unnu að ég tel
með ótrúlegri heppni.
Mörgum kom á óvart hve Seltirn-
ingar fóru illa út úr spurningum
upp úr Hringadróttinssögu, einkum
þar sem þeir völdu efnið sjálfir.
Hálfdan Ármann Björnsson orti til
umsjónarmanns:
Vinur okkar voða tregur
vitlaust efni dró.
Svakalega sauðarlegur
á svipinn virtist þó!
Þá Björn Ingólfsson á Grenivík:
Ennþá styð ég strákangann,
standa má hann keikur enn
þó að legði á hælkrók hann
helvítið hann Tolkien!
Og Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit:
Nú er hver að baki brennd
brú, og þessu rétt að gleyma,
næst þá fá þau svörin send
svo þau geti æft sig heima.
Umsjónarmaður þakkaði fyrir
hughreystinguna:
Nú er hver að baki brennd,
brú, og á það getum sæst,
þótt við fengjum svörin send
séns við varla ættum næst.
Friðrik segir mál að búa sig
undir næstu rimmu:
Að ári liðnu um það bil
aftur mun koma að Nesinu,
svo nægan hafið tíma til
að tak’ykkur saman í fésinu.
Og Davíð Hjálmar Haraldsson:
Vissi fátt um borg og bý,
í bólinu var gripinn;
tími hans fór allur í
að æfa gáfusvipinn.
Jóhannes í Syðra-Langholti:
Þó Seltjarnarnesið sé lítið og lágt
lifa þar margir og hugsa ei smátt.
Útsvörin þar eru aldrei há,
en erfitt er hjá þeim svör að fá.
Og Hjálmar Freysteinsson:
Trúnni hartnær hef ég týnt
að hlutirnir fari betur.
Útsvarið var endursýnt.
Aftur tapar Pétur!
Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum
stóð með umsjónarmanni:
Skjóta á Pétur fýrar fínir
flesta ykkur hugsa bið:
Varla tækir vinir mínir
væruð þið í svona lið.
Að lokum svarar umsjónar-
maður:
Ömurlegt er ástandið
að mér flestir sneiða
leiðist mér um lágnættið
langar upp til heiða!
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af Útsvari og Nesinu
Það er ekki nóg að fylgjast með því hvort hendur
manns séu þurrar eða neglurnar brotnar því ný rann-
sókn bendir til að ástand handanna veiti okkur mik-
ilvægar upplýsingar um heilsu.
Rannsóknin sem birtist í ritinu Journal of the Royal
Society of Medicine sýnir m.a. fram á að ástand þeirra
geti bent til alvarlegra sjúkdóma á borð við krabba-
mein. Bláleitar fingurneglur geta þannig bent til
hjartasjúkdóms, kúptir fingurgómar til lungnakrabba-
meins, breiðir hnúar geta gefið til kynna að manneskja
sé með hátt kólesterólmagn í blóðinu, neglur sem eru
náhvítar neðst en brúnleitar efst benda hugsanlega til
nýrnasjúkdóms og sveittir lófar til ofvirkni í skjald-
kirtli, svo dæmi séu nefnd.
Morgunblaðið/Golli
Heilbrigði Hendur geta sagt til um hvort heilsu manns sé sæmilega borgið.
Hendur og heilsa haldast í hendur