Morgunblaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 29
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞORGERÐUR BERGSDÓTTIR,
Stella,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 6. október.
Smári Hannesson, Gunnhildur Júlíusdóttir,
Ólöf Hannesdóttir,
Haukur Hannesson, Sigríður Svavardóttir,
Heiðrún Hannesdóttir, Ingólfur Hafsteinsson,
Hanna Hannesdóttir, Egill Másson,
Guðni Hannesson, Lilja L. Aðalsteinsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 29
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og styrk við
fráfall ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og stórfrænku,
KRISTÍNAR E. JÓNSDÓTTUR
læknis,
viljum við færa okkar innilegustu þakkir.
Sérstaklega viljum við heiðra starfsfólk 11E á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir nærgætni,
blíðu og einstaka hugulsemi.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Bergljót Elíasdóttir,
Ester Auður Elíasdóttir, Snorri Hrafnkelsson,
Nicolas Ragnar Muteau.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
lyfjafræðings,
Langagerði 96,
Reykjavík.
Guðmundur Ólafsson,
Björn Már Ólafsson,
Þórey Vigdís Ólafsdóttir,
Maríus Ólafsson,
Elín Soffía Ólafsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns
míns, föður og systkina okkar,
MAGNÚSAR BERGÞÓRSSONAR
og
HULDU BERGÞÓRSDÓTTUR.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir einstaka umönnun
Huldu.
Þórunn Jónsdóttir og synir,
Ragnhildur Bergþórsdóttir, Atli Elíasson,
Gunnar Bergþórsson.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GISELU HALLDÓRSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju á Hríshóli í Reykhólasveit,
Gunnarsbraut 11b,
Búðardal.
Reynir Halldórsson,
Reinhard Reynisson, María Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Ásgeir Sverr-isson fæddist í
Hvammi í Norður-
árdal 9. júní 1928.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Landakoti
27. september síð-
astliðinn. For-
eldrar hans voru
Sigurlaug Guð-
mundsdóttir, f. 24.
júlí 1890, d. 18.
mars 1971, og
Sverrir Gíslason, f.
4. ágúst 1885, d.
24. mars 1967, bóndi í Hvammi í
Norðurárdal í Borgarfirði.
Systkini Ásgeirs voru Guð-
mundur, f. 30. sept. 1917, d. 27.
sept. 2003, Andrés, f. 27. des.
1918, d. 6. apríl 2004, Vigdís, f.
27. mars 1920, Ólafur, f. 13. maí
1923, d. 8. mars 2005, og Einar
tvíburabróðir Ásgeirs, f. 9. júní
1928.
Árið 1959 kvæntist Ásgeir
Hjördísi Elsu Eyjólfsdóttur
verslunarkonu, f. 12.2. 1935.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur
Júlíus Finnbogason bílstjóri, f.
8.7. 1902, d. 4.11. 1979, og Guð-
munda Margrét Sigurðardóttir
húsmóðir, f. 18.6. 1900, d. 17.7.
1963. Börn Ásgeirs og Elsu eru:
1) Margrét hjúkrunarfæðingur,
f. 5.10. 1958, maki Marteinn
Másson lögmaður, f. 11.10. 1957.
Börn þeirra eru Arnór, f. 11.9.
Ásgeir stundaði nám í Hér-
aðsskólanum á Laugarvatni og
lauk þaðan prófi vorið 1948 eft-
ir tveggja vetra nám. Næstu ár
stundaði hann nám við Náms-
flokka Reykjavíkur og Tónlist-
arskólann í Reykjavík þar sem
hann lagði stund á píanó- og
tónfræðinám undir handleiðslu
Róberts Abrahams Ottóssonar.
Einnig nam hann óbóleik þar
sem kennari hans var Paul Sieg-
fried Pudelski. Kunnastur mun
þó Ásgeir vera fyrir harmóniku-
leik og stjórn danshljómsveita.
Hann lék með ýmsum hljóm-
sveitum undir stjórn margra
þekktra tónlistarmanna eins og
Óskars Cortes, Carls Billich,
Guðmundar Finnbjörnssonar
o.fl. þar til hann stofnaði eigin
hljómsveit sem lengst lék í
Þórscafé og fleiri stöðum en
söngkona hljómsveitarinnar var
kona hans Sigríður Maggy
Magnúsdóttir. Þessi hljómsveit
kom oft fram í útvarpi og sjón-
varpi, m.a. lék hún fyrir dansi í
Reykjavík á þjóðhátíðardaginn
17. júní um margra ára skeið.
Ásgeir var starfsmaður bókaút-
gáfunnar Norðra 1953 til 1956
er hann réðst til starfa hjá Sam-
vinnutryggingum til 1989, er fé-
lagið sameinaðist Brunabóta-
félagi Íslands undir nafninu
Vátryggingafélag Íslands. Þar
starfaði Ásgeir þar til hann lét
af störfum fyrir aldurssakir
1998.
Ásgeir verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
1990, og Ásgerður,
f. 22.9. 1992. 2) Ás-
geir byggingafræð-
ingur, f. 6.1. 1961,
kvæntist Sigrúnu
Tryggvadóttur. Þau
skildu. Börn þeirra
eru Hjördís Elsa, f.
28.12. 1984, sam-
býlismaður hennar
Helgi Þór Arason, f.
8.4. 1982, Ásgeir
Kári, f. 20.6. 1990.
Núverandi maki
Vilborg Lofts við-
skiptafræðingur, f.
12.12. 1956. Dóttir þeirra er
Halla Björk, f. 28.8. 1995. Ás-
geir og Elsa skildu.
Árið 1967 kvæntist Ásgeir
Sigríði Maggý Magnúsdóttur
söngkonu, f. 27.8. 1934. For-
eldrar hennar voru Magnús
Kristinsson skipstjóri, f. 12.7.
1893, d. 11.7. 1970, og Júlíana
Jóhanna Magnúsdóttir hús-
móðir, f. 9.3. 1896, d. 18.2. 1974.
Sigríður átti fyrir Guðmund
Baldvinsson útfararstjóra, f.
15.7. 1958, maki Helga Haralds-
dóttir leiðbeinandi, f. 20.5. 1958,
Börn þeirra eru: 1) Haraldur, f.
17.10. 1980, sambýliskona Anna
Svava Sólmundsdóttir, f. 24.6.
1983, sonur þeirra er Guð-
mundur Kristján, f. 12.2. 2008,
og 2) Erla Maggý, f. 22.6. 1984,
sambýlismaður Arnar Steinn
Karlsson, f. 10.9. 1984.
Elsku afi.
Það eru ófáar ógleymanlegar
stundir sem við systkinin áttum með
þér og það var alltaf gaman að koma
til þín og ömmu á Háaleitisbrautina.
Þar fengum við oft heita uxahala-
súpu með eggi og fleira góðgæti en
þú varst líka alltaf duglegur að bjóða
okkur á Veitingahöllina eða Ask og
Hard Rock þegar við áttum afmæli.
Það fyrsta sem kemur upp í huga
okkar er söngurinn og tónlistin og
það var svo spennandi að fá að fikta í
öllum hljóðfærunum. Þegar lætin
voru orðin of mikil, þannig að fólk
hélt fyrir eyrun, þá hvattir þú okkur
áfram með bros á vör því þú vildir
hafa fjör í kringum þig.
Á aðfangadag biðum við með fiðr-
ing í maganum af spennu eftir að þú
og amma kæmuð keyrandi niður
Jöklaselið því jólin byrjuðu ekki fyrr
en þið voruð komin í hús. Ferðirnar
upp í bústað eru einnig ofarlega í
huga. Þá var spilað lúdó, farið í
gönguferðir um Norðurárdalinn og
veiddur silungur í Hreðavatni handa
þér því þú varst eini maðurinn sem
borðaðir hann.
Þú varst alltaf svo hlýr og góður
við okkur, alltaf brosandi og okkur
leið alltaf svo vel hjá þér. Það var
gaman að þú fékkst að kynnast Guð-
mundi Kristjáni, sem þú varst svo
hrifinn af, og við eigum eftir að segja
honum margar skemmtilegar sögur
af þér. Elsku afi okkar, það er svo
sárt að þú sért farinn en þú gafst
okkur svo mikið og við munum
geyma minningu þína í hjörtum okk-
ar.
Elsku afi, góða ferð og ekki hafa
áhyggjur af ömmu því Tumi og Tu-
malína passa upp á hana.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Guð blessi þig og varðveiti.
Haraldur og Erla Maggý.
Eins og margir vita hef ég alltaf
átt mér einn uppáhalds frænda, hann
Ásgeir Sverrisson. Þegar ég var á Ís-
landi í ágúst notaði ég tækifærið og
heimsótti hann þar sem hann lá á
Landakoti. Í seinna skiptið var ég
svo heppin að fá að vera ein með hon-
um og þegar ég kvaddi hann sagðist
ég hlakka til að sjá hann aftur í nóv-
ember. Af því verður því miður ekki.
Jafnvel þótt Ásgeir væri að glíma við
veikindi sín ljómaði af honum sjarm-
inn. Blá, hlýleg og fjörleg augun
ljómuðu og þegar hann hló hristist
hann með kímnisvipinn á andlitinu.
Hann hafði svo bráðskemmtilegan
húmor og það lá alltaf vel á honum.
Það var gaman að hlusta á hann
segja frá, ekki síst frásögurnar af
vikulegum menningarfundum með
vinum sínum. Ég hefði viljað vera
fluga á vegg á þeim fundum.
Tónlistin rann í blóðinu á Ásgeiri
og með píanóspili sínu eða harmón-
íkuleik fékk hann allar raddir til að
syngja og hvern kropp til að hreyf-
ast. Síðustu vikurnar á meðan hann
lá á Landakoti rakst hann á píanó á
stigaganginum og þótt það væri yf-
irbreitt og verið að mála allt í kring
stóðst hann ekki freistinguna að
prófa það. Á örskömmum tíma sóp-
aðist að honum fólk, frískir og sjúkir
og sungu og vögguðu. Ég hafði lengi
talað um það að mig langaði að læra á
harmóníku og dag einn fyrir um 9 ár-
um síðan hringdi mamma mín í mig
og bað mig að líta við og það strax.
Þegar ég mætti á staðinn beið Ásgeir
þar með litlu rauðu harmóníkuna
sína og sagðist vilja lána mér hana,
nú væri bara að byrja. Hann gerði
meira en að lána mér harmóníkuna,
hann tók mig í tíma og kenndi mér
undirstöðuatriðin í harmóníkuleik.
„Þú þarft að læra þetta, stelpa“,
sagði hann, „svo þú getir haldið uppi
fjörinu í partíunum“. Þetta voru okk-
ar bestu samverustundir.
Margar góðar minningar streyma
um hugann nú þegar ég kveð uppá-
halds frænda minn og föðurbróður,
hann Ásgeir Sverrisson. Ég er þakk-
lát fyrir að hafa fengið að eiga þenn-
an myndarlega, sjarmerandi mann
með bláu hrekkjóttu augun sem
frænda og vin. Ég kveð þig, uppá-
halds vinur minn, með mikilli virð-
ingu og þakklæti.
Anna Elísabet Ólafsdóttir.
Okkur langar að minnast föður-
bróður okkar, Ásgeirs Sverrissonar,
með örfáum orðum. Ásgeir var tví-
burabróðir pabba og voru þeir bræð-
ur mjög nánir og miklir vinir alla tíð.
Ásgeir stóð okkur systkinum nálægt
og tók þátt í öllum stórum viðburðum
í okkar lífi, hvort sem var í gleði eða
sorg. Hann hafði áhuga á því sem við
systkinin tókum okkur fyrir hendur
og innti pabba eftir okkur og okkar
börnum alveg fram undir það síð-
asta.
Það er margs að minnast og er
okkur ofarlega í huga hversu glaður
og kátur Ásgeir var. Alltaf stutt í
glensið og kátínuna. Ásgeir var tón-
listarmaður og spilaði snilldarvel á
harmóníku. Mikil tónlist var í kring-
um Ásgeir og spilaði hann á öllum
mannamótum í fjölskyldunni og
stýrði fjöldasöng. Ásgeir var hvers
manns hugljúfi, traustur, rólegur og
yfirvegaður.
Við viljum þakka Ásgeiri frænda
fyrir góð kynni og yndislegar sam-
verustundir á lífsins leið. Missir
pabba er mikill og við treystum á að
Guð og góðir menn styðji hann í
gegnum sína sorg.
Elsku Sigga, Magga, Ásgeir, Guð-
mundur og fjölskyldur, við sendum
ykkur innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum góðan Guð að styrkja ykk-
ur á erfiðri stundu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem.)
Þorgeir, Sverrir,
Vilborg, Sigurlaug og
Sigrún Einarsbörn.
Elsku Ásgeir, nú er komið að
kveðjustund. Nú þegar við lítum yfir
farinn veg og hugsum til þín kemur í
huga okkar orðið einstakur.
„Einstakur“ er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt,
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez.)
Elsku Ásgeir við kveðjum þig með
söknuði og þakklæti.
Megi minning þín vera ljós í lífi
okkar.
Guðmundur og Helga.
Ásgeir Sverrisson