Morgunblaðið - 17.10.2008, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TILBOÐ VIKUNNAR
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti lagersala
verð áður 219.900
kr.129.900,-
aðeins
Sofasett 3
+1+1
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MAÐURINN
sem slasaðist al-
varlega í vinnu-
slysi á Ísafirði á
miðvikudag lést
af völdum sára
sinna í gær.
Maðurinn, sem
var á sjötugs-
aldri, var við
vinnu á hafnarsvæðinu þegar vinnu-
pallur sem hann stóð á gaf sig með
þeim afleiðingum að hann féll til
jarðar. Hinn látni hét Steinþór
Steinþórsson, til heimilis á Ísafirði.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
þrjú börn. Rannsókn á tildrögum
slyssins er ólokið að sögn lögregl-
unnar á Vestfjörðum.
Lést eftir
vinnuslys
LÝST er samstöðu með Íslandi í
lokayfirlýsingu Evrópusambandsins
frá í gær, en jafnframt sagt að ís-
lensk stjórnvöld verði að uppfylla al-
þjóðlegar skuldbindingar sínar.
Lýsir ráðherraráðið samstöðu
með þeim aðgerðum, sem Ísland hafi
gripið til, en landið tengist ESB þar
sem það eigi aðild að Evrópska efna-
hagssvæðinu. Landið þurfi stuðning
alþjóðasamfélagsins en verði jafn-
framt að standa við alþjóðlegar
skuldbindingar sínar. Síðustu setn-
ingunni var bætt inn í uppkast að yf-
irlýsingunni. Í yfirlýsingunni er
einnig hvatt til þess, að komið verði á
samræmdu eftirlitskerfi með fjár-
málum ESB-ríkja og stofnaður að-
gerðahópur til að fást við kreppuna.
Samstaða
með Íslandi
FLUGFREYJUR og flugþjónar
hjá Icelandair hafa undanfarna
daga ekki fengið greidda dagpen-
inga inn á gjaldeyrisreikninga eins
og venja er. Að sögn Guðjóns Arn-
grímssonar, upplýsingafulltrúa Ice-
landair, er það vegna þeirra vand-
kvæða sem hafa verið á
gjaldeyrisviðskiptum undanfarið.
Guðjón segir venjulega gengið
frá dagpeningagreiðslum til flug-
freyja tvisvar sinnum í viku inn á
gjaldeyrisreikninga. Þar sem það
hafi ekki gengið síðustu daga verði
fyrirtækið sennilega að fara þá leið
að greiða dagpeninga út í íslensk-
um krónum meðan þetta ástand
varir.
Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur,
formanns Flugfreyjufélags Íslands,
hefur enn ekki reynt á það hvort
dagpeningagreiðslur frá Iceland
Express skili sér þar sem gengið sé
frá þeim sjaldnar, eða mánaðarlega.
ben@mbl.is
Dráttur á
dagpeningum
flugfreyja
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
NOKKRIR tugir starfsmanna
Landsbankans, sem hafði verið
sagt að þeir myndu missa vinnuna
við stofnun Nýja Landsbankans,
hafa nú fengið þær fregnir að þeim
verði eftir sem áður boðið starf í
nýja bankanum.
Starfsmannastjóri segir að eftir
eigi að segja formlega upp starfs-
mönnum gamla bankans og semja
við þá sem fá áframhaldandi vinnu
um kaup og kjör. Atli Atlason,
starfsmannastjóri Nýja Lands-
bankans, segir að við stofnun
bankans á dögunum hafi verið bú-
inn til ákveðinn rammi utan um
starfsemina.
„Til að eyða óvissunni létum við
starfsfólk strax vita hvort því yrði
boðið starf í nýjum banka eða ekki.
Um helgina sáum við að við hefð-
um fleiri laus störf hér og þar í
bankanum og buðum þá fólki, sem
við höfðum sagt að fengi ekki
áframhaldandi vinnu, starf á öðr-
um stað í nýja bankanum,“ segir
Atli og telur að um nokkra tugi
starfsmanna sé að ræða.
Alls fái um 300 starfsmenn ekki
starf í nýjum banka. Hann bætir
því við að enn hafi engum verið
sagt upp störfum.
„Það á eftir að ganga frá því
formlega og síðan á eftir að semja
við alla sem verður boðið starf í
nýja bankanum um ný kjör,“ segir
hann. Sumir muni halda óbreyttum
kjörum en aðrir muni fá breytta
launasamninga.
Fleirum boðið starf á ný
Nýi Landsbankinn mun endurráða nokkra tugi starfsmanna
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
TVEIR menn, Jónas Ingi Ragn-
arsson og Tindur Jónsson, hafa
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til 30. október vegna aðildar að um-
fangsmikilli fíkniefnaframleiðslu í
iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Þeir
eru báðir á reynslulausn eftir að
hafa setið í fangelsi fyrir alvarlega
glæpi. Tveir aðrir menn voru hand-
teknir í gær í tengslum við málið,
öðrum var sleppt eftir yfirheyrslur
en hinn verður yfirheyrður í dag.
Jónas Ingi var dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir
aðild sína að hinu svokallaða lík-
fundarmáli en Tindur Jónsson var
vorið 2006 dæmdur í sex ára fang-
elsi fyrir tilraun til manndráps með
sveðju og fjórar aðrar líkamsárás-
ir. Fyrir dómsuppkvaðningu hafði
Tindur setið í gæsluvarðhaldi í sex
mánuði.
„Operation Einstein“
Rannsókn málsins, sem þykir
ekki eiga sér neina hliðstæðu hér á
landi, hófst fyrir nokkrum mán-
uðum. Hún var gerð í samstarfi við
tollgæsluna og sérsveit ríkislög-
reglustjóra. Þá var unnið í sam-
starfi við Europol en þar starfa
sérfræðingar í að taka niður fíkni-
efnaverksmiðjur af þessu tagi.
Eru nú tveir þessara sérfræð-
inga staddir hér á landi og munu
þeir næstu daga, ásamt Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins, rýma hús-
næðið af efnum og tækjum en
framleiðslu sem þessari fylgir mikil
sprengi- og eldhætta. Samtals tók
á fjórða tug lögreglumanna þátt í
aðgerðinni sem gengur undir nafn-
inu „Operation Einstein“.
Í gærmorgun var gerð húsleit
samtímis á tveimur stöðum og voru
þá Jónas Ingi og Tindur hand-
teknir ásamt þeim þriðja. Sá fjórði
var handtekinn seinnipartinn á
Keflavíkurflugvelli. Í iðnaðarhús-
næðinu var lagt hald á háþróaðan
tækjabúnað sem nota má til fíkni-
efnaframleiðslu. Þar fannst einnig
efni á framleiðslustigi, 20 kg af
hassi og efni sem talið er vera full-
unnið amfetamín eða metamfetam-
ín.
Ljóst þykir að framleiðslugeta
verksmiðjunnar hafi verið afar
mikil. Fyrir skömmu höfðu menn-
irnir flutt til landsins eitt tonn af
mjólkursykri sem er notaður sem
íblöndunarefni. Lögreglan telur að
framleiðslan hafi ekki verið lengi í
gangi áður en hún lét til skarar
skríða.
Morgunblaðið/Júlíus
Gripnir glóðvolgir Lögreglan hafði, í samstarfi við tollgæsluna og Europol, rannsakað amfetamínframleiðsluna í Hafnarfirði í nokkra mánuði.
Fordæmalaust mál
Morgunblaðið/Júlíus
Skýrt frá Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn rannsókn-
ardeildar, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, og Karl
Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn fíkniefnadeildar.
Í HNOTSKURN
»Við húsleitina fundust efnisem talin eru vera full-
unnið amfetamín eða met-
amfetamín. Metamfetamín er
sterkara og eitraðra en am-
fetamín.
»Nýlega hafði verið flutt tillandsins eitt tonn af mjólk-
ursykri sem er íblöndunarefni.
Er það notað til að þynna
tilbúið hreint amfetamín.
»Tökum dæmi af amfeta-míni sem á að selja innan-
lands. Sé efnið þynnt um tvo
þriðju þarf 500 kg af hreinu
efni fyrir tonnið af mjólk-
ursykrinum. Þá fást 1.500 kg
af amfetamíni, tilbúin til sölu.
»Á heimasíðu SÁÁ kemurfram að í lok júlí sl. hafi
grammið af amfetamíni kost-
að 5.190 kr. Heildarsöluverðið
fyrir 1,5 tonn af amfetamíni
gæti því numið tæpum átta
milljörðum.
SÍÐAN eftir aldamót hafa þrjú mál
tengd framleiðslu amfetamíns og
metamfetamíns komið til kasta
lögreglunnar, að atburði gærdags-
ins meðtöldum.
Vorið 2001 var framkvæmd hús-
leit á heimili manns í Reykjavík þar
sem grunur lék á að þar færi fram
framleiðsla á amfetamíni. Efni og
tæki til framleiðslu efnisins fund-
ust á heimili hans. Meðan á hús-
leitinni stóð framdi maðurinn
sjálfsmorð með skotvopni. Hús-
leitin var hluti rannsóknar fíkni-
efnamáls sem staðið hafði yfir í
nokkrar vikur.
Síðla árs 2003 voru þrír karl-
menn handteknir, grunaðir um
stórfellda amfetamínframleiðslu í
Kópavogi. Lögreglan fjarlægði bíl-
farm af framleiðslutækjum auk
nokkurs magns af amfetamíni.
Lögreglan í gær sagði að mun-
urinn á verksmiðjunni í Kópavogi
og þeirri í Hafnarfirði væri eins og
á sjoppu og stórmarkaði.
Framleiðslan á sér enga hliðstæðu á Íslandi
Fjórir karlmenn handteknir í gær vegna gruns um aðild að umfangsmestu
amfetamínframleiðslu sem lögreglan hefur fengið til rannsóknar hér á landi