Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 18
Dayton. AP. | Ralph Bernstein er
einn af nýjustu sjálfboðaliðum
bandarísku samtakanna Friðar-
sveitanna (Peace Corps) og reynir
að venjast hitanum og loftrakanum
í Afríkuríkinu Gana.
Það væri erfitt fyrir marga nýja
sjálfboðaliða á þrítugsaldri en
Bernstein er orðinn 84 ára. Hann er
elsti sjálfboðaliði Friðarsveitanna
og einn af mörgum eftirlaunamönn-
um sem gengið hafa til liðs við sam-
tökin á síðustu árum.
Um 5% af sjálfboðaliðum Friðar-
sveitanna eru fimmtugir eða eldri
og margir þeirra starfa sem kenn-
arar í fátækum þróunarlöndum.
Umsækjendum í þessum aldurshópi
hefur fjölgað um nær 40% á árinu.
Þeir eru núna um 9,4% af öllum um-
sækjendum og fleiri en nokkru
sinni fyrr í 47 ára sögu samtak-
anna.
Um 190.000 sjálfboðaliðar
á 47 árum
Friðarsveitirnar voru stofnaðar
árið 1961 til að stuðla að friði í
heiminum með því að senda sjálf-
boðaliða til fátækra þróunarlanda.
Síðan hafa 190.000 sjálfboðaliðar
starfað á vegum samtakanna í 139
löndum. Um 95% þeirra eru há-
skólanemar eða hafa lokið háskóla-
námi og sjálfboðaliðarnir hafa
langflestir verið á þrítugsaldri.
Sjálfboðaliðar Friðarsveitanna
Eftirlaunafólki sem sækir í sjálfboðastörf
í þróunarlöndum fjölgar verulega
eru núna 8.079 og starfa í 74 lönd-
um. Um 59% þeirra eru konur og
41% karlar. bogi@mbl.is
AP
Elstur Sjálfboðaliðinn Ralph Bernstein með nemendum sínum í Gana.
18 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Brussel. AP. | Leið-
togar Evrópu-
sambandsríkj-
anna samþykktu í
gær að halda í
stefnu sambands-
ins í loftslagsmál-
um og þann tíma-
ramma sem hefur
verið settur til að
taka á þeim mál-
um. Það er stefna
ESB að draga úr losun koltvísýrings
um 20% fyrir árið 2020.
Pólland og Ítalía auk fleiri ríkja
höfðu hótað því að beita neitunar-
valdi gegn samþykkt sambandsins.
Leiðtogar ríkjanna höfðu lýst yfir
áhyggjum sínum af því að kostnað-
urinn við að draga úr slíkri mengun
auk áhrifa efnahagskreppunnar yrði
evrópskum iðnaði um megn.
Leiðtogarnir 27 samþykktu þó all-
ir áætlunina að lokum og sagði
Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti
og forseti ESB, að breytt stefna í
loftslagsmálum væri „svo mikilvæg
að ekki væri hægt að nota efnahags-
vandann sem átyllu til að hætta við.“
Í lokayfirlýsingu leiðtogafundar-
ins í gær var lýst yfir samstöðu með
Íslandi í efnahagserfiðleikunum.
Jafnframt kom fram að landið yrði
að standa við alþjóðlegar skuldbind-
ingar sínar. jmv@mbl.is
Óbreytt
loftslags-
stefna
Nicolas
Sarkozy
Kreppan breyti ekki
stefnu ESB-ríkjanna
DANSKA vinnueftirlitið hyggst
herða eftirlitið með Tónlistarhús-
inu í Esbjerg á næstu dögum. En
samkvæmt vefsíðu Berlingske
Tidende á framkvæmdastjóri húss-
ins að hafa gefið danska tónlistar-
manninum Kim Larsen leyfi til að
reykja á sviðinu á tvennum tón-
leikum sem halda á í næstu viku.
Framkvæmdastjórinn segir reyk-
ingar Larsens vera „hluta af tón-
listarlegri tjáningu þessa ástríka
tónlistarmanns.“
Vinnueftirlitið vill þó ekki sam-
þykkja þau rök og segir þau hrein-
an fyrirslátt til að komast hjá reyk-
ingabanni á opinberum
samkomustöðum.
Umboðsmaður Larsens, Jørn
„Ørn“ Jeppesen vísar því alfarið á
bug að Larsen hyggist reykja á
sviðinu á væntanlegri tónleikaferð
sinni. Larsen sjálfur hefur ekki tjáð
sig um málið. jmv@mbl.is
Reykbann á
Kim Larsen
MILLVINA Dean ætlar að selja
ferðatöskuna sína fyrir um 3.000
ensk pund á uppboði á Englandi um
helgina til að geta greitt elliheim-
ilisgjöldin. Þar er engin venjuleg
taska á ferð því New York-borg gaf
Millvinu og fjölskyldu hennar
töskuna eftir að hún bjargaðist frá
borði þegar farþegaskipið Titanic
sökk árið 1912. Í töskunni voru föt
og aðrar nauðsynjar.
Millvina var aðeins tveggja mán-
aða gömul þegar henni var bjargað
frá borði skipsins og man því ekk-
ert eftir ósköpunum. „Mér finnst
það líka bara betra,“ hefur hún
sagt fjölmiðlum. Hún er nú orðin 96
ára gömul og er ein 706 farþega
sem enn lifa.
Millvina vissi ekki að hún hefði
verið farþegi um borð í Titanic fyrr
en móðir hennar sagði henni það
átta ára gamalli. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum atburðum tengdum
skipinu eins og ráðstefnum, sjón-
varps- og útvarpsþáttum.
jmv@mbl.is
Titanic-taska
á uppboði
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
JOHN McCain, forsetaefni banda-
rískra repúblikana, var eins og ör-
væntingarfullur hnefaleikamaður í
þriðju og síðustu sjónvarpskapp-
ræðum hans og Baracks Obama,
forsetaefnis demókrata. Margir litu
á kappræðurnar sem úrslitalotuna í
baráttu þeirra; síðasta tækifæri
McCains til að snúa vörn í sókn og
greiða keppinautnum bylmingshögg
sem dygði til að ná yfirhöndinni í
kosningaslagnum.
John McCain lagði sig allan fram,
lét höggin dynja á andstæðingnum,
en Barack Obama vék sér fimlega
undan og bar af sér höggin. Þótt
McCain stæði sig betur en í fyrri
einvígjunum tveimur hélt Obama ró
sinni og notaði tækifærið til að sýna
að hann hefði ekki aðeins þekkingu
á málefnunum heldur einnig þá
skapgerð og dómgreind sem banda-
rískir kjósendur telja að prýða þurfi
forseta Bandaríkjanna.
Obama var yfirvegaður, sjálfs-
öruggur og „forsetalegur“ í fram-
göngu, eins og í fyrri einvígjunum,
og forðaðist mistök sem gætu grafið
undan forskoti hans í skoðanakönn-
unum.
„Ef mönnum líst vel á McCain
telja þeir líklega að hann hafi sigrað,
en geðjist þeim betur að Obama líta
þeir líklega á hann sem sigurvegara
einvígisins,“ sagði Chris Lehane,
pólitískur ráðgjafi demókrata. „Og
þar sem stuðningsmenn Obama eru
miklu fleiri en stuðningsmenn
McCains er þetta gott kvöld fyrir
Obama.“
Kannanir hafa bent til þess að
fylgi McCains hafi minnkað síðustu
vikur, einkum vegna fjármálakrepp-
unnar og ótta Bandaríkjamanna við
alvarlega efnahagslægð í landinu.
Kjósendurnir eru mjög tregir til að
kjósa repúblikana í forsetaembættið
þriðja kjörtímabilið í röð við þessar
aðstæður.
Sló vindhögg
McCain þurfti að hamra á efna-
hagsmálunum, helsta áhyggjuefni
þeirra kjósenda sem hafa ekki gert
upp hug sinn. Hann gerði það í
fyrstu en fór síðan að gagnrýna af-
stöðu Obama í ýmsum samfélags-
málum sem kjósendurnir telja
skipta minna máli núna þegar þeir
standa frammi fyrir því að lífeyr-
issparifé þeirra hefur rýrnað og
heimili þeirra og atvinna eru í
hættu.
Segja má að í ákafa sínum hafi
McCain slegið nokkur vindhögg,
t.a.m. þegar hann endurtók ásakanir
sínar um að Obama væri viðriðinn
„hryðjuverkamann“ – William
Ayers, prófessor við Háskólann í Ill-
inois og fyrrverandi liðsmann
vinstriöfgasamtakanna Weather
Underground. Samtökin börðust
gegn Víetnamstríðinu og komu m.a.
fyrir sprengjum í bandaríska þing-
húsinu og bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu.
Viðhorfskannanir benda til þess
að kjósendur hafi ekki miklar
áhyggjur af þessum meintu tengsl-
um og skilji ekki hvers vegna
McCain heldur áfram að tönnlast á
þeim nú þegar landið stendur
frammi fyrir mestu efnahagslægð í
að minnsta kosti 25 ár.
Bar af sér þung högg
Obama varðist fimlega hörðum árásum McCains í síðasta einvígi þeirra
Í HNOTSKURN
» John McCain sakaðiBarack Obama um að ýta
undir stéttastríð með því að
boða skattahækkanir til að
„dreifa auðnum“. Obama
neitaði þessu og kvaðst ætla
að lækka skatta 95% Banda-
ríkjamanna en hækka skatta
þeirra sem eru með meira en
250.000 dollara í laun á ári.
» Skoðanakannanir bendatil þess að persónulegar
árásir McCains og banda-
manna hans á Obama hafi
fælt marga kjósendur á miðj-
unni frá McCain. Tveir þriðju
Bandaríkjamanna telja að
McCain hafi lagt of mikla
áherslu á „neikvæðar auglýs-
ingar“, samkvæmt nýlegri
könnun.
» Þegar McCain talaði umbandaríska „hryðjuverka-
manninn“ William Ayers
benti Obama á að hann var
aðeins átta ára gamall þegar
Ayers barðist gegn Víetnam-
stríðinu með sprengju-
tilræðum. „Sú staðreynd að
þetta hefur orðið svona mik-
ilvægur þáttur í kosningabar-
áttu þinni, McCain, segir
meira um baráttu þína en um
mig,“ sagði Obama.
» Barack Obama gagn-rýndi McCain fyrir að
hafa alltaf tekið afstöðu með
George W. Bush forseta í
efnahagsmálum. „Ég er ekki
Bush forseti,“ svaraði
McCain. „Ef þú vilt bjóða þig
fram gegn Bush forseta hefð-
ir þú átt að gera það fyrir
fjórum árum. Ég ætla að
marka efnahagnum nýja
stefnu.“AP
Úrslitalotan Barack Obama og John McCain heilsast áður en þriðju og síð-
ustu sjónvarpskappræður þeirra hófust í fyrrinótt að íslenskum tíma.
„Jói pípari“, réttu nafni Joe
Wurzelbacher, varð frægasti
pípulagningamaður heims í sjón-
varpskappræðunum í fyrrinótt
þegar John McCain skírskotaði
hvað eftir annað til orðaskipta
Wurzelbachers og Baracks
Obama í Ohio nýlega.
McCain lýsti Jóa pípara sem
persónugervingi skaðlegra áhrifa
skattastefnu Obama á bandarísk
smáfyrirtæki. Jói pípari hefði
ætlað að kaupa pípulagninga-
fyrirtæki, sem hann vinnur hjá,
en ef hann gerði það sæi hann
fram á að þurfa að greiða miklu
hærri skatta yrði skattastefna
Obama að veruleika. Fjölmiðlar
kepptust í gær við að ná viðtölum
við Wurzelbacher sem áréttaði
andstöðu sína við þá stefnu
Obama að hækka skatta þeirra
sem eru með meira en 250.000
dollara í laun á ári. „Þetta er
sósíalísk hugmynd og lygilega
röng,“ sagði pípulagningamaður-
inn.
Hann neitaði þó að svara
spurningum fjölmiðlamanna um
hvorn þeirra Obama eða McCain
hann hygðist kjósa. „Það er per-
sónuleg ákvörðun.“
Jói pípari lendir í hringiðu stjórnmálanna