Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 37
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR! AF HVERJU ERUBEIKONBITAR Í
BURKNANUM MÍNUM?
ÉG HEF EKKI
MINNSTU
HUGMYND
ÞÚ MUNT
HAFA GAMAN
AF ÞESSARI
DRAUGASÖGU
HÚN ER ÁHUGAVERÐ, OG
EKKI MJÖG ÓGNVEKJANDI
ÞAÐ VAR RÉTT... HÚN VAR
PASSLEGA ÓGNVEKJANDI
HÆHÆ! ER HOBBES LITLI
SYBBINN? HANN ER BARA
LÍTILL KRÚSÍ-KRÚSÍ-KISI,
ER ÞAÐ EKKI? ER ÞAÐ EKKI,
KRÚSÍ-KRÚSÍ-KISI?
Á! SLEPPTU MÉR,
VILLIDÝRIÐ ÞITT! NÚ SKIL ÉG AFHVERJU FLESTIR KAUPA
SÉR MINNI KETTI
ÞEGAR VANDAMÁLIN BER AÐ GARÐI ÞÁ
ER GOTT AÐ VITA AÐ MAÐUR GETUR
TREYST Á SÉRA ÓLAF. HANN GEFUR
MANNI ALLTAF GÓÐ RÁÐ OG
UPPLYFTANDI TILMÆLI
ÞITT HELSTA
VANDAMÁL ER
GRIPIÐ...
ÞÚ ÆTTIR AÐ FÆRA HÆGRI
HÖNDINA ÖRLÍTIÐ NEÐAR
ÉG HEF
HEYRT
AÐ 200
SÉ NÝJA
175
HÉRNA ER MATVARAN SEM MUN
UMBREYTA MATVÆLAMARKAÐNUM...
KOFFÍNBÆTT KJÚKLINGASÚPA
ÉG TRÚI ÞVÍ
VARLA AÐ ÞIÐ
HAFIÐ ÁKVEÐIÐ
AÐ GERA ÞETTA
MUNDU... VIÐ ERUM ENN
AÐ VINNA Í UPPSKRIFTINNI
VIÐ ÆTTUM
AÐ GERA SMÁ
BREYTINGAR
TVÆR
MATSKEIÐAR
AF KOFFÍNI
ER EINUM
OF MIKIÐ
ÉG ER BÚINN AÐ
BINDA HANN
KIRFILEGA
FÆRÐU
ÞIG FRÁ
ÉG
TAPAÐI
FIMM
ÁRUM ÆVI
MINNAR
ÚT AF
ÞÉR
NÚ ERU
REIKNINGS-
SKIL
ÞAÐ ER
BARA SANN-
GJARNT
Velvakandi
HÚN pússaði rúðuglerið í blómabúðinni við Bergsstaðastræti enda er gott
að hafa allt hreint og fínt fyrir komandi kúnna sem vilja gleðja vini og
vandamenn með fallegum blómvendi.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hreinir gluggar
Þáttur Egils
ÞAÐ var mjög gott við-
talið sem hann Egill tók
við Jón Ásgeir í þætti
sínum Silfur Egils sl.
sunnudag, 12. okt. Egill
er maður sem þorir og
er maður fólksins, hann
veit alveg nákvæmlega
hvað hann er að tala um
þarna. Fólk hefur verið
að gagnrýna Egil fyrir
að hafa gengið of langt,
en mér finnst Egill hafa
gert rétt þarna með því
að segja það sem aðrir
hugsa en þora ekki að
segja og ég trúi því að
Egil hafi vitað upp á hár hvað hann
var að gera.
Fyrrverandi hluthafi í banka.
Bakpoki fannst
DÓTTIR mín fann svartan bakpoka í
strætóskýli á Kringlumýrarbrautinni
(nær Sæbrautinni). Þetta er stór
bakpoki sem fannst kl. 16 hinn 15.
okt. sl. og í honum er leikfimisdót,
eigandi nálgast hann í síma 568-8165
eða 690-8165.
Ánægður viðskiptavinur
Nesdekks á Fiskislóð
ALLT of oft heyrir maður kvartað
yfir þjónustu fyrirtækja og starfs-
manna en ég má til með að láta í ljós
ánægju mína með þjónustu starfs-
manna Nesdekks.
Lengi hef ég verið að svipast um
eftir verkstæði með alhliða bíla-
viðgerðir. Mér var bent á Nesdekk á
Fiskislóð. Þar tóku á móti mér
starfsmenn með bros á vör og leituðu
allra leiða til að finna úrlausn minna
mála sem gekk eftir
fljótt og örugglega á
sem hagkvæmasta hátt.
Ég vil mæla hiklaust
með þessu fyrirtæki.
Kærar þakkir, ég
mun koma aftur.
Ánægður
viðskiptavinur.
Skömm Egils
ÉG er hjartanlega sam-
mála húsmóðurinni úr
Garðabænum varðandi
framkomu Egils við
Jón Ásgeir í þætti sín-
um Silfri Egils sl.
sunnudag 12. okt. Fólk hefur verið að
ræða þetta allt í kringum mig. Jón
Ásgeir var sá eini sem mætti í þátt-
inn en hinir sem voru boðnir þorðu
ekki einu sinni að mæta. Mér finnst
þetta hrein skömm og ég held að
Egill eigi ekkert meira erindi í sjón-
varpið eftir þennan þátt. Þeir Bónus-
feðgar hafa gefið okkur alþýðunni
heilmargt gott með Bónusverslun-
inni. Ég stend með Jóni Ásgeiri og
mér finnst alveg út í hött að ráðast
með þessum hætti á hann.
Inga.
Úr tapaðist í Lækjargötu
VANDAÐ kvenmanns gullúr tap-
aðist miðvikudaginn 15. okt. sl. rétt
um kl. 16 á Lækjargötu. Úrið er
kringlótt, skreytt með steinum, ef
einhver hefur fundið það er hann vin-
samlegast beðinn að hringja í Dóru í
síma 553-7418.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, dag-
blaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9-16,
bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, smíði/útskurð-
ur kl. 9-16.30, bingó 24. okt.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun,
leikfimi, handavinna, kertaskreyting, dag-
blöð, fótaaðgerð, myndlist.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Sr.
Hans Markús Hafsteinsson flytur fyrir-
lestur í Stangarhyl 4 kl. 14. Erindið fjallar
um hvernig trúin getur hjálpað fólki að
vera jákvætt í þeim efnahagsþrengingum
sem nú dynja á þjóðinni. Umræður og fyr-
irspurnir að því loknu. Boðið upp á kaffi.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía, málm-
og silfursmíði og jóga fyrir hádegi, félags-
vist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður
kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leikfimi kl.
10.30, bingó kl. 13.30 kaffiveitingar gegn
vægu verði.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.20, gler og leir kl. 10,
námskeið í bútasaumi og ull kl. 13, félags-
vist kl. 13.30. Rúta frá Hleinum kl. 13 og
13.15 frá Garðabergi. Miðasala í Jónshúsi
í bæjarferð 23. okt. kl. 13, verð 2.500 kr.
og í Þjóðleikhúsið á Hart í bak 4. nóv. kl.
14. verð 2.800 kr. + rúta. Ekki er tekið við
greiðslukortum.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. bókband. Prjóna-
kaffi/Bragakaffi kl. 10, ganga um Elliðaár-
dalinn kl. 10.30. Frá hádegi er spilasalur
opinn, fjölbreytt leikfimi o.fl. kl. 13, (frítt) í
ÍR heimilinu v/Skógarsel, kóræfing kl.
14.30. Uppl. um starfsemina á staðnum
og s. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Messa kl. 14.
Prestur sr. Ólafur Jóhannsson, Furugerð-
iskórinn leiðir söng.
Hraunbær 105 | Almenn handavinna hjá
Erlu kl. 9, baðþjónusta, bókabíllinn kl.
14.45, bingó kl. 14.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, tréskurður, brids og botsía kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9, postulínsmálun, lífsorkuleikfimi kl. 9
og 10 hjá Björg F., bíódagur kl. 13.30,
amerískur bútasaumur. Böðun fyrir há-
degi, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Hláturjóga kl. 13.30.
Ef þú átt afgangs garn þiggur listasmiðj-
an það. Kennsla í tréskurði og málun og
skartgripagerð. Fjölskyldugangan „Út í
bláinn“ kl. 10. í fyrramálið. Rekstrasjón á
sunnudag kl. 15. Rúllugjald 1.000 kr.
Uppl. í sima 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, hópleikfimi kl. 11, opið hús
kl. 13, vist/brids o.fl. Hárgreiðslust. s.
862-7097 og fótaaðgerðast. s. 552-
7522.
Norðurbrún 1 | Umræðuhópur hjá Mar-
gréti djákna frá Áskirkju kl. 13.45. Mynd-
listarnámskeið hjá Hafdísi kl. 9-12, leik-
fimi hjá Janick kl. 13. Opið smíðaverk-
stæði – útskurður.
Vesturgata 7 | Fótaaðgerðir, hárgreiðsla
og handavinna kl. 9, spænska (framhald)
kl. 9.15, spænska (byrjendur) kl. 10.45,
sungið við flygilinn kl. 13.30, dansað í að-
alsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun og handavinna kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl.
13.30. Uppl. í síma 411-9450.