Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Gleðilega hátíð“ hefur orðið aðnokkurs konar kveðjuorð-um á milli vina og kunningja
er rekast hver á annan á Iceland
Airwaveshátíðinni. Aldrei hefur
verið jafn friðandi að heyra þessi
orð og nú. Veröld þessa merkasta
tónlistarviðburðar þjóðarinnar ár
hvert virkaði ósnert á yfirborðinu.
Allt fór fram eins og áður nema
hvað fólk virðist þyrstara í að
hlusta til að gleyma og skilja efna-
hagsástandið eftir heima. Þetta
skilaði sér í löngum röðum er
mynduðust fyrir utan Tunglið og
Nasa um ellefuleytið á mið-
vikudagskvöldið. Ég man ekki eftir
því að hafa verið í jafnmiklum
troðningi á fyrsta degi Airwaves.
ÁHressó ætlaði ég að upplifaKlive en entist ekki lengi. Það
hafði þó minnst með það að gera að
ég tengdi lítið við þann gjörning er
fór fram á sviðinu. Heldur hversu
afleitur tónleikastaður Hressó er.
Veitingasalan var enn í fullum
gangi og fljúgandi matardiskar
svifu framhjá og í gegnum flösku-
hálsinn er hafði myndast vegna af-
leitrar staðsetningar á sviðinu. Ég
slaufaði því Bob Justman, er spilar
aftur á morgun, og fór yfir á Nasa.
Allar íslensku sveitirnar á Nasakynntu lög sín á ensku, sem
var undarlegt í ljósi þess að 90%
fólks í salnum voru íslensk.
Loksins er komin ný fönguleg
stúlknasveit (fyrirgefðu Orri
trommari, vantar smá skeggrót
kannski?) er minnir ekki á Kol-
rössu, Grýlurnar eða Björk. Vicky
(ekki lengur Pollard) komu mér
mest á óvart þetta kvöld. Spiluðu
melódískt tilfinningarokk og þó
hreðjar þeirra séu örlítið þyngri en
hjá öðrum íslenskum stúlknasveit-
um hafa þær allt fram að færa til
þess að komast í hóp bestu rokk-
sveita landsins. Hérna er allur
pakkinn. Grípandi lög, söngkona er
vinnur salinn með feimnislegu bulli
á milli þess sem hún syngur úr sér
lungun, glæsilegir gítarleikarar
sem geisla af öryggi (ein með hana-
kamb og hin með gerviskegg) og
bassadama er límir allt saman.
Our Lives höfðu upp á fátt gott að
bjóða fyrir utan slagara þeirra
„Núna“ sem er afbragð. Restin
hljómaði of líkt vatnsþynntum
bandarískum iðnaðarsveitum og
var of laus við séreinkenni til þess
að vekja áhuga minn.
En það var á tónleikum AgentFresco þar sem ég upplifði
einu gæsahúð kvöldsins. Ef þetta
voru mikilvægustu tónleikar þeirra
til þessa þá negldu þeir þá. Síðan
hvenær hefur tæplega átta mánaða
gömul hljómsveit stoppað lag í
miðju og látið húsfylli á Nasa klára
með hópsöng?
Arnór Dan er stórkostlegur
söngvari með góða sviðsframkomu.
Augnaráð hans og líkamsburður
gefa til kynna að hver einasta nóta
sé sungin frá hjartanu. Hrafnkell
trommari er svo sá allra besti sem
ég hef séð brjótast fram á sviðið í
lengri tíma. Þrátt fyrir að vera ný-
komin í heiminn er Agent Fresco ef-
laust eina sveitin er kom fram þetta
kvöld sem er fullkomlega reiðubúin
í slaginn úti. Það er ógerningur að
heillast ekki með fönklegu rokki
þeirra... og ég fíla ekki einu sinni
fönkrokk! Biffy Clyro var svo frá-
bær endir á góðu kvöldi.
„Ég hlusta ... til að gleyma“
FRÁ AIRWAVES
Birgir Örn Steinarsson
» Síðan hvenær hefurtæplega átta mánaða
gömul hljómsveit stopp-
að lag í miðju og látið
húsfylli á Nasa klára
með hópsöng?
Morgunblaðið/hag
Bob Justman Hressó er afleitur tónleikastaður og blaðamaður flúði.
biggi@mbl.is
SÝND Í SMÁRARBÍÓI
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Bangkok Dangerous kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
House Bunny kl. 6 - 8:20 - 10:30 LEYFÐ
Burn after reading kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Pinapple Express kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Step Brothers kl. 5:45 B.i. 12 ára
Rafmögnuð Reykjavík kl. 5:30 - 6:45 B.i. 16 ára
650k
r.
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
650k
r. 650k
r.
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUN. BARA SÁRSAUKI!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
- S.V., MBL
- Þ.Þ., DV
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
650k
r.
HÚN MUN UPPLIFA ÞAÐ SEM ENGIN
PLAYBOY KANÍNA HEFUR UPPLIFAÐ ÁÐUR ...
... HÁSKÓLA!
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
650k
r.
650k
r.
SÝND Í SMÁRARBÍÓI
S.V. MBLFRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
HÚN MUN UPPLIFA
ÞAÐ SEM ENGIN
PLAYBOY KANÍNA
HEFUR UPPLIFAÐ
ÁÐUR ...
... HÁSKÓLA!
Max Payne kl. 8 - 10 Kraftsýning B.i.16 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 8 B.i.14 ára
House Bunny kl. 6 - 10 LEYFÐ
Skjaldbakan og Hérinn kl. 6 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
The Women kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Max Payne kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Hamlet 2 kl. 10:15 B.i. 7 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:40 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRARBÍÓI OG BORGARBÍÓI
HUGLJÚF OG SKEMMTILEG MYND UPPFULL AF FRÁBÆRUM LEIKKONUM
HÖRKUSPENNA FRÁ
UPPHAFI TIL ENDA
MYND SEM ALLAR KONUR VERÐA AÐ SJÁ
650 kr. fyrir fullorðna
- 550 kr. fyrir börn