Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Bækur
Sannar sakamálasögur
-nýtt tölublað SPENNU
Fæst í bókabúðum.
Bókaútgáfan Hólar
Veitingastaðir
50%afsláttur
af sjávarréttarhlaðborðinu
á kvöldin - kr. 1.300
50% discount after 18:00
Grandagarði 9 • 101 Reykjavík
Sími 517 3131 • sjavarbarinn.is
sjavarbarinn@gmail.com
Heilsa
Djúpslökun í fyrirtækjum
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Hljóðfæri
Rafmagnstrommusett óskast.
Upplýsingar í síma 848 0231.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvk. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Málverk
Málverkasýning
Regína Guðjónsdóttir frá Eyrarbakka
er með málverkasýningu í Gleraugna-
versluninni Sjónarhóli í Hafnarfirði
frá 27. október til 22. nóvember.
Til sölu
Verslun
Glerlist
Opið
mánudaga til
föstudaga
frá kl. 11.00 -
18.00
og
laugardaga
frá kl. 11.00 -
16.00.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ertu háskólanemi í fjarnámi?
Ertu í vandræðum með upplýsinga-
öflun eða meðferð heimilda? Léttu
þér lífið og fáðu aðstoð í gegnum
netið, hvar sem þú ert. Hafðu sam-
band: www.infopro.is
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt
Teg. Rio - gamalreynt og frábært
snið í D,DD,E,F,FF, G,GG, H skálum á
kr. 5.990,-
Teg. Darcey - haldgóður, samt
þunnur og sexí í D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 6.850,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Flott föt fyrir flottar konur
Mikið úrval af toppum, bolum,
kjólum, peysum, leggings og
buxum. Stærðir 40-60.
Belladonna, Skeifunni 11, s: 517-
6460. www.belladonna.is
Bílar
Árg. '02 ek. 60 þús. km
Ford Sport Trac XLT ´02, verð 1.600
þús. kr. Tilboð 800 þús. kr.
Sími 894 2859.
Suzuki Grand Vitara árg. '06,
ek. 36 þús. km
Mjög lítið ekinn og virkilega vel með
farinn. Sjálfskiptur, álfelgur, yfirtaka
2250 þús. + 300 þús. í peningum.
Sjón er sögu ríkari. S: 862-7180.
Bílar óskast
I pay up to 20000 USD – for your
Landcruiser. Pls send your name,
address, tele-phone no, information
on the car as well as pictures of the
car. Send to e-mail address:
morten.bertelsen@myhome.no
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Suzuki Grand Vitara
Til sölu nýjar stálfelgur 16”,
húddgrjóthlíf og gúmmímottur
(fremri). Uppl. í síma 893 4957.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Uppl. í s. 899 9825.
Einkamál
Stefnumót.is
"Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í
makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant-
ar þig dansfélaga? Ferðafélaga?
Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu
þér vandaðan vef til að kynnast fólki
á þínum forsendum. Stefnumót.is
Vertu ævinlega velkomin/n.
Raðauglýsingar
HEKLA 6008102719 IV/V
GIMLI 6008102719 I H&V
I.O.O.F. 19 18910278
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Félagsstarf
Eftir því sem árin
líða fækkar samferða-
mönnunum okkar og
þar með rýrna lífsgæði
okkar sem eftir lifa, því
þeir einstaklingar sem hverfa skilja
eftir sig stórt skarð. Eftir rúmlega 50
ára samleið hefur kær mágkona kvatt
eftir löng og ströng veikindi.
Þegar ég ung og óreynd hóf búskap
á Akranesi tók hún mér opnum örm-
um og þótt hún væri ekki miklu eldri
en ég tók hún við af móður minni að
stappa í mig stálinu, þegar mér fannst
húsmóðurstarfið vaxa mér yfir höfuð.
Hún var þolinmóð, hjálpsöm, örlát og
gestrisin og það fundu þeir sem í
kringum hana voru.
Þrátt fyrir knöpp kjör lengi vel
tókst þeim hjónum, Stellu og Hann-
Þorgerður Bergsdóttir
✝ ÞorgerðurBergsdóttir
fæddist í Reykjavík
24. maí 1928. Hún
andaðist á Sjúkra-
húsi Akraness 6.
október síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Akranes-
kirkju 10. október.
esi, að koma sex börn-
um til manns og bera
þau foreldrum sínum
fagurt vitni. Þegar
börnin uxu úr grasi og
efnahagur batnaði hófu
þau að ferðast vítt og
breitt um landið í góðra
vina hópi og tóku mikið
af myndum sem gaman
var að skoða með þeim.
Einnig voru þau bók-
hneigð og áttu orðið
gott bókasafn. Stella
var að auki ljóðelsk,
sem var eitt af því sem
við áttum sameiginlegt og það var
hún sem gaf mér ljóðasöfn Tómasar
Guðmundssonar og Steins Steinars.
Á erfiðum stundum í mínu lífi kom
hún og huggaði orðalaust. Ég á henni
margt að þakka og hef margs að
sakna en ylja mér við minningarnar.
Elsku Stella, hvíl í friði.
Inga mágkona.
Það er alltaf sárt að missa ástvini. Í
gegnum hugann fara allar minning-
arnar og tilhugsunin um að þær verði
engu fleiri er sársaukafull. Ég hef þó
kvatt alla mína ástvini, sem ég hef
fengið að kveðja, með orðinu „sjá-
umst“, því ég er bara einfaldlega alveg
handviss um það að eitthvað tekur við
eftir þessa dvöl. Ég man svipinn á
ömmu Stellu þegar ég sagði þetta við
hana, þó ég væri á leið úr landi og hér
um bil víst að við sæjumst ekki aftur í
þessu jarðlífi. Hún varð svo hissa! En
síðan verður það hún amma sem tekur
á móti mér þegar ég fer og segir mér
að ég hafi haft rétt fyrir mér.
Amma var orðin lasin. Þótt hún
væri þetta veik undir það síðasta sá
maður í augum hennar sátt og gleði,
enda kvaddi hún heiminn umvafin ást.
Krakkarnir hennar sátu hjá henni dag
og nótt. Amma átti góða að og var
sannarlega elskuð.
Minningarnar um ömmu eru marg-
ar. Í fyrsta lagi er ómögulegt annað en
að sjá ömmu fyrir sér með annað
hvort svuntu eða prjóna því hún sat
aldrei aðgerðarlaus. Amma ber enda
ábyrgðina á því að við krakkarnir er-
um nú algjörlega orðin háð ullarvett-
lingum og skiljum ekki hvernig fólk
fer að sem ekki á prjónandi ömmu!
Amma var alltaf hlý og góð við okkur
grísina og alltaf með hlaðborð af
kræsingum hvenær sem kíkt var inn.
Í stofunni ómaði útvarpið, yfirleitt
alltaf rás eitt, og oftar en ekki falleg
íslensk lög sungin listilega. Það er
eitthvert samasemmerki á milli ömmu
og afa og Íslands. Þau unnu landinu
og ferðuðust víða. Þau voru bókaunn-
endur og talsmenn alþýðunnar. Þau
upplifðu misjafna tíma og náðu von-
andi að innprenta á einhvern hátt inn í
komandi kynslóðir þá nauðsyn að
kunna að njóta þess sem maður hefur,
fara vel með sitt og læra hver hinn
sönnu gildi eru í lífinu. Þetta þurftu
þau ekki að gera með lexíum heldur
með því að sýna okkur gott fordæmi.
Áður en ég fór sagði amma mér að
hún hefði aldrei farið út fyrir land-
steinana. Amma þú varst heppin, því
ef maður fær bara að heimsækja eitt
land um ævina, þá er ekki til betra
land en Ísland. Þetta held ég að þú
hafir nú vitað.
Elsku amma. Nóttina sem þú fórst
dreymdi mig að amma Sara kæmi að
sækja þig. Ég veit að nú líður þér vel.
Sjálfsagt hefur afi beðið þín á hest-
baki í grænni fjallshlíð, brosandi.
Hann hefur komið þeysandi við komu
þína, að sjálfsögðu á íslenskum hesti,
og kysst þig eins og hann hafi ekki séð
þig í nokkur ár!
Takk fyrir allt. Takk fyrir að hafa
gefið mér pabba, þennan yndislega
mann! Takk fyrir umhyggjuna,
pönnsurnar, vettlingana, brosin og
þær lífslexíur og minningar sem
munu ylja mér og styrkja það sem
eftir er ævi minnar.
Sara.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, þó að grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift| Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinar