Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 36
Léttklæddar meyjar í Mexíkó MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 „VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG GRÍNMYND. KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI RÆMUMÁRSINS. TÉKKIÐ Á HENNI!” -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS TOPP GRÍNMYND SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE Á 100 KM HRAÐA! SÝND Í KRINGLUNNI EAGLE EYE kl. 5:40D - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára MAX PAYNE kl. 6 - 8:10 - 10:30 B.i. 16 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ PATHOLOGY kl. 10:30 B.i. 16 ára WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ / ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI / KRINGLUNNI EAGLE EYE kl. 6:30D - 9D - 10D B.i. 12 ára DIGITAL SEX DRIVE kl. 8 B.i. 12 ára HAPPY GO LUCKY kl. 10:10 Síðasta sýning B.i. 12 ára JOURNEY TO THE C... kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL WILD CHILD kl. 6 LEYFÐ SÝND Í KRINGLUNNI JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ -BBC -HJ.,MBL FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR SHREK ÍSLENSKT TAL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Á SELFOSSI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI. ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA! TÓNLIST Geisladiskur Motion Boys – Hang On bbbnn ÞÁ er hún komin, fyrsta breiðskífa glamúr-gæjanna í Motion Boys. Það er eflaust óhætt að segja að Hang On hafi verið beðið með eftirvæntingu því hljómsveitin hefur dælt út popps- lögurum síðustu misserin. Hljómsveitin er hugarfóstur Birg- is Ísleifs Gunnarssonar en í upphafi hafði hann sér við hlið tvo af bestu hljóðversmönnum landsins; þá Árna Rúnar Hlöðversson sem er m.a. liðs- maður FM Belfast og Viðar Hákon Gíslason sem hefur gert garðinn frægan í hljómsveitinni Trabant. Þetta teymi lagði grunninn að fyrstu smellum sveitarinnar, „Waiting to Happen“, „Steal Your Love“ og „Hold Me Closer To Your Heart“. Hljómur sveitarinnar var með öðr- um hætti í upphafi því í dag hefur greddan vikið fyrir útpældari popp- hljóm og fágun en bæði Árni og Við- ar hafa sagt skilið við sveitina. Mo- tion Boys í sinni núverandi mynd er skipuð þeim Þorbirni Sigurðssyni, Gísla Galdri Þorgeirssyni og Birni Stefánssyni ásamt Birgi Ísleifi en auk þess hefur Þorvaldur H. Grön- dal nýlega gengið til liðs við sveitina sem bassaleikari en hans liðsinnis naut þó ekki við upptökur. Allir eru þessir menn úrvals hljóðfæraleik- arar og eiga langan feril að baki með ólíkum sveitum eins og Mínus þar sem Björn lemur húðir og Trabant þar sem Gísli Galdur og Þorvaldur hafa staðið vaktina. Þorbjörn er hins vegar þúsundþjalasmiður mikill sem hefur komið víða við enda frábær hljóðfæraleikari og umsetinn ses- sjónmaður. Birgir Ísleifur er virkilega góður söngvari, með mikinn sjarma og út- geislun. Hann, eins og hetjur níunda áratugarins, getur kveikt þennan neista sem þarf til að gera popp á sannfærandi hátt. Lögin hans og tónlist Motion Boys eru úrvalspopp, allavega helmingur þeirra. Hinn helmingurinn er aftur á móti óspenn- andi og þurrar lagasmíðar eða lög sem eru úr öðrum ranni; tregabland- ið og rafrænt naumhyggjupopp sem er að vísu af bestu sort en breytir hins vegar heildarútliti skífunnar um of. Það er hins vegar ekkert hægt að setja út á neinn flutning Motion Bo- ys, hann er allur til fyrirmyndar. Textarnir, sem eru á ensku, hæfa tónlistinni og eru vel fluttir af Birgi sem nær fallegum og áhrifaríkum falsettutónum án nokkra vandkvæða þegar það á við (og það á oft við). Það má segja að markið hafi verið sett hátt við gerð þessarar fyrstu plötu Motion Boys því ljóst er að lög- in eiga að vera eitthvað meira en bara skammlífir slagarar, þetta er vissulega breiðskífa með fjölbreytt- ara litróf en kveður á við fyrstu hlustun. Á hinn bóginn er þetta allt bundið við það sánd og stemningu sem hljóðblöndun skapar og þá stað- reynd að lögin eru misjöfn að gæð- um. „Queen of Hearts“, „Lost in the City“ og „Wa- iting to Happen“ eru öll til fyr- irmyndar – vel samin lög. „Hold Me Closer to Yo- ur Heart“ hefur tekið stakkaskiptum til að hæfa hljóðheimi plötunnar og þetta besta lag sveitarinnar er ekki jafnfrábært og áður. Það er hins veg- ar hið Duran Duran-lega „Five 2 Love“ sem fær stimpilinn besta lag Hang On – bassalína verður ekki mikið flottari en þetta. Titillagið er einnig frábært, minnir á David Bo- wie undir lok áttunda áratugarins og Roxy Music á sínum sokkabands- árum á meðan Brian Eno var ennþá í sveitinni. Þetta er langt og áhrifa- mikið lag sem vinnur á við hverja hlustun. Það sama má segja um loka- lagið sem er margslungið á sinn naumhyggjulega máta sem felur í sér einfaldan takt frá trommuheila í markvissri uppbyggingu að ein- hverju stærra og merkilegra. Bæði þessi lög eru þó úr þeim ranni að vera aðeins á skjön við það sem á undan er gengið. Ég kann í raun bet- ur við hljóðvinnsluna í þessum lögum en í þeim poppaðri því þar finnst mér vanta meira púður; kraft og áræði. Þessi þunni og vandaði hljómur sem valinn er á skífuna á kostnað grodda- legri og feitari nálgunar er skilj- anlegur upp að vissu marki því hér er vilji til að fremja vandað popp af bestu gerð. Það kemur samt á óvart hversu örugg leið er farin því efnivið- urinn býður upp á meiri þunga og ævintýri eins og þegar „Hold Me Closer to Your Heart“ fór fyrst að hljóma. Eins og komið hefur fram er hljómur skífunnar afar poppaður og útpældur en því miður reynist hann leiðinlega þunnur á köflum og ofunn- inn upp úr hljóðgervlapoppbálki ní- unda áratugarins. Þetta er vissu- lega stíll en ég hafði vonast eftir meiri fjölbreytni og nýjunga- girni frá Motion Boys, en hér er um smekksatriði að ræða sem breytir þó ekki þeirri staðreynd að það vantar bara einhvern kraft í þetta. Ég mæli engu að síður með því að þú, lesandi góður, fjárfestir í þessum geisladiski, lærir lögin og farir svo á tónleika með Mo- tion Boys því þá færðu mikið fyrir peningana – og getur sungið með einu besta tónleika- bandi landsins. Jóhann Ágúst Jóhannsson Sykurhúðaðir töffarar TÍSKUVIKAN í Mexíkó- borg stendur nú sem hæst en þar sýna hönnuðir helstu strauma og stefnur í tískunni fyrir næsta vor og sumar. Eins og sjá má á mynd- unum gera hönn- uðirnir ráð fyrir að heitt verði í veðri í Suður-Ameríku í vor og sumar og fyr- irsæturnar flestar í efnis- litlum klæðnaði. Líklegt verður þó að teljast að ekki veiti af enda jafnan heitt suður við miðbaug á umræddum árstíma. jbk@mbl.is Xfit Lycr a Þessi fy rirsæta e r eiginleg a ekki í nei nu að ofa n. Spurni ng hvort sú tíska ver ði vinsæl á næstun ni. Alessandro Alviani Léttur og sum- arlegur fleginn kjóll með pífum. Xfit Lycra Þessi klæðnaður hentar örugglega vel á ströndinni. REUTERS Alana Savoir Glæsilegur kjóll þar sem kynþokkinn er í fyrirrúmi. Alana Savoir Síð peysa sem sýnir þó vel í aðra öxlina. Xfit Lycra Neon-litir eru áber- andi í þessu bíkíni. Xfit Lycra Þessar fyrirsætur sýndu mikið bert hold, en þó ekki andlitið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.