Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 20
ALDREI hefur það birst mér jafnskýrt og nú hversu miklu máli pólitíkin skiptir. Aldr- ei hefur það verið mér jafnljóst og nú hversu mikilvægt það er að á Alþingi sitji fólk sem ég treysti. Aldrei hef- ur það verið mér jafn- ljóst og nú hversu mikil ábyrgð felst í því að kjósa. Við erum komin á þann stað þar sem pólitískar ákvarðanir skipta öllu máli. Það hefur vægt frá sagt vakið mér ótta að heyra margt það sem stjórnmálamennirnir á Alþingi hafa talið mikilvægast síðustu tvær vik- urnar. Vikur þar sem hjól atvinnu- lífsins hafa stöðvast og verðmæta- sköpunin þar með. Drambsemi og þjóðernishyggja á slíkum krísutím- um er óhugnanleg svo ekki sé meira sagt. Að hlusta nú á fullyrð- ingar stjórnmálamanna í þá veru að við getum komist í gegnum þetta allt ein og sjálf án aðstoðar Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins er með ólík- indum. Það er full ástæða til að vekja athygli á orðum Uffe Ell- emanns Jensens sem vitnað var til á forsíðu Fréttablaðsins í vikunni en þar varaði hann okkur Íslend- inga við því að láta stolt okkar verða til þess að við enduðum í sömu stöðu og Bjartur í Sum- arhúsum. Þessi orð Uffe Ellemanns hafa verið þau gagnlegustu sem ég hef séð koma frá stjórnmálamönn- um síðustu tvær vikur. Að hafa á tilfinningunni núna á slíkum krísutímum að flokkshags- munir séu hafðir ofar öllu öðru – jafnvel ofar heildarhagsmunum þjóðarinnar – er með öllu óþolandi. Ef ákvarðanir sem teknar eru núna þýða að stjórnmálaflokkar munu klofna – þá mega þeir klofna og það þó fyrr hefði verið. Um árabil höf- um við búið við stjórnmálakerfi þar sem hagsmunir flokkanna hafa ver- ið settir ofar hagsmunum lands- manna. Ekkert er fánýtara fyrir okkur nú en gamlar klisjur og stjórnmálamenn sem eru fastir í úr- eltum hugmyndum. Um árabil hefur það verið aug- ljóst að Íslendingar þyrftu að tak- ast á við þau vandamál sem lítill gjaldmiðill hefur skapað okkur í al- þjóðlegum heimi nú- tímans. Um árabil hafa stjórnmálamennirnir okkar hver um annan þveran reynt að finna leiðir til að þurfa ekki að takast á við þetta vandamál. Leit ís- lenskra stjórnmála- manna allt síðasta ár að „hjáleið“ í gjaldmið- ilsmálum er vægast sagt hjákátlegt nú. Við sjáum nú hvert slík pólitík leiðir okkur. Það hefur aldrei reynst gott vega- nesti til framtíðar að stinga höfðinu í sandinn og neita að horfast í augu við raunveruleikann. Það sem við upplifum nú er bein afleiðing slíkr- ar stefnu. Íslenska krónan er ekki saklaust fórnarlamb í umróti síðustu ára eða hruni bankakerfisins síðustu vikur. Íslenska krónan hefur haft lyk- ilhlutverki að gegna í öllu því sem gerst hefur í íslensku hagkerfi síð- ustu ár – að halda öðru fram er í besta falli óraunsæi af verstu gerð. Það er ekki valkostur að bjóða okkur upp á að búa við slíkar sveifl- ur sem einkennt hafa íslenskt hag- kerfi um langa framtíð. Einangr- unarstefna er ekki valkostur. Evrópusambandsaðild og upptaka evru er augljós krafa okkar sem viljum áfram búa í umhverfi al- þjóðlegra viðskipta. Aðild að Evr- ópusambandinu er ekki trúarlegt atriði, það mun ekki leysa allan okkar vanda – langt því frá – en það er eini möguleikinn til að geta sem Íslendingur horft bjartsýnn til framtíðar. Nú ríður á að við sem viljum sjá stjórnmálamennina okk- ar takast á við raunveruleikann – sjáum til þess að það muni þeir gera. Signý Sigurð- ardóttir fjallar um stöðuna í íslensku efnahagslífi Signý Sigurðardóttir Höfundur starfaði í alþjóðaviðskiptum um árabil. Heildarhagsmuni ofar flokkshags- munum – takk » Að hafa á tilfinning- unni núna á slíkum krísutímum að flokks- hagsmunir séu hafðir ofar öllu öðru – jafnvel ofar heildarhagsmunum þjóðarinnar – er með öllu óþolandi 20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 Vertu viðbúin(n) vetrinum Glæsilegt sérblað tileinkað vetrinum fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 31. október. • Utanlandsferðir yfir vetrartímann. • Skemmtileg afþreying innanlands. • Vetraríþróttir - góð hreyfing og útivera. • Hvað má gera sér til skemmtunar í vetur, leikhús fleira. • Teppi, kerti, bækur og annað hlýlegt. • Haustskreytingar. Meðal efnis er: • Skemmtilegir og kósý hlutir fyrir heimilið. • Matarboð á veturna. • Hvernig má verjast kvefi og öðrum leiðindakvillum sem fylgja vetrinum. • Bíllinn í vetrarbúning. • Góð og hlý föt fyrir alla aldurshópa. • Andleg heilsa. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 27. október. SAMKOMULAG hefur náðst milli Reykjavíkurborgar og heilbrigðisráðuneyt- isins um sameiningu heimahjúkrunar og fé- lagslegrar heimaþjón- ustu. Loksins, árið 2008 erum við að koma á laggirnar heildstæðri þjónustu fyrir þá sem þurfa aðstoð við heimilishald og at- hafnir daglegs lífs vegna skertrar getu af völdum aldurs, fötlunar eða sjúkdóma. Þann 18. nóvember árið 2003 skrifuðu þáverandi heilbrigð- isráðherra og borgarstjóri undir samkomulag um samtvinnun fé- lagslegrar heimaþjónustu og heima- hjúkrunar. Tveggja ára til- raunaverkefni var sett af stað árið 2004. Að því loknu var gerð úttekt í upphafi árs 2006. Að mati þeirra sem þjónustuna veittu og þeirra sem nutu hennar varð þjónustan einfald- lega betri. Ótvíræð hagræðing Fram kom mikil hagræðing af samþættingunni. Í lokaskýrslu verk- efnisins var skoðaður kostnaður fyr- ir 85 ára einstakling sem fékk frá heimahjúkrun; böðun einu sinni í viku, lyfjagjöf tvisvar á dag, eftirlit og persónulega aðstoð daglega. Frá félagslegu heimaþjónustunni voru þrif aðra hvora viku og innlit hina vikuna. Eftir samþættingu fékk hann jafnmikla þjónustu en verk- þættir voru fluttir á milli. Vikulegur kostnaður var, á verðlagi ársins 2005, 80.000 krónur fyrir samþætt- ingu en 57.500 eftir samþættingu, sem er 28% lækkun. Sparnaður fyrir þennan eina einstakling var því um ein milljón króna á ársgrundvelli án þess að þjónustan yrði verri, þvert á móti. Tugir einstaklinga njóta sam- bærilegrar þjónustu í dag og hund- ruð Reykvíkinga njóta bæði heima- hjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu. Heildarhagræðing er því umtalsverð. Þrátt fyrir þessa skýru niðurstöðu bæði hvað varðar aukin gæði þjónustunnar og hag- ræðingu sá heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið ekki ástæðu til þess að heimahjúkrun flyttist varanlega yfir til Reykjavíkur eins og borgaryfirvöld óskuðu eftir þvert á flokks- línur. Ástæðan var sögð sú að sameining sveitarfélaga væri ekki komin nægj- anlega langt á leið og var Reykjavík sett undir þann hatt, þrátt fyrir fjölda fordæma í formi þjónustu- samninga við önnur sveitarfélög. Skriður komst á viðræðurnar á nýjan leik þegar ný ríkisstjórn tók við á síðasta ári. Nú þegar fimm ár eru liðin frá undirritun sam- komulags um tilraunaverkefni til tveggja ára, höfum við nýtt sam- komulag um tilraunaverkefni til þriggja ára. Það gengur þó lengra en það fyrra þar sem heimahjúkrun flyst yfir á Velferðarsvið borg- arinnar. Ástæðurnar fyrir þessum óratíma eru eflaust margar og flækjustigin sem kerfin skapa eru ótalmörg. Óþarfi er að fara í þá nei- kvæðu umræðu á sama tíma og við öll getum fagnað geysilega merkum áfanga í þjónustu við þá sem þurfa aðstoð inn á heimili sín. Fleiri verkefni til sveitarfélaganna Það er óumdeilt að sveitarfélögin eru best til þess fallin að sinna nær- þjónustu við íbúa landsins. Hagræð- ing skapast af því að einn aðili beri ábyrgð á og sjái um stjórnun verk- efna á sama sviði. Það þarf ekki að bitna á þjónustuþegum, þvert á móti. Nú á tímum efnahagsþreng- inga er tækifæri til að endurhugsa verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga þar sem sveitarfélögin sem grunneiningar samfélagsins þurfa að eflast á næstu árum í takt við breytta samfélagsmynd. Þeir sem standa höllum fæti í dag vegna fé- lagslegra aðstæðna, öldrunar, fötl- unar og eða sjúkdóma verða enn við- kvæmari fyrir breytingum og því mikilvægt að stýra þjónustu við þá hópa þannig að hún mæti þörfum þeirra sem best. Núverandi ríkisstjórn og Sam- band íslenskra sveitarfélaga vinna að því að yfirfæra málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga árið 2011 og málefni aldraðra árið 2012. Þeirri vinnu má flýta. Lengi hefur verið rætt um að vinnumiðlun ætti heima hjá sveitarfélögunum sem og heilsu- gæslan en báðir þessir þjón- ustuþættir voru áður á hendi sveit- arfélaganna. Þá er vert að kanna möguleika á flutningi framhalds- skólans þannig að „skyldunámið“ sé á einni hendi. Menntun barna byrjar með leikskóla og náminu á ekki að ljúka fyrr en við lok framhaldsskóla hvort sem það er með stúdentsprófi, sveinsprófi eða með starfsrétt- indanámi. Framtíðin í nærsamfélaginu Þrátt fyrir að mér verður tíðrætt um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga geri ég mér grein fyrir að sú umræða snýst ekki bara um þessar stjórnsýslueiningar. Hún snýst um fólkið í landinu, fjölskyldu okkar og vini sem þurfa eðli málsins sam- kvæmt þjónustu frá samfélaginu eins og við öll þurfum á að halda á einum eða öðrum tíma í lífi okkar. Þó það sé svo sjálfsagt og eðlilegt að einn aðili stýri viðkvæmri þjón- ustu inn á heimili fólks, hafa fimm löng ár liðið frá fyrsta formlega sam- komulaginu. En við höfum öðlast reynslu og þekkingu í samningum bæði við heilbrigðisráðuneytið vegna heimahjúkrunar og félags- málaráðuneytið vegna þjónustu við geðfatlaða. Við megum því ekki bara fagna í dag, heldur taka næstu skref á morgun. Sveitarfélögin þurfa fleiri verk- efni, íbúar þeirra eiga skilið að nær- þjónustan sé veitt af þeim sem eru nærri og ríkið þarf að einbeita sér að endurreisn efnahagsmála og nið- urgreiðslu skulda næstu árin. Sveit- arfélögin hafa framtíðina í hendi sér – hana ber að nýta. Framtíðarheimaþjónusta Björk Vilhelms- dóttir skrifar um sameiningu heima- hjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu »Hagræðing skapast af því að einn aðili beri ábyrgð á og sjái um stjórnun verkefna á sama sviði. Það þarf ekki að bitna á þjónustuþegum, þvert á móti. Björk Vilhelmsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og talsmaður Samfylkingarinnar í velferðarmálum , ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.