Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is D ætur mínar eru svo for- dekraðar. Ég hef séð um að gera við sokka og önnur plögg af börn- unum þeirra hingað til, en núna er kominn tími til að þær læri að gera þetta sjálfar,“ segir Helga Árnadóttir fyrrum heimilisfræðikenn- ari sem kallaði dætur sínar fjórar, tvær ömmustelpur og eina ská- tengdadóttur til sín eitt kvöld í síðustu viku til að kenna þeim að baka hollt brauð í kreppunni og að stoppa í sokka. „Nú eru tímarnir þannig að það er full ástæða til að taka upp fyrri búskaparhætti í þessum efnum. Þegar dætur mínar voru litlar stúlkur var nýtnin í fyrirrúmi. Ég stoppaði tvisv- ar til þrisvar sinnum í sokkana þeirra áður en ég henti þeim. Og mér fannst það alltaf svolítið gaman, þetta er ró- andi rétt eins og aðrar hannyrðir. Og það er ekkert mál að stoppa í bómullarsokka, rétt eins og prjónaða sokka. Hér áður fyrr var meira að segja hægt að fara með næl- onsokkabuxur í viðgerð á marga staði og þar voru sérstakar vélar til þess, en sjálf stoppaði ég í göt á tám og hæl- um nælonsokkanna minna svo þeir entust lengur.“ Hafið þið soðið niður svið? Elsta systirin var komin með tví- tuga veiðisokka pabba síns til við- gerðar, en hún notar þá í gönguferð- um. „Þeir hafa verið svo mikið notaðir að það hefur tvisvar verið prjónað neðan við þá síðan ég fékk þá. Þess á milli hefur mamma stoppað í þá. Þess- ir sokkar vöktu ómælda ánægju og öf- und á Hornströndum í sumar, þegar ég var þar í gönguferð.“ Fyrrum sokkaeigandinn og hús- bóndinn á heimilinu, vogar sér fram í eldhús eitt augnablik en honum hafði verið vinsamlega vísað þaðan skömmu áður. „Ég var látinn stoppa í sokka og prjóna leppa þegar ég var strákur,“ segir hann nokkuð hróðugur yfir kunnáttunni og spyr síðan í framhaldi af umræðu um gamla matarsiði: „Haf- ið þið soðið niður svið?“ Með spurn- ingunni vísar hann í fyrirsögn úr Birt- ingi sem hann hafði lesið forðum í Dölunum. Sjálfur sagðist hann ekki kunna að sjóða niður svið en tók fram að á sínum bernskudögum hefðu svið- in bæði verið söltuð og súrsuð. Bláber beint úr Bjarnarfirði Helga er fljót að þagga niður í bónda sínum enda nóg að gera. Hún er mikil búkona og hefur ýmis góð ráð í komandi þrengingum. „Í kreppu á að fara út í náttúruna og tína ber og búa til saft og sultur eða frysta þau fersk. Ég ætla að bjóða ykkur upp á bláber á eftir sem áttræð frænka tíndi í Bjarnarfirði á Strönd- um í haust en ég skellti þeim beint í frystinn svo þau eru án alls sykurs og fjarska góð með rjóma.“ Í beinu fram- haldi af berjatali rifja dæturnar upp bernskuár þar sem þær voru neyddar til að tína óskaplega mikið af bláberj- um. „Svo þurftum við að borða blá- berjasúpu annan hvern sunnudag all- an veturinn,“ segja þær og skellihlæja en Helga kannast ekki við að hafa þrælað þeim út við berjatínslu. Fór í nám eftir fimmtugt Helga vann sem kennari í hálfa öld við Grunnskólann í Vogum á Vatns- leysuströnd þar sem hún bjó ásamt Jóni bónda sínum og ól upp dæturnar fjórar. Hún kenndi frá átján ára aldri, flest árin við almenna kennslu en seinni hlutann starfaði hún sem heim- ilisfræðikennari. „Þegar stelpurnar voru farnar að heiman og ég var orðin fimmtug fékk ég frí frá kennslunni í eitt ár og skellti mér í Kennaraskól- ann og lærði að verða heim- ilisfræðikennari. Ég flutti til Reykja- víkur inn á tvær dætur mínar sem þar bjuggu og þetta var mjög skemmti- legur vetur. Við vorum tvær konur sem tókum þessa þrjá bekki á einum vetri og vorum ansi ánægðar með okkur. Það var mikil áhersla lögð á hollustu í náminu, bæði að minnka sykur og fitu í matargerð en það var ekkert lífrænt eða neitt svoleiðis, eins og er svo vinsælt núna. Ég þori ekki annað en að baka brauðið í kvöld ein- vörðungu úr lífrænu hráefni, því ein dætra minna borðar bara lífrænt,“ segir Helga og hlær að þægð sinni við afkvæmin. Mamma er svo bóngóð Upphefjast nú miklar umræður og sögur af bakstri og svignandi borðum undan hnallþórum. Elsta dóttirin rifj- ar upp þegar hún ein jólin hjálpaði móður sinni við að baka sextíu tertu- botna, sem urðu að þrjátíu tvöföldum kökum. Einhverjar dætranna segjast alveg kunna að baka brauð þótt þær hafi kannski ekki stundað það af miklum móð og aðrar segjast ekki kæra sig um að læra að stoppa í. „Mér finnst voða gott að geta sent börnin í göt- óttum buxum til ömmu sinnar og krakkarnir vilja líka að hún geri við, af því að hún er langflinkust í þeim efnum. Mamma er svo bóngóð. Henni finnst líka svo gaman að koma til okk- ar og baka með börnunum okkar, við verðum að leyfa henni að gera það áfram,“ segir ein þeirra en önnur dótturdótturin var í þó nokkrum mót- þróa og sagðist ekki ætla að baka brauð, ekki taka slátur og ekki ætla að gera sultur, þó hún ætti fulla frystikistu af rabarbara. Hún ætlaði bara að láta eiginmanninn um þetta stúss. „Þið eruð nú alveg kostulegar,“ segir Helga og hristir höfuðið. Holla brauðið 6 dl spelt 1 dl haframjöl 1 dl fræ (eftir eigin vali en fjölkorna- blanda er tilvalin) 3 tesk. vínsteinslyftiduft 1 tesk. salt 3 dl Ab-mjólk 3 dl sjóðandi vatn (þeir sem vilja geta skorið niður döðl- ur og bætt út í deigið) Aðferð: Hrært lauslega saman, sett í form, frekar tvö eða þrjú lítil en eitt stórt, bakað í 20-25 mínútur við 200 gráður (180 gráður ef blástursofn.) Um að gera að borða eitt brauð alveg nýtt en frysta hin. Rúgbrauð 625 gr. rúgmjöl 200 gr. hveiti 100 gr. heilhveiti 200 gr. púðursykur 4 tesk. lyfitduft 1 lítri mjólk 1 tesk. salt Aðferð: hrært í hrærivél, bakað í eins lítra mjólkurfernum. Ein upp- skrift passar í þrjár fernur en hver ferna er hálffyllt af deigi. Loka fernunum vel, annaðhvort með álpappír eða hvolfa hálfum fern- um yfir. Látið í heitan ofn, bakað við 100- 120 gráður í tólf klukkustundir. Einn- ig er hægt að baka brauðið í steiking- arpotti. Mamma kennir kreppuráð Kátt á hjalla Jóhanna, Berglind, Árdís, María, Bjarney, Brynhildur og Helga María skemmtu sér vel í kennslunni. Stoppað í sokka Fyrst eru tekin spor langsum fram og til baka og skal það vera nokkuð þétt. Síðan er farið þvert á, til skiptis undir og yfir hvern þráð. Kúnstin er að láta ístoppið ekki verða ljótt á hlið- unum og taka ekki of fast í. Hvað sem er Hver og einn getur bætt því sem hann vill út í deigið, til dæmis döðlum. Ungur nemur gamall temur Ömmustelpan og nafnan Helga spreytir sig við baksturinn undir dyggri stjórn ömmu sinnar. Holla brauðið Girnilegt og alveg að verða tilbúið í ofninum.  Tímarnir eru þannig að rétt er rifja upp gömul búhyggindi og hafa nýtnina í fyrirrúmi  Stoppa skal í sokka, prjóna leppa, tína ber og búa til úr þeim saft og sultur eða frysta Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlaðið borð Helga hin húslega veitti vel af nýbökuðu góðgæti og uppskriftarbókin var ekki langt undan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.