Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008 Einhvern tíma á milli eggtíðar og grasa árið 1963 vor- um við í ani við að lengja Stórubryggj- una í Grundarfirði nokkrir ungir menn og með okkur var Elberg Guðmunds- son, sem sá um að heimspekilegt um- ræðuefni þraut ekki. Það var á einum af þessum sólskinsdögum, þegar Grundarfjörður skartar sínu fegursta og þorpið iðaði í framkvæmdum og var að breytast í þróttmikið samfélag. Ný hús risu hér og þar, en sýnu mynd- arlegast var húsið við Grundargötu 18, enda þegar búið að steypa tvær hæðir. Við gerðum hlé á vinnunni og hlust- uðum á síldarfréttirnar og heyrðum m.a. að Runólfur SH 135 væri á leið- inni í land með fullfermi. „Nú bætir Gvendur enn við einni hæð“ heyrðist í Elbergi, sem gjarnan skildi samhengi hlutanna, enda gekk það eftir. Enginn vafi leikur á því að Guð- mundi var það mikill metnaður að reisa Ingu konu sinni, í þakklætis- og virðingarskyni, gott og fallegt hús þar sem mætti herbergja þessa stóru fjöl- skyldu, þau sjálf og strákana sex, sem voru líklega ögn fyrirferðameiri en í meðallagi. Það var svo þremur árum síðar að í hópinn bættust tvíburanir María og Unnsteinn. Ingibörg Kristjánsdóttir ólst upp í föðurgarði á Þingvöllum í Helgafells- sveit á miklu myndarheimili, þar sem búskapur allur, innan og utan dyra, bar vitni um dugnað og snyrti- mennsku. Þar rétt hjá í sömu sveit, þar sem heitir á Gríshóli var ungur vinnu- maður Guðmundur Runólfsson og eins og í öllum góðum sögum tókust með þeim ástir, sem entust með þeim alla tíð. Af litlum efnum en miklum dugnaði hófu þau Inga og Guðmundur búskap í ✝ Ingibjörg Sigríð-ur Kristjáns- dóttir fæddist á Þingvöllum í Helga- fellssveit 3. mars 1922. Hún lést á St. Franciskussjúkra- húsinu í Stykk- ishólmi 9. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Grundarfjarð- arkirkju 18. október. Grundarfirði árið 1947, fyrst í Götuhúsi en þremur árum síðar fluttu þau í húsið við Hamrahlíð. Það var svo árið 1965, sem þau fluttu í nýja glæsilega húsið að Grundargötu 18 og bjuggu þar allar götur til ársins 1997 að þau komu sér fyrir í einkar snoturri íbúð í Fella- skjóli. Einlægt frá því að ég fluttist með foreldrum mínum til Grundarfjarðar haustið 1952 hef ég notið þess vinskapar sem þau og Inga og Guðmundur stofnuðu til strax í öndverðu og fyrir það vil ég þakka hér af alhug. Við Þórunn nutum þeirra forrétt- inda að kaupa af þeim hjónum neðstu hæðina á Grundargötu, þar sem við bjuggum í fjögur góð ár. Orri og Arna eignuðust góða vini í leiðinni, enda vék Inga ósjaldan að þeim köku og öðru góðgæti. Inga minnir óneitanlega á þær góðu og hjálpsömu konur, sem Jón úr Vör yrkir um í Þorpinu. Þær létu sér annt um alla í kringum sig og var svo eðlilegt að rétta öðrum hjálparhönd og gera þeim lífið eilítið bærilegra með litlu viðviki. Inga var manni sínum stoð og stytta hvort heldur var á heimilinu eða í miklum umsvifum hans í útgerð- inni, enda allt í senn húsfreyja, fram- kvæmdastjóri á stóru heimili og hans besti ráðgjafi þegar mest lá við. Inga var gætin í fjármálum og minnti bónda sinn stundum á, að kapp væri best með forsjá. Inga var skemmtileg kona, gestris- in, glaðvær, ljóðelsk og sjór sagna. Dugnaði hennar var viðbrugðið, enda reyndi oft á hann, því gest- kvæmt var á heimilinu og fjölskyldan stór. Fáar konur hafa lagt byggðarlagi sínu til jafnmikinn auð og Inga. Hún hefur komið á legg átta harðdugleg- um börnum, sem nær öll búa og starfa í Grundarfirði. Barnabörnin hafa flest látið muna um sig og hafa sett mark sitt á heimabyggðina. Hún hefur séð litla fátæka þorpið breytast í glæsi- legan bæ, þar sem heita má „að drjúpi smjör af hverju strái“. Hún á stóran hlut í þessu ævintýri. Þegar Inga og Guðmundur eltust gáfu þau sig að því að styðja þá, sem aldnir voru með því að blanda geði við þá með glaðværð sinni, sem var gef- andi. Hjónin Inga og Guðmundur voru hvort öðru ágætara, eins og Bjarni á Berserkseyri sagði eitt sinn um önnur hjón. Grundarfjörður væri að sönnu miklu fátækari, ef Inga hefði ekki lagt allt það af mörkum, sem hún gerði og því er hún kvödd með þökk og virð- ingu. Við Þórunn sendum Guðmundi vini okkar samúðarkveðjur og svo öllum öðrum í fjölskyldunni. Árni M. Emilsson. Ingibjörg Sigríður Kristjánsdóttir ✝ Guðgeir Sumar-liðason var fæddur á Feðgum í Meðallandi, V- Skaftafellssýslu, 2. apríl 1929. Hann lést 19. október á deild 11-E á Landspítal- anum við Hring- braut. Foreldrar hans voru Sumarliði Sveinsson, f. 10.10. 1893 á Undirhrauni/ Melhól, Meðallandi, d. 22.2. 1992, og kona hans Sigríður Runólfsdóttir, f. 1.12. 1899 í Neðra- Dal, Biskupstungum, frá Bakkakoti í Meðallandi, d. 16.8. 1986. Bróðir Guðgeirs er Sveinn, f. 3.9. 1922 á Feðgum, d. 9.8. 2002, bíl- stjóri í Þorlákshöfn. Hans börn: Þorvaldur Geir, Dagbjartur Ragn- ar og Halldóra Sigríður. Feðgar var torfbær sem stóð sunnanvert við Eldvatnið. Fjöl- skyldan fluttist þaðan vegna ágangs sands 1945. Þau fór til Hveragerðis og byggðu sér þar hús sem þau nefndu einnig Feðga, það var í Heiðmörk 51. Þá var Guðgeir 16 ára en Sveinn bróðir hans tæpra 23ja ára, fjölskyldan gisti að mestu í tjaldi á lóðinni þar til hægt var að flytja inn í nýja húsið í september. Sumarliði og Sigríður bjuggu þar starfaði lengst af á Bæjarleiðum við leigubílaakstur, Guðgeir fékk ung- ur vélstjóraréttindi (pungapróf). Var hann á síld eina vertíð og seinna með tengdaföður sínum á mb. Hafþóri um tíma. 1972 söðlaði hann um og gerðist bóndi í Bitru í Hraungerðishreppi, Árn. Þau brugðu búi 2002 og fluttu þá á Bjarnhólastíg 24, Kópavogi, það hús ber einnig nafnið Feðgar. Börn Hrefnu og Guðgeirs eru 1) Jenný Kristín, f. 24.3. 1952, m. Hjörtur Hans Kolsöe, f. 22.2. 1953, börn: a) Halldór Úlfar, f. 8.2. 1973, sbk. Sara Sturludóttir, f. 18.7. 1979, barn: Aron, f. 13.8. 2003, b) Arelíus Sveinn, f. 6.12. 1975, kona: Arna B. Boonlit, f. 1.1. 1982, barn: Sara Fönn, f. 6.9. 2001, og Guðgeir Hans, f. 8.3. 1982, 2) Sigrún f. 9.8. 1953, m. Ásgeir R. Sigurðsson, f. 27.2. 1948, d. 16.1. 1983, börn: a) Vilhjálmur Geir, f. 10.5. 1969, kona: Miriam Geelhoed, f. 5.10. 1973, barn: Mats Kilian, f. 27.1. 2007, b) Ásdís, f. 12.1. 1973, sbm. Eyþór Grétar Birgisson, f. 17.3. 1961, börn: Kristín Viðja, f. 11.6. 1994, og Karen Ósk, f. 23.3. 2003, sbm. SG Ólafur Ágúst Lange, f. 5.4. 1955, 3) Edda Lára, f. 24.9. 1954, börn: a) Helena Dögg, f. 23.7. 1973, barn: Tinna Líf, f. 12.1. 1998, b) Geir, f. 23.12. 1982, sbk. Bai Ying Ge, f. 26.8. 1987 og c) Arnar f. 8.12. 1988. 4) Auður Rut, f. 19.5. 1959, barn: Hrefna Líf, f. 28.7. 1986, 5) Þorkell Kristján, f. 28.4. 1962. Guðgeir verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í dag kl. 11. svo til ársins 1985, er þau fluttu til sonar síns í Bitru. Í Hveragerði starfaði Guðgeir m.a. við bygg- ingu Ölfusárbrúar og var með vörubíl að leggja veginn út í Sel- vog og var handmokað á og bílstjóranum ekki gerð nein undantekn- ing. Skólabílstjóri var hann í Hveragerði og var þá ekki mikið eldri en elstu börnin. 17.4. 1954 kvæntist Guðgeir Hrefnu Ólafsdóttur, f. 9.1. 1932 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ólafur G.H. Þorkelsson vörubílstjóri í Reykjavík, f. 16.11. 1905 á Ísafirði, d. 26.10. 1980 í R, og kona hans Guð- rún H. Þorsteinsdóttir, f. 9.9. 1911 í Vestmannaeyjum, d. 28.6. 1987 í Reykjavík. Hann var góður penni og ritaði greinar í ýmis tímarit um áhugamál sín. Og ætíð ferðapistla um ferðir sín- ar með Samkór Selfoss þar sem hann söng bassa í fjölda ára og söng í kirkjukór Hraungerðiskirkju og var þar sóknarnefndarformaður. Eftir að þau hjón fluttu suður gekk hann til liðs við Árnesingakórinn í Reykja- vík sem mun syngja honum til heið- urs við útförina. Guðgeir og Hrefna bjuggu í Reykjavík þar sem hann Elsku „pabbaskat“. Mig langar að minnast þín með fá- einum orðum. Þú varst sá blíðasti og besti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Þú varst ekki margmáll en afskap- lega fróður og vel lesinn maður, alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Svo lengi sem ég man eftir mér notaðir þú aldrei skírn- arnafn mitt, þú ávarpaðir mig aldrei öðruvísi en með gælunafninu sem þú gafst mér þegar ég kom frá Dan- mörku eftir hjartaaðgerð aðeins 6 ára gömul. En því miður tók það mig 35 ár að vita hvað þetta orð þýddi, ég hélt einfaldlega að þetta væri bara gælu- orð sem þú hefðir fundið upp handa mér, og mér fannst alltaf svo vænt um það, og ég var komin yfir fertugt þeg- ar ég vissi hvað þetta orð þýddi, fjár- sjóður, ekki minnkaði væntumþykjan á nafninu og þér við það. Þú varst mik- ill og góður söngmaður og söngst í kórum lengst af. Þú varst alltaf á móti því að sálmar væru styttir. Vildir helst syngja þá í fullri lengd, svo að í kistulagningunni þinni var Ó, Jesú bróðir besti sungið í fullri lengd og ekkert múður, þannig hefðir þú viljað hafa það. Elsku pabbaskat, þín er sárt sakn- að af mér og minni fjölskyldu, Helenu, Tinnu, Geir og Arnari. Hvíl í friði, elsku pabbi minn. Þín „Lilleskat.“ Edda Lára. Guðgeir átti djúpan róm og dug í sinni og rætur austur á skaftfellskum söndum. Hann stundaði söngnám hjá Ingveldi Hjaltested og söng að stað- aldri í tveim kórum. Ég kynntist hon- um meðan ég bjó á Flúðum og þangað kom hann úr hinum enda þessa söng- glaða héraðs í söngtíma til kennarans og til að fá undirleik hjá mér. Ná- grannar urðum við síðar og góðir vin- ir. Hann unni arfinum okkar sameig- inlega, ljóðunum sem lögin prýddu eins og sögum af lífsþrautum og sigr- um. Hann bjó yfir hógværð og festu. Mæt er minning þessa góða drengs. Ingi Heiðmar Jónsson. Elsku Guðgeir. Það er komið að kveðjustund. Það var einkennileg til- finning hér um árið þegar ég var á leið austur til ykkar Hrefnu til að dvelja hjá ykkur langdvölum. Ég hafði aldrei séð ykkur áður. En móttökurnar voru ekki slæmar, þið tókuð mér á allan hátt opnum örmum. Elsku Guðgeir, hvað þú varst mér góður þennan tíma, tókst mér sem þinni eigin dóttur. Það stytti stundirnar að fá að fara með þér í fjósið og gefa kálfunum, það var toppurinn á tilverunni í þá daga. Ég á eftir að sakna þín. Elsku Hrefna, Jenný, Sigrún, Edda Lára, Auður og Þorkell, Guð blessi ykkur öll og fjölskyldur ykkar. Minn- ingin um gullmolann ykkar lifir. Kveðja, Björg Benjamínsdóttir. Með þessum fáu línum vil ég minn- ast Guðgeirs Sumarliðasonar. Ég kynntist Guðgeiri og hans fjöl- skyldu þegar ég var 11 ára eða fyrir 43 árum og leita því margar góðar minningar á hugann. Mér var tekið svo vel af Guðgeiri og Hrefnu að það var eins og ég væri fjölskyldumeðlimur, en svona var Guðgeir. Guðgeir hafði þann eiginleika að öllum leið vel í návist hans. En nú er kallið komið eftir veikindi síðustu ár. Ég er þess fullviss að svo góður drengur fær góðar móttökur á nýj- um stað. Hrefna mín og þið öll. Megi Guð og góðar vættir styðja ykkur í ykkar sorg. Margrét E. Kristjánsdóttir. Sigurður Pálsson. Ég vaknaði upp við vondan draum í London fyrir 15 árum. Mig dreymdi að þú værir farinn. Þú, af öllum. Ég var svo langt í burtu og ég átti þér svo margt að þakka. Sem betur fer var þetta draumur. Þegar ég hringdi í þig var allt í lagi. Þegar ég kom heim naut ég þess að vera nálægt þér. Ég vissi hvað ég var heppinn að þekkja þig. Ég sagði þér aldrei frá því hvað mig dreymdi. Það skipti ekki máli. Fyrir rúmum tveimur árum viss- um við að eitthvað var að. Vissum ekki hvað það var en þér leið illa. Þeg- ar ég kom heim um sumarið vildi ég fara með þig austur í Meðalland svo þú gætir séð æskuslóðirnar einu sinni enn en þú varst of veikur. Sem betur fer náðir þú þér aftur. Þú gast notið lífsins þótt óveðursskýin neituðu að hverfa. Þegar fólk spurði hvernig ég hefði það, hvernig gengi, minntist ég aldrei á þig. Ekki vegna þess að ég vildi það ekki, ég vildi öskra til al- heimsins að þarna færi fallegasta manneskja sem ég hef nokkru sinni kynnst. Ég vildi segja öllum heimin- um að lífið væri óréttlátt gagnvart þeirri manneskju sem átti það síst skilið. Að ég hefði glaður skipt við þig, tekið á mig krabbameinið og bar- ist fyrir þig. Ég sagði þér aldrei að allt sem ég hef gert síðan var fyrir þig. Mitt líf eins og það leggur sig var, er og verð- ur tileinkað þér. Ég væri ekki sá sem ég er án þess að hafa kynnst þér og lært af þér. Allt það góða sem ég reyni að tileinka mér á ég þér að þakka. Ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að sýna þér Mats Kili- an og sjá þig halda á honum. Ég mun aldrei gleyma litla augnablikinu áður en þið fóruð frá Skotlandi og þú komst inn í herbergi þar sem hann lá sofandi. Ég mun aldrei getað þakkað þér almennilega fyrir það en þess þarf ekki. Ég vildi að ég gæti verið hjá þér en þú ert kominn á betri stað þar sem þú þarft ekki að þjást. Þú munt lifa í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi. Takk fyrir allt og Guð blessi þig. Vilhjálmur Geir Ásgeirsson. Nú er horfinn yfir móðuna miklu hjartkær vinur, svili og mágur Guð- geir Sumarliðason. Margir góðir kost- ir prýddu þennan dáðadreng. Hann hafði óvenju tæra og fallega söngrödd sem við nutum oftlega á góðum fund- um á heimili hans og Hrefnu, konu hans, um leið og við nutum ríkulegra kræsinga á heimili þeirra. Guðgeir var mikill og einlægur trú- maður þar sem hann efaðist aldrei um tilveru og handleiðslu guðs og fannst öllu best borgið í hans hendi. Enda gaf hann kirkju sinni í Hraungerðishreppi mikið af sínum tíma sem formaður sóknarnefndar, forsöngvari, oft á tíð- um einsöngvari, bæði þar og í öðrum kirkjum og taldi það ekki eftir sér. Kórmaður var hann mikill og söng með kirkjukór, samkór og karlakór enda lauk hann þriðja stigi í söngskóla á seinni árum sínum. Nærvara hans var einkar notaleg þar sem hógværð í fasi og orðum var gjarnan í fyrirrúmi. Áhugi og meðferð á íslenskri tungu var honum hugleikin og hafði hann áhrif á aðra í kringum sig hvað tunguna varðaði. Lagði oft til sínar hugmyndir til ýmissa útvarps- þátta í þeim efnum. Þá var hann mjög góður penni og skrifaði margar grein- ar í blöð og tímarit, einkanlega um þjóðleg mál. Guðgeir var sérlega skemmtilegur ferðafélagi, hvort sem var í fjallaferð- um á vetrum eða sumarferðum þar sem hann var sérlega fróður um land- ið og sögu. Eitt sem lýsir Guðgeiri var elja hans við leitina að staðsetningu Hólmaselskirkju í Meðallandi, sem fór undir hraun í Skaftáreldum 1784. Saga þessarar kirkju og gossins var rík í huga hans, eins og annarra sveit- unga þar. Kirkjan hafði verið flutt af upprunalega stað sínum, til Hólma- sels, vegna uppfoks neðar í sveitinni, nokkrum árum áður með mikilli fyr- irhöfn sóknarbarna. Þegar hraun- flóðið stefndi að Hólmaselsbænum og kirkjunni flúði prestur með allt sitt, læsti kirkjunni en skildi eftir alla kirkjumuni og klukkuna, sem var for- láta gripur fenginn að láni frá Þykkvabæjarklaustri. Þegar bændur áttuðu sig á hvernig skilið hafði verið við reyndu þeir að komast í kirkjuna en allt var læst og hraunið komið upp að henni. Þessi missir var Meðallend- ingum afar sár og presti lítið þakkað. Þar til nýverið vissi engin hvar Hólmaselskirkja hafði nákvæmlega staðið. Guðgeiri þótti það mjög mið- ur, fór á kreik og las sér til og leitaði allra gagna sem mögulegt var að finna. Hafði loks upp á korti sem biskup hafði látið gera af Meðallandi og nærsveitum nokkru fyrir gos þar sem fram kom staðsetning allra bæja sveitarinnar, bæði þeirra sem fóru undir og eins hinna sem sluppu og standa enn. Næst fékk hann hjá Landmælingum ríkisins loftmynd af sveitinni og með hornamælingum og samburði við þekkta staði og óþekkta gat hann fundið hnit staðarins þar sem kirkjan liggur undir. Að þessu öllu loknu, sem tók langan tíma og fyrirhöfn, fékk hann okkur svila sína og fleira gott fólk með sér með gps- tæki í hendi og gengum yfir hraunið eftir gps-tækinu, staðurinn fundinn og kross reistur á staðnum. Þessi ferð gekk mjög brösuglega og nefndi Guð- geir ákveðinn draug sem líklega var að stríða okkur. Veru sæll, kæri vinur. Ástvaldur Eiríksson og Katla Margét Ólafsdóttir. Guðgeir Sumarliðason ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIGERÐUR ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, andaðist mánudaginn 20. október. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 28. október kl. 13.00. Kristjana Björnsdóttir, Skúli Guðnason, Kristján Björnsson, Júlíana Sigurðardóttir, Agnes Björnsdóttir, Arnar Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.