Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 39
Menning 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Hljómsveitin Nýdönskfagnaði útkomu sinnarnýjustu plötu, Turns-
ins, með allsherjar útgáfufögn-
uði á Nasa á laugardags-
kvöldið.
Ókeypis var inn á tónleikana
en fólk þurfti að verða sér úti
um miða sem voru í formi
grímu sem gerð var eftir
manninum sem prýðir umslag
Turnsins.
Margt var um manninn á út-
gáfutónleikunum enda hefur
Nýdönsk starfað í um tuttugu
ár og á orðið stóran og dyggan
aðdáendahóp sem lætur ekki
sitt eftir liggja þegar sveitin
kemur fram.
Turninum
fagnað
Aðdáendur Húsfyllir var á Nasa enda sveitin alltaf jafn vinsæl. Ný dönsk hefur nú starfað í 21 ár.
Morgunblaðið/hag
Sungið og trallað Þessar stúlkur stóðust ekki mátið og sungu með.
Grímuklæddir Margir
tónleikagestir skörtuðu
grímunni forlátu sem var
aðgöngumiði kvöldsins.
Ný dönsk Daníel Ágúst Haraldsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Ólafur Hólm, Stef-
án Hjörleifsson og Jón Ólafsson skipa bandið sem var flott á sviði sem fyrr.
Einbeittur Jón
Ólafsson hljóm-
borðsleikari í fíling.
Í feluleik Hljóm-
sveitameðlimir sjálf-
ir settu upp annað
andlit, samsett úr
þeim öllum.
Takk