Morgunblaðið - 27.10.2008, Blaðsíða 17
Daglegt líf 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2008
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
D
ætur mínar eru svo for-
dekraðar. Ég hef séð
um að gera við sokka og
önnur plögg af börn-
unum þeirra hingað til,
en núna er kominn tími til að þær læri
að gera þetta sjálfar,“ segir Helga
Árnadóttir fyrrum heimilisfræðikenn-
ari sem kallaði dætur sínar fjórar,
tvær ömmustelpur og eina ská-
tengdadóttur til sín eitt kvöld í síðustu
viku til að kenna þeim að baka hollt
brauð í kreppunni og að stoppa í
sokka. „Nú eru tímarnir þannig að
það er full ástæða til að taka upp fyrri
búskaparhætti í þessum efnum. Þegar
dætur mínar voru litlar stúlkur var
nýtnin í fyrirrúmi. Ég stoppaði tvisv-
ar til þrisvar sinnum í sokkana þeirra
áður en ég henti þeim. Og mér fannst
það alltaf svolítið gaman, þetta er ró-
andi rétt eins og aðrar hannyrðir. Og
það er ekkert mál að stoppa í
bómullarsokka, rétt eins og prjónaða
sokka. Hér áður fyrr var meira að
segja hægt að fara með næl-
onsokkabuxur í viðgerð á marga staði
og þar voru sérstakar vélar til þess,
en sjálf stoppaði ég í göt á tám og hæl-
um nælonsokkanna minna svo þeir
entust lengur.“
Hafið þið soðið niður svið?
Elsta systirin var komin með tví-
tuga veiðisokka pabba síns til við-
gerðar, en hún notar þá í gönguferð-
um. „Þeir hafa verið svo mikið notaðir
að það hefur tvisvar verið prjónað
neðan við þá síðan ég fékk þá. Þess á
milli hefur mamma stoppað í þá. Þess-
ir sokkar vöktu ómælda ánægju og öf-
und á Hornströndum í sumar, þegar
ég var þar í gönguferð.“
Fyrrum sokkaeigandinn og hús-
bóndinn á heimilinu, vogar sér fram í
eldhús eitt augnablik en honum hafði
verið vinsamlega vísað þaðan skömmu
áður. „Ég var látinn stoppa í sokka og
prjóna leppa þegar ég var strákur,“
segir hann nokkuð hróðugur yfir
kunnáttunni og spyr síðan í framhaldi
af umræðu um gamla matarsiði: „Haf-
ið þið soðið niður svið?“ Með spurn-
ingunni vísar hann í fyrirsögn úr Birt-
ingi sem hann hafði lesið forðum í
Dölunum. Sjálfur sagðist hann ekki
kunna að sjóða niður svið en tók fram
að á sínum bernskudögum hefðu svið-
in bæði verið söltuð og súrsuð.
Bláber beint úr Bjarnarfirði
Helga er fljót að þagga niður í
bónda sínum enda nóg að gera. Hún
er mikil búkona og hefur ýmis góð ráð
í komandi þrengingum.
„Í kreppu á að fara út í náttúruna
og tína ber og búa til saft og sultur eða
frysta þau fersk. Ég ætla að bjóða
ykkur upp á bláber á eftir sem áttræð
frænka tíndi í Bjarnarfirði á Strönd-
um í haust en ég skellti þeim beint í
frystinn svo þau eru án alls sykurs og
fjarska góð með rjóma.“ Í beinu fram-
haldi af berjatali rifja dæturnar upp
bernskuár þar sem þær voru neyddar
til að tína óskaplega mikið af bláberj-
um. „Svo þurftum við að borða blá-
berjasúpu annan hvern sunnudag all-
an veturinn,“ segja þær og skellihlæja
en Helga kannast ekki við að hafa
þrælað þeim út við berjatínslu.
Fór í nám eftir fimmtugt
Helga vann sem kennari í hálfa öld
við Grunnskólann í Vogum á Vatns-
leysuströnd þar sem hún bjó ásamt
Jóni bónda sínum og ól upp dæturnar
fjórar. Hún kenndi frá átján ára aldri,
flest árin við almenna kennslu en
seinni hlutann starfaði hún sem heim-
ilisfræðikennari. „Þegar stelpurnar
voru farnar að heiman og ég var orðin
fimmtug fékk ég frí frá kennslunni í
eitt ár og skellti mér í Kennaraskól-
ann og lærði að verða heim-
ilisfræðikennari. Ég flutti til Reykja-
víkur inn á tvær dætur mínar sem þar
bjuggu og þetta var mjög skemmti-
legur vetur. Við vorum tvær konur
sem tókum þessa þrjá bekki á einum
vetri og vorum ansi ánægðar með
okkur. Það var mikil áhersla lögð á
hollustu í náminu, bæði að minnka
sykur og fitu í matargerð en það var
ekkert lífrænt eða neitt svoleiðis, eins
og er svo vinsælt núna. Ég þori ekki
annað en að baka brauðið í kvöld ein-
vörðungu úr lífrænu hráefni, því ein
dætra minna borðar bara lífrænt,“
segir Helga og hlær að þægð sinni við
afkvæmin.
Mamma er svo bóngóð
Upphefjast nú miklar umræður og
sögur af bakstri og svignandi borðum
undan hnallþórum. Elsta dóttirin rifj-
ar upp þegar hún ein jólin hjálpaði
móður sinni við að baka sextíu tertu-
botna, sem urðu að þrjátíu tvöföldum
kökum.
Einhverjar dætranna segjast alveg
kunna að baka brauð þótt þær hafi
kannski ekki stundað það af miklum
móð og aðrar segjast ekki kæra sig
um að læra að stoppa í. „Mér finnst
voða gott að geta sent börnin í göt-
óttum buxum til ömmu sinnar og
krakkarnir vilja líka að hún geri við,
af því að hún er langflinkust í þeim
efnum. Mamma er svo bóngóð. Henni
finnst líka svo gaman að koma til okk-
ar og baka með börnunum okkar, við
verðum að leyfa henni að gera það
áfram,“ segir ein þeirra en önnur
dótturdótturin var í þó nokkrum mót-
þróa og sagðist ekki ætla að baka
brauð, ekki taka slátur og ekki ætla
að gera sultur, þó hún ætti fulla
frystikistu af rabarbara. Hún ætlaði
bara að láta eiginmanninn um þetta
stúss.
„Þið eruð nú alveg kostulegar,“
segir Helga og hristir höfuðið.
Holla brauðið
6 dl spelt
1 dl haframjöl
1 dl fræ (eftir eigin vali en fjölkorna-
blanda er tilvalin)
3 tesk. vínsteinslyftiduft
1 tesk. salt
3 dl Ab-mjólk
3 dl sjóðandi vatn
(þeir sem vilja geta skorið niður döðl-
ur og bætt út í deigið)
Aðferð:
Hrært lauslega saman, sett í form,
frekar tvö eða þrjú lítil en eitt stórt,
bakað í 20-25 mínútur við 200 gráður
(180 gráður ef blástursofn.) Um að
gera að borða eitt brauð alveg nýtt en
frysta hin.
Rúgbrauð
625 gr. rúgmjöl
200 gr. hveiti
100 gr. heilhveiti
200 gr. púðursykur
4 tesk. lyfitduft
1 lítri mjólk
1 tesk. salt
Aðferð: hrært í hrærivél, bakað í
eins lítra mjólkurfernum. Ein upp-
skrift passar í þrjár fernur en hver
ferna er hálffyllt af deigi.
Loka fernunum vel, annaðhvort
með álpappír eða hvolfa hálfum fern-
um yfir.
Látið í heitan ofn, bakað við 100-
120 gráður í tólf klukkustundir. Einn-
ig er hægt að baka brauðið í steiking-
arpotti.
Mamma kennir kreppuráð
Kátt á hjalla Jóhanna, Berglind, Árdís, María, Bjarney, Brynhildur og Helga María skemmtu sér vel í kennslunni.
Stoppað í sokka Fyrst eru tekin
spor langsum fram og til baka og
skal það vera nokkuð þétt. Síðan
er farið þvert á, til skiptis undir og
yfir hvern þráð. Kúnstin er að láta
ístoppið ekki verða ljótt á hlið-
unum og taka ekki of fast í.
Hvað sem er Hver og einn getur
bætt því sem hann vill út í deigið,
til dæmis döðlum.
Ungur nemur gamall temur Ömmustelpan og
nafnan Helga spreytir sig við baksturinn undir
dyggri stjórn ömmu sinnar. Holla brauðið Girnilegt og alveg að verða tilbúið í ofninum.
Tímarnir eru þannig að rétt er rifja upp gömul búhyggindi og hafa nýtnina í fyrirrúmi
Stoppa skal í sokka, prjóna leppa, tína ber og búa til úr þeim saft og sultur eða frysta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaðið borð Helga hin húslega veitti vel af nýbökuðu góðgæti og
uppskriftarbókin var ekki langt undan.