Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Ferðaskrifstofa
Borgarlottó
Dublin Verð frá:30.okt. – 4nætur
49.900kr.
Á mann miðað við 2 í herbergi í 4 nætur. Flug og gisting,
morgunverður, flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
Þú velur áfangastaðinn en tekur þátt í lottóinu
um hvaða gistingu þú lendir á. Viku fyrir brottför
staðfestum við á hvaða gististað þú ferð!
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
INNFLUTNINGUR til landsins
hefur minnkað verulega mikið á
síðustu vikum. Lýsandi dæmi um
þetta er að einungis einn bíll kom
til landsins með Eimskipi í síðustu
viku. Pálmar Óli Magnússon, fram-
kvæmdastjóri millilandasviðs hjá
Samskipum, segir samdráttinn
mælast í tugum prósenta og svipað
hljóð er í Heiðrúnu Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra hjá Eimskipi.
Hins vegar stendur útflutningur
nokkurn veginn í stað þessa dag-
ana eða eykst lítillega ef eitthvað
er. Eitthvað hefur borið á útflutn-
ingi bifreiða, en að sögn Heiðrúnar
bíða margir þess að gjöld eða
skattar á þessum bílum verði lækk-
aðir eða afnumdir, til að greiða fyr-
ir útflutningi.
Samskip fækka siglingum
Samskip tilkynntu í gær um
fækkun ferða. Akrafellið fer í verk-
efni utan Íslands. Hvassafell held-
ur þó áfram áætlunarsiglingum
milli Reyðarfjarðar, Kollafjarðar í
Færeyjum, Rotterdam og Imm-
ingham á Bretlandseyjum en skip-
ið hættir að hafa viðkomu í Reykja-
vík. Pálmar Óli segir ekki koma til
uppsagna vegna þessa. Eimskip fór
í svipaðar aðgerðir í sumar.
Morgunblaðið/Ómar
Goðafoss til Rotterdam Fallegt er að horfa á skip sigla um sundin blá. Þó væri óskandi að þau hefðu fullfermi. Þá væru gjaldeyristekjurnar meiri.
Einn bíll kom til landsins
ALLUR kostn-
aður við upp-
færslur Íslensku
óperunnar hefur
rokið upp á sama
tíma og tekjur
dragast saman.
Stærstu sýningu
vorsins hefur
verið frestað og
starfsfólk minnk-
ar við sig vinnu. Stefán Baldursson
óperustjóri segir framlög ríkisins,
sem ákvörðuð eru í krónutölu,
hafa rýrnað í verðbólgunni og
styrktaraðila hafa dregið sig í hlé.
„Þetta er okkur bara um megn,“
segir Stefán. | 45
Íslenska óper-
an sker niður
Stefán Baldursson
NÝLIÐINN október hefur verið
landsmönnum erfiður og kaldur.
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
Trausta Jónssonar veðurfræðings
hefur hitinn í október verið undir
meðallagi. Allt stefndi í að hann
hafi verið kaldasti október í
Reykjavík síðan 1987. Tiltölulega
hlýrra var um norðvestanvert land-
ið og í Stykkishólmi og Bolung-
arvík var kaldara í október 2005.
Á Akureyri var ámóta kalt og ár-
ið 2005, en annars þarf að fara allt
aftur til ársins 1981 til að finna
kaldari október. Á Dalatanga var
álíka kalt nú og árið 2005. Í Vest-
mannaeyjum þarf að fara allt aftur
til ársins 1981 til að finna kaldari
október. Úrkoma var nálægt með-
allagi víðast hvar á landinu.
sisi@mbl.is
Október
var kaldur
UPPGRÖFTUR fornleifafræðinga á Alþingisreitnum í
Reykjavík hefur leitt í ljós öflugt iðnaðarsvæði fyrir um
100 manna samfélag frá landnámstíma. M.a. hefur fund-
ist í fyrsta skipti 10 metra langur viðarstígur sem upp-
greftrarfólk hefur gantast með sín á milli að geymi fót-
spor Ingólfs Arnarsonar.
„Við erum búin að vera alveg á útopnu í nokkra daga,“
segir Vala Garðarsdóttir uppgraftarstjóri, spurð hvort
þetta sé ekki spennandi fundur fyrir fornleifafræðinga.
„Við höfum aldrei fundið svona gamla strúktúra, því að
skálinn er í rauninni aðeins eldri en landnámsskálinn.
Þetta er frá fyrstu tíð.“ Leifarnar liggja ofan á landnáms-
laginu og hefur engin jarðmyndun átt sér stað á milli.
Allt sem fundist hefur á svæðinu bendir til að þar hafi
verið blómlegt iðnaðarsvæði með framleiðslu umfram
þörf ábúenda, s.s. til vöruskipta. Þar hefur verið vegleg
kolagröf, járnbræðsluofn og varnarveggur auk áður-
nefnds viðarstígs sem Vala telur að hafi verið lagður til
að halda svæðinu snyrtilegu.
Ýmiskonar iðnaður hefur verið á svæðinu, þar hefur
t.d. viður verið kolaður og járn framleitt úr mýrarrauða
sem smíðaðar voru úr axir, sigðir, ljáir og sverð og hafa
slíkir munir fundist á svæðinu. Á Alþingisreitnum virðist
því hafa verið blómlegt atvinnulíf. „Það er gaman að sjá
þetta svona og maður ímyndar sér að þarna hafi verið
heilt þorp í kring þar sem menn hafi stundað sinn iðnað.“
Fornleifanefnd hefur það nú til skoðunar hvernig varð-
veita megi fundina á svæðinu og segir Vala að tvennt sé í
stöðunni, annaðhvort að varðveita svæðið í óbreyttri
mynd eða skrá það eins vel og hægt er og gera af því eft-
irmynd annars staðar. una@mbl.is
Blómlegt iðnaðarsam-
félag á Alþingisreitnum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Svæðið Vestan við Alþingi var elsta byggð í Reykjavík
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
EKKI verður borað eftir jarðhita á
Þeistareykjum næsta sumar, eins og
stefnt hefur verið að. Landsvirkjun
(LV), Alcoa og Þeistareykir ehf.
sendu frá sér sameiginlega tilkynn-
ingu þess efnis í gær. Ákvörðun um
framhald borana bíður því fram til
haustsins 2009, en fyrirtækin munu
áfram hafa náið samband og samráð
um framvindu mála, með það að leið-
arljósi að framlengja viljayfirlýs-
inguna og halda verkefninu áfram
þegar aðstæður leyfa. Vinnu við mat
á umhverfisáhrifum verður líka
haldið áfram.
Friðrik Soph-
usson, forstjóri
LV, segir að í
september hafi
hin alþjóðlega
lausafjárkreppa
verið orðin svo al-
varleg að ýmis
fyrirtæki, þ. á m.
Alcoa-sam-
stæðan, hafi
ákveðið að draga
úr fjárfestingum í nýjum verkefnum
eins og kostur var.
„Þá kom í ljós að Alcoa-sam-
stæðan var ekki tilbúin til þess að
leggja verulegt fé í eitthvað nýtt,“
segir Friðrik. Bora átti tíu rann-
sóknarholur á Þeistareykjum, en
kostnaður við það er rúmir fjórir
milljarðar króna. Samkvæmt sam-
eiginlegri viljayfirlýsingu LV og Al-
coa frá því í júlí átti Alcoa að borga
u.þ.b. tvo milljarða af þeim kostnaði.
Aðkoma Alcoa er nauðsynleg
„Þegar ljóst varð að Alcoa treysti
sér ekki í þetta, vegna samþykktar
yfirstjórnar fyrirtækisins, sem var
bara almenn samþykkt þess efnis að
ekki yrði farið í nein ný verkefni, þá
var augljóst að ekki var hægt að
standa fyrir þessari rannsókn,“ seg-
ir Friðrik. Þeistareykir ehf. hafi ekki
burði til að standa í þeim fjárfest-
ingum upp á eigin spýtur.
Alcoa rifar seglin fyrir norðan í bili
Rannsóknarborunum á Þeistareykjum frestað fram yfir næsta sumar
Alcoa treystir sér ekki í tveggja milljarða rannsóknarkostnað að sinni
Friðrik
Sophusson
FRUMKVÆÐIÐ að því að fresta
borunum kom ekki frá LV. Frið-
rik segir að fyrirtækið hefði get-
að haldið rannsóknunum áfram
að einhverju marki, en fjögurra
milljarða kostnaður hafi verið
umfram það sem eðlilegt gat
talist að LV legði í ein síns liðs.
„Enda erum við eins og allir
aðrir, með lokaðar lánalínur.
Þessi kreppa nær til Landsvirkj-
unar eins og annarra fyrirtækja.
Við erum skuldugt fyrirtæki og
verðum að fara varlega.“
Fara varlega
Í ÞAU tíu ár sem Barnahúsið hefur
starfað hefur 2001 barn komið til
skýrslutöku, í könnunarviðtal, lækn-
isskoðun, greiningu og meðferð, að
því er fram kemur í grein Braga
Guðbrandssonar, forstjóra Barna-
verndarstofu. Af þessum rúmlega
2000 börnum hafa 930 þurft á með-
ferð að halda, sem sérfræðingar
Barnahúss hafa veitt, og 216 börn
verið skoðuð á Landspítalanum.
Barnahús var stofnað í því skyni
að tryggja barnvænlegt umhverfi
við rannsókn kynferðisbrota gagn-
vart börnum. | 33
2000 börn í
Barnahús