Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Það er allt í rúst á Íslandi. Efna-hagurinn hruninn, gjaldþrotog atvinnuleysi framundan,
kaupmáttur fer minnkandi, alþjóða-
samfélagið treystir okkur ekki og
það er harður og kaldur vetur fram-
undan. Kreppa er mest notaða nafn-
orð þjóðarinnar, og geðheilsa henn-
ar eftir því.
En fátt er svo með öllu illt að ekkiboði nokkuð gott. Það er nefni-
lega undir kringumstæðum sem
þessum sem listamenn skapa sín
bestu verk. Það er oft sagt að þeir
geri sín bestu verk þegar þeir eiga í
erfiðleikum, hvort sem það er af
innri eða ytri ástæðum. Ástæða
þessa liggur í augum uppi: vanlíðan
er miklu sterkari tilfinning en vellíð-
an, sorg er sterkari en gleði. Fyrir
þessu eru mörg dæmi, því mörg
mögnuð verk hafa orðið til undir
gríðarlega erfiðum aðstæðum, bæði
andlegum og veraldlegum.
Spænski listmálarinn Pablo Pi-casso málaði Guernica, eitt
merkasta verk listasögunnar, árið
1937. Kveikjan að verkinu var
sprengjuárás Þjóðverja á samnefnt
þorp í Baskalandi á Spáni í lok apríl
það sama ár. Hundruð manna fór-
ust, jafnvel yfir þúsund. Picasso
hófst handa við verkið nokkrum
dögum eftir árásina, og úr varð eitt-
hvert áhrifaríkasta málverk sög-
unnar – tilfinningaþrungið og átak-
anlegt, og ógleymanlegt hverjum
sem það sér.
Apocalypse Now er af mörgumtalið eitthvert mesta verk kvik-
myndasögunnar. Gerð myndarinnar
var hins vegar ekki áfallalaus, langt
frá því. Myndin var tekin við gríð-
arlega erfiðar aðstæður á Filipps-
eyjum, tökuliðið þurfti að berjast við
bæði miklar rigningar og gríð-
arlegan hita. Tökur töfðust ótæpi-
lega og kostnaðurinn varð eftir því.
Harvey Keitel átti að leika aðal-
hlutverkið en hætti við á seinustu
stundu. Martin Sheen kom í staðinn,
en hann átti í mikilli baráttu við
alkóhólisma, og var raunar fullur
þegar nokkrar senur voru teknar.
Hann fékk að lokum vægt hjarta-
áfall. Marlon Brando var aðalstjarna
myndarinnar, en þegar hann mætti
til leiks kom í ljós að hann var alltof
feitur, sérstaklega í ljósi þess að
hann átti að leika grannan og veik-
burða mann. Leikstjórinn, Francis
Ford Coppola, varð gjaldþrota við
gerð myndarinnar og fékk auðvitað
taugaáfall, en ofan á allt saman stóð
hann í skilnaði á meðan á gerð henn-
ar stóð. Klipping myndarinnar tók
svo meira en ár, en þegar upp var
staðið kom í ljós að Apocalypse Now
var ekkert annað en algjört meist-
araverk.
Stemningin á meðal Bítlanna varekkert sérstaklega góð þegar
þeir voru að gera sína síðustu plötu
– Let It Be. Þeir höfðu verið að
vinna hver í sínu horni mánuðina á
undan, og voru orðnir leiðir hver á
öðrum. John og George voru áhuga-
lausir og fúlir, og tilraunum Pauls
til að stappa stálinu í menn var illa
tekið. Þá fór nærvera Yoko Ono
óstjórnlega í taugarnar á Paul,
George og Ringo, eins og frægt er
orðið, og vilja magir meina að hún
hafi orðið til þess að sveitin lagði
upp laupana. Einhvern veginn tókst
þeim þó að skapa Let It Be, eina af
sínum þéttustu plötum.
Margir muna eflaust eftir magn-aðri túlkun írsku söngkon-
unnar Sinéad O’Connor á gamla
Prince-laginu „Nothing Compares 2
U“. Meiri innlifun er vart hægt að
biðja um hjá tónlistarmanni, en
frægt varð þegar söngkonan grét í
myndbandinu sem gert var við lag-
ið. Í viðtali sagði O’Connor að hún
hefði ekki ráðið við sig því lagið
minnti hana svo á móður sína, sem
hafði fallið frá skömmu áður.
Þótt Bubbi Morthens hafi gertnokkrar góðar plötur á und-
anförnum árum eru trúlega flestir
sammála því að hann hafi gert sín
bestu verk um og upp úr 1980, þeg-
ar hann var upp á sitt allra „villt-
asta“, ef svo má að orði komast.
Þannig er eitt allra flottasta lag ís-
lenskrar poppsögu, „Rómeó og Júl-
ía“, frá árinu 1985. Þar lýsir Bubbi á
undurfagran hátt lífi tveggja
sprautufíkla – lífi sem höfundurinn
þekkti nokkuð vel á þessum tíma.
Þetta eru aðeins nokkur ólíkdæmi um listamenn sem hafa
skapað frábær verk undir erfiðum
kringumstæðum – dæmin eru miklu
fleiri. Miðað við það þurfa Íslend-
ingar ekki að kvíða kreppu í lista-
og menningarlífinu næstu árin, þau
verða jafnvel þau bestu sem við höf-
um átt. Við fáum kannski bestu plöt-
ur íslenskrar tónlistarsögu, flottustu
skúlptúrana, bestu bíómyndirnar,
merkilegustu bækurnar og mögn-
uðustu leikverkin. Óðaverðbólga og
atvinnuleysi fölna í samanburðinum
við þann ávinning. jbk@mbl.is
Við eigum von … á góðu
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
» Við fáum kannskibestu plötur íslenskr-
ar tónlistarsögu, flott-
ustu skúlptúrana, bestu
bíómyndirnar, merki-
legustu bækurnar og
mögnuðustu leikverkin.
Morgunblaðið/Einar Falur
MYNDASÖGUHÖFUNDURINN
Stan Lee sem á heiðurinn af Spider-
Man, The Fantastic Four og Hulk,
svo fáeinar sögur séu nefndar, hefur
hug á að breyta stjörnuparinu Victo-
riu og David Beckham í ofurhetjur.
„Ég fékk þá skrítnu hugmynd á dög-
unum - það hafa allir heyrt um Dav-
id og Victoriu, ekki satt? Þau líta frá-
bærlega út, eru hæfileikarík og
skemmtileg. Pælið í þessu, ímyndið
ykkur hvað það væri svalt ef þeim
væri breytt í … þið áttuð kollgátuna,
ofurhetjur.“
Lee hefur einnig lýst því yfir að
hann hafi áhuga á að breyta Ringo
Starr, Paris Hilton og stofnanda
Playboy-veldisins, Hugh Hefner, í
ofurhetjur svo að Beckham-hjónin
eru ekki í slökum félagsskap hvað
það varðar. „Mér finnst mjög gaman
að því að ímynda mér hvaða leynd-
um hæfileikum hinar og þessar
stjörnur gætu búið yfir.“
Ofurhjónin David og
Victoria Beckham
Hetjur? David og Victoria í ofurhetjubúningum.