Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 22
22 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 AP Galvösk Sarah Palin á kosn- ingafundi í Missouri í fyrradag. FRÉTTASKÝRING Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ENGINN veit fyrir úrslitin í kosn- ingunum í Bandaríkjunum, þau koma ekki í ljós fyrr en talið hefur verið upp úr kjörkössunum, en kannanir benda ekki til, að þau John McCain og Sarah Palin muni ráða ríkjum í Hvíta húsinu á næsta kjörtímabili. Stuðningsmenn Palin eru hins vegar farnir að tala um hana sem forsetaefni Repúblikana- flokksins 2012. Fer það mjög fyrir brjóstið á þeim flokksbræðrum henn- ar, sem telja, að hún sé eins og hvert annað lík í lestinni og hafi dregið stór- lega úr sigurlíkum McCains. Sarah Palin hefur ekki gert neitt til að draga úr þessum vangaveltum og kynti raunar undir þeim með því að lýsa yfir í viðtali við ABC-sjónvarpið, að hún myndi ekki hætta afskiptum af landsmálum hver sem niðurstaðan yrði næstkomandi þriðjudag. Þung byrði að bera Ekki er hægt að segja, að margir Bandaríkjamenn hafi vitað hver Sar- ah Palin, ríkisstjóri í Alaska, var þeg- ar McCain kynnti hana sem varafor- setaefni sitt fyrir rúmum sjö vikum. Hún náði hins vegar strax til íhalds- samasta hópsins meðal repúblikana með harðri afstöðu sinni í mörgum viðkvæmum samfélagsmálum en að sama skapi hneykslaði hún aðra, ekki síst fyrir augljósa vanþekkingu og stundum allt að því hlálega frammi- stöðu í sjónvarpsviðtölum. Ljóst er, að meðal repúblikana skiptir alveg í tvö horn með afstöðuna til hennar. „Palin er orðin að þyngri byrði að bera fyrir McCain en tengsl hans við Bush forseta,“ segir George Will, kunnur dálkahöfundur og íhaldsmað- ur. Það sýnir sig líka í skoðanakönn- unum. Kemur það sér illa fyrir McCa- in og birtist m.a. í því, að meirihlutinn telur Barack Obama, forsetafram- bjóðanda demókrata, líklegri en McCain til að velja sér hæfa sam- starfsmenn. Framtíð Palin verður meðal helstu umræðuefna á fundi, sem þeir íhalds- sömustu innan Repúblikanaflokksins hafa boðað til nk. fimmtudag. Vilja væntanlegir þátttakendur ekkert um fundinn segja fyrirfram en Sarah Pal- in sjálf hefur verið iðin við að móta sína eigin mynd sem stjórnmálamað- ur á landsvísu. Á síðustu dögum hefur hún haldið þrjár stefnumótandi ræð- ur, um orkumál, um börn með sér- þarfir og um það hvernig skattastefn- an hverju sinni hefur áhrif á konur. Þá vill hún breyta stjórnarskránni og banna hjónaband samkynhneigðra, þvert gegn skoðunum McCains, og hún hefur opinberlega efast um sum- ar ákvarðanir McCains um skipu- lagningu kosningabaráttunnar. Með hugann við eigin framtíð McCain hefur reynt að gera lítið úr þessum ágreiningi en sagt er, að á honum og samstarfsmönnum hans sjóði undir niðri. Úr þessu geta þeir þó ekkert gert nema beðið og vonað eftir kraftaverki nk. þriðjudag en ástandið veldur óánægju, sem hefur áhrif á baráttuandann. Það hrín þó ekki á Palin, sem er farin að hugsa lengra en til þriðjudagsins. Fer Palin í forsetaframboð 2012?  Er að reyna að hasla sér völl sem stjórnmálamaður á landsvísu án tillits til Johns McCains  Nýtur mikils stuðnings íhaldssamra repúblikana sem ræða framtíð hennar í næstu viku Í HNOTSKURN » Könnun snemma í vikunnisýndi, að 49% kjósenda höfðu litlar mætur á Palin á móti 44%, sem líkaði hún vel. » Í fyrradag var birt önnurkönnun, sem sýndi, að 59% kjósenda töldu hana óhæfa. » Þá kom fram, að margirtelja, að varaforsetaefnið skipti máli en það hefur ekki vegið þungt í fyrri kosningum. Reuters Lykilríki Barack Obama heilsar stuðningsmönnum sínum á kosningaferðalagi í Flórída, einu ríkjanna sem gætu ráðið úrslitum í forsetakosningunum. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is FLJÓTLEGA eftir að fyrstu kjör- stöðunum verður lokað á þriðjudag- inn kemur ætti að vera orðið nokkuð ljóst hvort Barack Obama sigri John McCain og verði forseti Bandaríkj- anna, fyrstur blökkumanna. Fari Obama með sigur af hólmi í aðeins einu af fjórum ríkjum þar sem repúblikanar sigruðu fyrir fjórum árum – Ohio, Flórída, Virginíu eða Norður-Karólínu – er talið að nær ógjörningur verði fyrir McCain að fá nógu marga kjörmenn, eða a.m.k. 270, til að verða forseti. Sjö stiga forskot í Ohio Líklegt er að Obama sigri í öllum ríkjunum þar sem John Kerry hafði betur í baráttunni við George W. Bush fyrir fjórum árum. Auk þess bendir flest til þess að Obama sigri í tveimur ríkjum þar sem Bush sigraði síðast: Iowa og Nýju-Mexíkó. Gangi þetta eftir fær Obama 264 kjörmenn í þessum ríkjum og hann vantar þá aðeins sex kjörmenn. Obama þyrfti því aðeins að sigra í einu af fyrrnefndu ríkjunum fjórum, Ohio með 20 kjörmenn, Virginíu með 13, Norður-Karólínu 15, eða Flórída með 27. Nýjasta könnun AP bendir til þess að Obama sé með sjö pró- sentustiga forskot í Ohio og Virginíu en aðeins tveggja stiga í Flórída og Norður-Karólínu. Öll þessi ríki eru í austanverðum Bandaríkjunum, þar sem kosningunum lýkur fyrst. Sigri Obama í einu þeirra gæti það reynst mjög skýr vísbending um niðurstöðu kosninganna. Þarf eitt af fjórum ríkjum Talið að Barack Obama þurfi að sigra í einu af sambandsríkjunum Ohio, Flórída, Virginíu eða Norður-Karólínu til að tryggja sér sigur í forsetakosningunum                                         !  "#  $   #  %  "   &' ' ( # &       )   *   +          %  ( - (, ) .  /  (  #     0  '    (   ' .#1        11 2 * * !-5 <=  = 3 ? K /  +C   K / 2   , #  ;= 3 2   , #  ;+C  %& %# $% " '#  2 )5 8    2. 9*2  )0 2 )5 2 % 3 #> ?.2 @5 ÞÝÐIR já já eða jafnvel nei? Um þetta er deilt í Kaliforníu en þar eins og í fleiri ríkjum Bandaríkjanna er kosið um ýmis sérmál samhliða kosn- ingunum. Í Kaliforníu verður sú spurning lögð fyrir kjósendur hvort þeir vilji banna hjónaband fólks af sama kyni en orðalagið þykir hálfundarlegt og til þess fallið að valda misskilningi. Yfirskrift tillögunnar er: „Afnemur rétt samkynhneigðs fólks til hjóna- bands“ en nú er það þannig, að þeir, sem eru hlynntir fullum réttindum samkynhneigðra, eru vanir að segja já þegar um þau mál ræðir en þeir, sem eru andvígir þeim, segja þá nei. Í þessu tilviki felst hins vegar stuðningur við réttindi samkyn- hneigðra í því að segja nei en and- staðan í jáinu. Þetta hefur valdið miklum ruglingi og mörg dæmi eru um, að baráttu- menn fyrir öðrum hvorum málstaðn- um hafi hvatt fólk til kjósa þvert gegn því, sem þeir eru sjálfir að predika. Þess vegna snýst nú áróðurinn ekki síst um að skýra út fyrir fólki hvað já þýðir og hvað nei þýðir. svs@mbl.is Þegar já þýðir nei og nei já Óljóst orðalag á til- lögu veldur ruglingi MÁTTUR pen- inganna er mikill. Það hefur John McCain fengið að reyna í kosninga- baráttunni vestra. Í saman- burði við Obama er hann næstum eins og hver ann- ar fátæklingur. Flest bendir til, að Obama muni setja nýtt met í fjár- austri í kosningabaráttunni en áætl- að er, að hann muni verja til hennar 230 milljónum dollara. Auglýsingar frá honum tröllríða sjónvarpinu og öðrum miðlum og með þeim hefur honum tekist að skyggja næstum al- veg á McCain og málflutning hans. Sem dæmi má nefna, að í þessari viku hafa auglýsingar frá Obama verið 113% fleiri í Florida og Virg- iníu og í síðustu viku einni var aug- lýsingakostnaður hans 21 m. dollara að sögn New York Times. svs@mbl.is Nýtt met í fjáraustri? Barack Obama er ekki fjár vant.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.