Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008 LÁRÉTT 7. Höfuðborg Úrúgvæ. (10) 9. Golfari af kínverskum, taílenskum, afrískum, amer- ískum, hollenskum og indjánaættum. (5, 5) 10. Mat á eðli, ástandi og verði fasteignar eða lausafjár- eignar. (6) 11. „Tóta litla _______ tók þann arf úr föðurætt að vilja lífsins njóta.“ (10) 12. Það minnsta af fimm úthöfum jarðar. (13) 13. Tæki sem er notað við veðurathuganir til að mæla loftþrýsting. (7) 14. Japanskt djúpsteikingardeig. (7) 16. Íslenskt heiti yfir selló. (8) 18. Höfuðborg St. Vincent- og Grenadine-eyja. (9) 21. Risavaxið ský af gasi og ryki þar sem nýjar stjörnur verða til. (8) 22. Gjaldmiðill Nepals. (5) 27. Íslensk trjátegund, Sorbus aucuparia. (6) 29. Enskur leikari sem lék Captain Jean-Luc Picard in Star Trek. (7,7) 30. Skrautplöntur einnig kallaðar drottningarblóm. (8) 31. Ríki í Bandaríkjunum. Stærsta borgin er Nevada. (6) 32. „Svona gerum við er við göngum _____, snemma á sunnudagsmorgni.“ (10) 35. Teiknimyndapersóna sem Jim Davis teiknar. (8) 36. „Þetta er ekki lyktin sem er alltaf af þér.“ „Nei þessi nýja er alveg fyrirtak.“ „Hvað er hún kölluð?“ „__________!“ (8) 37. Blýríkt, skorið og slípað gler. (8) LÓÐRÉTT 1. „___ ____ á hesti.“ (4, 4) 2. Fyrirtæki sem gerir út skip. (6) 3. Þorgerður brák, ambátt Skallagríms og ______ Eg- ils. (6) 4. Þunn plata með munstri til að bera lit á við skreyt- ingu. (8) 5. ____dýr, fylking dýra sem skiptist í möttuldýr, tálm- unna og hryggdýr. (4) 6. Lítið himinfyrirbæri, venjulega úr bergi og járni eða eingöngu úr járni, sem aðdráttarafl jarðar dregur með miklum hraða um lofthjúpinn. (10) 8. Sjófuglar og góðir kafar sem finnast einna helst á Breiðafirði. (11) 13. „_____ er síðan sá eg hann,: sannlega fríður var hann.“ (5) 15. Afgangur láns. (12) 17. Drykkur sem var búinn til af John Pemberton. (4, 4) 19. Hérað í norðvesturhluta Frakklands. (8) 20. Soðkraftur mótaður í form. (12) 23. ____ Schwarzenegger, kvikmyndaleikari. (6) 24. Síðasta vika lönguföstu. (10) 25. Fyrsta geimfar sögunnar. (7) 26. Vökvi sem hefur verið eimaður úr jarðolíu við 150- 300° hita, notaður á olíulampa og til húshitunar. (9) 28. ______ þéttis er mælikvarði á hversu mikla raforku hann getur geymt og er mæld með SI-mælieining- unni farad. (7) 33. ___ Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu frá 1994. (3) 34. Sá hluti af DNA-sameind sem afritast í eina RNA- sameind. (3) FREMSTUR meðal jafningja: þessa skilgreiningu notaði níundi heimsmeistarinn Tigran Petrosjan um heimsmeistaratitilinn sem hann bar á árunum 1963-1969. Hún virðist eiga vel við nú um stundir eftir að Wisvanthan Anand varði titil sinn með sannfærandi hætti í einvíginu við Vladimir Kramnik. Samkvæmt „lifandi stigalista“ FIDE er Anand nú í 2. sæti með 2790,8 stig en Topa- lov er efstur með 2791 stig! Sá er munurinn að þegar lárviðarsveignum hafði verið tyllt á Fischer í septem- ber 1972 eða Kasparov í nóvember 1985 var öllum ljóst að þar fóru menn sem báru höfuð og herðar yfir sam- tíðarmenn sína. Elleftu skákinni í heimsmeistara- einvíginu lauk með jafntefli og loka- niðurstaðan varð því 6½ : 4½ Anand í vil. Hann hikstaði aðeins í tíundu ein- vígisskákinni en forskot hans var of mikið til að Kramnik ætti raunhæfa möguleika á að vinna það upp. Sumir halda því fram að 12 skáka einvígi sé of stutt til að útkljá æðsta titil skák- arinnar og slíkt einvígi skorti dramt- ískt ris á við þau sem háð voru alla síðustu öld. Þess má þó geta að ef tekin eru þau 24 skáka einvígi sem háð voru á árunum 1951 fram til alda- móta finnst ekki dæmi þess að skák- maður sem var undir eftir 12 skákir hafi síðar unnið einvígið. Og sam- þykki menn að 12 skákir séu ein- hverskonar „miðja“ heimsmeistara- einvígja sem hófust árið 1886, þá má geta þess að aðeins finnast tvö dæmi þess að sigurvegarinn hafi verið und- ir eftir 12 skákir, Steinitz var undir 5½ : 6½ gegn Tsjígorin í Havana árið 1896 og Euwe einnig 5½ : 6½ gegn Aljékín í einvígi þeirra í Hollandi árið 1935. Tölvurnar hafa útvíkkað möguleika skákarinnar Sá ótti að Kramnik tækist að leiða baráttuna í litlausar tæknilegar stöð- ur reyndist ástæðulaus og í reynd var þetta býsna fjörugt einvígi. Móts- haldarar voru a.m.k. ánægðir því u.þ.b. 90% allra aðgöngumiða sem í boði voru seldust og einvíginu voru gerð góð skil í fjölmiðlum um allan heim. Anand sem var vel meðvitaður um þá tilhneigingu Kramniks að halda baráttunni niðri undirbjó flókna baráttu í hverri einustu skák og úrslitum réð er hann vann tvær skákir með svörtu í afbrigði slav- neskrar varnar sem kennt er við bæ- inn Merano á Ítalíu. Kasparov, sem er greinilega enn að naga sig í hand- arbökin fyrir að hafa gefið Kramnik óverðskuldað tækifæri á heimsmeist- araeinvígi árið 2000, lét þess getið í viðtali að sigur Anands væri sigur skákarinnar og er óhætt að taka und- ir með honum um það. Indverjanum hefur tekist að auka mjög vinsældir skákarinnar í Asíu. Hann nýtur mik- illar hylli í heimalandi sínu, er glað- lyndur og hefur hæverska fram- komu; aristókrat við skákborðið. Með sigri Anands er keppnin um heimsmeistaratitilinn endanlega komin aftur til FIDE. Í skugga klofnings á árunum 1993-2006 stóð sambandið fyrir nokkrum lítilsigld- um heimsmeistaramótum og fram spruttu ýmsir grínkóngar sem fáir muna nú eftir. Eðlilegt væri að ógilda þetta tímabil og að hinn nýi heims- meistari teljist sá fjórtándi í eftirfar- andi röð: Steinitz, Lasker, Capa- blanca, Aljékín, Euwe, Botvinnik, Smyslov, Tal, Petrosjan, Spasskí, Fischer, Karpov, Kasparov og An- and. Í viðtali sem Der Spiegel átti við Anand skömmu fyrir einvígið dró hann enga dul á hversu mikilvæg tölvutæknin er við undirbúning. Hann kveðst um tíma hafa verið orð- inn svartsýnn á framtíð skákarinnar sakir ofgnóttar upplýsinga og reikni- getu öflugustu forritanna en nú blasti hins vegar við, að jafnvel þó tölvurn- ar hafi lokað ýmsum dyrum, þá hefðu jafnharðan opnast nýjar og þannig hafi nýtilkomin tækni aukið vídd skákarinnar. Þessi orð ganga þvert á sjónarmið bölmóðs sem verið hafa áberandi undanfarið. Heimsmeistari Anand leikur kóngspeðinu fram um tvo reiti í lokaskákinni. Anand er fremstur meðal jafningja SKÁK Bonn, Þýskalandi Heimsmeistaraeinvígið í skák 14. – 28. október 2008 Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Bridsfélag Siglufjarðar Í tilefni 70 ára afmælis brids- félagsins og afmælismóts sem haldið verður um helgina 1.-2. nóvember n.k. hafa félagsmenn bridsfélagsins búið sig af kappi undir átökin í væntalegu afmælismóti og spilað tví- menning tvo síðustu mánudaga. Mánudaginn 20. október varð röð efstu para. Anton Sigurbjss. – Bogi Sigurbjss. 142 Guðrún J. Ólafsd. – Haraldur Árnason 124 Sigurður Hafliðas. – Björn Ólafsson 119 Þorsteinn Jóhannss. – Guðm. Árnason 119 Mánudaginn 27. október urðu úr- slitin þessi: Sigurður Hafliðas. – Björn Ólafss. 150 Ólafur Jónsson – Guðlaug Márusd. 126 Anton Sigurbjss. – Bogi Sigurbjss. 124 Nú er lokið skráningu í afmælis- mót bridsfélagsins 1. og 2. nóvember nk. og eru félagar í Bridsfélagi Siglu- fjarðar mjög ánægðir með stóran hóp bridsspilara annarra bridsfélaga sem ætla að sækja þá heim í tilefni afmælisins. Byrjað verður að spila kl. 10 á laugardagsmorgni og spilað fram að kvöldmat, þá verður smá hlé til kl. 20.30 þegar sest verður að kvöld- verðarborði og í beinu framhaldi dansleikur með Herði G. Ólafssyni. Síðan verður byrjað aftur kl. 10 á sunnudagsmorgni. Bridsfélag Kópavogs Tveggja kvölda hraðsveitakeppni lauk með góðum sigri Þórðar Jör- undssonar, Jörundar Þórðarsonar, Sigurðar Sigurjónssonar og Ragn- ars Björnssonar. Þeir eru illviðráð- anlegir. Lokastaðan: Þórður Jörundsson 993 Vinir 960 Freyja Sveinsdóttir 930 Erla Sigurjónsdóttir 923 Næsta fimmtudag verður eins kvölds tvímenningur sem gæti hent- að sem upphitun og æfing fyrir aðal- sveitakeppnina sem hefst 13. nóvem- ber. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Nú er lokið þriggja kvölda tví- menningskeppni og var baráttan um efsta sætið mjög jöfn og tvísýn. Lokastaðan var þessi. Unnar A. Guðmss. - Ólöf Ólafsd. 722 Solveig Jakobsd. - Ingibj. Guðmundsd. 719 Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 716 Sveinn Sveinss. - Gunnar Guðmss. 698 Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 696 Ragnar Haraldss. - Bernhard Linn 696 Sunnudaginn 26/10 var spilað á 9 borðum. Hæsta skor kvöldsins í N/S: Ingibj. Guðmundsd. - Solveig Jakobsd. 258 Bernhard Linn - Ragnar Haraldsson 255 Garðar V. Jónsson - Sveinn Ragnarsson 244 A/V: Haraldur Sverriss. - Þorleifur Þórarinss. 249 Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 242 Ólöf Ólafsd. - Unnar A. Guðmss. 242 Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxa- feni 14 á sunnudögum klukkan 19. Gullsmárinn Spilað var á 11 borðum mánudag- inn 27. október. Úrslit í N/S: Birgir Ísleifsson – Örn Einarsson 200 Hrafnh. Skúlad. – Þórður Jörundss. 191 Hermann Guðmss. – Ernst Backman 190 A/V: Eysteinn Einarss. – Björn Björnsson 210 Samúel Guðmundss. – Jón Hanness. 188 Halldór Heiðar – Einar Kristinsson 186 Spilað var á 13 borðum sl. fimmtu- dag 30. október. Úrslit í N/S Birgir Ísleifss. - Örn Einarsson 325 Stefán Friðbjs. - Haukur Guðmundss. 324 Jens Karlsson - Auðunn R.Guðmss. 296 A/V Samúel Guðmundsson - Jón Hanness. 326 Elís Kristjánsson - Páll Ólason 322 Halla Ólafsd. - Pálína Kjartansd. 308 Minnt er á að mánudaginn kemur, 3. nóvember, hefst svo sveitakeppni félagsins. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.