Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
HARALDUR Tryggvason, umsjónarmaður snjótroðslu í
Hlíðarfjalli, er hér í troðaranum uppi við Strýtu á fimmtu-
daginn; í sólinni fyrir ofan þokubakka sem lá yfir neðri
hluta skíðasvæðisins. Haraldur hefur haft nóg að gera síð-
ustu daga við að færa til snjó og laga brekkurnar, en
svæðið verður opnað í dag, í fyrsta skipti í vetur. Að-
stæður voru orðnar góðar, að sögn Guðmundar Karls
Jónssonar, forstöðumanns svæðisins, eftir snjóframleiðslu
undanfarnar vikur, og síðan bættist töluverður snjór við
af himnum ofan í vikunni. Hvasst var í gær í Hlíðarfjalli að
suðvestan, sem er versta áttin þar á bæ, en veðrið á að
vera betra í dag og svæðið verður opnað klukkan 10. Opið
verður til 17; Andrésarbrekkan meðfram Fjarkanum og
aðstaðan fyrir yngsta skíðafólkið neðst á svæðinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Allt klárt í
Hlíðarfjalli
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
EKKI er útlit fyrir að verð á mál-
tíðum í mötuneytum grunnskóla
Reykjavíkur muni lækka, þrátt fyrir
að í greinargerð með nýjum grunn-
skólalögum sé kveðið á um að al-
mennt viðmið skuli vera að nemend-
ur greiði hráefniskostnað vegna
skólamáltíða.
Jón Ingi Einarsson, fjármálastjóri
menntasviðs borgarinnar, segir búið
að taka ákvörðun um að hækka ekki
verð á skólamáltíðum borgarinnar
en verðið muni heldur ekki lækka.
Algengt gjald skólanna er á bilinu
250-300 krónur fyrir hverja máltíð
en að sögn Jóns Inga miðar Reykja-
víkurborg við að hráefniskostnaður
fyrir næsta ár verði 231 króna á
hverja máltíð að meðaltali.
Sé miðað við 22 virka daga í mán-
uði mun hráefnið í máltíð hvers nem-
enda því kosta um 5.082 krónur á
mánuði á næsta ári samkvæmt út-
reikningum borgarinnar en sé miðað
við 280 króna gjaldtöku, eins og al-
gengt er, borgar nemandinn rúmum
þúsund krónum meira eða 6.160
krónur.
Jón Ingi segir ákvörðunina hafa
verið tekna í samræmi við álit lög-
fræðisviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga sem og borgarlög-
manns. Samkvæmt áliti sambands-
ins hefði þurft að orða það með ótví-
ræðum hætti í lögunum sjálfum í
stað greinargerðar, hafi ætlunin ver-
ið sú að binda gjaldtöku vegna skóla-
máltíða við hráefniskostnað ein-
göngu. Samkvæmt lögunum sé
sveitarfélögunum heimilt að inn-
heimta þjónustugjöld vegna máltíð-
anna, og þau megi miða við raun-
kostnað. Hann sé fólginn í fleiru en
hráefninu, s.s. aðstöðu, launakostn-
aði, framreiðslu og flutningi.
Kristbjörg Stephensen borgarlög-
maður segir að enn eigi eftir að
kynna álit hennar fyrir menntaráði
en í meginatriðum taki hún undir álit
lögfræðideildar Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Börnin borga
meira en hráefni
Matargjald í skólum
breytist ekki
Morgunblaðið/Ásdís
Lystug Nokkuð er síðan byrjað var
að bjóða heitan mat í grunnskólum.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
EKKI eru allir ákærðir sem auglýsa
áfengi, eins og Karl Garðarsson,
fyrrverandi ritstjóri Blaðsins, sem
var dæmdur fyrir að auglýsa áfengi í
blaði sínu, sýndi fram á í málsvörn
sinni fyrir Hæstarétti. Karl lagði
fram hvorki meira né minna en 999
dæmi sem hann sagði að væru um
áfengisauglýsingar sem enginn hefði
verið ákærður fyrir.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttardómari skilaði sératkvæði og
vildi sýkna Karl þar sem auglýsinga-
bannið bryti gegn jafnræðisreglu.
Jón Steinar taldi ennfremur að að-
gerðaleysi gagnvart öðrum auglýs-
endum ætti að leiða til þess að Karli
yrði ekki gerð refsing.
En hvers vegna sleppa sumir en
aðrir ekki?
Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoð-
arsaksóknari lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að starfsmenn
embættisins geti ekki legið yfir
hverju einasta blaði sem kemur út og
grandskoðað hvort þar birtist ólög-
leg áfengisauglýsing. Berist tilkynn-
ingar, t.d. frá Lýðheilsustöð eða rík-
issaksóknara, sé málið rannsakað.
Einnig taki lögregla upp mál að eigin
frumkvæði.
Sumum málum lyktar með ákæru
en önnur eru felld niður af ýmsum
ástæðum. „Þetta er spurning um
sönnunarstöðu. Getum við sýnt fram
á að viðkomandi hafi brotið af sér eða
er eitthvað í málinu sem verður til
þess að sýknað er í málinu,“ segir
Arnþrúður.
Nokkur mál í rannsókn
Að undanförnu hafa fallið nokkrir
sektardómar í málum af svipuðu tagi
og málið gegn Karli. Aðspurð segir
Arnþrúður að lögregla sé nú að
rannsaka nokkur mál sem tengjast
áfengisauglýsingum í fjölmiðlum.
Liggja ekki yfir
öllum blöðum
Nokkur mál vegna áfengisauglýsinga
eru í rannsókn hjá lögreglunni
w
w
w
.s
an
si
r.f
o
atlantic.foTel +298 34 10 10
ANNOUNCEMENT
LISTING OF
ATLANTIC AIRWAYS
ON NASDAQ OMX
COPENHAGEN STOCK
EXCHANGE ON 5 NOV. 2008
Atlantic Airways P/F is an international
airline with base on Faroe Island. Atlan-
tic Airways was established in 1987
and has grown steadily since then.
Operations started cautiously in March
1988, with a single aircraft and just one
route, between the Faroe Islands and
Copenhagen. Atlantic Airways has
gradually expanded and established
new income streams, ensuring the
company a stable economic base. The
main activity consists of scheduled
service with Faroes as a cornerstone,
charter operations in Europe and heli-
copter operations in Faroese and North
Sea waters. Atlantic Airways currently
operates seven jet aircrafts and four
medium size helicopters.
The shares in Atlantic Airways P/F will
be listed on NASDAQ OMX Copenha-
gen Stock Exchange on 5 November
2008. There will be no share offering in
this connection. After this, the Atlantic
Airways P/F shares will be listed on
both NASDAQ OMX Iceland and NAS-
DAQ Copenhagen stock exchange (dual
listing).
The issuer of the shares is P/F Atlantic
Airways. The company’s registered
office is located at Vága Floghavn, 380
Sørvágur, Faroe Islands. Atlantic Air-
ways is registered in the Faroe Islands
at the Faroese Business Registration
Office (Skráseting Føroya) with regis-
tration number 1223.
All the shares are of the same class and
carry equal rights. Each share has a
nominal value of DKK 100. The number
of shares is 1,035,000. The shares are
all issued electronically at the VP
(Værdipapircentralen). Atlantic Airways
expects to enter into a market making
agreement relating to the Company’s
shares on the NASDAQ OMX Copenha-
gen Stock Exchange.
The company follows Faroese GAAP.
From 1 January 2009 Atlantic Airways
will adopt IFRS. The Interim Statement
Q3 2008 will be announced 20 Novem-
ber 2008.
The prospectus dated 9 November
2007 and a supplement dated 27 Octo-
ber 2008 has been published in English
and can be obtained on the website
www.atlantic.fo.
The prospectus dated 9 November
2007 and a supplement dated 27 Octo-
ber 2008 in a printed form is also avail-
able on the Atlantic Airways’s address
(Vága Floghavn, FO-380 Sørvágur,
Faroe Islands) from 31 October 2008
during normal office hours.
Date of notice: 1 November 2008.
NORRÆNA félagið heldur nám-
skeið ætluð fólki sem hyggur á flutn-
ing til Norðurlandanna. Farið verð-
ur yfir helstu atriði sem hafa þarf í
huga við flutning, til að mynda varð-
andi skráningu, atvinnu og húsnæði,
auk þess sem þátttakendum gefst
færi á að bera fram spurningar. 4.
nóvember kl. 19:30 verður fjallað um
flutning til Noregs og Svíþjóðar og
18. nóvember um flutning til Dan-
merkur. Námskeiðin eru ókeypis og
öllum opin. Nánari upplýsingar á
norden.is.
Að flytja
til Norður-
landa