Morgunblaðið - 01.11.2008, Side 24
24 Daglegt lífVIÐTAL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
É
g hef enga ástæðu til að
ætla annað en að ég
muni ná mér að fullu,“
segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanrík-
isráðherra sem snúið hefur aftur til
starfa eftir aðgerð í Bandaríkjunum
þar sem góðkynja æxli var fjarlægt
úr heila hennar.
„Ég mun fara mér eins hægt og
nokkur kostur er og aðstæður leyfa
á næstunni. Í pósti sem ég sendi á
starfsfólkið mitt í ráðuneytinu sagði
ég að þetta æxli hefði reynst vera
friðsælt og fornt. Þetta er barnaæxli
sem hefur verið þarna í áratugi. Það
er góðkynja og læknar náðu stærst-
um hluta þess. Það getur vel verið að
það sem eftir er af því verði til friðs
svo ég þurfi ekki að fara í frekari
meðferð.“
Viðtalið við Ingibjörgu var tekið
örfáum dögum áður en hún fór í aðra
aðgerð. Hún lýsti þeirri aðgerð fyrir
blaðamanni: „Æxlið sem er í fjórða
vökvahólfi heilans hefur takmarkað
vökvaflæði um hann. Það þarf að
laga með því að gera smá gat til að
liðka fyrir þessu flæði. Eftir þá að-
gerð verð ég væntanlega laus allra
mála. Það er allavega engin ástæða
til að ætla annað.“
Ekkert áfall
Hugsaðirðu um að þú gætir þurft
að draga þig í hlé til frambúðar frá
stjórnmálum vegna þessara veik-
inda?
„Aldrei. Þegar mér var sagt frá
æxlinu var það ekkert áfall fyrir
mig. Ég var viss um að ég væri í
höndunum á góðum læknum og að
þetta hlyti að fara vel. Ég kveið ekki
fyrir aðgerðinni og mér datt aldrei í
hug að eftirmál yrðu vegna hennar.“
Hvernig er með þrekið?
„Ég hef minna þrek en áður og
það þarf ég að byggja upp. Það er
merkilegur hlutur að fara í sex tíma
aðgerð á mánudegi og vera komin út
á götu á föstudegi. Bæði segir þetta
manni hvað læknavísindin eru
merkileg en líka hvað líkaminn hefur
mikinn lækningarmátt. Hann er
fljótur að fara í gang og vinna sitt
endurnýjunarstarf. Veikindi breyta
líka því hvernig maður hugsar, mað-
ur fær aðrar viðmiðanir og annað
mat á hvað skiptir máli. Hjörleifur
var í Kína þegar þetta gerðist og
kom þaðan til New York. Eftir að-
gerðina áttum við hjónin einhverjar
bestu stundir sem við höfum átt.
Þarna var ég kyrrsett, mátti ekki
vinna og var ekki heldur að fara
neitt sérstakt og hafði allan heims-
ins tíma ólíkt því sem verið hefur ár-
um saman. Við fórum í langa göngu-
túra og hvíldum í augnablikinu.
Þetta voru mestu gæðastundir sem
við höfum átt lengi. Og allar kveðj-
urnar og straumarnir sem fólk sendi
mér höfðu mikil áhrif. Ég fann svo
sterkt hvað það gerði mér gott. Það
var merkilegt að upplifa það.“
Eigum að fá erlenda leiðsögn
Á sama tíma og þú veiktist hrundi
íslenska bankakerfið og ástandið er
skelfilegt. Hver ber fyrst og fremst
ábyrgð á þessu hruni?
„Ég held að það sé ekki hægt að
ákvarða einhvern einn sökudólg.
Það eru margar samverkandi ástæð-
ur fyrir þessu hruni. Miðað við ís-
lenska krónu og íslenskan seðla-
banka hefur bankakerfið okkar orðið
alltof stórt. Ég hef lengi verið þeirr-
ar skoðunar að smæð gjaldmiðilsins
væri áhætta í sjálfu sér. Margir hafa
ekki einu sinni viljað heyra þá um-
ræðu, hvað þá taka þátt í henni und-
anfarin ár. Við værum ekki svona
stödd værum við aðildarríki ESB.
Forsætisráðherra Íra þakkar ESB
og evru að Írland er ekki í okkar
stöðu og fyrrverandi kanslari Aust-
urríkis hefur tekið í svipaðan streng
hvað sína þjóð varðar.
Svo verðum við að spyrja: Var lög-
gjöfin ekki eins og hún átti að vera?
Virkuðu eftirlitsstofnanirnar ekki
sem skyldi?
Alþjóðlega fjármálakreppan sem
skall á varð að fárviðri sem enn geis-
ar úti um allan heim. Íslensku bank-
arnir voru hvorki betri né verri en
bankar í öðrum löndum. Aðrir miklu
stærri bankar hafa hrunið en ekki
fjármálakerfi heilla landa. Og þar
komum við að hinum séríslensku að-
stæðum, svo sem samhenginu milli
stærðar bankakerfisins og gjaldeyr-
isvarna Seðlabankans, stöðugleika
gjaldmiðilsins og svo framvegis.
Allt þetta verður að skoða en það
er ekki hægt að fella dóma núna yfir
einstökum aðilum.“
Finnst þér ekki tímabært að
spyrja hverja á að draga til ábyrgðar
og hvernig?
„Mér finnst að það eigi að spyrja
þeirra spurninga en það þarf að gera
með skipulögðum hætti. Við getum
ekki fellt dóma án þess að rannsaka
málið. Ef efnahagsbrotadeild rík-
islögreglustjóra telur að einhvers
staðar hafi lög verið brotin á hún að
rannsaka þau mál. Og eins og ég
sagði áðan þá þarf líka að fara yfir
það hvort menn hafi ekki staðið sig
eins og þeir áttu að gera. Það finnst
mér að eigi að gera með sérstakri
rannsóknarnefnd. Alþingi á að sam-
þykkja stofnun slíkrar nefndar, í
henni eiga ekki að sitja pólitíkusar
og við eigum að fá utanaðkomandi
erlenda leiðsögn þannig að al-
gjörlega sé tryggt að í slíkri rann-
sókn sé slitið á öll hagsmunatengsl.
Þetta þarf að gera sem allra fyrst.“
Engin tengsl við stórfyrirtæki
Eftir á að hyggja, var Samfylk-
ingin ekki um tíma of mikið í vörn
fyrir stórfyrirtæki, samanber Borg-
arnesræður þínar?
„Það er fráleitt að halda því fram
að ég hafi í Borgarnesræðum mínum
verið að taka afstöðu með einstaka
auðmönnum eða stórfyrirtækjum
Hvorki ég né Samfylkingin höfum
nokkurn tíma haft þau tengsl við
stórfyrirtæki sem þáverandi forysta
Sjálfstæðisflokksins og þáverandi
» „Ef við tækjum þá ákvörðun fljótlega aðsækja um Evrópusambandsaðild þá myndi
það strax hafa áhrif á atvinnulífið hér heima, mark-
aðina og stöðu okkar gagnvart öðrum löndum, því
þá vita allir hvert við erum að stefna og geta farið
að gera áætlanir með hliðsjón af því. Væntingar
gagnvart Íslandi myndu breytast og það í sjálfu sér
hefði samstundis jákvæð áhrif. “
Ég
hamra
járnið
I n g i b j ö r g S ó l r ú n G í s l a d ó t t i r u t a n r í k i s r á ð h e r r a