Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 01.11.2008, Síða 26
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Þjóðleg íslensk matarmenning er þó ekki einaleiðin til að sýna hagsýni í eldhúsinu, þvímargar aðrar þjóðir, m.a. Taílendingar, hafareynst hugmyndaríkir þegar kemur að því að útbúa bragðgóða rétti sem ekki krefjast mikilla fjár- útláta. Nói Thitinat, sem hefur umsjón með taílenska veit- ingastaðnum Krua Thai, segir Taílendinga duglega að nýta vel hráefni. Sem kokkur þekkir hann vel til mat- armenningar sinnar þjóðar og eru bragðsterkir kókos- réttir í sérstöku uppáhaldi hjá honum. „Ég hef þó ekki síður gaman af að elda íslenskan mat,“ segir Nói og kveður hamborgarhrygginn í sérstöku uppáhaldi. Taílensku réttirnir sem hann reiddi ljúflega fram fyr- ir blaðamann Daglegs lífs eru kjúklingur með eggja- núðlum og grænmeti, kjúklingur í karríi og svínakjöts- pönnuréttur með ostrusósu. „Þetta eru mjög einfaldir réttir sem er auðvelt að finna bæði hráefni og krydd í,“ segir Nói. „Þar af leiðandi eru þeir tilvalin leið til að spara með því að elda heima.“ Réttina má geyma í ís- skáp í 2-3 daga. Steiktar eggjanúðlur 300 g eggjanúðlur 1 egg 2 msk. matarolía 50 g hvítlaukur, saxaður 300 g kjúklingur 2 bollar vatn 1 msk. salt 1 msk. sykur 200 g blaðlaukur 100 g gulrætur 100 g laukur Núðlurnar eru settar í volgt vatn í 5 mínútur. Mat- arolía er hituð á pönnu og hvítlaukur síðan steiktur þar til hann tekur á sig gulan lit. Kjúklingur og egg er því næst steikt á pönnunni. Vatni, salti og sykri bætt saman við. Núðlurnar eru þá settar saman við og steiktar í 5mínútur. Grænmetið er að lokum sett á pönnuna og steikt í tvær mínútur til viðbótar. Kjúklingur í karríi 300 g kjúklingur ½ l kókosmjólk 1½ msk. sykur 1 tsk. salt 1 tsk. gult karrí 200 g gulrætur 200 g laukur 2 kartöflur 100 g spergilkál Kókosmjólkin er soðin á pönnu. Karríinu og kjúk- lingnum er því næst blandað saman við og soðið þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Grænmeti, salti og sykri bætt út í og eldað í 5 mínútur Borið fram með hrísgrjónum. Svínakjöt í ostrusósu 3 msk. matarolía 300 g svínakjöt 300 g paprika, græn og rauð 200 g laukur 100 g sveppir 1 msk. sykur 1 msk. ostrusósa 1 bolli vatn ½ tsk. salt Hitið mataolíu á pönnu og steikið svínaköt þar til það er fulleldað. Bætið ostrusósu, sykri og salti saman við. Grænmetinu og vatninu er því næst sett saman við og látið sjóða stutta stund. Borið fram með heitum hrís- grjónum. Bragðgóðir sparnaðarréttir Svínakjöt í ostrusósu Bragðast vel með hrísgrjónum. Kjúklingur í karríi Litríkt og bragðgott. Morgunblaðið/Valdís Thor KokkurinnNói Thitinat, fyrir miðju, kann vel að meta bragðsterka kókosrétti. Buatong (t.v.) og Susanna eru honum innan handar. Steiktar eggjanúðlur Fljótlegur fjölskylduréttur. Slátur og hefðbundinn íslenskur sveita- matur hefur verið mikið í umræðunni í kjölfar versnandi ástands efnahags- mála. Enda er upplagt að borða kjöt- súpu og innmat til að sporna við hin- um síhækkandi matarreikningi. 26 Daglegt lífMATUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.