Morgunblaðið - 01.11.2008, Qupperneq 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Ég sit hérna við eld-
húsborðið í angandi
hangikjötslykt og
drekk te úr bolla sem
þú gafst mér þegar ég
eignaðist mína fyrstu íbúð og hugsa
um öll skiptin sem ég kom til þín á
afmælisdeginum þínum og borðaði
hangikjöt með öllu tilheyrandi í til-
efni dagsins. Þessi siður þinn er
kominn til að vera enda er það
ómissandi að fá hangikjöt í lok októ-
ber hvert ár.
Ég ætla að nota tækifærið nú á af-
mælisdeginum þínum til að þakka
Fríða Aðalsteinsdóttir
✝ Fríða Aðal-steinsdóttir
fæddist á Akureyri
26. október 1942.
Hún lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
24. júlí síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Akureyr-
arkirkju 31. júlí.
þér fyrir allt það sem
þú gerðir fyrir mig í
lífinu. Það sem kemur
alltaf efst í huga minn
þegar ég hugsa til
baka er bílferð sem við
fórum saman á rauðu
þrumunni. Ferðinni
var heitið austur fyrir
fjall í Vaglaskóg að
hitta restina af fjöl-
skyldunni sem var þar
í útilegu, ég man alltaf
eftir því hvað þú gerð-
ir mikið grín að Löd-
unni sem þú áttir einu
sinni, kallaðir hana alltaf rauðu
þrumuna og sagðir mér að hún væri
aðalkagginn í bænum. Já, það var
alltaf stutt í húmorinn hjá þér og
þessi bílferð mun alltaf lifa í minn-
ingunni. Það eru svo margar frábær-
ar minningar um þig og svo margt
sem maður gæti skrifað, margar
skemmtilegar sögur frá því að þú
passaðir mig þegar ég var lítill, frá
öllum fjöruferðunum, ferðlögunum,
veiðiferðunum, jólunum hjá þér,
jólaboðunum og bara allt! Takk kær-
lega fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig, gafst mér og gerðir með mér.
Ég sé oft svo eftir því að hafa ekki
komið oftar í heimsókn, maður held-
ur alltaf að það sé svo mikið að gera
hjá manni en í raun er alltaf tími til
að skjótast inn, þó það væri nú ekki
nema til að segja bara hæ og sjá þig
aðeins, en maður lifir á gervihnatta-
öld og heldur að ef maður er ekki
alltaf að þá missi maður af ein-
hverju.
Elsku amma, það kætir hjarta
mitt að hugsa til þess að þú gast ver-
ið í útskriftinni hjá mér og Dag-
björtu í maí, það var ekki að sjá á
þér þá að þú værir veik og manni
datt ekki í hug að það væri svona
stutt eftir, en eitt sinn verða allir
menn að deyja, eins og Vilhjálmur
söng í laginu Söknuður.
Elsku amma, ég vil bara enda
þetta á að segja þér að minning þín
mun ávallt lifa í hjarta mínu. Takk
fyrir allt og allt.
Þitt barnabarn,
Helgi Steinar.
Ákveðin kaflaskil
verða núna þegar
Malla frænka, eins og
hún var alltaf kölluð í ættinni, hefur
kvatt þennan heim eftir erfið veik-
indi frá því seinni hluta sumars.
Hún var um margt mjög sérstök
kona sem okkur syskinabörnunum
þótti afar vænt um. Hún var mjög
trúuð og lét sér mjög annt um fjöl-
skyldu sína og var mjög kærleiks-
rík. Einnig lét hún sér mjög annt
um okkur systkinabörnin, fylgdist
mjög vel með og bað jafnan fyrir
fólkinu sínu þegar eitthvað bjátaði
á. Allt frá fyrstu tíð hefur hún verið
fastur punktur í tilveru okkar og
alltaf verið til staðar, traust og góð.
Það var fljótlega sem við krakkarnir
uppgötvuðum það að Malla frænka
vissi meira um önnur tilverustig en
margur annar og sá margt sem við
hin sáum ekki. Við t.d. þorðum aldr-
ei að skrökva þegar Malla frænka
var viðstödd því við vorum alveg
viss um að hún sæi það á okkur.
Malla og Pálmi voru með þeim
fyrstu sem byggðu hús inni í mýri,
eins og það var kallað þá, á Vest-
urgötu 135 hér í bæ. Það var rétt
innan við barnaskólann sem nú heit-
Matthildur Árnadóttir
✝ MatthildurÁrnadóttir
fæddist í Bolung-
arvík 24. nóvember
1921. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á
Akranesi að kvöldi
fimmtudagsins 9.
október og fór útför
hennar fram frá
Akraneskirkju 17.
október.
ir Brekkubæjarskóli.
Þá var ég í þeim skóla
og fannst ekki smá
flott að geta stolist yf-
ir girðinguna í mjólk
og köku til Möllu
frænku og jafnvel
sundum boðið vinkon-
um með. Um tíma bjó
amma Sigríður hjá
þeim hjónum á Vest-
urgötunni og þá kom-
um við krakkarnir
mikið þangað. Margar
ljúfar minningar rifj-
ast upp eins og fræga
setningin sem lifir og mun lifa í fjöl-
skyldunum: „Elsku fyrirgefið þið
hvað þetta er lítið,“ sagði Malla
frænka gjarnan þegar hún hafði
fyllt borðið af kræsingum. Eitt enn
sætt sem Malla frænka hafði fyrir
sið var að hafa teygju utan um
budduna sína. Þegar ég fór með
henni í búð var ég alltaf að vona að
enginn tæki eftir þessu! En í dag
ættum við krakkarnir kannski að
taka þetta upp og læra af henni
þennan sið.
Systkinin frá Bökkunum í Bol-
ungarvík voru sex talsins en nú er
einungis móðir mín, Guðmunda, eft-
ir. Öll fluttu þau til Akraness, með
nokkru millibili þó, og þrjú þeirra
fluttu síðan áfram til Reykjavíkur.
Mikill samgangur var milli fjöl-
skyldnanna og létu þau systkini sér
mjög annt hverju um annað. Þær
systur Malla og mamma mín hafa
alla tíð verið mjög nánar og varla
liðið sá dagur að þær hafi ekki gáð
hvor að annarri og er Möllu nú sárt
saknað.
Við sendum Pálma, Helgu og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur um leið og Mauda systir, við
systkinin og fjölskyldur okkar biðj-
um alla englana að passa Mölluna
okkar. Guð geymi hana og hafi hún
þökk fyrir allt og allt.
Þín frænka
Sigríður Gróa.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Ástkær móðir mín,
SÆBJÖRG HINRIKSDÓTTIR,
Esjugrund 37,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
25. október, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 3. nóvember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Þórir Bjarnason.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HELGASON
fyrrv. deildarstjóri
í menntamálaráðuneyti
frá Heggsstöðum,
Hrafnhólum 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 3. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð einstakra barna.
Soffía Kristjánsdóttir,
Ágúst Heiðar Sigurðsson, Margrét Haraldsdóttir,
Álfheiður Sigurðardóttir, Daði Guðmundsson,
Helga Guðrún Sigurðardóttir,
Guðný Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR VALDIMARSSON,
Móasíðu 6a,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 26. október.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn
4. nóvember kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Oddfellowregluna á Akureyri.
Minningarkort fást í AB-búðinni og hjá Jóni Bjarnasyni úrsmið.
Þóranna Þórðardóttir,
E. Ásrún Guðmundsdóttir, Árni Ragnarsson,
Margrét Unnur Akselsdóttir, Erik Andersson,
Valdimar R. Guðmundsson, Daðey A. Sigþórsdóttir
og afabörn.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR ÞÓRUNNAR BJARNADÓTTUR
frá Norður-Gröf,
Kjalarnesi.
Hjartans þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Víðinesi fyrir ómetanlega umönnun og umhyggju.
Jónas Tryggvi Pétursson,
Þórunn Aldís Pétursdóttir, Guðmundur Ringsted,
Margrét Björg Pétursdóttir,
Sigrún Bryndís Pétursdóttir, Gunnar Þór Ólafsson,
Pálmi Hannes Pétursson,
Bjarni Þór Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
MARÍA GUÐBJARTSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
áður Dalbraut 16,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 30. október.
Sigríður Ósk Óskarsdóttir, Hermann Sigfússon,
Halldóra Björt Óskarsdóttir, Guðmundur R. Jónsson,
Þráinn Ingólfsson, Guðríður Hermannsdóttir,
Ólafur Jón Ingólfsson, Margrét Á. Hallsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg dóttir mín og systir,
BJÖRG FRÍÐA JÓHANNESDÓTTIR,
Ljósheimum 20,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 29. október.
Jarðarförin verður frá Fossvogskapellu föstudaginn
7. nóvember kl. 13.00.
Þóra Aðalheiður Jónsdóttir,
Birgir Jóhannesson.
✝
Bróðir okkar,
JÓN BJÖRGVINSSON
frá Rauðabergi í Fljótshverfi,
lést föstudaginn 24. október á hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum.
Útför hans fór fram í kyrrþey föstudaginn
31. október.
Guðný Björgvinsdóttir,
Unnur J. Björgvinsdóttir,
Stefán Björgvinsson,
Ragnheiður Björgvinsdóttir.