Morgunblaðið - 01.11.2008, Page 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Sparneytinn Toyota Aygo ’06
Bensíneyðsla 4,5 l /100 km í
blönduðum akstri, fjarst. saml. ABS,
8 loftpúðar, frítt í stöðumæla. Lipur
og fallegur bíll ek. 35 þ. V. 1.160.
Uppl. 699-3181 / 588-8181.
Renault Megan Classic,
árg. 2000,ssk., sko.,dráttarbeisli, ek.
120 þús. Verð 430 þús. Tilboð 330
þús stgr. Uppl. í síma 898 2128.
Mitsubishi Pajero ´99, 2.8 diesel,
sjálfsk. Rafmagn í rúðum,filmur
skoðaður, nýtt pústkerfi, 32” dekk
ekinn 230 þús. Verð 500 þús. Uppl. í
síma 770 55 00 og 693 2991.
Góður fjölskyldubíll.
Ford Freestyle, árg. 2005 Ek. 12þ. km.
Sjálfskiptur, 6 manna bíll,
heilsársdekk. Eyðir litlu! Verð 2.490þ.
Uppl. í s. 770 5500 og 693 2991
Citroën árg. '03 ek. 44 þús. km
Nýskoðaður, beinskiptur, eyðslu-
grannur, vetrardekk fylgja. Verð 860
þúsund. Sími 659-4102.
BMW 520 Árg. ‘99
Ek. 200þ. km. Sjálfskiptur, heilsárs-
dekk, filmur og rafm. í rúðum. Fæst
fyrir kr. 500 þús.
Uppl. í s. 770 5500 og 693 2991
Pallbíll
Sendibílar
VW Transporter 4x4 árg. 2001
Bíll í toppstandi. Nýskoðaður án at-
hugasemda, er með hillurekka.
Nagladekk fylgja. Ekinn 166 þús.
Verð 723 þúsund án vsk. Uppl. í síma
893 1986.
Bílaþjónusta
Bílar
Volkswagen Passat 4 motion 2
lítra Árg. ´03, ekinn 110 þús. km.
Ný tímareim, nýjar felgur. Verð 1.1
mill. Sími 770 5500 og 693 2991.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Vélhjól
Lokaðar kerrur fyrir fjórhjól, vatns-
heldar og léttar, burðargeta 300 kg.
Upplýsingar í síma 659-8116.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Uppl. í s. 899 9825.
Volkswagen Golf 4 motion
2 lítra, árg. ´01, beinskiptur, ekinn
150 þús. km. Vetrardekk. V. 550 þús.
Sími 770 5500 og 693 2991.
MMC Space star árg. 2000
til sölu. Ek. 148 þús. Ný kúpling,
þarfnast lítilsháttar viðgerða,
annars í fínu standi. Uppl. í síma
820 1974.
Volfswagen GOLF 2002 til sölu
m/sóllúgu, álfelgur og fl. Toppbíll í
frábæru standi, eins og nýr, Yfirtaka á
mjög hagstæðu láni að upphæð
700.000.- útb. 150.000.- afb. ca. 23
þús. pr mán. Lán getur lækkað. Uppl.í
síma 896 3362.
Toyota Corolla 1600
Árg. ‘99, sjálfsk., ek. 132 þús.
Vínrauður, Fallegur bíll.
Upplýsingar í síma 892 8380
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að
Skógarhlíð 6, Reykjavík - 5, sem hér segir á eftirfarandi
eignum:
Eiðistorg 17, 206-7348, 50% ehl., Seltjarnarnesi, þingl. eig. Ástríður
Kristín Ómarsdóttir, gerðarbeiðendur 365 - miðlar ehf. og S24,
miðvikudaginn 5. nóvember 2008 kl. 10:00.
Fannafold 160, 204-1508, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur
Birgir Stefánsson, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn
5. nóvember 2008 kl. 10:00.
Fífurimi 8, 204-0424, Reykjavík, þingl. eig. Ásgrímur Ari Jósefsson og
Braghildur Sif Matthíasdóttir, gerðarbeiðendur Dýraspítalinn í Víðidal
ehf., Íbúðalánasjóður, Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,Tölvubílar hf. og
Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 5. nóvember 2008 kl. 10:00.
Fífusel 24, 205-6457, Reykjavík, þingl. eig. Anna F. Bernódusdóttir,
gerðarbeiðendur Glitnir banki hf., Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv.
og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 5. nóvember 2008 kl. 10:00.
Háteigsvegur 23, 201-1563, 105 Reykjavík, þingl. eig. Björn Viktorsson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og
Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 5. nóvember 2008 kl. 10:00.
Hraunbær 172, 204-5255, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Jóna Gunnars-
dóttir, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 5. nóv-
ember 2008 kl. 10:00.
Laugarnesvegur 86, 201-6564, Reykjavík, þingl. eig. Arðbær ehf.,
gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., miðvikudaginn 5.
nóvember 2008 kl. 10:00.
Skipasund 63, 202-0480, 104 Reykjavík, þingl. eig. Ingibjörg Heiðrún
Sigfúsdóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og
Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., miðvikudaginn 5. nóvember 2008
kl. 10:00.
Skólastræti 1, 200-4339, Reykjavík, þingl. eig. Agnar Gunnar Agnars-
son, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 5. nóvember
2008 kl. 10:00.
Stararimi 51, 221-9788, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Magnús
Guðfinnsson, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 5.
nóvember 2008 kl. 10:00.
Stigahlíð 4, 203-0908, Reykjavík, þingl. eig. Hlaðgerður Íris
Björnsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 5.
nóvember 2008 kl. 10:00.
Stigahlíð 4, 203-0913, Reykjavík, þingl. eig. Haukur Harðarson,
gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 5. nóvember 2008
kl. 10:00.
Stóriteigur 16, 208-4374, Mosfellsbæ, þingl. eig. Kristín V. Valdi-
marsdóttir, gerðarbeiðandi Gildi -lífeyrissjóður, miðvikudaginn 5.
nóvember 2008 kl. 10:00.
Vesturberg 78, 205-0598, Reykjavík, þingl. eig.Tómas Eric Woodard,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 5. nóvember
2008 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
31. október 2008.
Félagsstarf
MÍMIR 6008110111 l° frf.
3.11. Myndakvöld Útivistar
kl. 20:00 í Húnabúð, Skeifunni 11.
Sýndar verða myndir frá fyrri
hluta Langleiðarinnar. Mynda-
kvöldin eru öllum opin, jafnt
félagsmönnum sem öðrum.
Aðgangseyrir er 800 kr. Sýningin
stendur yfir í rúma klukkustund
og er að henni lokinni boðið upp
á glæsilegt köku- og brauðtertu-
hlaðborð kaffinefndar Útivistar.
7. - 9.11. Laugafell - jeppaferð
0811JF01
Vetrarríki miðhálendisins kring-
um Hofsjökul kannað snemma
vetrar. Þátttaka háð samþykki
fararstjóra.
Skráning á utivist@utivist.is
eða í síma 562 1000.
Sjá nánar www.utivist.is
Smáauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar
Afi var á endanum hvíldinni feg-
inn. Ég fékk að halda í höndina á
honum þegar hann tók sín síðustu
andartök. Hann fékk hægt og fal-
legt andlát. Afi hvaddi þennan
heim ómálga eins og hann kom í
heiminn fyrir 85 árum en ljósið
hans lifir áfram í okkur, stoltum af-
komendum hans.
Arna Kristín Einarsdóttir.
Kæri afi,
það er komið að leiðarlokum og
nú eru engin tækifæri eftir til að
efla þau litlu samskipti sem við
höfðum. En þó samverustundir
væru fáar, þá situr eftir í huga
okkar alveg sérstaklega eftirmið-
dagsstund, sem þú sjálfur óskaðir
eftir að við ættum saman. Við syst-
urnar fimm ásamt mökum okkar
og börnum hittum þig hjá einni
okkar. Þú sýndir okkur þá hvað þú
áttir mikið af ást og hlýju okkur til
handa. Þú sagðir okkur að þú hefð-
ir viljað hafa hlutina öðruvísi og
eins að þú værir óskaplega ham-
ingjusamur að hitta okkur öll. Við
geymum þessa stund í hjörtum
okkar sem hina dýrmætustu perlu
og munum þig brosandi, kátan og
sparaðir þú ekki knús og falleg
orð.
Við systur munum hittast hjá
einni okkar nú í dag og kveðja þig
saman. Örlögin höguðu því svo til,
að ein okkar varð amma í vikunni
og önnur varð móðir fyrir
skömmu. Við áttum því ekki allar
heimangengt héðan að sunnan til
að fylgja þér síðasta spölinn.
Drottinn gaf og Drottinn tók. Við
vildum kveðja þig allar saman og
völdum því þessa leið og okkur
finnst fara vel á því. Megi almátt-
ugur Guð vera með þér og megir
þú vera sameinaður syni þínum,
föður okkar, ömmu Sigríði og
ömmu Kristínu. Hafðu þökk fyrir
daginn góða.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að
hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvel-
ur, þótt látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með glöð-
um hug, lyftist sál mín upp í mót til
ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt
sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Ásta Sigríður, María, Pálína,
Jóhanna og Sigurjóna.
Síðastliðið vor átti ég erindi til
Akureyrar og ákvað að heimsækja
langafa minn í annað sinn í lífi
mínu. Eftir að ég útskýrði hverra
manna ég væri, knúsaði hann mig í
bak og fyrir, slökkti á fótboltanum
og hélt þéttingsfast í höndina á
mér meðan ég sagði honum sögur
af fjölskyldunni. Þegar ég var ekki
nógu skýr, spurði hann mig út úr
eða leiðrétti mig með látbragðsleik
í hæsta gæðaflokki. Þetta var eina
leiðin, því orðin virtust einfaldlega
ekki getað fundið sér leið að tal-
færunum, að minnsta kosti ekki í
heilum setningum.
Þegar kom að því að ég þurfti að
fara, sleppti hann mér ekki fyrr en
ég lofaði að koma aftur daginn eft-
ir. Morguninn eftir var afi kominn í
sitt fínasta púss, kvaddi hjúkkurn-
ar og dró mig út að bílnum mínum.
Hann leiðbeindi mér um bæinn og
sýndi mér húsið sem hann bjó í
ásamt öðrum stöðum sem voru
honum merkilegir. Við enduðum
bíltúrinn síðan hjá langömmu í
kirkjugarðinum, þar sem ég hélt
utan um hann meðan hann grét og
sagði mér að hann vildi ekki vera
hér lengur, hann vildi vera heima
hjá ömmu.
Velkominn heim, afi Haraldur.
Hvíldu í friði.
Esther Ösp hennar Ástu.
Elsku Halli minn, það er sárt að
þú skulir vera farinn frá okkur, en
aumt ástand elsku þjóðarinnar nú
hefði brotið hjarta þitt. Þú ert líka
dyggilega búinn að gefa þitt og átt-
ir ekkert meira skilið en að fá loks-
ins að fara í fagnandi faðm Lillu,
Sigga og ömmu.
Þú varst einstaklega gefandi
maður. Alveg sama hvað á dundi,
það sló aldrei á gæsku þína. Allt
fram á síðustu stundu gafst þú ljós
og hamingju.
Það var frábært að koma í heim-
sókn til ykkar Lillu frænku, ömmu
og strákanna á Byggðaveginn.
Mamma, sem bar mikla virðingu
fyrir þér af því að henni fannst þú
svo réttlátur og ráðagóður, var hjá
ykkur árið 1948, til að undirbúa
giftingu hennar og pabba. Og
tveimur árum seinna tókuð þið
Hönnu systur til ykkar, svo að
mamma gæti heimsótt pabba til
Bandaríkjanna, þar sem hann var í
loftskeytanámi.
Þegar Ragnar bróðir var hjá
ykkur, tókstu hann strax að þér
sem enn einn son þinn. Þú faðm-
aðir, klappaðir og hvattir alla
strákana þína og ef einhver þeirra
var dapur, fórstu með alla í bíltúr.
Þú sagðist vera besti bílstjóri í
heimi og enginn þeirra dró það í
efa. Oft sagðirðu: „Löbbum niðrá
ráðhústorg og fáum okkur pulsu!“
„Bestu pulsur í heimi,“ segir Ragn-
ar enn í dag. Og þegar Ragnar var
í sumarbúðum á Hólavöllum,
keyrðir þú einn daginn í hlað með
kassa fullan af krembrauði, ekki
bara handa honum, heldur handa
ÖLLUM krökkunum þar.
Seinna þegar ég var hjá ykkur,
var ég hamingjusamasta vera í
heimi. Þú byggðir þá af krafti upp
íþróttalíf bæjarins, komst alltaf
glaður í bragði heim. Sama gegndi
um Lillu, sem vann í Amaro. Þið
funduð strax vinkonu handa mér,
ég drakk jolly-colla, fór í heim-
sóknir með ömmu, hundurinn
Bokki flaðraði upp um mig, þú
sagðir stoltur sögur af stóru strák-
unum þínum, Sverri, Sigga og Ein-
ari sem voru fluttir að heiman og
amma saumaði föt á alla fjölskyld-
una, norðan- og sunnanlands. Ég
elskaði lyktina af ömmu, af efn-
unum hennar og af saumavélinni
og leysti strákana af við að þræða
fyrir hana nálina, af því að hún
hafði fyrir löngu misst allan mátt í
fingrunum. Eftir besta kvöldmat í
heimi bjó Lilla til rjómakaramell-
ur, sem við Jakob vorum sjúk í,
Haddú hermdi eftir skammaryrð-
um Andrésar andar eins og
„hrimppfff!“ okkur til skemmtunar
og þú sagðir okkur sögur af Sölva
Helgasyni.
Eftirfarandi segir allt um þig:
Löngu seinna var ég í tökustaðaleit
fyrir kvikmynd mína um Sölva
Helgason og hafði því miður ekki
haft tíma til að skoða stærsta dal-
inn á Höfðaströnd áður en ég fór
aftur hingað til München. Þú frétt-
ir af því og skömmu síðar fæ ég
ljósmyndir í pósti. Þú hafðir átt-
ræður keyrt til Skagafjarðar,
gengið inn og út dalinn í a.m.k. 5
klst. til taka ljósmyndir fyrir mig.
Ég var orðlaus. Allt fram á síðstu
stund hafðir þú brennandi áhuga á
þjóðmálum. Ragnar heimsótti þig
oft. Einu sinni gastu ekki klárað
setningu, sjúkdómurinn leyfði það
ekki. Þá leið þér illa og Ragnar
fann svo hræðilega til með þér.
Elsku Halli, okkur þykir svo
vænt um þig! Megi Ísland eignast
fleiri menn eins og þig! Ástarkveðj-
ur, fyrir hönd Guðmundar Matt-
híassonar, Ástu S. Hannesdóttur,
Hönnu Kristínar, Ragnars Atla og
Matthíasar Hannesar Guðmundar-
barna og barnabarna,
Margrét Rún Guðmundsd.
Kraus.
Fleiri minningargreinar um Har-
ald M. Sigurðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Elsku Harpa Elín Haralds-
dóttir mín, mig langar að
votta þér mína samúð við
andlát afa þíns. Hann var
bara alltaf hress og kátur,
hann var sko góður við mann
eins og mig og við áttum allt-
af góðar stundir saman og
við töluðum um allt eins og
handbolta og líka fótbolta.
Guð geymi ykkur, kæru
vinir.
Jón Óskar.
HINSTA KVEÐJA