Morgunblaðið - 01.11.2008, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
5 1
2 1 9 3 6 8
8 5 4 3
9 4 3
7 3 6 2 4 9
4 7 1
1 4 8 7
5 3 2 9 1 4
7 6
5 2 8 4
1 7 2
7 3 8 1
3 1 7 6
2 9
9 5 6 4
4 7 8 2
5 4 7
1 2 9 4
2 4 1
6 3 8 4
5 1 6 2
5 3
5 6 1 9
1 9
4 9 6 5
8 1 2 3
2 4 6
4 8 5 9 6 7 3 2 1
2 7 6 5 1 3 9 8 4
1 9 3 4 8 2 7 5 6
9 6 4 8 3 5 2 1 7
7 3 1 2 4 6 5 9 8
8 5 2 1 7 9 4 6 3
3 2 8 6 9 4 1 7 5
5 1 7 3 2 8 6 4 9
6 4 9 7 5 1 8 3 2
9 7 4 2 6 8 1 3 5
8 1 5 9 7 3 4 6 2
6 2 3 5 1 4 9 8 7
1 3 9 8 2 7 6 5 4
2 8 6 4 5 9 7 1 3
4 5 7 1 3 6 8 2 9
5 6 1 7 4 2 3 9 8
7 9 2 3 8 1 5 4 6
3 4 8 6 9 5 2 7 1
3 2 6 1 8 4 5 9 7
4 1 7 3 5 9 2 6 8
8 5 9 6 7 2 1 4 3
1 7 2 5 6 3 9 8 4
6 8 5 4 9 7 3 1 2
9 3 4 8 2 1 7 5 6
5 6 1 7 3 8 4 2 9
2 4 3 9 1 6 8 7 5
7 9 8 2 4 5 6 3 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út
í reitina þannig að í hverj-
um 3x3-reit birtist tölurnar
1-9. Það verður að gerast
þannig að hver níu reita
lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og
aldrei má tvítaka neina tölu
í röðinni.
dagbók
Í dag er laugardagur 1. nóvember,
306. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En ef einhver elskar
Guð, þá er hann þekktur af honum.
(I. Kor. 8, 3.)
Víkverji hefur verið í innbyrðisherferð síðustu daga til að
minna sjálfan sig á allt það sem við
Íslendingar eigum enn. Fjármála-
geirinn og útrásin eru farin. Víkverji
fann fyrir eftirsjá í smástund þar til
það rifjaðist upp fyrir honum að
reyndar er það flest annað en útrás-
in og bankageirinn sem hefur gert
Ísland að góðum stað til að búa á.
x x x
Því hefur sumstaðar verið haldiðfram undanfarið, ekki síst í er-
lendum fjölmiðlum, að Íslendingar
eigi nánast öll sín lífsgæði áhættu-
sæknum fjárfestum að þakka, sem
hafi rifið litlu eyjuna úr fátækt til
fallvalts frama. Þegar Víkverji hugs-
ar aftur um 10 ár, fyrir útrásarkipp-
inn og einkavæðinguna, sér hann
samt ekki betur en að lífsgæði hans
árið 1997 hafi verið fyllilega sam-
bærileg við árið 2007. Við höfum ver-
ið auðug þjóð lengi, þótt auðurinn
hafi um tíma virst hafa margfaldast
svo gífurlega að það þyrfti að leggja
sig fram til að ná að eyða honum öll-
um í bara eitthvað. Það er ekki fyrr
en núna, eftir útrásarævintýrið, sem
Víkverja finnst að lífsgæði hans séu
raunverulega að breytast í fyrsta
sinn, og það því miður til verri vegar.
x x x
Víkverji hefur hinsvegar trú á þvíað versta ástandið vari ekki
lengi þótt framundan sé erfitt ár. Á
meðan það gengur yfir ætlar hann
sér að njóta þeirra lífsgæða sem þó
eru enn til staðar á Íslandi og hafa
alltaf verið, óbreytt. Víkverji minnist
þess t.d. ekki að hafa nokkru sinni
farið í skoðunarferð um höfuðstöðv-
ar bankanna með erlenda vini sem
heimsækja klakann. Nei, lífsgæðin
sem þeir fá að kynnast eru náttúran,
sem fær erlendu vinina undantekn-
ingalaust til að gapa, og svo mesti
lúxusinn af þeim öllum, sundlaug-
arnar. Og þar ætlar Víkverji einmitt
að sitja af sér kreppuna, – í sundi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 erfitt að sigr-
ast á, 8 flennan, 9 skott-
ið, 10 blóm, 11 léttir til,
13 koma í veg fyrir,
15 rannsaka, 18 manns-
nafn, 21 hægur gangur,
22 drögum, 23 fuglar,
24 skjálfti.
Lóðrétt | 2 skjall, 3 alda,
4 kroppa, 5 minnst á,
6 broddur, 7 venda,
12 beita, 14 ögn,
15 glaða, 16 svertingi,
17 vesælar, 18 kvíslin,
19 hófu á loft, 20 urgur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 njóli, 4 þekkt, 7 tjása, 8 órétt, 9 nár, 11 rita,
13 etja, 14 skært, 15 þrek, 17 agga, 20 fit, 22 kelda,
23 eisan, 24 teikn, 25 tórir.
Lóðrétt: 1 notar, 2 ósátt, 3 iðan, 4 þjór, 5 klént, 6 totta,
10 ágæti, 12 ask, 13 eta, 15 þekkt, 16 efldi, 18 gosar,
19 annar, 20 fann, 21 tekt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 c6 4. e3 Rf6 5.
Rf3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. g4 Rxg4 8. Hg1
f5 9. h3 Rgf6 10. Hxg7 Re4 11. Bd2 Df6
12. Hg2 Rf8 13. 0-0-0 Rg6 14. Bd3 Bd7
15. Hdg1 Bc7 16. cxd5 exd5 17. Ra4 0-
0-0 18. Rc5 Kb8 19. Db3 Rxc5 20. dxc5
De7 21. Db4 f4 22. exf4 Hhf8 23. He1
Df6 24. f5 a5 25. Da4 Bxf5 26. Bxf5
Dxf5 27. Rd4 Dxh3 28. Bxa5 Dxg2??
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk fyrir skömmu í Halki-
diki í Grikklandi. Rússneski stórmeist-
arinn Vladimir Potkin (2.613) gat með
svörtu unnið skák sína gegn hinum
unga Hjörvari Steini Grétarssyni
(2.284) með því að leika 28. … Bf4+ í
stað 28. … Dxg2??. Íslendingurinn
knái, sem tefldi fyrir Taflfélagið Helli,
nýtti sér þetta og knúði fram jafntefli.
29. Rxc6+! bxc6 30. Bxc7+ og jafntefli
samið enda þráskák óumflýjanleg.
Hvítur á leik og heldur jafntefli.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Varnarráð.
Norður
♠64
♥ÁG10986
♦ÁG5
♣72
Vestur Austur
♠872 ♠953
♥53 ♥D72
♦1072 ♦KD864
♣109643 ♣KG
Suður
♠ÁKDG10
♥K4
♦93
♣ÁD85
Suður spilar 6♠.
Á Evrópumótinu 1995 sat Frakkinn
Michel Lebel í austur í vörn gegn spa-
ðaslemmu. Makker hans kom út með
♦2 og sagnhafi hleypti á níuna heima.
Lebel tók með ♦D og íhugaði fram-
haldið.
Spilarar kannast við þá varnarspeki
að rétt sé að spila „upp í veikleika og í
gegnum styrkleika“. Þetta er gott al-
mennt ráð, sem fylgir spilurum allan
ferilinn, en eftir sem áður bara ráð-
legging – ekki skipun. Í sögnum hafði
suður sýnt fyrirstöðu í hjarta og því
óttaðist Lebel réttilega að sagnhafi
gæti trompað út drottninguna, komist
inn á ♦Á og hent niður tapspilum í frí-
hjörtu. Hér varð að ráðast á hliðarinn-
komuna, hvað sem það kostaði. Lebel
spilaði tígli upp í gaffalinn og hunsaði
með því gamalt og gott varnarráð. Með
góðum árangri.
Hrútur Stundum er eina ráðið að halda
að sér höndum og bíða færis. Ljúktu
því af sem fyrst og þá muntu eiga
ánægjulegt kvöld.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er svo sem í lagi að treysta á
sína nánustu tilfinningalega. Svo vilja
allir í kringum þig vita hvað það er og
taka þátt í spennunni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Gefðu þér allan þann tíma sem
til þarf í að útfæra hugmynd þína og þá
fyrst geturðu sett kraft í að fram-
kvæma hana. Gaumgæfðu alla mögu-
leika og reyndu að forðast óþarfa
áhættu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Tunglið (tilfinningar) er í vog-
armerki í dag, í samstöðu við Júpíter
(útþensla) og eykur þar með vellíðan
hennar. Taktu ekki áhættu í nýrri leið
til fjáröflunar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er nauðsynlegt að halda sig á
mottunni hvað fjárútlát varðar. Ekki
setja markið of hátt en dekraðu eilítið
við sjálfan þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert á góðri leið með að taka
til í þínum eigin garði. Visst verkefni er
öðruvísi en þú ímyndaðir þér það, en
það er einstakt og því betra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gerðu nú eitthvað fyrir sjálfan þig
án þess að fá sektarkennd. Varastu
bara að gera of mikið úr hlutunum eða
ganga of langt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér er það óvænt ánægja
hvað þú uppskerð fljótt árangur erfiðis
þíns. Ein leið til að berjast fyrir lífs-
reglum þínum er að lifa eftir þeim.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hversdagslegir hlutir hafa
áhrif á framtíð þína. Vertu því jákvæð-
ur og vonaðu aðeins það besta og þú
verður ekki svikinn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert reynslunni ríkari,
snöggur og vitur. Sýndu þolinmæði.
Finndu þér tómstundagaman, sem lyft-
ir þér upp í frítíma þínum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú býrð yfir krafti sem getur
orðið öðrum hvatning til framkvæmda.
Þú munt fá heilmikið út úr því sem þér
finnst vanalega þrautleiðinlegt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki láta sjálfsgagnrýni ná tök-
um á þér, þó að orð séu látin falla sem
staðfesta þínar verstu grunsemdir um
sjálfa þig. Sérstaklega á þetta við um
fjármálin.
Stjörnuspá
1. nóvember 1845
Veðurathuganir hófust í Stykk-
ishólmi. Þær hafa verið gerðar
óslitið síðan og er þetta elsta
veðurathugunarstöðin hér á
landi.
1. nóvember 1967
Almannagjá var lokað fyrir
bílaumferð, vegna slysahættu
og með tilliti til hinna sögulegu
minja.
1. nóvember 1980
Skúli Óskarsson setti heimsmet
í réttstöðulyftu í 72 kíló-
gramma þyngdarflokki á lyft-
ingamóti í Laugardalshöll.
Hann lyfti 315,5 kílógrömmum.
„Í fyrsta skipti hefur Íslend-
ingur sett heimsmet í íþrótta-
grein, og það á heimavelli,“
sagði Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Guðrún Finnsdóttir og Aðalbjörn
Tryggvason, Laugarholti í Eyja-
fjarðarsveit, eiga fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag, 1. nóvember.
Deginum eyða þau með fjölskyld-
unni.
Gullbrúðkaup
AÐALHEIÐUR Helgadóttir, kennari við grunn-
skóla Bláskógabyggðar í Reykholti, segir það ekki
vana sinn að blása í lúðra í tengslum við afmælis-
daga sína. „Ég hef alltaf óskaplega gaman af af-
mælisdögum annarra, en kýs yfirleitt sjálf að
halda upp á önnur tilefni.“ Fertugsafmælisdeg-
inum hyggst hún því eyða í faðmi fjölskyldunnar.
„Ég ætla að fara með manni og börnum til höfuð-
borgarinnar þar sem við förum út að borða og síð-
an á sýninguna Fló á skinni í Borgarleikhúsinu.“
Öllu meiri veisluhöld voru hjá Aðalheiði um síð-
ustu helgi, en þá hélt hún upp á útskrift sína frá
menntavísindasviði Háskóla Íslands. „Það má segja að ég hafi þá hald-
ið í leiðinni upp á að vera enn 39 ára,“ segir Aðalheiður og hlær.
„Enda hef ég haft mun meira fyrir því að ná kennsluréttindunum en
að verða fertug.“
Meðfram fjarnáminu hefur hún kennt í grunnskóla Bláskógabyggð-
ar í rúm fjögur ár og er nú umsjónakennari 9. bekkjar, sem hún segir
líklega vera besta bekk á landinu. „Annars er ég alsæl með að vera
komin með kennsluréttindin, ekki hvað síst á þessum tímum þegar
atvinnuhorfur eru jafn svartar og þær eru nú.“ annaei@mbl.is
Aðalheiður Helgadóttir kennari 40 ára
Í faðmi fjölskyldunnar
Nýirborgarar
Kaupmannahöfn Silja
fæddist 3. september kl.
13.07. Hún vó 3.540 g og
var 51 sm löng. Foreldrar
hennar eru Ingunn Ósk
Ólafsdóttir og Ulrik
Malthe Overgaard.
Kaupmannahöfn Kristján
Þórarinn fæddist 6. júlí kl.
13.30. Hann vó 15 merkur
og var 51 sm langur. For-
eldrar hans eru Margrét
Rún Jakobsdóttir og Davíð
Halldór Kristjánsson.
Reykjavík Kristján Bjarki
fæddist 20. júlí kl. 19.54.
Hann vó 3.150 g og var 49
sm langur. Foreldrar hans
eru Erla Guðrún Gunnars-
dóttir og Gunnar Örn
Jóhannsson.