Morgunblaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 53
LAY LOW, eða Lovísa Elísabet Sig-
rúnardóttir eins og hún heitir utan
sviðsins, sló í gegn nánast á einni
nóttu fyrir réttum tveimur árum
þegar fyrsta plata hennar, Please
Don’t Hate Me, kom út. Skífan sú
rokseldist og vorið eftir uppskar
Lay Low ríkulega
við afhendingu Ís-
lensku tónslistar-
verðlaunanna.
Fullnaðarsigur í
fyrstu tilraun, svo
að segja.
Þegar tónlistarmönnum hefur
orðið jafn rækilega ágengt í fyrstu
atrennu og raunin var með frum-
raun Lay Low er virðingarvert að
viðkomandi þori að kanna nýjar
slóðir næsta sinni. Það gerir Lovísa
svo sannarlega á nýju plötunni í stað
þess að hjakka örugg í gamla farinu.
Einhverjum hefði þótt vænlegast að
róa á vísan og senda frá sér aðra
plötu af krúttuðum blús (svo maður
vogi sér að minnast á hið eldfima
krúttshugtak) en því er ekki að
heilsa í þetta sinn. Þess í stað er
Farewell Good Night’s Sleep lág-
stemmd kántríplata, og með því
besta af því taginu sem gefið hefur
verið út hér á landi.
Nú má vera að viðvörunarbjöllur
hringi einhvers staðar enda er flest
nýlegt kántrí sem hingað til lands
berst tilþrifalítið sveitapopp frá
flytjendum á borð við Garth Brooks
og ólíklegt að tilhugsunin um meira
af svo góðu kveiki í mörgum. Þess
háttar ótta skal hins vegar bægja á
brott þegar í stað því músíkin henn-
ar Lay Low er einstaklega grípandi
og skemmtileg. Í raun sætir furðu
hversu vel hún fer með hið vand-
meðfarna form sem kántríið er og
aðdáunarvert hve mjög hún vex milli
platna. Það þarf stökk til að brúa bil-
ið milli Please Don’t Hate Me og
nýju plötunnar, og Lay Low hefur
ekki einasta stökkið af; hún lendir á
báðum fótum án þess að blikka auga.
Lay Low kemur víða við og mátar
ýmsar stefnur innan sveitatónlist-
arinnar. Fyrsti smellurinn af plöt-
unni, „By And By“, sækir í smiðju
bluegrass-tónlistar með tindilfætt-
um takti, hviku gítarspili og rödduð-
um baksöng, og sama er að segja um
„Last Time Around“ þar sem
kontrabassinn valhoppar gegnum
lagið og strengjahljóðfærafjöld
kveður sér hljóðs milli erinda. „The
Reason Why My Heart’s In Misery“
er píanóskotin ballaða sem Patsy
Cline hefði verið fullsæmd af, og frá-
bært titillagið þá ekki síður. Lagið
„On My Own“ er þá sérlega vel
heppnað og gæti eins verið perla
samin í Nashville fyrir 40 árum eða
svo. Loks verður að geta hins bráð-
skemmtilega „My Second Hand He-
art“ sem hefur til að bera skemmti-
lega stílfærðan bossanova-takt sem
ljær laginu suðrænan blæ.
Öll eru lögin prýðilega heppnuð,
hvert á sinn hátt. En Lay Low hefur
ekki aðeins vaxið sem lagasmiður
heldur hefur röddin slípast til, hún
hljómar talsvert fágaðri, og útkom-
an er í heild eftir því. Útsetningar
eru bráðvel afgreiddar og í stuttu
máli sagt einkennir mikill metnaður
útgáfuna alla. Það má mikið vera ef
Farewell Good Night’s Sleep kveikir
ekki áhuga hjá mörgum áheyrenda
sinna á því að kynna sér frekar
kántrítónlist því platan er einfald-
lega hörkugóð. Í slagtogi við Lay
Low er andvaka alveg hreint ágætt
hlutskipti.
Indælis andvaka
TÓNLIST
Geisladiskur
Lay Low – Farewell Good Night’s Sleep
bbbbn
Jón Agnar Ólason
Morgunblaðið/Golli
Fáguð „Lay Low hefur ekki aðeins vaxið sem lagasmiður heldur hefur rödd-
in slípast til, hún hljómar talsvert fágaðri, og útkoman er í heild eftir því.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 2 - 5:30 - 8 LEYFÐ
SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
SKJALDBAKAN OG HÉRINN m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
JOURNEY TO THE ... kl. 3:50 LEYFÐ
THE HOUSE BUNNY kl. 6 Síðsta sýn. LEYFÐ
BURN AFTER READING kl. 10:10 Síðasta sýn. B.i. 16 ára
/ SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ
SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 550 krr
TOPP GRÍNMYND
SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE
Á 100 KM HRAÐA!
„VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OGSKEMMTILEG GRÍNMYND.
KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI RÆMUM ÁRSINS.
TÉKKIÐ Á HENNI!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 2 - 5:30 - 8 LEYFÐ
MAX PAYNE kl. 10:10 B.i. 16 ára
HAPPY GO LUCKY kl. 8 LEYFÐ
BANGKOK DANGEROUS kl. 10:10 B.i. 16 ára
SKJALDBAKAN OG HÉRINN m/ísl. tali kl. 2 B.i. 16 ára
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 4 - 6 B.i. 16 ára
Saga George Lucas heldur áfram
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
- 24 STUNDIR
- S.V., MBL
- Ó.H.T., RÁS 2
- Þ.Þ., D.V.
- B.S., FBL
SÝND Á SELFOSSI
MYND SEM ALLAR
KONUR VERÐA AÐ SJÁ
SÝND Á AKUREYRI
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
THE WOMEN kl. 4 LEYFÐ
NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 LEYFÐ
EAGLE EYE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
-L.I.B.TOPP5.IS-T.S.K - 24 STUNDIR -ÁSGEIR J. - DV
SÝND AFTUR Í TAKMARKAÐAN TÍMA
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ALLAR kærustur Hughs Hefner
eru á leiðinni út úr höfuðsetri
Playboy-eigandans. Orðrómur er
uppi um að Hefner hafi í huga að
breyta um lífsstíl og búa einn í setr-
inu, án vinkvenna sinna.
Kanínurnar, eins og kærustur
hans eru oft kallaðar, hafa upp á síð-
kastið sést með nýja menn upp á
arminn. Holly Madison hefur verið
að slá sér upp með sjónvarpstöfra-
manninum Criss Angel og jafnvel
Kendra Wilkinson (aðal-kærasta
Hefners) hefur sést með ónefndum
manni úti á lífinu. Talað er um að
þær tvær séu þegar fluttar út en
Bridget Marquardt segist vera á
leiðinni út bráðlega. Getur verið að
Hefner hafi ákveðið að taka upp
skírlífi í ellinni?
Reuters
Kvennamaður Hugh Hefner með
nokkrar kanínur upp á arminn.
Kanínurnar
flytja út