Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. N Ó V E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 319. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A Leikhúsin í landinu >> 41 HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR SYNGUR Í UNDAN- KEPPNI EUROVISION ÍÞRÓTTAMENN Á OFURLAUNUM Launin jafnast á við IMF-lánið mbl.is95 ára HUGMYNDIR eru uppi um að danski bankinn FIH yfirtaki Kaupþing og mögulega einhverjar eignir úr búi gamla bankans með þátttöku erlendra kröfuhafa bank- ans og hefur þeim verið vel tekið innan stjórnkerfisins samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Yrði af yfirtökunni myndi erlendur banki starfa hér- lendis, eignaraðild yrði dreifð og auðveldara fyrir hinn nýja banka að ná viðskiptum erlendis. Til þess að af því verði þykir nafnbreyting þó nauðsynleg þar sem vöru- merki allra gömlu bankanna þriggja hafi beðið verulegan skaða á alþjóðavettvangi. Fá hlut í stað þess að sækja skuldir í þrotabú Hópur erlendra fjárfesta hefur þegar lýst yfir vilja til þess að koma að eignarhaldi í nýju bönkunum með því að breyta skuldum í hlutafé að einhverju leyti. Meðal kröfu- hafanna eru margir stærstu bankar Evrópu. Heimildir Morgunblaðsins herma að stjórnvöld, kröfuhafar og nú- verandi stjórnendur bankans séu hrifnir af lausn sem þessari. Hugmyndirnar munu hafa verið ræddar af tölu- verðri alvöru undanfarið og þær kynntar erlendum kröfuhöfum þótt lokaútfærsla liggi ekki fyrir. |15 Danskur banki yfirtaki Kaupþing Morgunblaðið/Brynjar Gauti Breyttur Nafn Kaupþings þyrfti að endurskoða. UNDANFARIN ár hafa ungmenni á krossgötum getað leitað til vinnuset- ursins Fjölsmiðjunnar. Hefur aðsóknin vaxið jafnt og þétt og er svo komið að fleiri óska eftir að komast að hjá Fjölsmiðjunni en pláss leyfir. 73 nemar eru nú í Fjölsmiðjunni og sinna þeir verkefnum á marg- víslegum sviðum, s.s. á trésmíðadeild, hússtjórnardeild, tölvudeild o.fl. Þegar krakkarnir hafa náð tökum á því að vinna starf sitt sómasamlega og lynda við vinnufélagana eru þeir reiðubúnir að halda út í samfélagið. Reynslan sýnir að meirihluti krakkanna fer þá að vinna eða í skóla. | 20 Góður undirbúningur fyrir lífið Morgunblaðið/RAX Eftir Þorbjörn Þórðarson og Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur SKULDIR langflestra innflutnings- fyrirtækja verða hærri en eigið fé þeirra í árslok, verði gengisvísitala krónunnar 230-240 stig, eins og hún var í gær, að sögn Knúts Signars- sonar, framkvæmdastjóra Félags ís- lenskra stórkaupmanna. Að sögn Knúts eru flest fyrirtækin með lán í japönskum jenum og sviss- neskum frönkum. Lánin hafi hækk- að um 150% á einu ári. Eigandi fyrirtækis sem flytur inn ýmis atvinnutæki segir stöðu þess ekki vænkast við IMF-lánið. Nú hefjist stífar kröfur erlendra birgja um að innflutningsfyrirtæki geri upp skuldir sínar. Hann krefst aðgerða ríkisins eigi innflutningsfyrirtæki að lifa. Endurheimt trúverðugleika Lánafyrirgreiðsla hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum er liður í að end- urheimta trúverðugleika landsins. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í gær á Alþingi að hann vissi ekki betur en að krónan yrði sett á flot á allra næstu dögum. Með fleyt- ingu krónunnar myndast verð henn- ar á frjálsum markaði og má búast við að gengið taki dýfu í fyrstu. Sú staða mun í fyrstu íþyngja verulega þeim sem hafa erlend lán. Seðlabankinn hefur þó úrræði til að bregðast við slíkum aðstæðum. Ríkisstjórnin segir jafnframt í vilja- yfirlýsingu, sem fylgdi þingsálykt- unartillögu um IMF-lánið, að hún sé reiðubúin að nota gjaldeyrisforðann til að koma í veg fyrir of miklar sveiflur á gengi krónunnar. Margir óttast gjaldþrot IMF-lán eykur trúverðugleika en fleyt- ing krónu mun íþyngja lántakendum Í HNOTSKURN »Áhyggjur Knúts Signars-sonar endurspegla vax- andi áhyggjur forystumanna í íslensku atvinnulífi en nýlega léðu forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins máls á því að lík- lega væru 60-80% íslenskra fyrirtækja tæknilega gjald- þrota. »Líklega er skattahækkunóhjákvæmileg til þess að greiða IMF-lán, einnig þarf að draga úr ríkisútgjöldum.  Lánin og krónan 4, 12, 16 og 17  HVERGI tíðk- ast meðal vest- rænna þjóða að stjórnmálamenn séu valdir seðla- bankastjórar. Þvert á móti þætti það hin mesta fásinna að skipa fyrrver- andi forsætisráð- herra seðla- bankastjóra. Þetta er meðal þess sem dr. Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Mikilvægt sé að seðlabankastjór- inn sé hlutlaus í stjórnmálum og varkár í orðum. Hann þurfi að njóta trausts almennings og stjórnvalda, en sé hann rúinn því trausti verði að skipta um stjórn bankans. Jón segir það ekki hlutverk seðlabanka- stjóra að flytja pólitískar varnar- ræður. Það skapi ekki traust og sé langt fyrir neðan virðingu Seðla- bankans. »24 Varnarræður fyrir neðan virðingu Seðlabankans Jón Daníelsson  OLÍUVERÐ á heimsmörk- uðum fór neðar í gær en það hefur gert í yfir þrjú ár og var ástæðan eink- um sögð vís- bendingar um að samdráttur væri að hefjast í efnahagslífi Bandaríkjanna. Í New York fór verðið á olíu- fatinu í 48,50 dollara, í London í 48,08 dollara. Olíuverðið hefur nú fallið um 66% síðan það náði hæst- um hæðum í júlí, 147,27 dollurum. Íslensku olíufélögin lækkuðu í gær verðið á eldsneyti. » 6 Olían lækkar enn á heimsmörkuðum  FÆKKUN legudaga, minni yf- irvinna og skert vaktþjónusta er meðal þeirra sparnaðarhugmynda sem horft er til á heilbrigðisstofn- unum vítt og breitt um landið vegna 10% niðurskurðar sem boð- aður hefur verið í heilbrigðisþjón- ustu. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort slíkur sparnaður náist án þess að þjónusta verði skert. »22 Sparnaður án skerðingar raunhæfur möguleiki?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.