Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 20
Nóg að gera Starfsfólk trésmíðadeildar tekur að sér bæði nýsmíði og viðhald. Að fóta sig að nýju Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is N emahópurinn okkar er þannig samansettur að þetta eru krakkar sem eru að klára tí- unda bekk og líka krakkar sem hafa byrjað í fram- haldsskóla en tilheyra svokölluðum brotthvarfshópi. Þriðji hópurinn sem við sinnum eru þau sem eru að koma sér úr neyslu. Við tökum við þeim þegar þau koma af stofnunum þar sem þau hafa tekið á sínum mál- um, og þá er gott að hafa eitthvað við að vera. Núna eru sjötíu og þrjú ungmenni hér, sem við köllum nema en ekki nemendur, og hér eru tíu starfsmenn. Þetta hefur vaxið alveg gífurlega í gegnum árin og þörfin er svo mikil að við getum því miður ekki sinnt öllum sem hingað vilja komast. Það er alltaf einhver biðlisti en við reynum eins og við getum og viljum helst ekki láta fólk bíða lengi,“ segir Þorbjörn Jensson for- stöðumaður Fjölsmiðjunnar sem er vinnusetur fyrir ungt fólk á aldr- inum 16-24 ára. Allir eru á launum „Þetta er fyrir einstaklinga sem standa á krossgötum og vita ekki al- veg hvaða stefnu þeir eiga að taka í lífinu. Þau mæta hingað í Fjölsmiðj- una til vinnu og við erum með ýmsar deildir, meðal annars trésmíðadeild, hússtjórnardeild, bíladeild, hand- verksdeild, tölvudeild og ýmislegt fleira. Við erum í raun að þjálfa þau upp í því að takast á við vinnu, og skóla líka, því þau geta stundað nám að hluta hér í vinnutíma í Kennslu- og ráðgjafadeildinni. Markmiðið er stuðla þannig að áframhaldandi námi og hér er náms- og starfs- ráðgjafi sem heldur utan um það og fylgist með hvort þau stunda skól- ann, því krakkarnir eru allir á laun- um.“ 25 milljóna framleiðsla á ári Krakkarnir vinna að hinum ýmsu verkefnum sem unnin eru á hinum almenna vinnumarkaði. „Við höfum verið sérlega heppin með verkefni og það eru margir góðir aðilar sem hugsa hlýtt til okkar með því að fá okkur til að vinna verkefni fyrir sig. Þetta hefði aldrei getað orðið svona Vanda sig Þessi stúlka lagði sig fram við að bóna bíl á Bíladeildinni. stór staður nema af því að verkefnin eru næg. Okkar eigin framleiðsla á hverju ári hefur verið um 25 millj- ónir, fyrir utan virðisaukaskatt.“ Þumalputtareglan er sú að þegar einstaklingur hefur náð tökum á því að mæta alltaf á réttum tíma í vinn- una, unnið vinnuna sína sóma- samlega og náð að lynda við vinnu- félaga sína, er kominn tími til að fara út í samfélagið. „Þetta tekur mis- langan tíma eftir einstaklingum, en flestir eru hér í 6-8 mánuði, sumir skemur en aðrir lengur. Árangurinn af starfinu hér hefur verið mjög góð- ur, um áttatíu prósent þessara krakka fara í vinnu eða skóla eftir að þau hafa verið hér og pluma sig vel.“ Fleiri sækja um í kreppunni Þorbjörn segir að í Fjölsmiðjunni sé verið að byggja upp sjálfstraust hjá krökkunum, vegna þess að þegar fólk er komið með gott sjálfstraust geti það tekist á við hvað sem er, hvort sem það er skóli eða vinna. „Við erum að vinna í því að finna kosti hvers og eins, sumir hafa til dæmis mikla hæfileika til að teikna og einhver sem er mjög lesblindur getur verið mjög hæfileikaríkur í að spila á hljóðfæri. Við viljum fara inn á þær brautir að virkja þau í því sem þau eru góð í. Við viljum koma þeim út í þjóðfélagið þannig að hæfileikar þeirra nýtist sem best. Við viljum ekki setja þau í stöðluð hólf,“ segir Þorbjörn sem hefur verið með frá byrjun og segir það hafa verið mjög skemmtilegt að taka þátt í uppbygg- ingunni. „Þegar Fjölsmiðjan fór af stað fyrir sjö árum sinnti enginn þessum hópi, þessir krakkar voru bara á vergangi. Núna erum við að bíða eftir fjáraukalögum til að fá leyfi til að auglýsa eftir stærra hús- næði, því það er orðið ansi þröngt um okkur. Við viljum stækka til að geta tekið á móti 90 ungmennum. Þörfin er mikil og nú á krepputímum finnum við fyrir því að fleiri sækja um en áður.“ Þau læra að mæta á rétt- um tíma í vinnu, sinna starfinu með sóma og lynda við vinnufélagana. Þau byggja upp sjálfs- traustið og finna hvar hæfileikar þeirra liggja. Þetta gera krakkarnir í Fjölsmiðjunni sem er vinnusetur fyrir ungt fólk á krossgötum, á aldr- inum 16-24 ára. 20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Gunnar Frímannsson skrifar vinisínum Stefáni Vilhjálmssyni bréf sem barst Vísnahorninu: „Margoft hef ég farið með vísuna fögru eftir Svavar frá Flögu Að- alssteinsson um Dalai Lama: Mér stendur á sama um hann Dalai Lama sem vann sér þann frama að vera öllum til ama. En því hefur enginn notað Dalai Lama til að ríma á móti Barack Obama? T.d. svona í heimsósóma- stíl heimskreppunnar: Nú er daufur hann Dalai Lama. Um hans dáðir er öllum nú sama. Nú hefst upp til frama einhver horleggjadama sem kallar sig Barack Obama. Rímið er harður húsbóndi en ég mátti til að vitna í vin minn Syl- vester sem gerði lítið úr spóaleggj- um Braggans.“ Svo lítur Gunnar til þess að amma Obama lést rétt fyrir kosn- ingar, sem sagt er að hafi fjölgað atkvæðum hans, en háöldruð móðir McCains tórði: Lukkudísir leika sér við ljóta, svarta menn, en allt er nú á móti mér: mamma lifir enn! Obama og Dalai Lama VÍSNAHORN pebl@mbl.is99 vestfirskar þjóðsögur Gamanmál að vestan 3 Finnbogi Hermannsson tók saman ÖLL innkoma af sölu matreiðslubókarinnar Veisla með fjölskyldu og vinum, rennur óskipt til Fjölsmiðjunnar. Kokk- arnir sem vinna í Nóa- túni gáfu 200 upp- skriftir í bókina sem er vegleg og myndskreytt. Fyrirtækið Novator kostaði útgáfuna á bók- inni, en hún er seld í Nóa- túni á viðráðanlegu verði og sá sem hana kaupir styrkir því gott málefni. Þorbjörn segir að eigendum fyrirtæk- isins Novators hafi lit- ist svo vel á starfsem- ina í Fjölsmiðjunni að þeir hafi ákveðið að styrkja hana með þess- um veglega hætti. „Við ætlum okkur að nota þá peninga sem koma inn af sölu bókarinnar í sérstakt verkefni sem snýr einvörðungu að nemunum í Fjölsmiðjunni.“ Styðja Fjölsmiðjuna með eldamennsku Kjötskurður Nemar hússtjórnardeildar sinna m.a. störfum í mötuneytinu. Morgunblaðið/RAX Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.