Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is HANGIR gamli sparikjóllinn ónotaður inni í skáp? Vantar herrajakkann, sem fer ekki lengur vel á sí- stækkandi bumbu húsbóndans, nýjan eiganda? Er rauða jólakápan frá í fyrra orðin of lítil á heimasæt- una? Það er óþarfi að þessar glæsiflíkur haldi áfram að taka pláss og safna ryki því Rauði kross Íslands mun taka á móti fínni fatnaði í sérstakri sparifatasöfnun á laugardag. „Við erum alltaf með fataúthlutun á miðvikudögum,“ útskýrir Sólveig Ólafsdóttir, sviðsstjóri hjá RKÍ. „Á undanförnum árum höfum við fengið gífurlega mikið af fatnaði gefins en þegar svona áfall verður dregst það saman og gæði fatnaðarins eru ekki eins mikil. Á sama tíma hefur aðsókn að fataúthlutuninni aukist töluvert.“ Hún segir að með átakinu sé vakin athygli á þörfinni á sparifatnaði nú fyrir jólin. „Við hvetjum fólk til að fara inn í skápana og gefa sparifötunum annan séns með því að gefa þau í söfnunina.“ Óskað er eftir fatnaði á börn sem og fullorðna og einnig er tekið á móti skóm. Fyrsta sparifataúthlutunin verður á miðvikudag en að auki er hluti fatnaðarins seldur í verslunum Rauða krossins á hagstæðu verði. Tekið verður á móti fatnaði í flestum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og í deildum á landsbyggðinni. Gömlu sparifötin öðlast annað lí  Töluverð ásókn í fataúthlutun Rauða krossins á Laugavegi  Færri gefa föt en áður og gæðin eru ekki eins mikil  Efnt til söfnunar á sparifatnaði víða um land á morgun Í HNOTSKURN » Tekið verður viðsparifötunum á þremur stöðum í Reykjavík, í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og á deildum á lands- byggðinni milli kl. 11 og 15 á laugardag. » FataúthlutunRauða krossins á höfuðborgarsvæðinu fer fram á Lauga- vegi 116 á miðviku- dögum milli kl. 10 og 14. » Nánari upplýs-ingar um söfn- unina má fá á heima- síðu Rauða krossins sem hefur slóðina www.rki.is. Morgunblaðið/Kristinn Á herðatrjám Hanna Bachmann er umkringd góðum fatnaði í Rauða kross búðinni. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is ÞEGAR harðnar á dalnum og kólnar í veðri er meiri hætta á að menn leiti skjóls í auðum húsum sem drabbast hafa niður. Þetta er skoðun Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðs- stjóra höfuðborgarsvæðisins, sem óttast að brunagildrurnar séu enn margar þótt átak embættis hans og borgaryfirvalda frá því í vor um að fækka þeim hafi skilað góðum ár- angri, að hans sögn. Í lífshættu Átakið hófst í kjölfar eldsvoða á Hverfisgötu snemma árs. „Þá fórum við í eld og vorum mjög nálægt því að missa mann, útigangsmann. Við höfum lent í slíku áður í húsnæði sem nú er búið að rífa. Þetta er ekki síður hættulegt fyrir mína starfs- menn. Þeir þurfa að fara inn í hús á mismunandi byggingarstigi eða í hús þar sem handrið hefur kannski verið rifið niður og göt eru á gólfi,“ segir Jón Viðar. Um hús í miðborginni gildir sú vinnuregla Reykjavíkurborgar að ekki megi veita leyfi til niðurrifs fyrr en eigandi hafi sýnt hvað koma eigi í staðinn, að sögn Helgu Bjarkar Lax- dal, yfirlögfræðings hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur- borgar. „Húsið sem brann á Bald- ursgötunni um daginn hefði hins vegar mátt rífa fyrir löngu þar sem það er utan miðborgarsvæðis,“ segir Helga. Vinnureglur endurskoðaðar Efnahagskreppan kann þó að koma í veg fyrir að hægt verði að fjármagna byggingu húss sem koma á í stað húss sem á að rífa. „Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að skipulagsráð og borgarráð endurskoði vinnureglurnar um nið- urrif og uppbyggingu í miðborginni ef nauðsyn ber til. En í því ástandi sem hefur ríkt var full ástæða til þess að setja mönnum skorður,“ bendir Helga á. Fasteignafélagið Festar keypti fyrir einu og hálfu ári á svokölluðum Hljómalindarreit nokkrar lóðir af skipulagssjóði og hús til niðurrifs vegna uppbyggingar á reitnum þar sem gert er ráð fyrir hóteli, veitinga- stöðum og verslunum. Stjórnar- formaður Festa, Benedikt Sigurðs- son, segir þau húsanna sem ekki eru í notkun, Hverfisgötu 32 og 34 og Klapparstíg 30, ónýt og hefur nokkr- um sinnum beðið um að fá að rífa þau þótt hann hafi enn ekki fengið byggingarleyfi. Verði seinkun á útgáfu bygging- arleyfis vill hann samt sem áður fá að rífa fyrrnefnd hús. Hann segir það ekki svara kostnaði að gera þau upp þar sem þau séu ónýt. „Mér finnst snyrtilegra að ganga frá svæðinu, sem hægt er með litlum til- kostnaði. Ég tel svona hús stór- hættuleg. Þótt þau séu lokuð er hægt að komast inn í þau.“ Morgunblaðið/Golli Mannbjörg Hverfisgata 32 til 34 þar sem slökkviliðið fann sofandi mann. Eigandinn má ekki rífa húsin fyrr en hann fær byggingarleyfi. Vill rífa en má það ekki  Slökkviliðsstjóri óttast að menn leiti skjóls í auðum húsum þegar harðnar á daln- um  Hús í miðborginni má ekki rífa fyrr en sýnt er hvað koma á í staðinn OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu verð á eldsneyti í gær í kjölfar þess að Orkan auglýsti fimm króna afslátt fyrir handhafa svokallaðra orku- lykla. Raunar hefur Orkan lækkað verð almennt um fimm krónur og hafa önnur félög fylgt í kjölfarið. Í síðustu viku hækkuðu Olís og N1 verðið með vísan í veikingu krónunnar en hafa nú lækkað aft- ur. Listaverð eldsneytis er nú lægst hjá Orkunni m.v. verðkönnunar- þjónustu GSMbensíns í gærkvöldi. Ódýrast var 95 oktana bensín hjá Orkunni í Hafnarfirði á 143,10 kr. en dísel hjá Orkunni í Grafarvogi á 170,50 kr. Auk Orkunnar eru sem fyrr stöðvar ÓB, Atlantsolíu og Ego á lista yfir 10 ódýrustu stöðvarnar með verð á bilinu 145,20-148,20 kr. fyrir 95 oktana bensín og 175.90- 176,90 kr. fyrir dísel. Sveiflur hafa verið á eldsneytis- verði síðustu vikur eftir að hafa verið í hæstu hæðum fyrr á árinu og fór bensínlítrinn hæst í rúmar 180 krónur um miðjan júlí og dís- ellítrinn í 199,8 kr. í sjálfs- afgreiðslu. Eldsneytis- verð sveifl- ast til og frá HAFÍSINN er nú um 45-50 sjómílur út af Vestfjörðum. Þetta kemur fram á gervihnattamyndum. Er hafísinn á svipuðum slóðum og í meðalári. Undanfarið hafa verið ríkjandi vestlægar áttir og hefur ísinn rekið í átt að landinu. Á næstu dögum verður breytileg átt á landinu. Í dag lítur út fyrir austlæga átt og þá rekur ísinn til baka í átt til Grænlands. Síðan kem- ur vestlæg átt á laugardagskvöld, norðlæg átt á sunnudaginn, vest- lægri átt er spáð á mánudag og þriðjudag en síðan eru austlægar áttir í kortunum í nokkra daga. Reikna má með að stakir jakar og rastir komi inn á Vestfjarðamið á næstunni og jafnvel nokkuð þétt- ur ís. Sjávarhitinn á þessum slóðum er um 4-5°C og því má búast við að ís bráðni frekar hægt. Veðurstofan biður sjófarendur að fara að öllu með gát. sisi@mbl.is Hafís færist nær landinu Hversu mörg hús standa auð í miðborginni og þar um kring? Um 60 hús stóðu auð samkvæmt skýrslu slökkviliðsstjóra frá því í apr- íl síðastliðnum. Ástandið hefur batn- að í kjölfar átaks. Slökkviliðið fer í eftirlitsferðir á um hálfs mánaðar fresti. Hvaða vinnureglur gilda um nið- urrif húsa í miðborginni? Meginvinnureglan er að hús séu ekki rifin fyrr en sýnt er hvað byggja á í staðinn. Það er gert til þess að lóðir standi ekki auðar. Hverjar eru skyldur húseiganda? Honum ber að halda húsi sínu við og sjá til þess að ekki stafi hætta af því. Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á því að skora á þinglýstan eiganda að bæta úr því. Byggingarfulltrúi hefur ákveðnar heimildir til þess að beita dagsektum eða láta vinna verkið og innheimta fyrir það stafi hætta af húsum. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.