Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
4 7 3 9
7 9 5
8 1 3 4 6
8 2 9 3
6 7 3 8 4
1 2 9 7
6 5 9 8 2
1 2 6
9 8 1 5
6 2 3 9
5 6 7
3 9 4 5
2 3 8
4 2
7 8 4
1 3 5 4
3 6 2
4 5 7 6
1 2 5 8 6
1 8
3 2
4 6 8 2
6 9 1 7
7 8 1 6
2 5
1 7
9 4 3 5 8
8 7 9 6 1 3 4 5 2
3 1 4 5 2 7 9 6 8
2 6 5 4 8 9 1 7 3
9 2 8 7 4 6 3 1 5
1 4 7 3 5 2 8 9 6
5 3 6 8 9 1 2 4 7
4 8 2 9 6 5 7 3 1
6 9 3 1 7 8 5 2 4
7 5 1 2 3 4 6 8 9
7 5 9 1 6 4 2 3 8
6 3 8 9 5 2 7 4 1
2 1 4 8 3 7 5 6 9
1 9 6 2 4 5 8 7 3
8 7 5 6 9 3 4 1 2
3 4 2 7 8 1 6 9 5
4 2 7 5 1 9 3 8 6
9 6 3 4 2 8 1 5 7
5 8 1 3 7 6 9 2 4
7 2 5 9 4 8 3 6 1
1 4 8 7 6 3 5 2 9
6 3 9 5 2 1 7 8 4
3 9 6 1 8 2 4 7 5
5 7 1 4 9 6 2 3 8
2 8 4 3 7 5 9 1 6
9 5 3 8 1 7 6 4 2
4 1 2 6 3 9 8 5 7
8 6 7 2 5 4 1 9 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er föstudagur 21. nóvember,
326. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir
yðar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Víkverji hefur verið að flettaBókatíðindum 2008 þar sem
bækur ársins eru kynntar. Fyrst
skal geta þess hversu sterkt forsíðan
virkaði á Víkverja. Myndin af
barninu sem opnar dyrnar/bókina
inn í ævintýraheiminn er þulhugsað
trikk sem og aðrar myndir inni í
Bókatíðindunum, þar sem sama
tema er viðhaft.
Þegar Bókatíðindum er flett blas-
ir við mikil fjölbreytni í bókaútgáfu
ársins. Í aðfaraorðum segir Kristján
B. Jónasson, formaður Félags ís-
lenskra bókaútgefanda, að titlarnir
séu 760 talsins. Víkverji fær ekki
annað séð en að allir fái þar eitthvað
fallegt.
x x x
Fyrirferðarmestur flokka erFræði og bækur almenns eðlis,
þar sem Víkverji taldi um 180 titla.
Reyndar eru mörg tímarit í þessum
flokki og er spurning hvort ekki eigi
að hafa þau á sérbás; þau geta eftir
sem áður átt heima í bókatíðindum.
Íslenzk skáldverk eru tæplega 80
og þýdd skáldverk örlitlu fleiri.
Ljóðabækur losa fimmtíu og þar á
meðal eru nokkur ljóðasöfn. Ævi-
sögur og endurminningar eru 40,
Saga, ættfræði og héraðslýsingar 16
og handbækur 55.
Þýddar barna- og unglingabækur
eru rösklega 140, en þær íslenzku
um 80.
Og ekki eru blessuð börnin og
unglingarnir skilin útundan; íslenzk-
ar barna- og unglingabækur eru um
80 og þýddar um 140.
Víkverji saknar bókahappdrætt-
isins í Bókatíðindunum en er upp-
fullur af lestrarlöngun.
x x x
Á heimili Víkverja fara reglulegafram umræður um það hvernig
báðir aðilar hjónabandsins eiga að
leggja sitt af mörkum til heimilis-
haldsins. Þegar Víkverji og frú
höfðu lokið síðdegiskaffinu, sem frú-
in hafði allan veg og vanda af að und-
irbúa, sagði hún: Jæja, nú gengur þú
frá. Víkverji lét ekki segja sér það
tvisvar, en stóð upp og gekk rakleið-
is frá borðinu og inn í stofu. víkver-
ji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 togstreitu, 8
þoli, 9 garðjurt, 10 kven-
dýr, 11 marra, 13 virðir,
15 slitur, 18 vísu, 21
greinir, 22 duftið, 23 há-
tíðin, 24 glímutök.
Lóðrétt | 2 formóðir
manna, 3 hluta, 4 knáa, 5
tólf, 6 bút, 7 skordýr, 12
snæfok, 14 glöð, 15 sokk-
ur, 16 áreita, 17 lipur, 18
mjöll, 19 sterk, 20 elska.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ókjör, 4 fjöld, 7 impra, 8 útveg, 9 rok, 11 drap,
13 þróa, 14 ansar, 15 hökt, 17 álit, 20 aka, 22 kúpan, 23
nenni, 24 lærði, 25 aginn.
Lóðrétt: 1 ókind, 2 japla, 3 róar, 4 fjúk, 5 örvar, 6
dugga, 10 orsök, 12 pat, 13 þrá, 15 hökul, 16 kopar, 18
lindi, 19 teinn, 20 andi, 21 anga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. d4 O-O 6. Be2 c5 7. O-O cxd4 8. Rxd4
Rc6 9. Rc2 Rd7 10. Bd2 a5 11. Kh1 Rc5
12. f3 f5 13. exf5 Bxf5 14. Be3 Bxc2 15.
Dxc2 Bd4 16. Bh6 Bg7 17. Bxg7 Kxg7
18. Had1 Hf6 19. f4 Df8 20. g3 Kh8 21.
Bf3 e5 22. Dg2 Hc8 23. b3 Hf7 24. Rb5
Hf6 25. Db2 Kg8 26. Bd5+ Kg7 27.
Bg2 Hd8 28. Hfe1 exf4 29. gxf4 h5 30.
Rc7 Kh7 31. Rd5 Hf7 32. a3 Dg7 33.
Dxg7+ Kxg7 34. b4 axb4 35. axb4 Rd7
36. Rc7 Rf8 37. Re8+ Kh7 38. b5 Ra5
39. Rxd6 Hxf4 40. c5 Hd7
Staðan kom upp fyrir skömmu í
þýsku deildakeppninni. Franski stór-
meistarinn Etienne Bacrot (2705)
hafði hvítt gegn þýska alþjóðlega
meistaranum Bernd Meissner (2418).
41. Rxb7! Rxb7 42. c6! Hxd1 43. Hxd1
Ra5 44. c7 Hc4 45. Bc6 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Betra spil.
Norður
♠92
♥ÁD3
♦ÁK1053
♣D982
Vestur Austur
♠ÁDG65 ♠8
♥109865 ♥G74
♦9 ♦G8762
♣65 ♣KG104
Suður
♠K10743
♥K2
♦D4
♣Á983
Suður spilar 3G.
„Tígullinn getur beðið,“ hugsaði
Gunnlaugur Sævarsson, tók hjartaút-
spilið heima og spilaði smáum spaða að
blindum. Það reyndist lykillinn að níu
slögum.
Þetta var á Madeira Open fyrr í
mánuðinum, en Gunnlaugur og Run-
ólfur Jónsson unnu þar tvímennings-
keppnina. „Þú sýndir spil í þættinum
þar sem við fengum botn,“ sagði Gunn-
laugur ávítandi og rétti umsjón-
armanni blað með stöðumyndinni að
ofan: „Hér er betra spil.“ Sem sagt,
smár spaði í öðrum slag, sem vestur
tók á ♠G og spilaði aftur hjarta. Spaða-
legan kom í ljós í næsta slag þegar
austur henti hjarta. Enn hamraði vest-
ur á hjartanu og nú var austur kominn
í vandræði og fleygði tígli. Gunnlaugur
spilaði þá tígli fjórum sinnum, sem
hafði þau áhrif að fría fimmta tígulinn
og endaspila austur um leið í laufi.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gættu þess að missa ekkert út úr
þér sem þú þarft að iðrast síðar meir.
Veldu þér því góða samstarfsmenn ef þú
vilt ná einhverjum árangri.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er mikilvægt að þú fáir næga
hreyfingu. Spurðu þig þrisvar hvort þú
þurfir á viðkomandi hlut að halda áður en
þú opnar budduna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hafir þú lofað þér að tala ekki
illa um aðra neyðir ábyrgðarlaus mann-
eskja þig til að brjóta þá reglu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur fengið meira út úr
óvæntu fríi en þú áttir von á og kemur því
aftur til starfa fullur af orku og athafna-
þrá. Mundu að hver hefur til síns ágætis
nokkuð.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gerðu það sem þú getur til þess að
vekja hrifningu annarra. Viðfangsefni
sem tengjast ástarsambandi eru efst á
baugi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert eitthvað að bralla, en það er
mikilvægt að fara ekki fram úr sjálfum
sér. Vertu því þolinmóður.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur meðbyr í seglin og átt að
geta notfært þér hann. Líttu á þetta sem
hrós og þakklætisvott en haltu þínu
striki.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Til þess að leysa það verkefni,
sem þú hefur tekist á hendur, þarftu að
leiða saman fólk, sem að jafnaði starfar
lítt saman. Samt heldurðu áfram að gefa,
því stundum er það æðislegt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt starfið sé mikilvægt ber
þér að hugsa fram í tímann og gæta þess
að þú gangir ekki fram af þér. Spurðu og
spurðu þó að þú vitir ekki hvað þú átt að
gera við svörin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú kannt að þurfa að bregða
þér af bæ með litlum fyrirvara. Sýndu
þolinmæði og láttu ekki skapið hlaupa
með þig í gönur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú stendur á tímamótum og
ættir ekki að líta um öxl. Hertu upp hug-
ann því endalaus undanlátssemi skilar
þér bara örðugleikum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ættir að huga að fjáröfl-
unarleiðum sem tengjast ljósmyndun,
kvikmyndagerð, förðun eða lyfjafræði.
Fiskurinn fær verðskuldaða viðurkenn-
ingu.
Stjörnuspá
21. nóvember 1942
Fyrsta einkasýning Nínu
Tryggvadóttur var opnuð í
Garðastræti 17 í Reykjavík. Á
sýningunni voru sjötíu mál-
verk, meðal annars manna-
myndir. „Mynd eftir Nínu set-
ur menningarblæ á hvaða
herbergi sem er,“ sagði Hall-
dór Laxness í umsögn í Þjóð-
viljanum.
21. nóvember 1975
Gunnar Gunnarsson skáld
lést, 86 ára. Meðal þekktustu
verka hans eru Saga Borg-
arættarinnar, Fjallkirkjan og
Svartfugl. Jóhann Jónsson
lýsti Gunnari svo: „Hann er
fyrsta skáld vort á síðari öld-
um sem ritað hefur íslenskar
heimsbókmenntir.“
21. nóvember 2006
Tilkynnt var að Björgólfur
Guðmundsson og Eggert
Magnússon hefðu keypt enska
úrvalsdeildarliðið West Ham á
fjórtán milljarða króna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Systkinin Þórður og Árnína Jóns-
börn frá Akureyri fagna stórafmæli
sínu með ættingjum og vinum,
sunnudaginn 23. nóvember kl. 14, í
safnaðarheimilinu Kirkjulundi í
Keflavík. Þórður varð níræður 26.
október síðastliðinn og Árnína
verður áttatíu og fimm ára 24. nóv-
ember næstkomandi. Þau afþakka
vinsamlega allar gjafir.
90 og 85 ára
„ÉG ætla að vera á faraldsfæti,“ sagði Örn Þor-
leifsson, bóndi og kennari í Húsey í Hróarstungu,
sem er sjötugur í dag. Hann reiknar með byrja
daginn á að kenna í Brúarásskóla þar sem hann
starfar við forfallakennslu. Þau í Húsey eru einnig
með ferðaþjónustu og stunda sjálfsþurftabúskap.
Bústofninn er ein kýr og nokkrar kindur til heim-
ilisins. Þau nýta einnig hlunnindi jarðarinnar og
kynda með rekaviði auk þess að stunda veiðar á
sel, silungi og laxi. En standa einhverjir afmælis-
dagar upp úr í minningunni?
„Ég held bara að allir afmælisdagar hafi verið merkilegir,“ sagði
Örn. „Maður hefur alltaf glaðst eins og krakki á afmælinu sínu. Ég
held að ég taki engan einn fram yfir annan. Það hefur alltaf eitthvað
komið mér á óvart.“
Örn segir að miklar breytingar hafi orðið í náttúrunni eftir að Jök-
ulsá á Dal var veitt í Lagarfljót vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Vatn er
farið að standa hér uppi á þurru landi. Það er mikið landbrot í Lag-
arfljóti. Maður sér það á því að á sumrin eru netin full af lyngi kræki-
berja, bláberja og fjalldrapa. Það rífur úr bökkunum og svo flýtur
þetta áfram. Þetta kemur alstaðar að.“
gudni@mbl.is
Örn Þorleifsson í Húsey 70 ára
„Alltaf glaðst eins og krakki“
Nýirborgarar
Akranes Snædís Eir
fæddist 18. maí kl. 21.55.
Hún vó 3.290 g og var 52
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Hulda Björnsdóttir
og Ingimar Sveinsson.
Hreiðrið, LSH Reykjavík
Eyþór Óli Jensson fæddist
24. ágúst kl. 7.11. Hann vó
4.290 g og var 55 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Katrín Árnadóttir og Jens
Þór Sigurðarson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum
á barn@mbl.is