Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Hvað varð um deilurnar, sem hrjáðhafa borgarstjórn Reykjavíkur allt kjörtímabilið? Af hverju eru eng- in upphlaup lengur í borgarmál- unum?     Ástandið í borgarstjórninni hefurgjörbreytzt eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks var endurreistur og Hanna Birna Kristjánsdóttir tók við embætti borgarstjóra.     Ástæðan fyrirþví að nú vinnur borg- arstjórn verk sín í hljóði er ekki bara að athygli fjölmiðla beinist öll að fjár- málakreppunni – þótt það hjálpi kannski til.     Í nýja meirihlutanum ríkir meirisamstaða og traust og ein- staklingar eiga auðveldara með að vinna saman en í fyrra meirihluta- samstarfi, hvort heldur litið er til meirihluta eitt, tvö eða þrjú.     Það sem skiptir þó líklega megin-máli eru nýjar starfsaðferðir Hönnu Birnu, sem leggur sérstaka áherzlu á að mál fari ekki sjálfkrafa í farveg átaka og deilna, heldur sé reynt að vinna þau í góðu samstarfi meirihluta og minnihluta.     Nýjasta dæmið um slíkt er aðHanna Birna skipaði Svandísi Svavarsdóttur, oddvita Vinstri grænna, formann starfshóps sem á að fylgjast með þróun og áhrifum at- vinnuleysis í borginni.     Þær Hanna Birna og Svandís, hvorá sínum enda hins pólitíska lit- rófs í borgarstjórninni, virðast reyndar ná afskaplega vel saman.     Væri líka hægt að stjórna landinumeð aðferðum Hönnu Birnu? Hanna Birna Kristjánsdóttir Horfið borgarmálaþref                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -              !          " 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                       :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? #$  $ $# $ $  $     $# $ $# $  $      $                              *$BC                   ! "!    #$%%   &   &  '  !(    ) * +   '  *! $$ B *! %& '(  (& (     ") " <2 <! <2 <! <2 %' * (+ !,(- *".   C! -                 B  ,- " $  '    ! .    /  &  '      $   ' &  , " $  &  *  0 - '  '&  !(   "!       &'    .$  ,   .  /    1    $    2       .  .    '  %  .$   ,  /0** (("11  *"( (2 "  "(+ ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is FYRRVERANDI sveitarstjóri í Grímsey hefur verið ákærður fyrir hegningarlagabrot í opinberu starfi; fyrir tæplega 20 milljóna króna fjárdrátt og umboðssvik en krafa hreppsins á hendur honum hljóðar upp á 27 milljónir. Ríkislögreglustjóri ákærir Brynjólf Árnason, fyrrverandi sveitarstjóra, fyrir margvíslan fjár- drátt; m.a. að hafa dregið sér rúmar sex milljónir króna úr sjóðum hreppsins til þess að greiða fyrir lyftara sem hann keypti fyrir hönd einkahluta- félags síns. Einnig að hafa dregið sér rúmar fjórar milljónir vegna kaupa á fasteign í Grímsey. Brynjólfur er ákærður fyrir að hafa í fleiri til- vikum dregið sér lægri upphæðir vegna kaupa á ýmsum búnaði fyrir umrætt einkahlutafélag, fyrir laxveiðileyfi, vegna eigin kaupa á flugmódeli og áskriftar að Sky-sjónvarpsstöðinni. Þá er hann kærður fyrir umboðssvik með því að hafa millifært tæpar þrjár milljónir króna af ein- um reikningi hreppsins yfir á annan, þar sem um- rædd fjárhæð stóð til tryggingar yfirdrætti á tékkareikningi einkahlutafélags Brynjólfs, skv. handveðsyfirlýsingu sem hann skrifaði sjálfur undir fyrir hönd hreppsins. Það var fyrir um það bil ári sem grunur kviknaði um fjárdrátt og skjalafals sveitarstjórans og í lok nóvember var skrifstofa sveitarfélagsins innsigl- uð. Rannsókn stóð fram yfir áramót og þá var mál- ið sent lögreglu. Það var dómtekið í Héraðsdómi Norðurlands eystra í fyrradag. Það er Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, sem sækir málið fyrir hönd rík- islögreglustjóra. Krafinn um 27 milljónir króna Mál fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps dómtekið í Héraðsdómi NE Eftir Alfons Finnsson Ólafsvík | Hið árlega Ottómót var haldið í Ólafsvík nýverið í sjöunda sinn. Um 60 manns tóku þátt og voru keppendur á öllum aldri. Mót- ið hefur verið haldið til minningar um Ottó Árnason sem var frum- kvöðull í skákstarfinu í Ólafsvík og í ár hefði Ottó orðið 100 ára. Skák- mótið hefur alveg frá byrjun verið haldið með miklum glæsibrag, boðið upp á fríar sætaferðir frá Reykjavík og veglegt kaffihlaðborð meðan á mótinu stendur. Að keppni lokinni hefur verið blásið til kvöldverðar í boði félagsins. Verðlaunin hafa ekki verið af verri endanum og í ár voru þau yfir 300.000 krónur. Mótið er orðið árleg hefð hjá mörgum af okkar fremstu skákmönnum, sem tala um að þetta sé eitt skemmtileg- asta skákmót sem haldið er á land- inu. Heimamenn stóðu sig vel og vakti Sigurður Scheving mikla at- hygli fyrir frammistöðu sína. Sig- urður gerði m.a. jafntefli við forseta Skáksambands Íslands, Björn Þor- finnsson. Sigurður var efstur heimamanna með fimm vinninga. Mótið var mjög spennandi og sig- urvegari þess var Arnar B. Gunn- arsson með sjö vinninga. Morgunblaðið/Alfons Framtíðin Lena Örvarsdóttir, níu ára, stóð sig vel á mótinu sem og bróðir hennar Gylfi sem er sex ára og tók þátt í mótinu í annað sinn. Vel heppnað skákmót til heiðurs Ottó Ólsara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.