Morgunblaðið - 21.11.2008, Blaðsíða 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008
Írski tónlistarmaðurinn Damien
Rice er staddur hér á landi um
þessar mundir, en kappinn er orð-
inn hinn mesti Íslandsvinur. Rice,
sem hefur meðal annars sést spóka
sig í miðborg Reykjavíkur, hefur
haldið fjölmarga tónleika hér á
landi á undanförnum árum, síðast á
Bræðslunni á Borgarfirði eystra í
júlí. Írinn mun þó ekki ætla sér að
halda tónleika hér á landi að þessu
sinni heldur ætlar hann þvert á
móti að njóta íslenskrar tónlistar
og skella sér á tónleika Sigur Rósar
í Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldið. Ekki er von á öðru en hann
muni skemmta sér vel á tónleik-
unum, enda von á sannkallaðri flug-
eldasýningu.
Íslandsvinurinn Rice
skellir sér á Sigur Rós
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ er skammt stórra högga á milli hjá spútnik-
sveitinni Hjaltalín. Eftir að hafa dáleitt grunnskóla
landsins með glæsilegri innkomu á nýliðinni Skrekk-
keppni fékk sveitin upphringingu frá nýbylgjurokk-
sveitinni Cold War Kids með boði um að hita upp fyrir
sveitina á Evróputúr. Cold War Kids er ein af þessum
bubblandi heitu sveitum sem tíðrætt er um í indíheimum
og er við það að fara að leggja heiminn að fótum sér með
annarri breiðskífu sinni sem út kom fyrir stuttu.
„Þetta gerðist svakalega hratt,“ segir Högni Egilsson,
söngvari og gítarleikari Hjaltalín.
„Einhver sveit sem átti að hita upp forfallaðist víst
og við fljúgum því út í fyrramálið og spilum á átta
tónleikunum í Ítalíu, Frakklandi og Spáni. Fyrst var útlit fyrir
að við gætum þetta ekki, fólk er í skóla o.s.frv. En svo lögðum
við hausinn í bleyti og ákváðum að senda „diet“ útgáfu af
sveitinni út. Við verðum bara fjögur; gítar, bassi, trommur
og fagott. Við förum svo aftur út í janúar en til annarra
Evrópusvæða og því hentaði það mjög vel að heimsækja
suðrið og boða fagnaðarerindið þar.“
Högni segir að þau muni keyra um í bílaleigubíl og fara eins
sparlega og kostur er.
„Þetta gengur síðan upp ef við náum að selja nægilega mik-
ið af plötum á tónleikunum. Svo þarf bara að halda vel utan
um matarbudduna. Spurning um að taka þýska stílinn á þetta
og troða rúnnstykkjum í vasann eftir morgunmatinn!“
Hjaltalín hitar upp fyrir Cold War Kids
Segja má að nýr kafli í skemmt-
analífi Reykjavíkur hefjist í kvöld
þegar skemmtistaðurinn Club 101
verður opnaður. Staðurinn er til
húsa í sama húsi og tónleikastað-
urinn sálugi Organ var áður í Hafn-
arstrætinu.
Club 101 verður eingöngu opinn
um helgar, föstudags- og laug-
ardagskvöld, frá kl. 22 til 05.30. Á
aðalhæð staðarins er stórt dansgólf
og salur þar sem þjónað verður til
borðs. Á neðri hæðinni er hins veg-
ar einkaherbergi fyrir fastagesti
staðarins. Áður en langt um líður er
svo stefnt að því að opna aðra hæð
hússins, og verður staðurinn þá á
þremur hæðum.
Club 101 leggur áherslu á mikið
úrval hanastéla, en tónlistin verður
að mestu elektrónísk og í léttari
kantinum.
Það eru engir aukvisar sem reka
staðinn, en þar fara fremstir í
flokki þeir Loftur Loftsson og
Gunnar Már Þráinsson sem báðir
tóku þátt í rekstri Café Olivers þeg-
ar staðurinn var upp á sitt allra
besta.
Opnunarhóf Club 101 verður í
kvöld og hefst það kl. 21.
Nýr skemmtistaður
opnaður í Reykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG skipti bara einu sinni um
kjól. En mér fannst þess þurfa,
þeir voru svo flottir í búðinni að
það var ekki hægt að gera upp á
milli þeirra,“ segir söng- og leik-
konan Halla Vilhjálmsdóttir sem
vakti töluverða athygli sem kynnir
Edduverðlaunanna á sunnudags-
kvöldið, enda stórglæsileg. „Allt
sem ég var í var íslenskt, kjólarnir
úr Elm design og skartgripirnir
frá Hendrikku Waage. Þetta var
líka svona smá „antí-kreppu-
statement“. Maður þarf ekki að
vera í strigapoka bara af því að
það er kreppa,“ segir Halla og
hlær.
Framleiddi Mamma Mia!
Halla, sem býr í London, kom
sérstaklega til landsins til að vera
kynnir á Eddunni, en einnig til að
taka sér kærkomið frí. Það hefur
nefnilega verið nóg að gera hjá
henni að undanförnu, en tökum á
stórmyndinni Ghost Machine, sem
hún leikur eitt aðalhlutverkið í,
lauk fyrir skömmu. „Þetta gekk
rosalega vel, en tók ekkert smá á,
bæði líkamlega og andlega,“ segir
Halla sem fer með hlutverk eins-
konar afturgöngu í myndinni.
Stórir aðilar koma að gerð
Ghost Machine, og nægir að nefna
framleiðandann Mark Huffam sem
var einn framleiðenda hinnar ótrú-
lega vinsælu Abba-myndar
Mamma Mia! Það er því ljóst að
um gríðarlegt tækifæri fyrir Höllu
er að ræða. „Maður vonar það
allavega, enda er liðið sem kemur
að þessari mynd svakalegt. En
kannski skiptir það engu máli, það
getur alltaf farið svo að myndin
hverfi í fjöldann. Þetta fer allt eft-
ir markaðs- og tímasetningu. En
vonandi leiðir þetta til fleiri verk-
efna á þessu sviði fyrir mig.“
Ghost Machine verður frumsýnd
í Bretlandi strax í febrúar, en áð-
ur en að því kemur mun Halla láta
að sér kveða á öðru sviði – nefni-
lega í undankeppni Evróvisjón
sem fram fer í janúar. Þar mun
Halla syngja lag eftir Trausta
Bjarnason.
„Hann samdi meðal annars
uppáhalds íslenska lagið mitt,
„Andvaka“ sem hún Guðrún Árný
söng í hittifyrra,“ segir Halla sem
samdi sjálf textann við lagið, sem
heitir „Roses“.
„Þetta er mjög persónulegur
texti, og mér fannst að ég yrði að
fylgja honum eftir. Ég get nefni-
lega ekki hugsað mér að nokkur
annar syngi textann minn.“
Án skuldbindinga
Halla hefur nokkrum sinnum
verið beðin um að syngja í und-
ankeppninni á undanförnum árum,
en alltaf neitað. Hún söng síðast í
keppninni fyrir tíu árum, þegar
hún söng lag Sverris Stormskers,
„Sta sta stam“.
„Ég man bara að ég var 17 ára
þegar ég flutti það, og ég verð 27
ára þegar þetta gerist,“ segir hún.
En heldurðu að þú vinnir þetta
ekki bara núna, og verðir fulltrúi
Íslands í Rússlandi?
„Það væri nú gaman, fyrst mað-
ur er að þessu á annað borð. En
það kemur í ljós, við erum rétt að
byrja að pæla í hvernig við gerum
þetta.“
Halla fer heim til London í dag,
en segist þó ekki alveg vita hvað
tekur við hjá henni.
„Ég er að taka einhvern hippa á
þetta. Þetta er í fyrsta skipti á
ævinni sem ég er gjörsamlega án
allra skuldbindinga,“ segir Halla
og bætir því við að hún hafi fengið
nógu vel borgað fyrir hlutverk sitt
í Ghost Machine til þess að taka
lífinu með ró – að minnsta kosti
um stundarsakir.
Halla Vilhjálms í Evróvisjón
Söng síðast í keppninni fyrir tíu árum Vonast til að hlutverk í stórmyndinni
Ghost Machine verði til þess að vekja athygli á henni í kvikmyndaheiminum
Morgunblaðið/Golli
Á framabraut Halla Vilhjálmsdóttir mun láta að sér kveða í Evróvisjón
söngvakeppninni hér heima og flytja lag með texta sem hún samdi sjálf.
Lýstu eigin útliti. Ég vil vera hávaxin en er
það ekki, dökkskollitað hár, græn augu og
stórt nef.
Hvaðan ertu? Hundraðogeinum Reykja-
vík.
Vestrið eina í Borgarleikhúsinu – er það
eitthvað? (spyr síðasti aðalsmaður,
Björn Thors leikari) Tja systir mín er
allavega búin að sjá það. Henni fannst
það mjög flott og hún er með mjög há-
an standard, enda oft á leiksýningum.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa
þig? Að ég get ekki staðið á höndum
og látið mig detta aftur á bak á fim-
leikahesti.
Helstu áhugamál? Í fyrsta lagi ball-
ettinn, harpan og skátarnir og svo þykir mér al-
veg afskaplega gaman að borða góðan mat.
Styðurðu ríkisstjórnina? Það hefur nú alveg vel
komið fram að hún stendur sig ekki en það sem
hún vinnur við er að sjálfsögðu að gera sitt besta
til að við séum sátt.
Hver ber ábyrgð á kreppunni? Átti þetta ekki að
vera á léttu nótunum?
Var skrekkur í þér fyrir Skrekk? Já, það fylgir
bara.
Ertu hetja í skólanum þessa dagana? Í Austur-
bæjarskóla eru einungis hetjur!
Dansarðu til að gleyma? Ég dansa vegna þess að
mér þykir það gaman.
Í hvaða menntaskóla ætlar þú? Mig langar í
Menntaskólann við Hamrahlíð.
Hvaða plötu hlustar þú mest á þessa dagana?
Hang on með Motion Boys.
Hvaða bók lastu síðast? Ég las Grettissögu mér
til gamans.
Uppáhaldskvikmynd? Mary Poppins.
Hvenær varstu hamingjusömust? Síðasti þriðju-
dagur stendur klárlega upp úr.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Fæst fer í taug-
arnar á mér en tölvan mín gleður mig sjaldnast.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
Dansinn heillar mig mest.
Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi þína? Supe-
rorganized Movements.
Hver myndi leika þig í myndinni? Julie Andrews.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Ef þú ætt-
ir Íslandsmet í einhverju, í hverju væri það þá? Morgunblaðið/Golli
Naumt Högni og félagar í Hjaltalín hafa verið
lóðsaðir í Evróputúr með engum fyrirvara.
VIKTORÍA SIGURÐARDÓTTIR
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER FIMMTÁN ÁRA GAMALL NEMANDI Í TÍUNDA BEKK Í
AUSTURBÆJARSKÓLA SEM FÓR FYRIR HÓPNUM SEM BAR SIGUR ÚR BÝTUM Í SKREKK,
HÆFILEIKAKEPPNI GRUNNSKÓLANNA, Á ÞRIÐJUDAGINN.