Morgunblaðið - 21.11.2008, Side 2

Morgunblaðið - 21.11.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is MEÐLIMIR í sérsveit ríkislög- reglustjóra, sem nú eru 41 talsins, fá ríflega 14% hærri laun en aðrir lög- reglumenn. Á síðasta ári höfðu þeir að meðaltali tæpar 618.000 krónur í mánaðarlaun, en aðrir lögreglumenn um 540.000 krónur. Þetta kom fram í svari Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra á Alþingi í gær, við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdótt- ur, þingmanns Vinstri-grænna. Þá kom fram að rekstarkostnaður sérsveitarinnar jókst um 62,5% í krónum talið frá 2005 til 2007. Var um 256 milljónir króna árið 2005 en 415 milljónir árið 2007. Af svarinu innan lögreglunnar, og tortryggni þar með, vegna elítumyndunar. Full- kominn trúnað þurfi milli ríkislög- reglustjóra og almennra embætta og lögreglan að starfa sem ein heild. mátti einnig ráða að langflest verk- efni sérsveitarmanna eru almenn lögregluverkefni og að um eða undir 25% af vinnutíma þeirra fer í þjálfun. Réttlætir áhætta launamuninn? Aðspurð segir Kolbrún það hafa vakið athygli sína að þeir sem beri byssurnar séu hærra metnir en aðrir í launum. Hún tekur heldur ekki al- farið undir að áhættusamari störf þeirra réttlæti þennan launamun. Kolbrún segist ekki sjá skýran áhættumun á því t.d. að gæta örygg- is stjórnmálamanna á krepputímum eða ganga um götur miðborgarinnar að næturlagi um helgar. Þá segir hún óæskilegt að gjá myndist á milli mismunandi deilda Sérsveit hærra launuð  Kolbrún Halldórsdóttir í VG andvíg því að „elíta“ myndist innan lögreglunnar  Sérsveitin vopnuð í 53 málum en fimm þúsund verkefni almenn lögreglustörf                                                Í HNOTSKURN »Björn sagði útköll ekkiflokkuð með tilliti til al- mannahættu, svaraði ekki um fjölda útkalla þar sem al- mannahætta var fyrir hendi. »Kostnaðarsamt og tíma-frekt væri að greina hvaða mál hefðu snert almannahættu. Fólk notar einkabílinn minna en áður vegna samdráttarins og þá verða strætó og reiðhjól vinsælli. Er fjölgun farþega frá síðasta ári umtalsverð á helstu leiðum og sums staðar 35%. Alls voru ferðir með vögnum Strætó í október um 888 þúsund, farþegarnir að sjálfsögðu mun færri af því að marg- ir fara fleiri en eina ferð í mánuðinum. Talan var um 808 þúsund í sama mán- uði í fyrra. Farþegum hefur fjölgað um rúm 38% frá október 2005. Hjólað yfir umferðina Morgunblaðið/Golli Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HAGAR hafa keypt bitastæða hluta úr þrotabúi BT-raf- tækjaverslananna. BT var tekið til gjaldþrotaskipta fyrr í mánuðinum. Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Haga, segir að lager BT og vörumerkið hafi verið keypt, auk þess sem Hagar hafi skuldbundið sig til að halda 40 starfsmönnum verslananna í vinnu. Fyrirtækið BT hafi þannig ekki verið keypt, heldur bitastæðir hlutar úr þrotabúi þess. Óvíst hvort búðirnar verða áfram á sömu stöðum Hann segir að vörumerkinu verði haldið við, en óvíst sé hvort félagið starfi áfram í óbreyttri mynd að öðru leyti, svo sem hvort það verður áfram í sama húsnæði eða ekki. BT hefur rekið sjö verslanir, þrjár á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum og í Keflavík. Einhverjar verslanir verða ekki opnaðar aftur en þeim var lokað í byrjun nóvember. Hagar hafa hingað til verið í samkeppni við BT en verið fremur litlir á sviði raftækja- og tölvuleikjasölu og kveður Finnur einhverja möguleika á samlegð við starfsemi Haga. Hagar keyptu lager og vörumerki BT-verslana Morgunblaðið/Brynjar Gauti Raftæki Finnur Árnason framkvæmdastjóri segir sam- legð í starfsemi BT og Haga, sem áður voru í samkeppni. GRÆÐISGATA, Lagargata og Brekatorg eru meðal nýrra nafn- gifta á götum og torgum á Slippa- svæðinu í Reykjavík. Tillögur nafnanefndar voru samþykktar á fundi í skipulagsráði á miðvikudag. Lagt er til að gata frá Geirsgötu að Seljavegi fái heitið Slippagata, en fyrirhuguð gata liggur yfir at- hafnasvæði gömlu slippanna. Fyrsta gata til norðurs frá Slippa- götu heiti Græðisgata, önnur gata Hlésgata og sú þriðja Lagargata. Gatan milli Hlésgötu og Granda- garðs heiti Rastargata. Torg á svæðinu fá nöfnin Breka- torg, Seljatorg og Ægistorg. Aðrar götur fá heiti sjávar og boða með vísan til þess að byggt er að hluta til á fyllingu út í víkina. Einnig taka nöfnin mið af gatna- heitum sunnan Vesturgötu, s.s. Bárugötu, Ránargötu og Öldugötu. Í tillögu nafnanefndar segir að með því að halda nafni Mýrargötu á leifum götunnar sé hægt að sjá á marktækan hátt upphaflega legu hennar, auk þess sem nafnið feli í sér að mýri hafi verið á svæðinu þegar gatan var gerð. Því sé ótækt að flytja nafn götunnar að mati nefndarinnar. Græðis- gata og Brekatorg KJARADEILU Eflingar – stéttar- félags og Reykjavíkurborgar hefur nú verið vísað til ríkissáttasemjara þar sem lítið hefur þokast í sam- komulagsátt á síðustu dögum. Samkvæmt upplýsingum Eflingar er unnið eftir viðræðuáætlun við borgina en ljóst sé orðið að ekki muni takast að semja fyrir þann tíma sem stefnt var að í upphafi, þ.e. fyrir lok októbermánaðar. „Mikill einhugur er í samninga- nefnd félagsins um að þær taxta- hækkanir sem hafa tekið gildi hjá öðrum hópum á árinu skili sér einnig til þessa hóps,“ segir í umfjöllun fé- lagsins. „Talsvert hefur verið rætt um að allir aðilar vinnumarkaðarins myndi heildstæða lausn til næstu tveggja ára og leggi þannig sitt lóð á vogarskálarnar til að skapa stöðug- leika á vinnumarkaði og létta þar með róðurinn til þess að hjól at- vinnulífsins fari að snúast á nýjan leik. En til þess að svo megi verða þurfa allir hópar að vera jafnsettir þegar farið er af stað í slíkan feril.“ Vísa deilu til sáttasemjara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.