Morgunblaðið - 21.11.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 21.11.2008, Síða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Korputorgi. S: 575 12 30 | Opið: mán-fös 11-19, lau 10-18, sun 12-18 | www.bilaoutlet.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 6 19 0 NÝ STASETNING: KORPUTORG Opið í dag:11-19 NÚ LÁTUM VI HJÓLIN SNÚAST! *Með fyrirvara um prentvillur. Gerðu betri kaup á notuðum á Korputorgi! SKODA OCTAVIA Ek. 62 þús. Nýskr. 07/05. Bsk. Verð áður: 1.860 þús. kr. NISSAN PATHFINDER 2.5 SE Ek. 47 þús. Nýskr. 12/05. Bsk. Verð áður: 4.650 þús. kr. NISSAN PATROL LUXURY Ek. 111 þús. Nýskr. 04/03. Ssk. Verð áður: 3.270 þús. kr. RENAULT SCENIC RXE 1.6 Ek. 75 þús. Nýskr. 07/03. Bsk. Verð áður: 1.190 þús. kr. NISSAN MURANO Ek. 35 þús. Nýskr. 10/05. Ssk. Verð áður: 5.790 þús. kr. TOYOTA AVENSIS Ek. 78 þús. Nýskr. 10/03. Ssk. Verð áður: 2.150 þús. kr. ISUZU D-MAX Ek. 38 þús. Nýskr. 11/05. Ssk. Verð áður: 2.560 þús. kr. HYUNDAI GETZ 1.3 GLS Ek. 26 þús. Nýskr. 09/05. Bsk. Verð áður: 1.380 þús. kr. OUTLETVER 1.490 þús. kr. OUTLETVER 3.290 þús. kr. OUTLETVER 1.990 þús. kr. OUTLETVER 690 þús. kr. OUTLETVER 3.750 þús. kr. OUTLETVER 1.690 þús. kr. OUTLETVER 1.850 þús. kr. OUTLETVER 890 þús. kr. SUBARU LEGACY Ek. 93 þús. Nýskr. 02/06. Bsk. Verð áður: 2.430 þús. kr. 1.650 þús.kr. OUTLETVER Nú erum við búnir að koma okkur vel og rækilega fyrir í nýja húsnæðinu okkar við Korputorg. Á planinu fyrir utan stendur fjöldi bíla en mestu munar um 2.200 m2 salinn okkar sem er stútfullur af frábærum, notuðum bílum. Það er nóg að gera en við sjáum til þess að fylla jafnóðum á þannig að þú getur verið viss um að finna rétta bílinn fyrir þig! Komdu og gerðu skynsamleg bílakaup í BílaOutlet! Við höfum opið til kl. sjö í kvöld! Nýr og miklu stærri salur!!! Mundu að tékka líka á bilaoutlet.is 1.280 þús. af! 1.360 þús. af! 2.040 þús. af! 490 þús. af! 780 þús. í afslátt! Á MORGUN, laugardaginn 22. nóv- ember, verður opið hús hjá dagvist og endurhæfingu MS-félagsins á Sléttuvegi 5. Opið verður milli kl. 13 og 16. Boðið verður upp á súkkulaði og rjómavöfflur gegn vægu verði. Fallegir munir sem unnir eru í dagvistinni verða til sölu, segir í til- kynningu. Selja handverk DAGSKRÁ aðventudaga hófst í gær á Sólheimum í Grímsnesi er ljós voru kveikt á jólatrénu á Rauða torginu í kaffihúsinu. Þá kynntu nemendur úr grunnskólanum Ljósuborg verkefni sem þeir unnu á Sólheimum. Mikið verður um að vera á Sól- heimum á aðventunni og nú um helgina verður m.a. námskeið í gerð aðventuljósa á laugardaginn og tón- leikar Sólheimakórsins á Grænu könnunni undir stjórn Vigdísar Garð- arsdóttur. Þá verða tónleikar Stór- sveitar Suðurlands í kirkjunni klukk- an 16.30. Á sunnudag stjórnar Edda Björg- vinsdóttir leikkona jólabingói Sól- heima kl. 14. Ágóði af því rennur til styrktar Heimili friðarins í Suður- Afríku í Kahaya Loxolo. Hver atburðurinn rekur annan á aðventudögum og eru atriði ýmist heimatilbúin eða aðkomin. Nefna má brúðuleikhús, konfektgerð, litlu jólin, tónleika Hörpukórsins og ullarþæf- ingu. Vinnustofur verða opnar virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 13-17. Á sama tíma verður samsýning vinnustofa Sólheima. Jólamarkaður verður opinn virka daga frá 14-18 og um helgar frá kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis að öllum við- burðum aðventudaga. Jólaljósin tendruð á jólatrénu á Sólheimum Morgunblaðið/Kristinn Aðventan nálgast Sólheimakórinn á æfingu fyrir tónleikana á morgun. TENGLAR .............................................. www.solheimar.is BÆJARSTJÓRN Seltjarnarnes- bæjar samþykkti nýlega tillögu íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarn- arness um rýmkun á reglum um tómstundastyrki. Samþykkti bæjarstjórnin að rýmka viðmiðunarreglur fyrir ald- urshópinn 15-18 ára þannig þeim gefist kostur á að nýta tómstunda- styrkina til niðurgreiðslu á líkams- ræktarkortum. Markmið breyting- arinnar er að hvetja þennan aldurs- hóp til hreyfingar, en töluvert brottfall úr íþróttum og tóm- stundum á sér stað á unglingsárun- um, segir í frétt frá bæjarfélaginu. Þá var samþykkt að styrkþegar gætu valið um að ráðstafa tóm- stundastyrknum til niðurgreiðslu á tónlistarnámi sem og öðru listnámi. Fram að þessu hefur tómstunda- styrkurinn ekki nýst nemendum í tónlistarnámi og voru því ein- hverjir sem ekki gátu nýtt sér styrkinn þrátt fyrir að eiga rétt á honum. sisi@mbl.is Heimilt að niðurgreiða líkamsrækt ALCAN á Íslandi hefur ákveðið að greiða starfsmönnum fyrirtækisins ein og hálf mánaðarlaun í auka- greiðslu um miðjan desember. Rann- veig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir þetta gert vegna kreppunnar sem ríki á Íslandi en hún komi illa niður á hinum almenna borgara sem alltaf hafi staðið við sitt. Mest sé tal- að um þá sem hafi tapað milljarði eða meira en minna fari fyrir frétt- um af þeim sem hafi tapað einni til tveimur milljónum króna af sparifé sínu. Peningum sem fólk hafi kannski nurlað saman á löngum tíma. Eins hafi afborganir af lánum hækkað mikið og séu stundum orðn- ar erfiðar fyrir þá sem alltaf hafa staðið við skuldbindingar sínar. Að sögn Rannveigar fá þeir sem hafa starfað lengur en í ár hjá fyr- irtækinu ein og hálf mánaðarlaun um miðjan desember en þeir sem hafa starfað skemur fá einn mánuð aukalega. guna@mbl.is Kreppubónus hjá Alcan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.