Morgunblaðið - 21.11.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 21.11.2008, Síða 21
Daglegt líf 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Garður | „Við viljum forðast að vaxandi reiði og óöryggi með- al Íslendinga bitni á innflytjendur. Það eru allir óöruggir um sinn hag í ástandinu sem ríkir um þessar mundir, Garðbúar með erlent ríkisfang ekki síður en aðrir íbúar landsins. Þetta hefur sýnt sig í öðr- um löndum við svip- aðar aðstæður,“ sögðu Erna M. Svein- bjarnardóttir skóla-, menningar- og jafn- réttisfulltrúi og Oddný Harðardóttir bæjarstjóri í sveitar- félaginu Garði. „Fræðsla gegn fordómum, jafn- an er hálfsögð sagan ef einn segir,“ er heiti á málþingi sem haldið verður í Garði í dag, föstudag. Þjóðahátíð „Einn fyrir alla, allir fyrir einn“ fylgir í kjölfarið daginn eftir. Margir útlendingar Í Garði eru 200 íbúar með erlent ríkisfang eða um 13% íbúa og eru þjóðarbrotin 21. Í nýlegri Capa- cent-könnun kom fram að einungis 24% svarenda á aldrinum 18-24 ára segja útlendinga fá jákvæð við- brögð frá Íslendingum. „Þetta er skelfileg niðurstaða,“ sagði Erna Sveinbjarnardóttir. Í Garði er unn- ið að aðgerðum til að draga úr for- dómum gagnvart útlendingum. Málþingið og þjóðahátíðin er liður í að láta þessum hópi íbúa líða sem best. „Með því að opna umræðuna með þessum hætti fræðumst við, auk þess að leggja okkar af mörk- um á ábyrgan hátt í þessum mála- flokki. Í framhaldi verður auðveld- ara að móta stefnu.“ Oddný sagði mjög mikilvægt að íbúum af erlendum uppruna liði vel og þeir væru duglegir að leita eftir upplýsingum og aðstoð eftir þörf- um. Þá væri ekki síður mikilvægt „Með auknum skilningi hopa fordómar “ Óöryggi má ekki bitna á útlendingum að þessi hópur fólks væri sýnilegur í samfélaginu. Margir af þeim sem flust hafa hingað í Garðinn eru orðnir íslenskir ríkisborgarar og við erum rík að þessu leyti. Við þurfum hins vegar að leggja okkur betur fram við að njóta fjölmenn- ingarinnar og gildir það um sam- félagið allt.“ Að sögn Oddnýjar og Ernu hefur íbúum í Garði ekki fækkað að und- anförnu og sögðust þær jafnframt vona að svo yrði ekki, þó erfitt væri að spá fyrir um þróun mála. „Stærsti hluti íbúa af erlendu bergi brotinn vinnur við fiskvinnslu og engar uppsagnir eru fyrirsjáan- legar þar. Hins vegar óttast þetta fólk að missa vinnu sína miðað við stöðuna í þjóðfélaginu í dag. Þá er fólk einnig reitt og áhyggjufullt yf- ir þeim erfiðleikum sem nú eru varðandi millifærslur á peningum heim til ættingja, að ekki sé talað um hversu verðgildi launa þeirra hefur minnkað mikið.“ Oddný nefndi ennfremur að útlit í at- vinnumálum væri nokkuð gott á Suðurnesjum vegna álvers- framkvæmda í Helguvík og hún sagðist gera ráð fyrir að mörg störf yrðu auglýst fljótlega upp úr áramótum. Þjóðahátíð Oddný Harðardóttir bæjarstjóri og Erna M. Sveinbjarnardóttir, skóla-, menningar- og jafnréttisfulltrúi, undirbúa málþing og þjóðahátíð. Morgunblaðið/Sveitarfélagið Garður Skeifan, Smáralind, Kringlan, Hafnarfjörður, Selfoss, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir, Akureyri, Ísafjörður Aðeins 2.495kr. áður 4.990 kr. Aðeins 1.690kr. áður 3.380 kr. Aðeins 1.190kr. áður 2.380 kr. Aðeins 2.495kr. áður 4.990 kr. Aðeins 1.245kr. áður 2.490 kr. Aðeins 1.445kr. áður 2.890 kr. sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% Tilboðin gilda frá 21.11.08 til 27.11.08. Til þess að koma í veg fyrir að samkeppnisaðilar nýti sér tilboðin til innkaupa fyrir eigin verslanir má hver og einn viðskiptavinur aðeins versla þrjár bækur af einstaka titli. Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal er merkisberi alþýðunnar á listasviðinu. Hann fékk tónlistargáfu og listhneigð í vöggugjöf. Þessar gáfur hefur hann varðveitt og þroskað af stakri trúmennsku. Jón Kr. hefur verið trúr heimahögunum alla tíð og lagt drjúga hönd á margt sem komið hefur samfélaginu til góða. Söngurinn hefur ætíð átt hug hans og verið í senn dægrastytting og hrein ástríða. Mér segir svo hugur að þegar nafn Bíldudals ber á góma í framtíðinni eigi margir eftir að tengja staðinn við nafn Jóns Kr. Ólafssonar og félaga hans í hljómsveitinni Facon, sem stimpluðu nafn Bíldudals rækilega inn á tónlistarkortið á síðari hluta 20. aldar. Jónatan Garðarsson. Melódíur minninganna Hafliði Magnússon alþýðulistamaður við ritvélina heima á Bíldudal á árum áður. YFIRSKRIFT málþingsins er „Fræðsla gegn fordómum, jafnan er hálfsögð sagan ef einn segir,“ en hún er tekin úr þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem samþykkt var á Alþingi í maí síðastliðnum. Á mál- þinginu taka til máls virtir fræði- menn á þessu sviði. Nefna má dr. Bergþóru S., lektor við Danmarks Pædagogiske Universitetsskole í Århus, dr. Hallfríði Þórarinsdóttur, forstöðumann Mirra, Miðstöðvar innflytjendarannsókna, og Toshiki Toma, prest innflytjenda á Íslandi. Júlía Esther Cabrera Hidalgo, deildarstjóri á leikskólanum Gefn- arborg, mun varpa fram spurning- unni „Erum við ekki öll eins inni við beinið?“ og tengja þróunarverkefn- inu „Virðing og jákvæð samskipti“. Erindum verður fylgt eftir með þremur málstofum en auk þess mun Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra ávarpa málþings- gesti. „Við teljum að fræðsla sé alltaf góð leið til að bregðast við vanda- málum. Það er því mikilvægt að við hlustum eftir viðhorfum og skoð- unum innflytjenda og raunar allra minnihlutahópa. Með auknum skilningi hopa fordómar af velli,“ sagði Erna og nefndi að bæði mál- þingið og þjóðahátíðin væri nóv- emberviðburður sveitarfélagsins á 100 ára afmælisári. „Við undirbún- ing þjóðahátíðarinnar nutum við starfskrafta hóps kvenna frá Fil- ippseyjum, Póllandi, Kólumbíu, Ví- etnam og Grænhöfðaeyjum. Þær hafa verið mjög hugmyndaríkar, duglegar og skemmtilegar og hreint frábært að kynnast þeim. Þær eiga miklar þakkir skildar, auk allra annarra sem hafa lagt hönd á plóginn. Þeir eru margir, bæði börn og fullorðnir, og allir vilja gera þjóðahátíðina skemmtilega og fjöl- þjóðlega.“ Á þjóðahátíðinni verður dansað og sungin lög frá ýmsum löndum, auk þess sem boðið verður upp á fjölþjóðlegt bakkelsi. Þá verður Norræna deildin í Garði og Rauði krossinn á Suðurnesjum með kynn- ingu, ásamt fulltrúa frá Rótum, fé- lagi áhugafólks um menningarfjöl- breytni á Ísafirði. Ætlunin er að halda undirbúningsfund fyrir stofn- un slíks félags á Suðurnesjum strax að lokinni þjóðahátíð, að sögn Ernu. Jafnan er hálfsögð sagan ef einn segir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.