Morgunblaðið - 21.11.2008, Side 33

Morgunblaðið - 21.11.2008, Side 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008 Atvinna Þroskaþjálfi óskast í búsetuúrræði fatlaðra á Sauðárkróki Starfshlutfall samkomulag. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir Steinunn Rósa í síma 455 6080. Starfsmaður óskast í búsetuúrræði fatlaðra á Sauðárkróki Starfshlutfall samkomulag. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir Steinunn Rósa í síma: 455 6080 www.skagafjordur.is Umboðsmaður Umboðsmann vantar í Sandgerði Upplýsingar veitir Ólöf Engilbertsdóttir í síma 569-1376 eða 669-1376 milli kl 8 og 16 virka daga Aukaleikarar í sjónvarpsþátt! Við erum að leita að aukaleikurum, á öllum aldri fyrir tökur á tímabilinu 24. nóvember 2008 til 20. janúar 2009. Áhugasamir sendið upplýsingar um umsækj- endur og mynd á aukaleikarar@sagafilm.is Atvinnuauglýsingar Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Melabraut 46, 206-7827, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Þröstur H. Elíasson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. ogTollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 25. nóvember 2008 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 20. nóvember 2008. ✝ Gunnhildur Jó-hannesdóttir Wæhle fæddist á Ak- ureyri 10. júlí 1941. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð 12. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Birna Ingimars- dóttir Wæhle, f. 1910 frá Litla-Hóli í Eyja- firði, og Johannes Wæhle, f. 1908 frá Evanger í Noregi. Systkini Gunn- hildar eru Ramborg Wæhle, f. 1931, drengur andvana, f. 1940, og Helga, f. 1945. Eiginmaður Gunnhildar var Ósk- ar Alfreðsson, f. 1942 í Vest- mannaeyjum, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Jóna Birna, f. 1965, gift Jóni Gudmund Knutsen, Hall- grímur, f. 1967, í sambúð með Ragnheiði Eiríksdóttur, Ásta, f. 1972, gift Karli R. Einarssyni, Fanney, f. 1975, gift Högna Frið- rikssyni, og Gunnar, f. 1981, í sam- búð með Erlu Ar- inbjarnardóttur. Barnabörn Gunn- hildar eru Ævar Örn, f. 1985, Krist- ófer Ívar, f. 1990, Kara Guðný, f. 1995, Patrekur Gudmund, f. 2001, Gunnhildur Fríða, f. 2002, Hrafn- hildur Birna, f. 2004, Óðinn, f. 1999, Karl Einar, f. 2004 , Hild- ur Theódóra, f. 2000, og Kristín Bergrós, f. 2004. Gunnhildur fór í Hjúkrunarskól- ann 1961 og lauk þaðan námi 1964. Hún hóf störf að námi loknu á lyfja- deild FSA og vann þar stærstan hluta starfsævi sinnar. Einnig vann hún á dvalarheimilinu Sólborg og við kennslu við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Síðustu æviárin starf- aði Gunnhildur á geðdeild FSA eða þar til hún veiktist. Útför Gunnhildar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Hugurinn leitar á ýmis mið þegar ég minnist þín, elsku mamma mín. Ég er þakklátur fyrir alla ástúðina, trúna og hvatninguna sem þú gafst mér í ómældu magni. Þú kenndir mér lífsins fræði, ekki með reglum heldur með því að vera hin hljóða fyrirmynd í viðhorf- um, fasi og innri fegurð. Þannig settir þú markið; svo var það aðeins mitt að læra hvernig ég gæti fetað mig smátt og smátt í rétta átt. Varla hef ég síðar kynnst manneskju sem trúir jafn stað- fastlega á það góða og á að ósinn geti orðið líkur draumum uppsprettunnar. Takk fyrir að senda mig af stað í veg- ferð fullan af styrk, innri trú og með þá staðföstu skoðun að allir vegir séu fær- ir. Elsku mamma, eins og ég skil lífið ert þú nú á betri stað. Síðasta áratug- inn glímdir þú við sjúkdóm sem svipti þig líkamsfærni og þar með getu til samskipta. Ekki ánægjulegt hlutskipti fyrir lífsglaða og félagslynda sál. Á síð- ustu árum hef ég oft saknað þess að njóta ekki samvista við þig, sérstak- lega eftir að nafna þín og systir hennar fæddust. En það er ekki aðeins sökn- uður eftir glötuðum stundum sem væt- ir hvarma á dánardegi heldur ekki síð- ur öll þau ósögðu orð sem fengu ekki nægt líf, náðu of sjaldan þínum eyrum. Mér er það nú lífsins lexía; að nýta tækifærin betur því sum berast aldrei aftur á fjörur. Á sama tíma er ég þó mjög þakklátur fyrir að hafa átt gef- andi stundir með þér þó í öðrum að- stæðum væri; við áttum nokkra góða eftirmiðdaga eftir að þú veiktist þar sem ég kom með gítarinn og við rifj- uðum upp gömlu lögin þín: What a wonderful world, Dagný, Góða ferð og lög Ellýjar og Vilhjálms. Nú rígheld ég í þessar minningar, þær varpa örlítið meiri töfrablæ á okkar lífsins spor og gera mér auðveldara að vinna með það hvað ég sakna þín mikið. Eftir að þú veiktist setti ég saman þessi orð til þín: Ég læðist um og lífið heilsar mér. Ég legg mitt traust á þig í heimi hér. Ef þreytan bugar mig og þungar draumfarir sá fræum frostgolunnar í fylgsni hugarheimsins. Þá heyrast orðin þín og hjálpin bíður mín. Svo blítt þú sefar mig, ég syng um þig. Þú fóstrar mig. Þú leggur hönd á lítið barnatár og leiðir mig um öll mín æskuár. Þó blási mótvindar og megnar spurningar þjóti um lendur mínar og lami hugsjónirnar. Þú opnar hjarta þitt það hefur þrautir stytt. Aldrei ég þarf að þjást ef móðurást heldur um mig. Hallgrímur Óskarsson. Elsku Gunnhildur. Í dag kveð ég þig, tengdamóður mína, í hinsta sinn. Það er alltaf sárt að sjá á eftir ástvinum sínum yfir móðuna miklu. Jafnvel þó að kveðjustundin hafi verið fyrirsjáanleg í langan tíma. Mað- ur virðist aldrei vera tilbúinn að taka við fréttum þess efnis að einhver, sem manni er kær, hafi látist. En strax þá hellast yfir mann minningar frá liðinni tíð. Minningar sem maður lifir með í hjarta sínu um góða persónu. Þú, Gunnhildur, varst einstaklega góð og hjartahlý manneskja sem ekk- ert aumt máttir sjá. Þú varst hjúkr- unarkona af gamla skólanum. Öryggi í starfi, umhyggja og hlýja var það sem þínir skjólstæðingar fengu frá þér. Öll- um ber saman um að þar hafi farið ynd- islega góð kona. Ást, umhyggja og hlýja var það sem við, fjölskyldan, fengum einnig frá þér. Reyndar voru þetta þau tvenn gildi sem þú lifðir fyrir. Það er; hjúkrun og fjölskyldan. Alltaf áttu börnin okkar öruggt og notalegt skjól hjá, þér, ömmu Gunnhildi og afa Óskari. Þegar amma var ekki á vakt á sjúkrahúsinu vissu börnin að óhætt var að fara í heimsókn til ömmu. Þeim yrði örugglega sinnt af ástúð og umhyggju. Þannig minnast börnin okkar ömmu sinnar. Elsku Gunnhildur. Ég veit að vel verður tekið á móti þér og góður guð hefur göfugt hlutverk fyrir þig og þínar hjúkrandi hendur og hlýja hjarta. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, kæra tengdamamma. Jón Gudmund Knutsen. Kæra Gunnhildur. Eftir margra ára erfið veikindi er komið að kveðjustund. Það eru ótal minningar sem sækja á hugann, nú þegar þú kveður þennan heim. Öll gömlu góðu árin, ferðalögin til ykkar á Akureyri, og þegar þið komuð öll í heimsókn og farið var í bíltúra með hópinn okkar. Ofarlega er í huga mér þegar þið komuð á þjóðhátíð í Eyjum, þá var gleði og gaman. Ég man enn gleðisvipinn á þér þegar gullhringurinn þinn fannst loks í tjaldinu, eftir mikla og langa leit. Ég þakka allar góðu stundirnar. „Far þú í friði, friður guð þig blessi.“ Ég bið guð að blessa og styrkja aldr- aða móður, og ykkur elsku Jóna Birna, Hallgrímur, Ásta, Fanney og Gunnar, tengdabörn og barnabörn. Megi minn- ingin um góða konu vera ykkur hugg- un. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf ók.) Hvíl í friði Þín mágkona, Ósk. Elsku amma mín. Nú ert þú frjáls og getur gert hvað sem er og það sem þig hefur alltaf lang- að til að gera. Mér finnst samt leiðinlegt að ég var svo ung þegar þú veiktist og að þú sért farin en ég er samt glöð fyrir þína hönd. Elska þig og mun sakna þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Þín ömmustelpa, Kara Guðný. Mig langar til að minnast Gunnhild- ar, móðursystur minnar. Það var 12 ára aldursmunur á okkur. Ég fæddist á heimili móðurforeldra minna og þess vegna höfðum við Gunnhildur mikið saman að sælda þegar ég var lítil. Hún skipaði alveg sérstakan sess í mínum huga og var fyrir mig „stóra systir“. Ég leit mikið upp til hennar og fannst hún falleg að utan sem innan. Það fannst líka öllum sem kynntust henni. Ég geymi dýrmæta mynd af henni í hugskoti mínu; brosmild kona með bjarta og hreina andlitsdrætti og glettnisblik í augum. Mínar bestu stundir á yngri árum voru þegar Gunn- hildur tók fram gítarinn og lék nokkur lög en hún hafði mikla ánægju af tón- list. Mig minnir að meðal uppáhalds- laga þá hafi verið „Einsi kaldi úr Eyj- unum“. Gunnhildur lærði hjúkrunarfræði um tvítugt og starfaði við hjúkrun í sín- um heimabæ á meðan heilsa og kraftar leyfðu. Hún sinnti sjúklingum sínum af sérstakri natni og umhyggju svo um var talað. Börnin komu í heiminn eitt af öðru, Jóna Birna, Hallgrímur, Ásta, Fanney og Gunnar. Það getur varla hafa verið auðvelt að sinna bæði krefj- andi hjúkrunarstarfi og stóru heimili því þá voru leikskólar ekki enn orðnir almenningseign. Móðuramma mín var Gunnhildi mikil stoð og stytta. Heimili Gunnhildar stóð alltaf opið fyrir öllum í fjölskyldunni. Þangað var gott að koma og þangað leituðu margir með smá og stór erindi. Gunnhildur gaf sér alltaf tíma, hvernig sem á stóð. Hún lagði einungis það til málanna sem var gott og rétt og hallmælti aldrei nokkrum manni. Hún hafði óbilandi trú á því góða í manneskjunni og á lífinu. Gunn- hildur varð fyrir áföllum og hefðu margir látið bugast fyrir minna. Hún sýndi mikinn styrk og æðruleysi í erf- iðleikunum. Nú er hún fallin frá langt fyrir aldur fram. Hún átti svo sann- arlega skilið að geta verið lengur með börnum sínum og barnabörnum og þau að njóta hlýju hennar og elsku. Eftir standa minningar okkar um góða og vandaða manneskju sem lét mikið og gott af sér leiða fyrir aðra á lífsleiðinni. Aðalheiður Steingrímsdóttir. Gunnhildur Jóhannesdóttir Wæhle ✝ Elskuleg móðir okkar, GUÐRÚN VILHJÁLMSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík, andaðist að kvöldi 30. október. Við þökkum frábæra aðhlynningu sem móðir okkar fékk á Eir. Útförin hefur farið fram. Berglind Gísladóttir, Dagný Gísladóttir og Hjördís Gísladóttir.  Fleiri minningargreinar um Gunnhildi Jóhannesdóttur Wæhle bíða birtingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.