Morgunblaðið - 21.11.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2008
11. MARS 2008
VAR ÍBÚÐARBLOKK
Í LOS ANGELES INNSIGLUÐ
AF YFIRVÖLDUM.
ÍBÚARNIR HAFA
EKKI SÉST SÍÐAN!
ENGAR UPPLÝSINGAR
EÐA VITNI.
FYRR EN NÚNA!
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
“HROTTALEG MYND EN
SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI
OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Nick and Norah´s kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFD
Quantum of Solace kl.5:30-8 -10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
47.000 MANNS Á 2 VIKUM!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
-S.V., MBL
- Þ.Þ., DV
- Ó.H.T., Rás 2
SÝND Í SMÁRABÍÓI www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
47.000 MANNS Á 2 VIKUM!
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15
ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ VILT
KOMAST AÐ ER SANNLEIKURINN
HÖRKUSPENNANDI MYND UM
SPILLTA LÖGREGLUMENN
-bara lúxus
Sími 553 2075
forsýnd á
laugardag kl. 4
Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15
Sýnd kl. 8 og 10:15
Ver
ð a
ðei
ns
650
kr.EINI MAÐURINN
SEM HANN GETUR TREYST
... ER HANN SJÁLFUR
Sýnd kl. 4 og 6 (650 kr.) m. íslensku tali
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Igor kl. 4 - 6 LEYFD
Lukku Láki kl. 3:45 LEYFD
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 LEYFD
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
Vofa gengur nú ljósum logum um Evr-ópu – vofa Zeitgeist. KvikmyndinZeitgeist og síðan Zeitgeist Add-
endum berst með ógnarhraða um heim allan
og í kjölfar þeirra ótal myndir aðrar sem
flestar gera sitt til að sýna fram á að hag-
kerfi heimsins eru sem kölkuð gröf og við
öll peð á taflborði auðmanna og óþokka sem
skipt hafa heiminum með sér.
Eftir loðmullulega tíma hefur pólitískuráhugi stóraukist hjá ungu fólki – í stað
þess að velta helst fyrir sér tískufatnaði,
glæsikerrum, skemmtiferðum og afleiðu-
samningum velta ungmenni nú því fyrir sér
hvernig búa megi mannkyni betra líf. Sitt-
hvað hefur ýtt undir þennan áhuga en þó
helst af öllu tveir ávextir hins kapítalíska
hagkerfis; netvæðing og fartölvur, en upp-
lýsingahraðbrautin varð einmitt til sem til-
raunaverkefni á vegum bandaríska hersins.
Pólitísk umræða fer í sívaxandi mæli framá netinu, það er vígvöllur hugmynd-
anna og þar blómstra vefsíður sem ýmist
berjast fyrir tilteknum málstað eða á móti.
Ekki síst hefur YouTube orðið skilvirk leið
til að skila ádeilunni áfram og eins hafa
ýmsir hópar nýtt sér Facebook með góðum
árangri; smalað saman mannskap til að-
gerða, hnýtt saman hóp óánægðra og miðl-
að upplýsingum þeirra á milli.
Oft eru myndir eins og Zeitgeist-tvennan kallaðar samsærismyndir,
enda snúast þær oft um það að á bak við
tjöldin sé klíka valdamikilla manna sem
véli um líf okkar án þess að við fáum
nokkru um það ráðið. Það er þó ekki rétt
að afskrifa þær því þótt sumar myndanna
séu tóm steypa, eins og gengur, velta aðrar
upp spurningum um skipan heimsmála og
benda á ýmislegt sem miður hefur farið og
miður gæti farið.
Fjármálakreppa sú sem nú gengur yfirheiminn er til að mynda vatn á myllu
Zeitgeist-manna, enda fjallar seinni myndin í
þeirri syrpu, Zeitgeist Addendum, um pen-
ingakerfi sem komið er að fótum fram, auk-
inheldur sem hún segir frá ýmsum skugga-
hliðum á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og svo
má áfram telja. Ekki ný sannindi en eft-
irtektarverð í samhengi kvikmyndarinnar.
Eins er eftirtektarverður sá hluti mynd-
arinnar sem segir frá Venusar-áætluninni,
The Venus Project, sem er hugarfóstur Jacq-
ue Fresco, en Fresco, sem býr í Flórída, hef-
ur komið upp grunnmynd af samfélagsgerð
sem hann telur að muni nýtast mannkyni bet-
ur en það sem nú er við lýði.
Þó höfundur Zeitgeist-myndanna, PeterJoseph, taki ekki beina afstöðu með eða
á móti hugmyndum Frescos kemur vel í gegn
sú hugmyndafræði sem hann aðhyllist; hann
er á móti græðgivæðingu heimsins, á móti
hagkerfi kapítalismans sem hann segist
byggjast á skorti, og leggur til nýja skipan
mála. Þeim sem kunna eitthvað fyrir sér í
hugmyndasögu kemur skemmtilega á óvart
að því sem Joseph boðar svipar ekki svo lítið
til útópíansks kommúnisma (íslenska þýð-
ingin á utopia, þ.e. staðleysa, á ekki við í
þessu sambandi, og þó).
Marx átti ekki sökótt við kapítalismann,hann taldi hann eðlilegan þátt í þróun
samfélags mannanna og því ekkert at-
hugavert við það að njóta góðs af auði síns
helsta stuðningsmanns, Friedrich Engels. Í
augum Marx yrði kapítalisminn sjálfdauður,
en þar skilur með marxistum og zeitgeist-
istum að þeir síðarnefndu vilja ganga af kap-
ítalismanum dauðum og það ekki seinna en
strax. arnim@mbl.is
Vofa tíðarandans
» Pólitísk umræða fer í sívax-andi mæli fram á netinu,
það er vígvöllur hugmyndanna
og þar blómstra vefsíður sem
ýmist berjast fyrir tilteknum
málstað eða á móti.
Karl Marx nýrra tíma Einn leikaranna í þriðju
Zeitgeist-myndinni: Zeitgeist Surprise.
AF LISTUM
Ární Matthíasson