Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is UM 550 börn hafa verið ættleidd hingað til lands á þeim 30 árum sem liðin eru frá því að félagið Íslensk ættleiðing (ÍÆ) var stofnað. Í dag er síðasti dagur samnorrænnar ættleið- ingarviku. ÍÆ á upphaf sitt að rekja til stofn- un ættleiðingarfélagsins Ísland- Kórea í janúar árið 1978. Að því stóðu kjörforeldrar sem höfðu ættleitt börn frá S-Kóreu í gegnum Norðmenn, að því er fram kemur í grein Ingibjargar Birgisdóttur sem birtist í afmælisriti félagsins. „Ættleiðingar eru auðvitað miklu eldri og hafa fylgt mannkyninu í gegnum tíðina og t.d. voru börn ætt- leidd hingað til lands upp úr stríðinu frá Þýskalandi og víðar,“ segir Ingi- björg Jónsdóttir, formaður ÍÆ, í samtali við Morgunblaðið. „En á þessu 30 ára tímabili er þetta orðinn drjúgur hópur sem er aftur farinn að eignast eigin börn þannig að þetta heldur bara áfram.“ Kjörforeldrar í framlínu Yfirvöld í S-Kóreu lokuðu fyrir ættleiðingar þaðan í kjölfar þess að þau uppgötvuðu að Ísland væri ekki hluti Noregs svo árið 1981 var nafni félagsins breytt í Íslensk ættleiðing, sem hóf þá að leita sambanda á nýj- um stöðum. Árið 1983 rann ættleið- ingarfélagið Ísland-Guatemala svo saman við ÍÆ. Framan af barðist félagið í bökkum en opnaði skrifstofu 1988 og rak hana á félagsgjöldum en flest störf voru unnin í sjálfboðavinnu. Frá 1993 hef- ur það fengið opinberan styrk árlega og er í dag með tvo starfsmenn á skrifstofunni. Árið 1995 fengu kjör- foreldrar sama rétt til fæðingarorlofs og aðrir og árið 2006 var samþykkt með lögum að veita íslenskum kjör- foreldrum ættleiðingarstyrk, líkt og flestir kjörforeldrar á Norðurlönd- unum fá greiddan. Þá má nefna end- urskoðun ættleiðingarlaga árið 2000. „Frá lagalegu sjónarmiði eru ætt- leidd börn í dag alveg jafn rétthá og önnur,“ útskýrir formaðurinn Ingi- björg og bætir við að kjörforeldrar sjálfir hafi verið í framlínu barátt- unnar í öll þessi ár. „Það var líka mik- ill sigur þegar fæðingarstyrkurinn var samþykktur. Samt sem áður fell- ur heilmikill kostnaður á fjölskyld- urnar, að ég tali nú ekki um núna þegar erlend mynt rýkur upp í verði.“ Helstu samstarfslönd ÍÆ í gegn- um tíðina hafa verið S-Kórea, Guate- mala, Indónesía, Srí Lanka, Tyrkland og Líbanon fyrir utan núverandi sam- starfsríki sem eru Kólumbía, Tékk- land, Indland og Kína. Í dag koma flest börn frá Kína, þótt hægt hafi á ættleiðingum þaðan. Samstarfið við Indland hefur staðið yfir í 20 ár og alltaf við sama barnaheimilið. Ingibjörg segir fjölskyldur ætt- leiddra barna duglegar að halda hóp- inn. ÍÆ stendur fyrir miklu félags- starfi og segir Ingibjörg uppá- komurnar skipta börnin miklu máli. „Þeim finnst gaman að hitta aðra krakka í sömu stöðu og vera þá ekki barnið sem dregur sig úr heldur barnið sem er í meirihluta.“ Í dag er ÍÆ með opnið hús og hvetur Ingi- björg fólk til að kíkja í kaffi, ekki síst þá sem bíða eftir ættleiðingu. Fögnuður Það var kátt á hjalla í afmælisveislu Íslenskrar ættleiðingar í febrúar en þá fögnuðu 500 manns tímamótunum. Eiga biðina sameiginlega Opið hús ÍÆ verður á skrifstofu samtakanna í Ármúla 36, milli kl. 14 og 17 í dag. Þrjátíu ár eru síðan sérstakt félag um ættleiðingar barna hingað til lands var stofnað » „Þeim finnst gamanað hitta aðra krakka í sömu stöðu og vera þá ekki barnið sem dregur sig úr heldur barnið sem er í meirihluta.“ „ÉG fór ekkert að velta þessu mikið fyrir mér fyrr en ég eignaðist sjálf barn, 22 ára að aldri. Þegar ég sá hvað stelpan mín var búin að mynda mikil tengsl við okkur foreldrana og fólkið okkar sjö og hálfs mán- aðar fór ég að rifja upp að ég var einmitt svo gömul þegar ég kom frá Suður-Kóreu til Íslands.“ Þetta segir Aðalbjörg Hermanns- dóttir sem í október 1974 kom með foreldrum sínum til Egilsstaða. Fram að því hafði hún verið á barnaheimilinu Holt í Seoul frá því hún fæddist í febrúar, að því er talið er í hafnarborginni Pusan. Síðan hefur hún búið fyrir austan, fyrir utan árin þrjú sem hún stundaði nám í Reykjavík. Aðalbjörg segist alla tíð hafa vit- að um uppruna sinn enda hafi for- eldrar hennar rætt opinskátt við hana um að hún ætti blóðforeldra annars staðar og hvernig hún hefði komist ein til Íslands. Hún segist vissulega hafa fengið athygli í æsku. „En einungis jákvæða og allt- af verið mjög vel tekið í skóla og hér í bænum. Ég fékk aldrei neitt neikvætt á mig fyrir að vera ekki fædd hérna þannig að ég upplifði mig aldrei sérstaklega öðruvísi. Og það eru kannski forréttindin í því að hafa verið alin upp á litlum stað.“ Hún segist þó geta ímyndað sér að ættleidd börn velti því helst fyrir sér að þau séu öðruvísi í útliti en flestir, enda fái þau bæði jákvæða og neikvæða athygli út á það. Eyja í Noregi Vissulega er langur vegur frá Suður-Kóreu til Íslands, að maður tali nú ekki um til Egilsstaða. Aðal- björg segist þó lítið hafa velt því fyrir sér hvers vegna hún lenti ein- mitt þar. „Mamma og pabbi bjuggu einfaldlega hér. Hins vegar átti ég að fara til Noregs því stjórnvöld í Suður-Kóreu héldu að Ísland væri eyja út frá Noregi. Þannig var það eiginlega tilviljun og í raun pínulítil mistök sem urðu til þess að ég kom hingað.“ Framan af aldri var Aðalbjörg eina ættleidda barnið sem hún vissi um á Austurlandi en þegar hún var sjö ára eignaðist hún bróður, sem ættleiddur var frá Indónesíu en þaðan komu einnig fleiri börn á Austfirði um svipað leyti. „For- eldrar mínir voru duglegir við að fara á uppákomur þar sem fjöl- skyldur ættleiddra barna hittust.“ Ólíkar sögur Aðalbjörg lærði viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og í loka- verkefninu sínu þaðan valdi hún að skrifa um reynslu ættleiddra Ís- lendinga á vinnumarkaði, ásamt skólasystur sinni Völu Hrund Jóns- dóttur. „Við töluðum við 20 ætt- leidda einstaklinga frá Indónesíu og Suður-Kóreu og yfir heildina höfðu flestir góða reynslu af vinnumark- aði. Við tókum skólann inn þetta líka og í helmingstilfellum var reynsla þaðan mjög góð, en síst hjá þeim sem voru aldir upp á höf- uðborgarsvæðinu. Þeir úti á landi virtust vera í meiri nálægð við sam- félagið og upplifðu meiri sam- kennd.“ Í viðtölunum kom fram að stór hluti fólksins hafði upplifað að vera tekið sem innflytjendum. „Raunar fannst mér svolítið skína í gegn að þeim þætti nóg komið af innflytj- endum því þeim fannst fordómarnir hafa aukist eftir að þeim fjölgaði á Íslandi.“ Hún segist þó ekki hafa fundið fyrir þessu á eigin skinni og undir- strikar að almennt hafi viðmælend- urnir látið mjög vel af sér. „Ég hef þessa sögu að segja en ég veit líka að sögur annarra geta verið allt öðruvísi. Upplifunin er mjög ein- staklingsbundin.“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Forréttindi Aðalbjörg Hermannsdóttir segir það hafa verið forréttindi að alast upp á litlum stað, eins og Egilsstöðum. Á Íslandi fyrir tilviljun ný ki lj u- pr en tu n ko mi n Dramatísk uppvaxtarsaga lista- konunnar karitas eftir kristínu marju baldursdót tur er loksins fáanleg að nýju. „... ekki aðeins vel skrifuð saga af lífi listakonu á síðustu öld – hún á erindi við samtímann. ... Og hún er mögnuð.“ melkork a ósk arsdót tir, frét tablaðið „... örlög sem fanga lesandann með þeim hætti að erfitt er að leggja bókina frá sér fyrr en að lestrinum loknum.“ fríða björk ingvarsdót tir, morgunblaðið örlagasaga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.