Morgunblaðið - 22.11.2008, Side 16
16 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Engin leynd
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra mælti í
gær fyrir frum-
varpi um stofn-
um embættis
sérstaks sak-
sóknara, sem á
að rannsaka
grun um refsi-
verða háttsemi í
tengslum við
bankahrunið. Í
umræðum lagði
Björn áherslu á mikilvægi slíkrar
rannsóknar og að fólk verði ekki
leynt neinu. Hugtök eins og þagn-
arskylda og bankaleynd ættu að
heyra sögunni til þegar jafn miklir
hagsmunir eru í húfi og nú. Í
frumvarpinu er einnig gert ráð fyr-
ir að uppljóstrarar geti átt mögu-
leika á að vera ekki sóttir til
saka.
5 þúsund bílar burt
Fjármálaráð-
herra hefur lagt
fram frumvarp
sem á að ein-
falda útflutning á
notuðum bílum.
Heimilt verður
að endurgreiða
vörugjald og
virðisaukaskatt
af afskráðum
ökutækjum sem
flutt eru úr landi fram til 1. apríl
nk. Áætlað er að breytingin kosti
ríkissjóð 1,5-2 milljarða króna og
að í kringum 5 þúsund bílar verði
fluttir á brott.
Skattaúttekt
Vinstri græn hafa óskað eftir út-
tekt á því hvaða áhrif skuldbind-
ingar gagnvart Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum komi til með að hafa á
skattbyrði landsmanna til fram-
tíðar. Óska VG eftir því að efna-
hags- og skattanefnd Alþingis taki
málið til skoðunar.
ÞETTA HELST …
Björn Bjarnason
Árni M. Mathiesen
„VINNAN geng-
ur ekki neitt,“
segir Jón
Bjarnason,
fulltrúi VG í fjár-
laganefnd, um
störf nefndar-
innar og segir
erfitt að vinna að
fjárlögunum þeg-
ar engin þjóð-
hagsspá liggi fyrir. Sú sem lögð
hafi verið fram í haust sé máttlaust
plagg og nú þurfi að bíða fyrirmæla
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þá
gagnrýnir Jón að fjáraukalaga-
frumvarp fyrir þetta ár sé ekki
komið fram.
Unnið í þremur hópum
Upphaflega var áætlað að fjárlög
yrðu tekin til annarrar umræðu í
næstu viku en ljóst er að það næst
ekki. Gunnar Svavarsson, formaður
fjárlaganefndar, segir að lögum
samkvæmt eigi þriðja og síðasta
umræða um fjárlög að fara fram
15. desember. „Það þýðir að mínu
mati að önnur umræða verður að
fara fram í síðasta lagi 8. desember
og við miðum við það,“ segir Gunn-
ar og útskýrir að fjárlaganefnd
verði skipt upp í þrjá hópa næstu
vikur, í góðu samráði við stjórn-
arandstöðu. „Annars vegar verður
fundað með ráðuneytunum og hins
vegar með þeim hundruðum aðila
sem sótt hafa um styrki fyrir
næsta ár,“ segir Gunnar.
halla@mbl.is
Gengur
ekki neitt
Strangir dagar hjá
fjárlaganefnd
Jón Bjarnason
ÞINGBRÉF
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Þ
essa dagana er talað um
stofnun nýrra stjórn-
málaflokka í hverju
horni. Vitanlega eru orð-
in oft stærri en gerð-
irnar en engu að síður virðist ákveðin
lýðræðisvakning eiga sér stað í sam-
félaginu. Fólk sem áður lét sig engu
skipta hverjir fóru með völd í landinu
fylgist nú gaumgæfilega með stjórn-
málum.
Eitt af framboðunum sem rætt er
um er stofnun Kvennalista. Ætla má
að orðrómurinn einn verði til þess að
allir slái sig til jafnréttisriddara.
Það hlýtur því að vera óþægilegt
fyrir femíníska flokkinn VG og jafn-
réttissinna Samfylkingarinnar að
Framsóknarflokkurinn sé smám
saman að breytast í kvennalista!
Karlar í efstu sætum fóru út af
þingi og þá komu inn konurnar sem
voru neðar á listum og nú er Fram-
sókn eini flokkurinn með konur í
meirihluta þingmanna.
Flokkar í endurmótun
Á meðan nýjar stjórnmálahreyf-
ingar eru ræddar við hin ólíklegustu
eldhúsborð eru uppi deilur innan
allra þingflokka um menn og málefni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað
landsfund í janúar og mögulega
stefnubreytingu í Evrópumálum.
Litlar líkur eru þó á því að þar verði
breytingar á forystunni, enda fyr-
irvarinn lítill og slík átök væru
flokknum of erfið.
Í Framsóknarflokknum hafa þeg-
ar orðið formannsskipti en ætla má
að barist verði um formannssætið á
landsfundi flokksins í janúar.
Frjálslyndi flokkurinn er ótrúlega
klofinn miðað við stærð og það er
nánast hægt að fullyrða að á honum
verði breytingar áður en langt um
líður. Innan Samfylkingarinnar er
nokkur kergja og efasemdir um
stjórnarsamstarfið.
Vinstri græn skoða afstöðu sína til
Evrópusambandsins og því er jafn-
vel velt upp hvort ný forysta eigi að
leiða flokkinn í næstu kosningum,
hvenær sem þær nú verða.
Einhvern veginn virðast margir
komnir í kosningagírinn þó að kosn-
ingar séu ekki á dagskrá fyrr en árið
2011. Harla ólíklegt er að vantrausts-
tillaga stjórnarandstöðuflokkanna
verði samþykkt. Til þess þyrfti of
marga liðhlaupa. Forsætisráðherra
getur rofið þing, þó að deilt hafi verið
um þá heimild, en að öðru leyti kæmi
ekki til þingrofs nema stjórnarsam-
starfinu væri slitið, án þess að ný rík-
isstjórn væri til taks.
Það hentar Sjálfstæðisflokknum
illa að gengið verði fljótlega til kosn-
inga en innan Samfylkingar eru
raddir sem vilja kosningar. Verði
niðurstaða Sjálfstæðisflokksins
gagnvart Evrópusambandinu já-
kvæð má hins vegar ætla að Sam-
fylkingin vilji halda í samstarfið þar
til ákvörðun um aðildarumsókn hefur
verið tekin.
Ekki benda á mig
Nú er annars hafinn skemmtilegur
leikur í samfélaginu sem heitir „Ekki
benda á mig“. Davíð Oddsson kennir
Fjármálaeftirlitinu og ríkisstjórninni
um bankahrunið, Geir H. Haarde
bendir á bankana, gömlu bankastjór-
arnir benda á eftirlitsstofnanir og
svo grunlausan almenning sem tók
þátt í fjörinu og Björgvin G. Sigurðs-
son sagði á þingi í gær að ástæðurnar
væru m.a. þær að Ísland hefði ekki
tekið fullan þátt í Evrópusamband-
inu.
Samt á ekki að leita að sökudólg-
um. Með öðrum orðum: Ekki leita að
sökudólgum, a.m.k ekki heima hjá
mér!
Stjórnmálin við eldhúsborðið
KRISTINN H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslyndra, hefur lagt
fram fyrirspurn til ráðherra um
skuldir sjávarútvegsfyrirtækja við
nýju ríkisbankana, sundurliðað
eftir bönkum. Vill Kristinn einnig
vita hversu mikið af þeim er til-
komið vegna kaupa á fiskveiði-
heimildum og hver séu helstu veð
til tryggingar. Þá spyr hann hver
séu helstu veð til tryggingar fyrir
skuldunum.
SJÖ þingmenn allra flokka nema
Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram
frumvarp um friðlýsingu Íslands
fyrir kjarnorkuvopnum og bann
við umferð kjarnorkuknúinna far-
artækja. Frumvarpið er nú lagt
fram í níunda sinn en hefur aldrei
fengist útrætt.
Markmiðið er m.a. að gera allt
íslenskt yfirráðasvæði kjarn-
orkuvopnalaust og draga úr hætt-
unni á kjarnorkuóhöppum.
Hvað skuldar
sjávarútvegurinn?
Engin
kjarnorkuvopn
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
EKKI er rétt að sameina ríkisbankana þrjá, að mati
Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. „Þótt
bankarnir séu í eigu ríkisins eru þeir þrjár einingar í
samkeppnislegu tilliti,“ sagði Björgvin í utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær og vakti athygli á því að Sam-
keppniseftirlitið hefði lagst gegn sameiningu Lands-
banka og Búnaðarbanka fyrir átta árum. Hann myndi
því ekki stuðla að slíkum samruna nema í tengslum við
aðrar breytingar síðar sem tryggja virka samkeppni.
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, var
málshefjandi í umræðunum og þótti henni stefna stjórn-
valda varðandi framtíð bankanna óljós. M.a. virtist ekki
eiga að gera þrotabú þeirra upp heldur halda rekstrinum
áfram í allt að tvö ár.
Sömu kröfur og til annarra opinberra fyrirtækja
„Efnahagsreikningar þeirra voru birtir um síðustu
helgi og þeir vekja vægast sagt spurningar um getu
bankanna til að sinna samfélagslegum skyldum sínum,“
sagði Álfheiður og varaði við því að bankarnir yrðu
einkavæddir með hraði. Hins vegar væri nauðsynlegt að
setja skýran lagaramma um starfsemi þeirra og gera
kröfur eins og til annarra opinberra fyrirtækja.
Björgvin greindi frá því að hann hygðist skipa nefnd
um heildarendurskoðun á lögum á fjármálamarkaði og
taldi jafnframt rétt að skoða það í fullri alvöru hvort er-
lendir aðilar ættu að koma að bönkunum.
Samkeppni ekki sameining
Morgunblaðið/Golli
Hvíslast á Ekki er víst að umræðuefni flokkssystranna úr Framsókn, Sivjar Friðleifsdóttur og Valgerðar Sverr-
isdóttur, hafi snúist um bankamál þegar þær stungu saman nefjum á Alþingi.
Viðskiptaráðherra segir ekki rétt að sameina ríkisbankana
Álfheiður Ingadóttir kallar eftir framtíðarstefnu