Morgunblaðið - 22.11.2008, Qupperneq 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
MÓTMÆLAFUNDIR verða í
Reykjavík og á Akureyri í dag.
Á Austurvelli mun Lúðrasveit Ís-
lands leika ættjarðarlög og Hjalti
Rögnvaldsson, leikari, lesa baráttu-
ljóð. Ræðumenn verða Sindri Við-
arsson, sagnfræðinemi, Katrín
Oddsdóttir, laganemi og Gerður
Pálma, atvinnurekandi. Fundar-
stjóri er Hörður Torfason.
Á Akureyri verður mótmæla-
ganga kl. 15.00 frá Samkomuhús-
inu á Ráðhústorg. Þar taka til máls
Edward Hujbens, Björn Þorláks-
son, Þorvaldur Örn Davíðsson o.fl.
Morgunblaðið/Ómar
Mótmælafundir verða á morgun
Mótmælafundir
HJÁLPARSTOFNANIR telja ljóst
að þeir muni skipta þúsundum hér
á landi sem þarfnast stuðnings fyrir
jólin. Hjálparstarf kirkjunnar,
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og
Reykjavíkurdeild RKÍ munu sam-
einast um jólaaðstoð í ár.
Umsóknareyðublöð er hægt að
nálgast og skila hjá Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur, Hátúni 12, 25.
nóvember, 2. og 9. desember kl.
10:00-14:00. Hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar: Háaleitisbraut 66, 2, 3.,
4., 9. og 10. desember kl. 11:00-
12:00 og kl. 14:00-16:00.
Úthlutun verður í húsnæði
Straums fjárfestingarbanka í Borg-
artúni 25 og hefst 16. desember.
Sameinast um
jólaaðstoðina
RÍKISSTJÓRN Íslands og alþing-
ismönnum er boðið sérstaklega á
opinn borgarafund í Háskólabíói kl.
20.00 á mánudagskvöld.
Þar verða frummælendur Þor-
valdur Gylfason hagfræðingur,
Silja Bára Ómarsdóttir alþjóða-
stjórnmálafræðingur, Benedikt
Sigurðarson framkvæmdastjóri og
Margrét Pétursdóttir verkakona.
Ríkisstjórn og
þingi boðið í bíó
FRESTUR lántakenda til að óska
eftir greiðslujöfnun fasteignaveð-
lána sinna fyrir desember nk. renn-
ur út á miðvikudag nk. Þurfa þeir
að skila umsókn um það til þeirra
lánastofnana sem þeir eiga í við-
skiptum við. Eftir næstu mánaða-
mót þarf beiðni að berast eigi síðar
en 11 dögum fyrir gjalddaga.
Greiðslujöfnun
VEFRITIÐ
smugan.is hefur
hafið göngu
sína. Smugan
leggur sig fram
um að vera rót-
tækur málsvari
fólksins í land-
inu. Henni er
ætlað að vera
opinn vett-
vangur skoð-
anaskipta þeim sem ekki hafa átt
greiðan aðgang að fjölmiðlum
hingað til. Öllum almenningi er
boðið að senda inn greinar. Á
smugunni verða um þrjátíu fastir
pennar undir ritstjórn Bjargar
Evu Erlendsdóttur og Elísar Jóns
Guðjónssonar.
Miðillinn er styrktur af Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði.
Smugan er
komin á netið
Björg Eva
Erlendsdóttir
STUTT
Fékk „skrítilegt og undarlegt“ bréf
Anna Marta á Hesteyri áritaði ævisögu sína í Neskaupstað
Anna Marta áritar Sam-
starf þeirra Rannveigar
var gott meðan á ritun
bókarinnar stóð.
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | „Anna, eigum við
ekki að lesa um eldsvoðann á
Hesteyri árið 1977?“ spyr Rann-
veig Þórhallsdóttir bókmennta-
fræðingur sem nú hefur gefið út
sína fyrstu bók: Ég hef nú sjaldan
verið algild, sem er ævisaga Önnu
Mörtu Guðmundsdóttur frá Hest-
eyri í Mjóafirði. Lesið var úr bók-
inni í Neskaupstað, bæði á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu, þar sem Anna
Marta dvelur nú, og í Tónspil þar
sem bókin er til sölu. M.a. las
Rannveig úr sendibréfi frá Jóni
Daníelssyni sem lengi bjó hjá
Önnu á Hesteyri. Í sendibréfinu
hvatti hann Önnu og móður henn-
ar til að flytja til Reykjavíkur eft-
ir eldsvoðann. Anna Marta tók
það fram áður en Rannveig las úr
bréfinu að sér hefði þótt það
„skrítilegt og undarlegt, ég ætlaði
ekki að trúa því þegar ég fékk
þetta bréf“. Enda ætluðu Anna
Marta og móðir hennar sér ekki
suður.
Að sögn Rannveigar áttu þær
Anna ánægjulegar samveru- og
vinnustundir við gerð bókarinnar
og þakkaði hún Önnu kærlega
gott samstarf.