Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 19
JÓLASKEIÐ Guðlaugs A. Magn-
ússonar er Íslendingum góðkunn,
enda hefur ný skeið verið gefin út
fyrir hver jól síðan 1947. Jóla-
skeiðarnar eru því orðnar yfir 60
talsins og nú er allt safnið í fyrsta
skipti til sýnis í Hönnunarsafni Ís-
lands.
„Í hverri seríu eru 12 skeiðar
með sömu útlínum, sem þýðir að
það tekur 12 ár að fá settið allt,“
segir Hanna S. Magnúsdóttir, sem
hefur nú veg og vanda af hönnun
jólaskeiðanna. Hún tók við kyndl-
inum af föður sínum, Magnúsi
Guðlaugssyni, fyrir nokkrum ár-
um, en það var afi hennar, Guð-
Söfnunargripur í áratugi
Morgunblaðið/Valdís Thor
Silfur Í ár ætlar Hanna S. Magnúsdóttir í fyrsta skipti að láta hluta af ágóð-
anum af sölu jólaskeiðarinnar sígildu renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.
laugur A. Magnússon, sem kom
með fyrstu jólaskeiðina árið 1947.
„Fólk safnar þessu ár eftir ár
og við vitum um ýmsa sem hafa
safnað allt frá upphafi, en jafnvel
þótt fólk hafi ekki byrjað fyrr en
upp úr 1960 er það komið með yf-
ir 40 skeiðar í safnið.“ Skeiðarnar
eru því ótvíræður hluti af menn-
ingararfi þjóðarinnar enda til á
mörgum heimilum. Hanna bendir
á að skemmtilegt sé að rýna í
skeiðarnar frá upphafi því hönn-
un þeirra í gegnum árin endur-
spegli ólíkar tískusveiflur eftir
tímabilum auk þess sem ýmis
þemu hafi verið í hönnuninni.
„Jólaskeiðarnar í kringum 1970
voru til dæmis mjög þjóðlegar,
þær tóku á baðstofumenningunni
og landnáminu. Svo er náttúrlega
alltaf jólaþema,“ Hún bendir þó á
að skeiðarnar séu ekki bundnar
við jólin heldur eigi við hverskyns
sparileg tilefni. „Maður á ekki að
eiga silfur nema maður noti það,“
bætir Hanna við og hlær.
Jólaskeiðin er, eins og alltaf,
aðeins seld í verslun Guðlaugs A.
Magnússonar, en Hanna vekur at-
hygli á því að verslunin er flutt af
Laugavegi, þar sem hún hefur
verið síðan 1952, á Skólavörðustíg
10.
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Verjum
velferðina
Halda Samstöðufund
á Ingólfstorgi
BSRB, Félag eldri borgara í Reykja-
vík, Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir
útifundi á Ingólfstorgi á mánudag kl.
16.30. Tilefni fundarins er óvissu-
ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar,
kjaraskerðing sem nú þegar blasir við
mörgum og síðast en ekki síst hug-
myndir stjórnvalda um stórkostlegan
niðurskurð á útgjöldum til velferðar,
eins og segir í fréttatilkynningu.
„Óvissa um þróun mála á næstu
mánuðum og misserum leggst þungt á
þjóðina. Verst er óvissan fyrir þá sem
mega alls ekki við kjaraskerðingu,
þ.e.a.s. almennt launafólk, fólk sem
þarf að framfleyta sér af lífeyri ein-
göngu eða af atvinnuleysisbótum.
Leggja verður sérstaka áherslu á að
verja kjör hinna verst settu. Þá er það
eindregin krafa að staðinn verði vörður
um velferðarkerfið, þ.e.a.s. félags-
þjónustuna, heilbrigðisþjónustuna, al-
mannatryggingar og loks skólakerfið,“
segir í tilkynningunni.
Ræðumenn á fundinum verða Gerð-
ur A. Árnadóttir formaður Þroska-
hjálpar, Árni Stefán Jónsson varafor-
maður BSRB, Halldór Sævar
Guðbergsson formaður Öryrkjabanda-
lagsins og Margrét Margeirsdóttir for-
maður Félags eldri borgara í Reykja-
vík. Fundarstjóri verður Björg Eva
Erlendsdóttir. Í lok fundarins verður
borin upp ályktun.
FRESTUN á gild-
istöku ákvæða
samningsins um
Evrópska efna-
hagssvæðið, um
frjálsa för launa-
fólks frá Búlgaríu
og Rúmeníu, verð-
ur framlengd til 1. janúar 2012. Jó-
hanna Sigurðardóttir, félags- og
tryggingamálaráðherra, lagði fram
erindi þess efnis á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gær.
Sem kunnugt er ákváðu stjórn-
völd árið 2006 að nýta sér aðlög-
unarfrest til tveggja ára gagnvart
Búlgaríu og Rúmeníu. Löndin tvö
gengu í Evrópusambandið árið
2007. Þessi frestur var sambæri-
legur þeim sem viðhafður var
gagnvart átta löndum ESB 2004.
Frestun verð-
ur framlengd
Orkan til Greenstone
Rangt var farið með efni viljayfirlýs-
ingar Landsvirkjunar og Green-
stone í fréttaskýringu í Morgun-
blaðinu 20. nóvember. Hið rétta er
að Landsvirkjun og Greenstone eru
með í gildi sín í milli viljayfirlýsingu
um raforku fyrir allt að þrjú gagna-
ver og er notkun þeirra áætluð sam-
anlagt um 20-30 MW. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LEIÐRÉTT