Morgunblaðið - 22.11.2008, Page 22
22 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sinnir lögboðn-
um verkefnum sínum allvel, að mati
Ríkisendurskoðunar, en fjárhags-
staða þess er erfið. Ríkisend-
urskoðun segir brýnt fyrir leikhúsið
að sníða sér stakk eftir vexti og leita
leiða til að auka tekjur og minnka
kostnað. Þá þarf það að bæta áætl-
anagerð og árangursstjórnun.
Í gær var birt niðurstaða stjórn-
sýsluúttektar á starfsemi Þjóðleik-
hússins á leikárunum 2003 til 2008.
Ríkisendurskoðun beinir þar ýms-
um ábendingum til stjórnenda leik-
hússins og menntamálaráðuneyt-
isins.
Hvað varðar skipulag og stjórnun
er sagt brýnt að menntamála-
ráðuneytið flýti samningu nýrrar
reglugerðar fyrir leikhúsið því gild-
andi reglugerð sé úrelt. Þá er talið
eðlilegt að starfsemi þjóðleik-
húsráðs verði felld í fastari skorður
en verið hefur. Virkja þarf árang-
ursstjórnarsamning Þjóðleikhússins
og menntamálaráðuneytisins betur
sem stjórn- og eftirlitstæki. Einnig
telur Ríkisendurskoðun rétt að
kanna hvort einfalda megi skipurit
leikhússins enn frekar og að rétt sé
að kanna hvort ráða eigi fram-
kvæmdastjóra að leikhúsinu sem
beri ásamt þjóðleikhússtjóra ábyrgð
á fjármálum þess.
„Að mati Ríkisendurskoðunar eru
verkbókhald og áætlanagerð Þjóð-
leikhússins óviðunandi. Einnig
skortir mjög á daglegt eftirlit með
framfylgd rekstraráætlana. Úr
þessu þarf tafarlaust að bæta,“ segir
m.a. í úttektinni.
Þá kemur fram að mikilvægt sé
að haldið sé utan um tímaskráningu
allra starfsmanna leikhússins og
einnig að halda áfram að fækka fast-
ráðnu starfsfólki „enda eru vísbend-
ingar um að ekki séu kraftar allra
starfsmanna nýttir eins og best
verður á kosið“ eins og segir í út-
tektinni.
Ríkisendurskoðun telur að kanna
eigi hvort hagkvæmt sé að auka
samstarf Þjóðleikhússins við aðrar
menningarstofnanir til að þjóna bet-
ur þörfum almennings, ekki síst ut-
an höfuðborgarsvæðisins. M.a. sam-
starf við Íslensku óperuna. Einnig
er talið mikilvægt að leikhúsið haldi
áfram að leita leiða til að auka að-
sókn að leikverkum sínum. Þá bend-
ir Ríkisendurskoðun á að endur-
skoða eigi reglur um frímiða á
leiksýningar, en þeir munu hafa ver-
ið margir undanfarin ár.
„Gera verður þá meginkröfu að
Þjóðleikhúsið sníði sér stakk eftir
vexti, þ.e. haldi rekstrinum innan
þess ramma sem Alþingi setur því
með fjárlögum,“ segir í skýrslu Rík-
isendurskoðunar. Þá er lögð áhersla
á mikilvægi þess að rekstraráætl-
anir stofnunarinnar og einstakra
verkefna gangi eftir.
Einnig þykir brýnt að rekstrar-
stöðu leikhússins verði komið í jafn-
vægi svo það geti staðið í skilum við
birgja og aðra og „losnað undan
íþyngjandi dráttarvöxtum og úr
spennitreyju lánardrottna“.
Þjóðleikhúsið
sníði sér stakk
eftir vexti
Stjórnsýsluúttekt
á Þjóðleikhúsinu
2003-2008 er lokið
Morgunblaðið/Golli
Úttekt Ríkisendurskoðun ákvað í júní sl. að gera stjórnsýsluúttekt á Þjóð-
leikhúsinu. Hún náði til leikáranna 2003 til 2008. Skýrslan kom út í gær.
Í HNOTSKURN
»Í úttekt Ríkisendurskoð-unar var m.a. kannað hvort
skipulag og stjórnun stuðluðu
að því að Þjóðleikhúsið gæti
sinnt lögbundnum hlutverkum
sínum með hagkvæmum, skil-
virkum og árangursríkum
hætti.
»Einnig var spurt hvort lög-bundnum hlutverkum leik-
hússins væri sinnt með árang-
ursríkum hætti.
»Þá voru kannaðar meg-inástæður rekstrarvanda
Þjóðleikhússins og hvaða leiðir
væru til úrbóta í því samhengi.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sendi frá sér at-
hugasemdir í gær þar sem skýrslu
ríkisendurskoðunar og þeim ábend-
ingum og ályktunum sem þar koma
fram er fagnað.
Jafnframt vekur leikhúsið at-
hygli á nokkrum atriðum. Fyrst að
tímabilið sem skoðað var sé mjög
stutt og gefi því ekki endilega rétta
mynd af þróun rekstrar eða rekstr-
arstöðu Þjóðleikhússins. Bent er á
að um áramótin 2002 og 2003 hafi
uppsafnaður rekstrarhalli leikhúss-
ins verið 90,7 milljónir. Rekja megi
skuldasöfnun á skoðunartíma
skýrslunnar að mestu til vaxta-
kostnaðar vegna fortíðarvandans,
en einnig annarra kostnaðarauk-
andi þátta. Framlög ríkisins hafi
hvorki þróast í takt við neyslu-
verðsvísitölu né launavísitölu og því
lækkað að raungildi. Frá 2005 hef-
ur Þjóðleikhúsið þurft að greiða
leigu fyrir afnot af leikhúsbygging-
unni og kostnaður því stóraukist.
Þá er sagt að ríkur vilji hafi verið
til þess að bregðast við rekstrar-
vandanum. Áætlanagerð og eftir-
fylgni kostnaðar hefur verið efld til
muna. Einnig verður ýtrasta að-
haldi beitt í starfsmannamálum og
yfirvinnu haldið í lágmarki. Stefnt
er að jafnvægi í rekstrinum á fjár-
hagsárinu 2009.
Stefnt að
jafnvægi 2009
mbl.is/moggaklubburinn
Klúbbtilboð
fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Heilsukoddi fylgir
Fullkominn og þægilegur
stuðningur þegar þú sefur. Með
hverju King Koil heilsurúmi, sem
áskrifendur Morgunblaðsins
kaupa, fylgir heilsukoddi.
Verð 7.900 kr.
Moggaklúbburinn
Greiðandi áskrifendur í Mogga-
klúbbnum eru um leið félagar í
Moggaklúbbnum.
Áskrifendur Morgunblaðsins fá King Koil heilsurúm frá Rekkjunni
á 30% afslætti og heilsukodda í kaupbæti. King Koil heilsurúm
eru þau einu á markaðnum sem eru bæði með vottun frá stærstu
neytendasamtökum í Bandaríkjunum (Good Housekeeping) og
alþjóðasambandi kírópraktora (FCER). King Koil þarf aldrei að snúa
því þau hafa aðeins eina svefnhlið. Tveir heilsukoddar fylgja með
tvíbreiðum rúmum, einn með einbreiðu.
Tilboðið sem getur sparað þér frá 62.300 kr.
Frábær afsláttarkjör af King
Koil heilsurúmum
afsláttur
fyrir áskrifendur
Rekkjan, Bláu húsunum Faxafeni