Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 24
24 Skoðun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 H ver getur skilgreint fyrir mig heiminn, fært mér sannleikann á silfurbakka og sagt mér svo óyggjandi sé hvað sé rétt og hvað sé rangt? Mér er stundum bent á villur í málflutningi mínum. Það tel ég hið besta mál. Þær leiðrétti ég þegar og ef færi gefst. Ein þeirra verður skoðuð í þessari grein. En þetta er alveg eðlilegt, af því að ég trúi á spurn- ingarmerkið og réttinn til að skipta um skoðun ef svo ber undir. Það er mikill misskilningur að það að vera samkvæmur sjálfum sér þýði það að vera með eina skoðun allt sitt líf og nú þegar við erum í fangi breyt- inganna þýðir ekkert annað en breytast sjálfur. Þetta eru félagsleg reikningsskil og ber að skoða ábyrgð á hendur stjórnmálamönnum í ljósi þess. Engu að síður reynist mörgum erfitt að viðurkenna hverjir þeir eru og fyrir hvað þeir standa. Engum geðjast að þeirri tilhugsun að vera álitinn óréttlátur og svikull, jafnvel lyginn, og öllum finnst leitt þegar hugsjónir þeirra hrynja til grunna einsog spilaborg. Það er sama hvort það er austurevrópski sósíalisminn fyrir tuttugu árum eða vestræna frjálshyggjan nú. Bæði kerfin hrynja innan frá en reyna að viðhalda sér. En allar slíkar tilraunir leiða til aft- urhalds. Ef við eigum að sitja upp með sömu bankana, sömu ríkis- stjórnina, sömu eftirlitsstofnanirnar, sömu fjölmiðlana þá erum við í virki- lega vondum málum. Þá hefur ekki verið loftað út, andrúmsloftið í þjóð- félaginu verður þungt og nöturleik- inn breiðir úr sér. Samt er þetta oft niðurstaðan af athöfnum okkar, að halda í gamlar hugmyndir. Þetta er staða stjórn- valda núna. Þau reyna með alls kyns undanbrögðum að sanna að þau hafi ekki átt þátt í klúðrinu og sama gildir um auðmennina og eftirlitsstofn- anirnar. Auðmennirnir benda hver á annan, eftirlitsstofnanir þegja og rík- isstjórnin virðist vita minna um sjálfa sig en meginþorri almennings. Man enginn eftir borgarstjóranum sem borið hafði niðurstöður sínar undir lögmenn, fyrrverandi lögmenn og jafnvel mætt á miðilsfundi með fram- liðnum lögmönnum? Það er alveg sama hvernig menn velta málunum. Að lokum er keisarinn flæktur í sinn eigin lygavef og stund sannleikans rennur upp. Viðbrögðin við ræðu Davíðs Oddssonar á Hotel Nordica síðastliðinn þriðjudag eru þannig að stjórnmálamennirnir ætla að sleppa við að svara ásökunum hans en benda þess í stað á formsatriði. Þrátt fyrir að fjölmiðlarnir lofuðu að halda uppi gagnrýni á borgarafundinum í Nasa leyfa þeir stjórnmálamönnum enn að lifa í orðhengilshættinum. Ef aðeins brot af því sem Davíð Odds- son sagði er satt er ríkisstjórnin full- komlega vanhæf. Kannið þetta fyrst og snúið ykkur svo að Davíð. Allt sem var sagt um Davíð að fundi lokn- um vorum við fyrir löngu búin að heyra.    En allt í lagi. Víkjum betur að um- fjöllunarefninu, því að hafa alltaf rétt fyrir sér og axla enga ábyrgð. Þann veruleika fóru ráðamenn í gömlu kommúnistaríkjunum einatt létt með. Þeir gátu kennt heimsvalda- sinnum um eymd sína og volæði af jafn miklum sannfæringarkrafti og Geir Haarde þegar hann vísar til hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu sem kom alveg óvænt inn um gluggann einn morguninn á meðan hann svaf. Leiðtogar austursins gripu líka til sögulegrar nauðsynjar og þeir voru ekki bara leiðtogar líð- andi stundar heldur fararstjórar um framtíð alla. Fyrir mörgum árum sá ég blaðagrein þar sem greint var frá því að Pravda, fyrrverandi málgagn sovéska kommúnistaflokksins, hefði ráðist á umbótasinna, að sögn einn helsta talsmann markaðsvæðingar og einkaframtaks. Pravda, sem þýðir víst sannleikur, hvernig sem það nú passar, sá ástæðu til að greina frá því að téður umbótasinni hefði tíu árum fyrr kennt marxisma í fjallahéruðum Úralfjalla og að þá hefði hann verið jafn ötull talsmaður hinna marxísku kenninga og hann var nú við að boða fagnaðarerindi Mammons. Í fram- haldi af þessu spurði Pravda: Hve- nær laug hann, nú eða fyrir tíu ár- um? Í Sovétríkjunum var marxisminn hluti af valdakerfinu, einhvers konar þjóðfélagsleg rík- istrú, og slík kredda að hann var sett- ur upp í orðabók þar sem fyrirbæri mannlífsins voru skilgreind í staf- rófsröð. Þetta átti auðvitað ekkert skylt við marxisma eða blómaskeið hans um og upp úr 1968. Á þeim tíma var gefið út álíka mikið af bókum um marxisma og nú á dögum er gefið út um matreiðslu og megrun. Áhrif marxismans voru gífurleg, á hugvís- indi, bókmenntir, kvennabaráttu, já á allt nema verkalýðinn sem ætlað var að breyta heiminum. Sá marxismi sem breiddist út um Vesturlönd var Sovétmönnum engan veginn að skapi. Þvert á móti vildu þeir frið- samlega sambúð og hana vildu hægrisinnaðir frjálshyggjumenn líka. Þeir gáfu andstöðuöflunum í Austur-Evrópu engan gaum. Það gerðu frekar litlir hópar til vinstri, stjórnleysingjar af ýmsu tagi. Þessir hópar upplýstu fólk um andstöðuna, skrifuðu greinar, héldu fundi og gáfu út bæklinga. En fáir mættu á fundina og salan á bæklingunum var treg. Þessir hópar voru í tengslum við há- skólaprófessora sem gerðir höfðu verið að götusópurum, verkalýðs- leiðtoga sem unnu við gluggaþvott og landflótta baráttumenn; en það var talað fyrir daufum eyrum. Þeir sem lesa Milan Kundera fá smá nasasjón af þessari veröld. Það var ekki fyrr en múrarnir hrundu að allir vildu Lilju kveðið hafa. Þegar efnt var til sigurhátíða eftir fall alræðisins stóðu baráttumennirnir oft einsog illa gerðir hlutir á meðan salirnir fylltust af frjálshyggjumönnum sem skáluðu, líklega hver fyrir öðrum, enda rann upp sú efnishyggja frjálshyggjunnar sem nánast er lögboðin sjálfselska, þar sem græðgin er göfug og heitir flottum nöfnum, en það er einmitt hún sem við erum að súpa seyðið af.    Þetta þarf ríkisstjórnin að taka til sín. Ef hún gerir ekki skurk í sínum málum, og fer frá, er hætta á að sögubækurnar verði henni afar óhlið- hollar. Við Ingibjörg Sólrún lærðum sagnfræði á sama tíma við Háskóla Íslands. Ég á meira að segja prýði- lega sagnfræðiritgerð eftir hana um sögu verkalýðshreyfingarinnar. Ég segi þetta af því að bara sem sagn- fræðingur á Ingibjörg Sólrún að vita hvernig sagan leikur fólk sem reynir að spyrna gegn réttlátum kröfum fólksins. Hún á að vita að þegar vald- hafar eru ekki að hugsa um neitt annað en að halda völdum og ráða til þess spunameistara úr gamla kerfinu er eitthvað mikið að og pennar fram- tíðarinnar hlífa engum. Dómstóll sögunnar mun fella hryllilega dóma um þessa ríkisstjórn leyfi hún ekki þjóðinni að velja upp á nýtt. Ríkisstjórnin er enn að malda í móinn og hvergi er neina ábyrgð að finna. Það er að renna upp fyrir æ fleirum að þeir sem kafsigldu skút- unni eiga ekki að standa í stafni. Lík- ingarnar streyma út úr fólki. Þeir sem keyrðu með okkur fram af brún- inni með bundið fyrir augun eiga að halda áfram að stjórna ökutækinu. Það er verið að reyna að halda okkur í óbreyttu ástandi með sama fólkinu í sömu stöðum og ef ekki sama fólkinu þá tvíförum þess. Þetta vill enginn og fyrir þann sem fer út á meðal fólksins og ræðir við borgarana er þetta svo augljóst mál. Það sem meira er, þessi vilji er algjörlega óháður því hvaða stjórnmálaflokki fólk tilheyrir eða hefur tilheyrt. Flestir eru raunar ekkert hliðhollir neinum stjórn- málaflokkum og hafi þeir tilheyrt þeim hafa þeir heldur ekkert verið spurðir hvernig þeir vilji að á málum sé haldið. Þetta á sér hliðstæðu í því allsherjar gjaldþroti sem stjórnvöld hafa leitt yfir okkur. Því veldur lítill hópur auðmanna og öll stjórnsýsla landsins, Seðlabanki, Fjármáleftirlit og ríkisstjórn, en þrjú hundruð þús- und manns sitja í súpunni. Íslenska þjóðin var aldrei spurð að því hvort hún vildi axla ábyrgð á Icesave- reikningunum og öðrum skuldbind- ingum sem fylgt hafa þessu gjör- spillta kerfi sem við búum við. Spill- ingin sem hér hefur þrifist og greint er frá erlendum fjölmiðlum er að skapa okkur þann orðstír að Ísland sé einhvers konar Zimbabwe norð- ursins þar sem auðmenn og stjórn- völd taki ákvarðanir í bakher- bergjum og ráðuneyti séu kosninga- skrifstofur þar sem vönduð stjórn- sýsla er sniðgengin og almannahagur að engu hafður. Á meðan enginn sæt- ir ábyrgð og sköpunarverk íslensku auðjöfranna eru ekkert greind frá þjóðinni erum við í vondum málum. Ég gekkst aldrei inn á þessar Ice- save-skuldbindingar og heldur ekki neinn sem ég þekki. Ríkisstjórnin verður að láta þá sem eru valdir að þessum skuldum gera þær upp en ekki að vera tefla okkur íbúum lands- ins gegn blásaklausu fólki. Ríkis- stjórnin ætlar að taka þetta að láni hjá Alþjóðgjaldeyrissjóðnum og sjá svo til. Á meðan er búið að stela af okkur mannorðinu og stoltinu og það eru ekkert annað en svik.    Ætlun mín í upphafi var sú að bregðast við grein sem birtist í Morgunblaðinu föstudaginn 14. nóv- ember og fjallar um ummæli sem ég lét falla í Kastljósi sjónvarpsins. Sá sem skrifar greinina heitir Haraldur Yngvi Pétursson. Hann er titlaður viðskiptafræðingur og fyrrverandi starfsmaður greiningardeildar Kaupþings. Haraldur Yngvi gerir eftirfarandi ummæli mín í Kastljós- inu að umræðuefni: „… þessar grein- ingardeildir virðast hafa verið í vinnu við að ljúga að fólki …“ Haraldur Yngvi álítur að hér fari ég langt yfir strikið en virðir það við mig að ég vinni við slíkt. Ábendingar Haraldar Yngva eiga fullan rétt á sér og ég er reiðubúinn að skoða huga minn í þeim efnum. Það sem ég sé í grein Haraldar Yngva er nefnilega sú auð- mýkt sem fulltrúa bankakerfisins og stjórnmálanna hefur svo sárlega vantað. Haraldur Yngvi segir: „Síð- ustu 18 mánuðina í starfi leiddi ég þann hluta deildarinnar sem hafði með hlutabréfi að gera. Það er alveg ljóst að spár okkar um þróun hluta- bréfamarkaðarins, og verðmæti ís- lensku bankanna, hafa algerlega brugðist.“ Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún gera til dæmis enga grein fyr- ir máli sínu. Jón Ásgeir er beinlínis kokhraustur þegar hann segir að enginn skuli abbast ofan í sitt veski þegar hann og hans skuldsettu yf- irtökur eiga stóran þátt í því að veski stórs hluta þjóðarinnar eru galtóm og gott betur. Þess vegna tek ég ofan fyrir Haraldi Yngva og vil sjá hann koma að því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er. En skoðum nú þau orð sem Har- aldur Yngvi beinir til mín. Hann rit- ar: „Skáldinu lá mjög á hjarta að for- sætisráðherra bæði mótmælendur afsökunar á því að hafa kallað þá skríl. Mér finnst eðlilegt að Einar Már Guðmundsson, búktalari fólks- ins, gefi gott fordæmi með því að biðja starfsfólk greiningardeilda bankanna afsökunar á því að hafa kallað það lygara.“ Já, það geri ég með glöðu geði. Ég bið þig og starfsfólk greiningardeild- anna afsökunar á ummælum mínum. Ég bendi þér hins vegar á að það hvarflar ekki að Geir Haarde að sýna minnstu iðrun. Það er auðvitað rangt að segja að þið í greiningardeild- unum hafið beinlínis verið að ljúga. Greiningardeildirnar voru á hinn bóginn flæktar í lygavef og eiga stór- an þátt í þeirri þjóðfélagsmynd sem við höfum búið við. Til að mynda voru talsmenn greiningardeildanna iðnir við að ýta undir hækkun húsnæð- isverðs. Þá er annað sem verkur at- hygli varðandi starfsmenn greining- ardeildanna og það eru laun þeirra samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar. Flestir þeirra eru með í kringum þrjár milljónir í mánaðar- laun og Edda Rós Karlsdóttir sem oftast tjáir sig sem fulltrúi greining- ardeildanna nú um stundir og situr eflaust í einhverjum skilanefndum, er með yfir sjö milljónir á mánuði. Má ekki búast við að fólk á slíkum launum hafi hag af ríkjandi ástandi? Kannski getur Haraldur Yngvi svar- að þessum spurningum. Tilfinningin sem fólk situr uppi með er sú að hafa verið dregið á asnaeyrunum, haft að fíflum og flestir líta svo á að greining- ardeildirnar hafi verið auglýsinga- stofur bankanna. Er þetta rangt? Mig langar að vitna í tvennt að lok- um, annars vegar erindi sem Lilja Mósesdóttir hélt um viðskiptanám á Íslandi og hins vegar bókmennta- fræðilega túlkun Irmu Erlingsdóttur á orðum Haraldar Ingva. Við- skiptanámið hlýtur að hafa verið sá grunnur sem starfsemi bankanna hvíldi á, að minnsta kosti að ein- hverju leyti. Lilja segir: „Síðastliðinn áratug hafa Íslensk stjórnvöld lagt ofur- áherslu á að koma á samkeppni við- skiptafræðideilda um nemendur, kennara og stuðning einkaaðila. Há- skólana átti að reka eins og hver önn- ur einkafyrirtæki. Stjórnvöld létu viðskiptafræðideildir einkaháskól- anna fá mun minna fjármagn til rannsókna en Háskóla Íslands, þó svo að starfsfólk hans hafi lengi kvartað yfir takmörkuðu rannsókn- arfé. Nýju viðskiptadeildirnar gátu því ekki byggt upp öflugt rannsókn- arstarf samhliða aukinni kennslu- starfsemi. Öflugt rannsóknarstarf er forsenda þess að kennarar og nem- endur geti metið á gagnrýnan hátt stefnu og starfsemi fyrirtækja og stjórnvalda. Samkeppnin átti að þrýsta á hagræðingu í rekstri deild- anna eða búa til straumlínulagaðar deildir en það felur m.a. í sér lág- marksframboð af námskeiðum. Deildirnar höfðu auk þess náin tengsl við atvinnulífið og fulltrúar þess sátu og sitja enn í stjórnum skólanna. Auk þess var mikið lagt upp úr beinum fjárframlögum fyr- irtækja til reksturs skólanna. Það var ekki spurt um hugmynda- fræðilegar afleiðingar þessara tengsla. Áhersla var lögð á að sníða námið að þörfum atvinnulífsins með því m.a. að leggja niður námskeið, sem fólu í sér samfélagslega grein- ingu og samfélagslegan ávinning og í þeirra stað komu námskeið sem ein- blíndu á arðsemisgreiningu eða ávinning einstakra fyrirtækja og ein- staklinga af ýmsum fjárfesting- arkostum. Nemendur fóru því í gegnum viðskiptafræðinám án þess að hafa öðlast djúpa þekkingu á t.d. efnahagslegum forsendum fjár- málakreppunnar á Norðurlöndunum, í Asíu og Suður-Ameríku á tíunda áratug síðustu aldar. Auk þess var lítið svigrúm til að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun eða í að greina aðstæður og draga ályktanir um þær á grundvelli upplýsinga og rannsókn- arniðurstaðna.“ Þessi orð legg ég hér með inn í um- ræðuna og líka þessi orð Irmu Er- lingsdóttur bókmenntafræðings frá því á borgarafundinum á mánudag- inn: „Fyrrverandi starfsmaður greiningardeildar bankanna er ósátt- ur við að Einar Már hafi sagt að greiningardeildirnar hafi verið í vinnu við að ljúga að fólki. Það er ekki lygi að hafa rangt fyrir sér, sagði starfsmaðurinn, ekki frekar en skáldskapur bókmenntanna er lyga- vefur. Starfsmaðurinn leggur starf greiningardeildar að jöfnu við skáld- skap og lygavef. Skáldskapur er tilbúinn veruleiki. Íslenskur raun- veruleiki hefur verið lélegur skáld- skapur í höndum athafnaskálda. Við höfum leyft þessum leirskáldum að skilgreina tilveru okkar. Nú er komið að því að afhjúpa þennan skáldskap sem hefur heimilisfang í Alþingishús- inu við Austurvöll.“ Heimspeki lyginnar Morgunblaðið/Kristinn Einar Már Guðmundsson Eftir Einar Má Guðmundsson Vísitölufjölskyldan Útilegumaðurinn eftir Einar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.