Fréttablaðið - 29.04.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum á fullu að
vinna í því að setja gáttina upp og
fara að vinna gegn svínaflensunni
í Mexíkó,“ segir Magnús Ingi Stef-
ánsson, verkefnastjóri hjá TM
Software, dótturfélagi Nýherja.
Magnús fer fyrir teymi sem
vinnur að þróun og hönnun upp-
lýsinga- og samskiptagáttar fyrir
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) sem
notuð verður til að samræma starf
björgunarsveita og lækna á ham-
farasvæðum víða um heim.
Að sögn Magnúsar Inga var
ákveðið á símafundi með ráðu-
neytisstjóra heilbrigðisráðuneytis
Mexíkós síðdegis í gær að búnað-
inum yrði skilað í dag, miðviku-
dag. „Þetta gengur mjög vel og
er nú gert ráð fyrir að þeir sem
stýra aðgerðum úti taki búnaðinn
í notkun á fimmtudag [morgun],“
segir hann.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur
að svínainflúensan sé orðin heims-
faraldur. Tveir íslenskir einstakl-
ingar, nýkomnir frá Bandaríkjun-
um þar sem flensan hefur greinst,
höfðu sýnt einkenni hennar í gær,
þótt ólíklegt þætti að þeir væru
smitaðir. Viðbúnaðarstig hér á landi
var fært upp í gær og flokkast nú
undir hættustig. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin hefur hækkað hættu-
stig úr 3. stigi í 4. stig, sem þýðir
aðgerðir gegn hópsýkingum.
„Við leggjum til að ferðamenn
sem eru að koma frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku eða Mexíkó hingað
til lands verði upplýstir um að hafa
samband við lækni finni þeir fyrir
einhverjum flensueinkennum,“
segir Haraldur Briem sóttvarna-
læknir sem kveður landinu ekki
verða lokað. „Hins vegar ráðleggj-
um við fólki að fara ekki til Mexíkó
nema brýna nauðsyn beri til.“
Svínainflúensan hafði í gær
borist til Bandaríkjanna, Kanada,
Skotlands, Nýja-Sjálands, Spán-
ar og Ísraels, svo staðfest sé, auk
Mexíkós, þar sem upptökin virðast
vera. Auk þess lék grunur á smiti
í Frakklandi, Svíþjóð, Danmörku
og Noregi.
Síðdegis í gær höfðu rúmlega
150 manns látist í Mexíkó af völd-
um lungnabólgu. Grunur leikur á
að þar hafi svínaflensan verið að
verki í öllum tilvikum, en stað-
festing hafði þó aðeins fengist á
20 þeirra.
- jab, jss, gb / sjá síðu 4 og Markaðinn
MIÐVIKUDAGUR
29. apríl 2009 — 101. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS stendur fyrir örgöngum um
nágrenni Grafarholts nokkra miðvikudaga í röð. Í dag, 29. apríl,
hefst gangan klukkan 19. Gengið er frá hitaveitugeymunum eftir
göngustígnum sunnan byggðarinnar að Sæmundarskóla, með
Reynisvatni norðanverðu, um austurhlíðar Reynisvatnsássins og
yfir ásinn niður að Reynisvatni austanverðu.
„Fólk var opið og vingjarnlegt og bauð okkur upp á það besta sem það mögulega gat,“ segir hinn tví-tugi Gunnlaugur Bragi, sjálfboða-liði hjá Rauða krossinum, eftir vikuferð til Palestínu ásamt Krist-ínu Helgu Magnúsdóttur. „Við vorum reyndar átta saman á aldr-inum 18 ára til tvítugs sem vorum send af landsfélögum Rauða kross Íslands, Danmerkur, Frakklands og Ítalíu og auk þess var farar-stjóri frá hverju landi. Erindiðvar að kynnast ð
heimavinnandi en faðirinn hafði vinnu að nafninu til hjá bygging-arfyrirtæki. „Þau búa í afar þétt-býlli borg sem heitir Qalqilya og þar er búið að byggja á öllu land-svæði sem til er þannig að lítið er um framkvæmdir. Þar af leiðir að innkoman er lítil. Samt sem áður var okkur boðið upp á afar góðan og mikinn mat. Þótt hver og einn borði yfirleitt með áhöldum afmatarfatinu var komiðh d
sem áttu fulltrúa í ferðinni. Með leikjum og verkefnum er unnið með tilfinningar barnanna og þau eru hvött til að rifja upp erfið atvik sem hafa haft áhrif á þau því ofbeldi er mikið í kringum þau og
það smitar út frá sér. En tjáningin hefur orðið til að bæta samskipt-in þeirra á milli og auka lífsgleði. Þetta verkefni byrjaði smátt2000 en h f
Vika á VesturbakkanumGunnlaugur Bragi Björnsson naut gestrisni fátækrar fjölskyldu í Palestínu, kynntist krökkum sem stefna
hátt og komst að því að sálrænn stuðningur sem Rauði krossinn veitir börnum skilar góðum árangri.
„Unga fólkið í Palestínu er bjartsýnt þrátt fyrir að aðstæður séu erfiðar og mikið um atvinnuleysi,“ segir hinn tvítugi Gunnlaugur
Bragi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Hins vegar ráðleggjum
við fólki að fara ekki til
Mexíkó nema brýna nauðsyn beri
til.
HARALDUR BRIEM
SÓTTVARNALÆKNIR
VEÐRIÐ Í DAG
GUNNLAUGUR BRAGI BJÖRNSSON
Naut gestrisni
fátækrar fjölskyldu
• ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Friður og vinátta
Alþjóðlegi
dansdagurinn er
haldinn hátíðlegur
um allan heim
í dag.
TÍMAMÓT 18
BADDI Í JEFF WHO?
Flott kynningarpartí
fyrir íslenska tónlist
Leikari úr Grey‘s Anatomy meðal gesta í LA
FÓLK 30
Sköllóttum
fjölgar
Tryggvi Þór Her-
bertsson einn þriggja
sköllóttra nýliða á
Alþingi.
FÓLK 30
sex saman í p
akka
VIÐSKIPTI Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir, Bakkavararbræður,
segja það ekki vera markmið sitt
að komast yfir hlut annarra hlut-
hafa í Exista. Þetta kemur fram
í grein sem þeir skrifa í Frétta-
blaðið í dag.
Nýlega sendu Lýður og Ágúst
þúsundum hluthafa í Exista gögn
vegna yfirtökutilboðs. Þeir segja
það eingöngu tilkomið vegna
lagalegra kvaða um að bjóða
öðrum hluthöfum að velja hvort
þeir selji hlutabréf sín eða kjósi
að vera áfram hluthafar. Þeir
hvorki letji né hvetji hluthafa til
að selja hlut sinn. Sjá síðu 16
Bakkavararbræður um Exista:
Segjast ekki
stefna á yfirtöku
„Ég hló
og grét
frá fyrstu
blaðsíðu.“
ADELE PARKS
FRUMÚTGÁFA
í kilju
HLÝTT Í dag verður stíf suðaustan
átt 8-15 m/s hvassast suðvestan
til. Rigning suðaustanlands, hætt
við vætu sunnan og vestan til
annars þurrt og léttskýjað fyrir
norðan. Hiti allt að 17 stigum hlýj-
ast nyrðra.
VEÐUR 4
9
10 16
12
7
Íslenskt forrit gegn flensunni
Sameinuðu þjóðirnar fá í dag íslenskan hugbúnað til að samræma starf þeirra sem stýra aðgerðum gegn
svínaflensunni í Mexíkó. Tveir Íslendingar bíða læknisskoðunar. Landlæknir varar við ferðum til Mexíkó.
LÖGREGLUMÁL Talið er að þrjár konur hafi beðið í bíl
fyrir utan hús eldri hjóna á Arnarnesinu á laugar-
dagskvöld á meðan tveir karlmenn fóru inn og
rændu fólkið með vopnavaldi. Ein kvennanna er
barnabarn fólksins, samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Hún hefur verið í óreglu.
„Við höfum það alveg þokkalegt miðað við aðstæð-
ur,“ segir Ásgerður Helgadóttir. Hún segir erfitt til
þess að hugsa sé það rétt að barnabarn hennar teng-
ist málinu.
Annar ræningjanna sló Ásgerði í höfuðið, en hún
segist öll að koma til. Það sé léttir að árásarmenn-
irnir sitji bak við lás og slá eftir snör viðbrögð lög-
reglu.
Mennirnir, sem voru grímuklæddir og vopnaðir
hnífum, hótuðu fólkinu lífláti. Þeir voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald til 19. maí í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Lögregla fór fram á varðhaldið vegna
almannahagsmuna, segir Friðrik Smári Björgvins-
son, yfirlögregluþjónn rannsóknardeildar hjá Lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins.
Tveir karlar og tvær konur voru handtekin vegna
málsins á mánudag. Karlarnir og önnur konan ját-
uðu þátt sinn í málinu. Þá var kona handtekin í gær,
og játaði hún einnig að tengjast málinu. Konunum
var sleppt úr haldi í gær.
Málið er nú talið upplýst að mestu, en eftir er að
hnýta lausa enda, segir Friðrik Smári. - bj, jss
Menn sem rændu eldri hjón á Arnarnesi úrskurðaðir í þriggja vikna varðhald:
Barnabarnið beið í bílnum
Markalaust í
Barcelona
Chelsea og
Barcelona skildu
jöfn í fyrri
leik liðanna í
undanúrslitum
Meistaradeildar-
innar.
ÍÞRÓTTIR 26
Í GÆSLUVARÐHALD Mennirnir tveir sem réðust inn á eldri hjón á Arnarnesinu á laugardagskvöld voru leiddir fyrir dómara í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vinnur að sólóplötu
Hallvarður Þórsson er dauðvona
en ætlar að ljúka við fyrstu plötu
sína áður en hann kveður.
FÓLK 30
LÝÐUR
GUÐMUNDSSON
ÁGÚST
GUÐMUNDSSON