Fréttablaðið - 29.04.2009, Page 6
MENNING Svo gæti farið að steinda
glugganum í kórglugga Akureyrar-
kirkju yrði skilað til Bretlands,
fari kirkjustjórnin í Coventry fram
á það.
Glugginn er upphaflega úr dóm-
kirkju heilags Mikjáls í Coventry, og
er einn af þeim gluggum sem talið
er að hafi verið stolið áður en þeir
komust í eigu íslensks kaupanda
á stríðsárunum. Þær voru teknar
úr dómkirkjunni árið 1939 áður en
Þjóðverjar gerðu loft-árásir á borg-
ina. Fimm þeirra eru nú í Áskirkju,
ein í íbúðarhúsi að Dyngjuvegi 4 í
Reykjavík og ein í Akureyrarkirkju
sem fyrr segir.
Dr. David Porter, dómprófastur
frá Coventry, mun halda til Akur-
eyrar og ræða um friðar- og sátta-
starf sem unnið hefur verið frá því
að dómkirkjan varð fyrir eyðilegg-
ingunni. Með honum verður dr.
Kanyon Wright prestur, en hann
reyndi að koma á sambandi milli
Akureyrarkirkju og dómkirkjunn-
ar í Coventry eftir að dagblað þar
í borg greindi frá því að einn af
gluggunum væri að finna á Akur-
eyri.
Hjálmtýr Heiðdal vinnur nú að
heimildarmynd um þessa sögu og
segir hann að David Porter sé í
raun ekki líklegur til að bera fram
kröfur um að rúðunum verði skil-
að. Bæði vegna þess að hann sé sátt-
fús maður og eins gæti reynst afar
flókið að sýna fram á það lagalega
að dómkirkjan í Coventry væri rétt-
mætur eigandi. „En ef þeir myndu
sækja það fast að fá rúðurnar þá
tel ég að sóknarnefndin myndi ekki
vilja standa í vegi fyrir því,“ segir
Rafn Sveinsson, formaður sóknar-
nefndar Akureyrarkirkju. Birgir
Arnar, kollegi hans í Áskirkju, er
hins vegar ekki þeirrar skoðunar.
„Eftir því sem við best vitum þá
voru þessir gluggar fengnir með
löglegum hætti og síðan gefnir
kirkjunni af góðum hug þannig að
það var ekki neitt ólöglegt í kring-
um það,“ segir hann. „Og ef allir
hlutir eiga að fara á sína uppruna-
legu staði þá yrði tómlegt á söfn-
unum hjá Bretum svo þetta yrði
óheppileg krafa hjá þeim.“ Hjálmtýr
segir að vísbendingar um að þessa
glugga sé víðar að finna hér á landi
en vill þó ekki láta meira uppi um
það. jse@frettabladid.is
Er þú sátt(ur) við úrslit alþingis-
kosninganna?
Já 59,4%
Nei 40,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Óttast þú að svínaflensan berist
til Íslands?
Segðu þína skoðun á visir.is
6 29. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Stolnir breskir kirkjugluggar
í guðshúsum og íbúðarhúsi
Steinda glugga úr breskri dómkirkju er að finna í tveimur íslenskum kirkjum og einu íbúðarhúsi hér á landi.
Formaður sóknarnefndar Akureyrarkirkju segir að vilji Bretarnir fá rúðurnar verði líklega orðið við því.
1939 Gluggarnir teknir úr dóm-
kirkjunni og komið fyrir á
„öruggum“ stað. Flestir þeirra
höfðu verið settir í kirkjuna
á árunum 1853 til 1871 ein-
hverjir voru þó frá 15. öld.
1940 Þjóðverjar gera loftárásir á
ensku borgina Coventry.
1942/3 Helgi H. og Kristján Zöega
kaupa rúðurnar í fornmuna-
og listaverkaverslun í London.
Þær upplýsingar fylgja
þeim að þær hafi verið það
eina sem ekki eyðilagðist í
dómkirkju heilags Mikjáls í
Coventry.
Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstjóri á Akureyri,
kaupir eina af þessum rúðum
sem passar í kórgluggann á
Akureyrarkirkju. Hann gefur
kirkjunni gluggann.
1960 Gerðar eru eftirmyndir af
henni, þær eru í gluggum sitt-
hvoru megin við kórgluggann.
1984 Unnur Ólafsdóttir listakona
og maður hennar Óli M.
Ísaksson, höfðu keypt aðrar
myndarúður sem hingað
komu frá dómkirkjunni í Cov-
entry. Unnur lést árið 1983
og ári síðar gaf Óli, sem lengi
var kenndur við bílaumboð-
ið Heklu, Áskirkju rúðurnar
nema eina sem hann heldur
eftir á heimili sínu að Dyngju-
vegi 4 í Reykjavík. Hún er þar
enn.
1981 Grein birtist í dagblaði frá
Coventry sem segir frá því
að rúðurnar úr dómkirkjunni
séu í kirkju á Íslandi; Akur-
eyrarkirkju. Kirkjustjórnin í
Coventry óskar þess að koma
á sambandi milli kirknanna
tveggja. Því er vel tekið en
málið lognast svo útaf. Sú
krafa heyrist í Bretlandi að
þeir fái rúðurnar aftur.
2009 Dr. David Porter dómprófastur
frá Coventry og dr. Kanyon
Wright, sem vildi koma á sam-
bandi kirknanna árið 1981,
munu fara til Akureyrar 9. maí.
MYNDARÚÐURNAR FRÁ COVENTRY
NÝLAGAÐUR
PLOKKFISKUR
GLÆNÝR ÞORSKUR
ÚR BREIÐAFIRÐI
KRISTUR Í ÁSKIRKJU Fimm
steinda glugga úr dómkirkjunni í
Coventry er nú að finna í Áskirkju
í Reykjavík.
LÖGREGLUMÁL Samkomulag hefur
náðst í kjaradeilu lögreglumanna
og Lögreglu höfuðborgarsvæðis-
ins. Fyrirhuguðum breytingum
á vinnufyrirkomulagi lögreglu-
manna á vöktum hefur að mestu
verið frestað til hausts.
„Við munum leggja mikla vinnu
í að ná sátt í málinu og sú vinna
mun hefjast strax í fyrramálið,“
segir Arinbjörn Snorrason, for-
maður Lögreglufélags Reykjavík-
ur. Fjölmennur félagsfundur var
haldinn vegna málsins seinnipart
dags í gær.
Lausn málsins byggir á mála-
miðlunartillögu lögreglufélags-
ins. Henni hafði áður verið hafnað
af yfirstjórn lögreglunnar. „Þetta
er hið besta mál, ég vona að þetta
lægi öldurnar,“ segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá
Lögreglu höfuðborgarsvæðsins.
Hann segir að nú verði unnið hörð-
um höndum að því að ná samkomu-
lagi fyrir júníbyrjun um valkvæð-
an vinnutíma lögreglumanna frá
og með 1. september.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær snýst deilan um breyt-
ingar á vinnufyrirkomulagi.
Forsvarsmenn lögreglufélags-
ins töldu að verið væri að bæta við
þremur vinnudögum í mánuði án
þess að auknar greiðslur kæmu á
móti. - bj
Samkomulag í kjaradeilu lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu eftir félagsfund:
Breytingum frestað til hausts
FUNDAÐ Talsverður fjöldi lögreglu-
manna ræddi vinnufyrirkomulag á fundi
í gær. Fremstur er Arinbjörn Snorrason,
formaður Lögreglufélags Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heimildir meðal annars fengnar úr
grein Karls Smára Hreinssonar í Les-
bók Morgunblaðsins, 23. apríl 2005.
„Ég vissi ekkert um þessa sögu þar til um síðustu helgi, þetta var bara fínn gluggi í mínum huga,“ segir Björn Fróðason
sem býr í húsinu að Dyngjuvegi 4. Síðasta laugardag fékk síðan Karl Smári Hreinsson að taka kvikmynd í húsinu fyrir
heimildarmyndina sem hann er að gera með Hjálmtý Heiðdal og þá fékk Björn alla sólarsöguna. „Maður lítur á glugg-
ann með mun meiri lotningu núna,“ bætir hann við.
Írene Liberopoulos, eigandi hússins, er hálfgrísk og segir það nokkuð undarlega tilhugsun að vera með eitthvað í
húsinu sem Bretar kunni að gera tilkall til. eir eru nú með ótal fornmuni frá Grikklandi og jafnvel búnir að skemma
hluta af þeim, rúðan er hins vegar vel geymd,“ segir hún kankvís.
LÍTUR Á GLUGGANN MEÐ MEIRI LOTNINGU EN ÁÐUR
Á DYNGJUVEGINUM Steindi glugginn úr dómkirkjunni í Coventry vekur eiganda hússinn meiri lotningu eftir að hún komst að
uppruna hans. Innfelda myndin er nærmynd af glugganum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TRÚMÁL Álag á Hjálparstarf
kirkjunnar hefur aldrei verið
meira en nú, og hjálparbeiðn-
um fjölgar stöðugt eftir því sem
fleiri missa vinnuna, sagði Karl
Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í
ræðu sinni á prestastefnu í gær.
Þegar skoðaðar eru tölur frá
hjálparstarfinu kemur fram að
fjölgun þeirra sem sækjast eftir
aðstoð er mest í yngsta aldurs-
hópnum, sagði Karl.
Framlög sókna og ýmissa
félagasamtaka og fyrirtækja
hafa verið með mesta móti í
vetur, og fleiri sjálfboðaliðar
komið til aðstoðar, sagði biskup.
- bj
Biskup Íslands á prestastefnu:
Mikið álag á
hjálparstarfið
WASHINGTON, AP Bandaríski öld-
ungardeildarþingmaðurinn
Arlen Specter tilkynnti í gær
að hann hafi
gengið til liðs
við Demókrata-
flokkinn, en
hann hefur
verið þingmað-
ur Repúblík-
anaflokksins
fyrir Pennsil-
vaníuríki frá
árinu 1981.
Specter
gagnrýndi stefnu Repúblíkana-
flokksins og sagði flokkinn hafa
færst of mikið til hægri. Hann
telji sig þess vegna eiga meiri
samleið með demókrötum.
Demókratar réðu áður yfir 58
þingsætum af 100 í öldungadeild-
inni, en hafa nú aukið meirihluta
sinn um einn mann.
Þeir buðu Specter í gær vel-
kominn. - bj
Söðlar um í öldungadeildinni:
Demókrötum
fjölgar um einn
ARLEN SPECTER
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti fyrirskipaði í
gær rannsókn á tildrögum þess
að þota forsetaembættisins flaug
lágflug nærri Frelsisstyttunni í
New York-borg í gær. Talið er að
rannsóknin muni taka eina viku.
Lágflug forsetaþotunnar og
orrustuþotu sem fylgdi henni olli
fjölmörgum borgarbúum ótta,
enda árásir á tvíburaturnana 11.
september 2001 borgarbúum enn
í fersku minni.
Tilgangurinn var að ná mynd-
um af þotunni með frelsistytt-
una í bakgrunni.
Talsmaður Obama sagði í gær
að forsetinn væri „æfur“ yfir
þessum mistökum. - bj
Þota forsetans olli ótta:
Hringsólaði við
frelsisstyttuna
KJÖRKASSINN